Morgunblaðið - 26.02.2005, Side 53
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 26. FEBRÚAR 2005 53
VW-Touareg V8, hvítur, árg.
2004, 4.2 vél, ek. 17 þús. Mikill
aukabúnaður m.a. hækkunarb. á
fjöðrum o.fl. o.fl. Verð 6.890 þús.
Staðgr. 6,3 m. Gullfallegur bíll.
Sími 861 8661.
Alternatorar og startarar í
fólksbíla, vörubíla, vinnuvélar og
bátavélar. Á lager og hraðsend-
ingar. 40 ára reynsla.
Bílaraf, Auðbrekku 20,
sími 564 0400.
Ökukennsla Reykjavíkur ehf.
Ökukennsla akstursmat.
Gylfi Guðjónsson
Subaru Impreza,
696 0042/566 6442.
Gylfi K. Sigurðsson
Nissan Almera,
892 0002/568 9898.
Snorri Bjarnason
Toyota Avensis, bifhjólak.
892 1451/557 4975.
Sverrir Björnsson
Volkswagen Passat,
892 4449/557 2940.
Vagn Gunnarsson
Mersedes Benz,
894 5200/565 2877.
Ævar Friðriksson
Toyota Avensis '02,
863 7493/557 2493.
Glæsileg ný kennslubifreið,
Subaru Impreza 2004, 4 wd.
Akstursmat og endurtökupróf.
Gylfi Guðjónsson,
símar 696 0042 og 566 6442.
Skiddo MXZ 670 HO (125 hp) '99.
Góður sleði sem hefur fengið gott
viðhald, ekinn um 6 þús. km. 25
mm nýlegt belti. Brúsagrind. List-
averð 365 þús. Uppl. í síma 892
6305, Baldur.
Triton LT-101. 12" álkerra, Slush-
guard, Quickslide-festingar, lauf-
létt, frábær í umgengni. Verð 230
þús. Upplýsingar í síma 897 7571,
554 7571.
Varahlutir í Land Cruiser 92-94
vél 4,2 TD. Sjálfskipting, gírkassi,
hásingar, driflæsingar, innrétting,
bodyhlutir o.m.fl. Uppl. í s. 824
8004 og 853 7011.
VW Polo, bsk., árg. '99. Ek. 53
þús. km. Beinsk. Ný sumardekk
á álfelgum. Vetrardekk á stálfelg-
um. CD. Verð kr. 640 þús. Engin
skipti. Símar 840 5028/699 2086.
Toyota Corolla Wagon árg. '97,
ek. 125 þ. Verð 520 þ. Hvítur.
Dráttarkrókur, sumar- og vetrard-
ekk. Lítur vel út að utan og innan.
Uppl. 896 3082/568 7877, netfang:
oeo@hi.is
Renault, árg. '00, ek. 68 þús. km.
Til sölu Megané Classic. Spari-
eintak, þjónustubók, 15" álf. Áhv.
bílalán. Uppl. í síma 845 0539.
Volvo Cross Country Volvo XC70
station AWD 2.5 turbo. Nýskr.
07/2003. Ekinn 24 þús. Eins og
nýr. Verð 4.040 þús. Ekki skipti.
Sími 824 5365.
Í TILEFNI 100 ára afmælis Iðn-
skólans í Reykjavík færðu Jacob
De Muijnck sölustjóri GIRA GmbH
í Þýskalandi og Rikharð Sigurðs-
son, framkvæmdastjóri S. Guðjóns-
sonar ehf., umboðsaðili GIRA á Ís-
landi rafmagnssviði Iðnskólans í
Reykjavík raflagnaefni til forrit-
anlegra raflagna að verðmæti
400.000.
Rikharð Sigurðsson afhenti skól-
anum efnið. Baldur Gíslason skóla-
meistari Iðnskólans í Reykjavík tók
við gjöfinni fyrir hönd skólans.
EIB (European Installation Bus) er
staðlað stýrikerfi sem samtök
helstu rafbúnaðarframleiðenda í
Evrópu hafa þróað og staðlað.
Myndin er tekin við afhendingu
gjafarinnar. Frá vinstri: Erlingur
Kristjánsson sviðsstjóri raf-
iðnasviðs, Jacob De Muijnck frá
GIRA í Þýskalandi, Rikharð Sig-
urðsson frá S. Guðjónsson ehf.,
Baldur Gíslason skólameistari Iðn-
skólans í Reykjavík, Sigurður
Strange kennari og Þorsteinn
Pálsson brautarstjóri rafvirkjunar.
Iðnskólinn í Reykjavík fær
gjöf í tilefni 100 ára afmælis
FRÉTTIR
Störf haldist í
heimabyggð
BÁRAN stéttarfélag hefur sent frá
sér eftirfarandi samþykkt um sam-
einingu mjólkursamlaga:
Stjórn Bárunnar stéttarfélags
skorar á bændur á Suðurlandi að
standa vörð um hagsmuni sína og
starfsfólks MBF á Selfossi þannig
að störf haldist í heimabyggð og
verði áfram lyftistöng atvinnu-
starfsemi á Suðurlandi.
NÝLEGA var opnuð á Laugavegi
85 verslunin Gjafir jarðar, sem sér-
hæfir sig í vörum sem tengjast and-
legri ræktun og vellíðan. Eigendur
verslunarinnar eru Herdís Björns-
dóttir og Tinna María Emilsdóttir.
Á boðstólum eru m.a. kristallar,
hráir steinar, slípaðir steinar, reyk-
elsi, slökunar- og hugleiðslutónlist,
spákúlur, Tarot-spil, steina-
orkuarmbönd og silfur- og steina-
skartgripir frá Nepal og Brasilíu.
Fyrirtækið flytur inn vörurnar og
selur einnig í heildsölu til verslana
og fyrirtækja. Þá hefur verslunin
einnig á boðstólum til heimilisnota
svokallað Detox Systems-tæki, sem
hefur skilað góðum árangri við að
afeitra og jafnvægisstilla líkama og
sál.
Verslunin er opin alla virka daga
kl. 12–18 og laugardaga kl. 11–16
Ný verslun við Laugaveg
þá þarf að greiða gjald. Við teljum að
sá sem er bara að leika sér myndi
stoppa við þann þröskuld og ekki
greiða fyrir að vera með leiðindi,“
segir Selma og tekur fram að annars
kosti ekkert að nýta sér Makaleit.is.
Verið að bregðast við
ákveðinni eftirspurn
Að sögn Selmu virkar þjónustan
þannig að einstaklingur skráir sig
sem notanda og þarf því næst að setja
inn upplýsingar um persónuleika sinn
sem séu mjög ítarlegar, enda mikið
lagt í það að bera saman kosti, vænt-
ingar, áhugamál og önnur persónu-
einkenni skráðra notenda svo hver og
einn finni þá manneskju sem passar
best við hann. Selma tekur fram að
ekki sé að finna neinar upplýsingar
um nafn, netfang eða síma, hins vegar
kjósi margir að setja inn myndir.
Spurð hvers vegna farið sé af stað
með þessa vefþjónustu nú segir
Selma í raun verið að bregðast við
ákveðinni eftirspurn því það að finna
einhvern sem er á sömu bylgjulengd
og maður sjálfur geti verið bæði erfitt
og tímafrekt og stundum sé það bara
hrein heppni.
VEFÞJÓNUSTA sem nefnist Maka-
leit.is hóf nýlega göngu sína. Að sögn
Selmu Hrannar Maríudóttur, vef- og
ritstjóra vefjarins, er hér um að ræða
skemmtilega, gagnvirka og örugga
vefþjónustu fyrir fólk sem er alvara
með að finna lífsförunaut eða félaga.
Aðspurð segir Selma viðtökur hafa
verið einstaklega góðar.
„Það kemur okkur skemmtilega á
óvart hvað þetta byrjaði með miklum
látum, en nú þegar hafa mörg hundr-
uð manns skráð sig og eru það miklu
betri viðtökur en við höfðum þorað að
vona. Því miður hafa svona stefnu-
mótavefir fengið á sig ákveðið óorð,
en það skal tekið fram að þessi vefur
er ekki vettvangur fyrir gift fólk í leit
að viðhaldi.“
Eitt af því sem gerir Makaleit.is
öruggari en aðra stefnumótavefi er,
að sögn Selmu, að hver einasta skrán-
ing fer í samþykktarferli. „Þannig
synjum við sjálfkrafa skráningum
sem innihalda óviðeigandi orðbragð
eða kynlífslýsingar. Hin aðferðin sem
við grípum til í því skyni að losna við
fólk sem er bara að fíflast er að þegar
notandi á frumkvæði að því að hafa
samband við einhvern annan í kerfinu
Nýr stefnumóta-
vefur fer vel af stað
Lögrétta stofnar
menningarsjóð
STOFNAÐUR hefur verið Menning-
arsjóður Lögréttu, félags laganema
við Háskólann í Reykjavík. Sjóðnum
er ætlað að vera bakhjarl fræða-
starfs Lögréttu þegar sérstaklega
stendur á, en þegar sjóðurinn hefur
vaxið mun hann styrkja rannsóknir
og verkefni félagsmanna Lögréttu
og starfsmanna lagadeildar Háskól-
ans í Reykjavík á sviði lögfræði og
lögfræðitengdra málefna.
Stjórn sjóðsins skipar forseti laga-
deildar Háskólans í Reykjavík
hverju sinni, formaður Lögréttu
hverju sinni og þriðji aðili skipaður
af þeim í sameiningu. Fyrsta stjórn
Menningarsjóðs Lögréttu skipa
Þórður S. Gunnarsson fyrir hönd
lagadeildar Háskólans í Reykjavík,
Gunnar Egill Egilsson fyrir hönd
Lögréttu og Andri Gunnarsson laga-
nemi við Háskólann í Reykjavík.
Sjóðurinn er stofnaður með
250.000 kr. framlagi frá lagadeild
Háskólans í Reykjavík og 250.000
króna framlagi frá Lögréttu. Sjóð-
urinn verður fjármagnaður í fram-
tíðinni með framlagi frá Lögréttu og
utanaðkomandi styrkjum. Sjá nánar
um sjóðinn: www.viska.is/Logretta/
Menningarsjodur/.
HELGINA 26.–27. febrúar mun fé-
lagið Vinir Afríku (www.vinirafr-
iku.is) taka á móti notuðum barnaföt-
um í Kolaportinu. Fötin verða send til
Kenýa og þeim dreift til mun-
aðarlausra barna í og við borgirnar
Kisumu og Migori í vesturhluta Ken-
ýa.
Vinir Afríku er félag sem vinnur í
samvinnu við sjálfboðaliða í Kenýa og
Zambíu að ýmsum verkefnum í þess-
um löndum. Þar má nefna
Malaríuverkefni, þar fara heima-
menn í þorp og halda vikulega
fræðslufundi um fyrirbyggjandi að-
gerðir og smitleiðir en Vinir Afríku
leggja til moskítónet sem dreift er til
barna yngri en 5 ára og barnshafandi
kvenna eftir að fræðslunni lýkur.
Árlega verða 80-90.000 börn í Ken-
ýa munaðarlaus. Fyrir 1.500 kr. má
sjá barni fyrir tveimur máltíðum á
dag og greiða auk þess kostnað vegna
náms í upphafi skólaárs.
Vinir Afríku safna fötum
fyrir börn í Kenýa
Í Korando-miðstöðinni, skammt frá borginni Kisumu við Viktoríuvatn.
Hópur eldri kvenna sér hópi munaðarleysingja fyrir mat með því að fram-
leiða og selja múrsteina og leirskálar.
MÁLÞING verður haldið um erfða-
breytt matvæli, áhrif og áhættu
ræktunar og neyslu, að Grand
Hóteli, við Sigtún í Reykjavík, kl.
16, þriðjudaginn 1. mars. Sigríður
Anna Þórðardóttir, umhverf-
isráðherra, flytur ávarp. Stein-
grímur Hermannsson, fv. ráð-
herra, opnar heimasíðu um
erfðabreyttar afurðir. Dr. Carlo
Leifert frá Newcastle háskóla flyt-
ur erindi um áhrif ræktunar og
neyslu erfðarbreyttra afurða og
tekur þátt í pallborðsumræðu
ásamt dr. Kesöru A. Jónsson og
dr. Ólafi R. Dýrmundssyni. Fund-
arstjóri verður Jónas Kristjánsson
ritstjóri.
Málþing um erfðabreytt matvæli