Morgunblaðið - 12.03.2005, Side 1
STOFNAÐ 1913 69. TBL. 93. ÁRG. LAUGARDAGUR 12. MARS 2005 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS mbl.is
Sérstæður
dansstíll
Dansarar í Pilobolus og Íslenska
dansflokknum brugðu á leik | Menning
HELSTU stjórn-
málafylkingar sjíta
og Kúrda í Írak
hafa náð sam-
komulagi um
skiptingu veiga-
mestu embætta í
væntanlegri ríkis-
stjórn. Á sama
tíma herða ýmsir
sjítar á kröfum
um, að landið verði
sambandsríki.
„Þessu verki er
að ljúka og við munum ganga endanlega
frá því á mánudag,“ sagði Ali al-Dabagh,
talsmaður kosningabandalags sjíta, en
nýtt þing á að koma saman á miðvikudag.
Samkomulag er um, að Kúrdinn Jalal
Talabani verði forseti landsins og varafor-
setarnir tveir verði sjíti og súnníti. Ekki
er þó enn vitað hverjir. Kúrdar fá eitt
mikilvægt ráðherraembætti, einu færra
en þeir kröfðust, en þeir munu styðja sjít-
ann Ibrahim al-Jaafari sem forsætisráð-
herra.
Kúrdar hafa fallist á að færa her sinn,
100.000 manns, undir stjórnarherinn en
vilja hins vegar ekki samþykkja, að aðrir
en Kúrdar verði í stjórnarhernum í
Kúrdahéruðunum. Samkomulag er hins
vegar um, að um 100.000 Kúrdar fái að
snúa aftur til olíuborgarinnar Kirkuk en
Saddam Hussein, fyrrverandi forseti, rak
þá þaðan og lét araba koma í þeirra stað.
Þá verða landamörk Kúrdahéraðanna
endurskilgreind til að Kirkuk verði innan
þeirra.
Vilja sambandsríki
Saddraddin Kubanji, áhrifamikill sjíta-
klerkur í borginni Najaf, hvatti í gær til,
að stofnað yrði sérstakt sambandsríki
sjíta í Mið-Írak. Sjítar í Suður-Írak, þar á
meðal í Basra, hafa einnig lýst yfir áhuga
á sérstöku sambandsríki þar. Þrjú Kúrda-
héruð í Norður-Írak njóta nú í raun fullr-
ar sjálfstjórnar.
Ný stjórn
að fæðast
í Írak
Bagdad. AP, AFP.
Jalal Talabani, næsti
forseti Íraks.
ÞAÐ munaði 48 krónum á verði
vörukörfunnar hjá Bónus og
Krónunni í verðkönnun Morg-
unblaðsins í gær í fjórum lág-
vöruverðsverslunum á höf-
uðborgarsvæðinu. Bónus var með
lægsta verðið, karfan þar kostaði
3.219 krónur en Krónan fylgdi
fast á hæla Bónuss með körfuna
á 3.267 krónur. Í Kaskó kostaði
innihald körfunnar 3.665 krónur
við kassa. Í Nettó var verðið
hæst, karfan kostaði 4.218 krónur
við kassa þar. Munar 999 krónum
á verði körfunnar í Bónus og
Nettó.
Í Bónus og Krónunni var lægra
verð á körfunni við kassa miðað
við hilluverð. Í Nettó var verðið
hinsvegar hærra við kassa.
Hjá Krónunni var alltaf ósam-
ræmi í verði á hillu og við kassa
og í Bónus var ósamræmi í þrett-
án tilvikum af tuttugu og einu.
Hjá Kaskó var alltaf sama verð á
hillu og við kassa og hjá Nettó
var einnig alltaf samræmi á hillu
og við kassa nema í einu tilfelli.
Mikill verðmunur var á ein-
staka vörum, t.d. reyndist 2.280%
munur á hæsta og lægsta verði á
gulum melónum og 892% verð-
munur á rauðum vínberjum.
Þessi mikli verðmunur end-
urspeglar þá verðsamkeppni sem
nú ríkir á markaðnum því kílóið
af melónum var selt á fimm krón-
ur í Bónus í gær en á hundrað og
nítján krónur í Nettó. Margir við-
skiptavinir nýttu sér í gær hag-
stætt verð á ýmsum nauðsynja-
vörum í lágvöruverðsverslunum
og fylltu körfur af matvælum.
Dæmi voru um að sumar vörur
væru skammtaðar til við-
skiptavina eins og mjólk og gos.
Kaskó alltaf
með sama verð í
hillu og á kassa
Munurinn 48 krónur á vöru-
körfu í Bónus og Krónunni
Morgunblaðið/Árni Torfason
Viðskiptavinur hleður vörum í innkaupakörfu í Kaskó í Vesturbergi.
Kaskó alltaf/27
HAFÍSINN úti fyrir Vestfjörðum
og Norðurlandi gæti borist inn á
Norðausturmið og Austfjarðamið
í norðanáttinni sem spáð er fram
eftir næstu viku. Ekki er talið úti-
lokað að hafís kunni að reka inn á
firði og eru m.a. fiskeldismenn í
Mjóafirði á varðbergi vegna
hættu á að ís kunni að reka inn í
fjörðinn og ógna eldiskvíum Sæ-
silfurs.
Þór Jakobsson veðurfræðingur
segir ríka ástæðu til að fylgjast
vel með hvort ísinn færist austur
með landinu. Fulltrúar Almanna-
varna og Veðurstofunnar fund-
uðu í gær um útlitið.
Á árunum 1965 og 1968 kom
hafís inn á firði á Austfjörðum.
„Þá fylltust hér allir firðir,“ segir
Sigfús Vilhjálmsson, oddviti í
Mjóafirði.
Hafísbrúnin var aðeins í 6 mílna
fjarlægð frá Grímsey í gærkvöldi.
Grímseyingar eru viðbúnir því
að verða umluktir hafís og hafa
birgt sig upp. Að sögn Óttars Jó-
hannssonar, oddvita, kom Sæfari í
gær með vararafstöð og vír til að
strengja fyrir höfnina ef þörf
krefur til að verja báta og hafn-
armannvirki. Olíubirgðir eru í
eyjunni til allt að þriggja mánaða.
„Það lamast allt atvinnulíf hér ef
þetta gengur eftir,“ sagði Óttar
Jóhannsson./8 og 33
Hafís gæti ógnað eldiskvíum
Morgunblaðið/Helga Mattína
Grímseyingar birgja sig upp. Sæfari kom með vararafstöð, búnað, olíu og vistir til Grímseyjar í gær.
Lokað í Bónus
á sunnudag
„BÓNUSVERSLANIRNAR verða
lokaðar á sunnudaginn. Starfs-
fólkið er orðið örmagna og við
ætlum að hafa lokað svo fólkið
okkar geti hlaðið batteríin fyrir
mánudaginn,“ segir Guðmundur
Marteinsson, framkvæmdastjóri
Bónuss.
„Bónus er með 450 manns í
vinnu og hér er verið að vinna
frá því eldsnemma á morgnana
og langt fram eftir nóttu við að
fylla á tómar hillur. Starfsfólk
okkar hefur daglega verið að
þjónusta á bilinu 20.000–32.500
viðskiptavini og gera um 1.400
verðbreytingar á hverjum degi
og nú þarf það einfaldlega
hvíld.“
NÁMSMAÐUR í Portúgal, Anselmo að
nafni, vildi flikka dálítið upp á bílinn
sinn, og þá einkanlega númeraplöturnar,
sem voru orðnar ansi beyglaðar. Hann
tók þær af en þegar hann kom aftur með
þær sléttar og fínar, komst hann að því,
að lögreglan var búin að sprengja bílinn í
tætlur.
Lögreglan í bænum Evora, sem er um
150 km suðaustur af Lissabon, segir, að
hún hafi verið látin vita af því, að einhver
maður hafi fjarlægt númeraplötur af bíl
og síðan hraðað sér brott. Lögreglan
hafði þá engar vöflur á, skundaði á vett-
vang, girti bílastæðið af og sprengdi bíl-
inn í loft upp. Þegar námsmaðurinn ungi
kom aftur með númeraplöturnar var ver-
ið að sópa saman ruslinu.
Talsmaður lögreglunnar segir, að hún
hafi brugðist hárrétt við enda verið viss
um, að þarna hafi hryðjuverkamaður
verið á ferð og bíllinn hlaðinn sprengi-
efni.
Hvar er
bíllinn minn?
Lissabon. AFP.
♦♦♦
SPRENGING
varð í gær við
höfuðstöðvar
Sameinuðu
þjóðanna í
Pristina í Kos-
ovo og var einn
maður fluttur
særður á
sjúkrahús. Ekki
var ljóst hvort
um var að ræða árás, sem beint
var gegn SÞ, en mikil spenna er í
héraðinu eftir að forsætisráðherra
héraðsins gaf sig fram við Al-
þjóðasakamáladómstólinn í Haag
en hann er sakaður um stríðs-
glæpi.
Gæsluliðar SÞ og lögreglan í
Pristina lokuðu miðborginni eftir
að sprengjan sprakk en hún var
ekki mjög öflug, hugsanlega hand-
sprengja.
Grunnt á ofbeldinu
Sú ákvörðun Ramush Harad-
inaj, forsætisráðherra Kosovo, að
gefa sig fram og svara til saka
hefur kynt undir ótta við nýja of-
beldisöldu í héraðinu. Haradinaj
var einn af leiðtogum andspyrnu
albanska meirihlutans gegn Serb-
um í Kosovo-stríðinu 1998–1999
og er sakaður um stríðsglæpi
gegn óbreyttum borgurum, Serb-
um og sígaunum, til dæmis nauðg-
anir og morð.
Sprenging
í Pristina
Pristina. AP, AFP.
Ramush Haradinaj
Lesbók, Börn, Íþróttir og m
Lesbók | Ofvaxin vörumerki Evrópuskáldsagan og íslenska
samhengið Börn | Páskar Keðjusagan Íþróttir | Jóhannes Karl
spáir í bikarinn ÍR og Fjölnir unnu m | Tímarit um mat og vín