Morgunblaðið - 12.03.2005, Síða 4
4 LAUGARDAGUR 12. MARS 2005 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
FRESTUR til að skila
inn framboði til for-
manns Samfylkingar-
innar rann út í fyrra-
dag. Eins og búist var
við skiluðu Össur
Skarphéðinsson, núver-
andi formaður, og Ingi-
björg Sólrún Gísladótt-
ir varaformaður inn
framboði. Kynnti Ingi-
björg framboð sitt á
blaðamannafundi á
miðvikudag undir slag-
orðinu „alla leið“.
„Þessa stundina eru
ég og stuðningsmenn
mínir að vinna ýmis-
konar undirbúnings- og
grasrótarvinnu. Okkar
formlega kosningabarátta hefst
ekki fyrr en síðar. Þá mun koma í
ljós með hvaða hætti ég mun
leggja málstað míns framboðs fyr-
ir,“ segir Össur.
Hann viðurkenndi að margt í
stöðunni benti til þess að hann
ætti á brattann að sækja. Hann
þyrfti stuðning allra sem teldu að
Samfylkingin hefði verið á réttri
leið undir hans forystu. Sá stuðn-
ingur færi vaxandi, ekki síst frá
ungu fólki, víða um landsbyggðina
og í hópi eldri borg-
ara. Ljóst væri að
hann hefði starfað
lengi sem þingmaður
Reykvíkinga og þeg-
ar kosningastarfið
hæfist af fullum
krafti mundi hann
ekki síst sækja
stuðning til þeirra.
Össur segist vera
þeirrar skoðunar að
best sé fyrir Sam-
fylkinguna að kosn-
ingabaráttan verði
stutt. Hann hafi allt-
af gert það sem
hann hafi talið
flokknum fyrir bestu
og heitir því að af
hans hálfu verði keppnin drengileg
í hvívetna.
Úrslit liggja fyrir 21. maí
Kjörstjórn Samfylkingarinnar
hefur ákveðið að formaður verði
kosinn í póstkosningu og verða
kjörseðlar sendir út til flokks-
manna 22. apríl.
Kosningu lýkur 19. maí og verða
úrslit tilkynnt á landsfundi Sam-
fylkingarinnar sem haldinn verður
21. maí.
Formannsslagur í Samfylkingunni
Össur finnur fyrir
vaxandi stuðningi
Össur
Skarphéðinsson
„OKKUR hefur verið
tekið hér með kostum
og kynjum og verið
sýndur mikill sómi,“
segir Halldór Blön-
dal, forseti Alþingis,
en hann var í gær,
ásamt Jóni Baldvin
Hannibalssyni sendi-
herra og Helga Bern-
ódussyni, skrifstofu-
stjóra Alþingis,
viðstaddur hátíðar-
höld í Litháen í tilefni
af því að 15 ár eru
liðin frá því að lithá-
íska þingið samþykkti
að lýsa landið sjálf-
stætt og fullvalda ríki.
„Við snæddum hádegisverð með
Vytautas Landsbergis [fyrrverandi
forseta litháíska þingsins] og síðan
sátum við hátíðarfund í Seimas
[þings Litháen], sem hófst klukkan
hálfsjö í kvöld. Okkur þótti mjög
vænt um að forseti Seimas, Art-
ûras Paulauskas, ávarpaði okkur,“
segir Halldór.
Paulauskas ávarpaði fyrst Hall-
dór Blöndal sem forseta Alþingis
og minntist þess sérstaklega að Ís-
lendingar hefðu verið fyrstir til
þess að viðurkenna sjálfstæði
Litháens. Stóð þingheimur upp að
loknu ávarpinu.
Því næst ávarpaði
hann Jón Baldvin
Hannibalsson og
minntist þess að
hann sem utanríkis-
ráðherra heimsótti
Litháen á mjög ör-
lagaríkum tíma í jan-
úar 1991 og stóð
þingheimur aftur
upp að loknu ávarp-
inu.
„Þetta endurspegl-
aði þann vinskap og
þá virðingu sem
Litháar vilja sýna
okkur Íslendingum,“
segir Halldór.
Bauð Paulauskas í heimsókn
til Íslands næsta sumar
,,Við áttum síðan mjög góðan
fund með forseta þingsins þar sem
farið var yfir atburðina 1990 og
1991 í kringum yfirlýsingu okkar
Íslendinga til viðurkenningar á
sjálfstæði Eystrasaltsríkjanna.
Jafnframt töluðum við nokkuð um
samskipti landanna,“ segir Halldór.
Bauð hann Paulauskas þingfor-
seta ásamt eiginkonu og þingmönn-
um að heimsækja Íslendinga næst-
komandi sumar og segist Halldór
vonast til þess að af þeirri heim-
sókn geti orðið.
Forseti Alþingis var ásamt sendinefnd
viðstaddur hátíðahöld í Litháen
Halldór Blöndal
Hefur verið
tekið með kost-
um og kynjum
Verkfræðingar semja
UNDIRRITAÐUR hefur verið
nýr kjarasamningur milli Stétt-
arfélags verkfræðinga og ríkis-
ins annarsvegar og ríkisins og
Kjarafélags Tæknifræðinga-
félags Íslands hins vegar.
Samningurinn gildir til 30.
apríl 2008. Með samningnum
eru félagsmönnum tryggðar
auknar greiðslur í Lífeyrissjóð
verkfræðinga. Tekin verður upp
ný launatafla eins og önnur há-
skólafélög hafa samið um. Að
öðru leyti er samningurinn svip-
aður og önnur háskólafélög hafa
gert.
HARTNÆR tvö þúsund manns voru
á árshátíð Leikskóla Reykjavík-
urborgar í Egilshöll í gærkvöldi og
mun þetta vera ein alfjölmennasta
árshátið sem haldin hefur verið hér
á landi. Til stóð að halda árshátíð-
ina í Broadway en þar sem aðsókn-
in var langt umfram væntingar var
hún færð í Egilshöllina þar sem Sál-
in lék fyrir dansi að loknu borð-
haldi.
„Við bjuggumst við um það bil
1.200 manns en svo sprakk þetta
upp í allan þennan fjölda eða yfir
1.900 manns og þá var ákveðið að
flytja árshátíðina,“ segir Arnar
Laufdal, framkvæmdastjóri og eig-
andi Broadway. Hann segir kosta
mikla vinnu að undirbúa árshátíð af
þessari stærð og sem dæmi megi
nefna að meira en 15 þúsund hlutir
séu á borðunum. „Það eru 130
manns á fullu að vinna undirbún-
ingnum núna [í gærdag] en tæplega
150 manns koma að þessu í heild-
ina. Við höfum verið með allt upp í
1.250 manns til borðs hér í Broad-
way en aldrei tæplega tvö þúsund
manns eins og núna.“
En hvað fengu gestirnir svo að
snæða? „Við erum með sjávarrétt-
arsalat í forrétt, lambainnanlær-
isvöðva með postulínsgljá í aðalrétt
og síðan erum við með konfektköku
með íslenskum bláberjum í eft-
irrétt,“ segir Arnar.
Nær tvö þúsund manns á árshátíð
STJÓRN Félags fréttamanna efndi
til félagsfundar í gær þar sem m.a.
var farið yfir „lagalegar skyldur
varðandi réttindi og skyldur frétta-
manna gagnvart Ríkisútvarpinu,“ að
sögn Jóns Gunnars Grjetarssonar,
formanns félagsins.
Engin ákvörðun liggur þó fyrir um
næstu skref, en Jón Gunnar segir að
margir félagsmenn velti alvarlega
fyrir sér hver í sínu horni að segja
upp, þar sem þeir telji að vegið hafi
verið að starfsheiðri þeirra með
ákvörðun útvarpsstjóra að ráða Auð-
un Georg Ólafsson í stöðu frétta-
stjóra Útvarps.
Frekari gagna krafist
Á fundinn mætti lögfræðingur fé-
lagsins og fór yfir lagalega hlið á
ráðningarferlinu og segir Jón Gunn-
ar að væntanlega verði farin sú leið
að krefjast frekari gagna og upplýs-
inga um ráðningarferlið.
Þá hefur stjórn félagsins óskað
eftir fundi með útvarpsstjóra til að
ræða þá stöðu sem upp er komin.
Að loknum félagsfundi tók annar
óformlegur fundur fréttamanna við.
G. Pétur Matthíasson, fréttamað-
ur Sjónvarpsins, segir að margir hafi
íhugað þá stöðu að segja upp störf-
um, sem fyrr segir.
„Við erum alveg ótrúlega ósátt við
þetta og þó að það liggi ekki fyrir
nein niðurstaða um aðgerðir [í gær]
erum við hvergi nærri hætt og mál-
inu er ekki lokið af okkar hálfu,“ seg-
ir hann.
Farið yfir lagalegar skyldur fréttamanna gagnvart RÚV
Fréttamenn óska eftir
fundi með útvarpsstjóra