Morgunblaðið - 12.03.2005, Side 18
18 LAUGARDAGUR 12. MARS 2005 MORGUNBLAÐIÐ
VIÐSKIPTI/ATHAFNALÍF
● AVION Group hefur fengið Boeing
747-400 flugvél sem áður var í eigu
Singapore Airlines afhenta. Vélin er í
eigu hollensks fyrirtækis en er leigð
af Avion Group. Vélin verður notuð til
fraktflugs og er í rekstri hjá Air Atl-
anta Icelandic.
Þetta er þriðja Boeing 747-400
vélin í flugflota Air Atlanta Icelandic
en hinar tvær eru áframleigðar til
spænska flugfélagsins Iberia. Nýju
vélinni verður breytt í fraktvél í Ísrael
og verður þetta fyrsta Boeing 747-
400 fraktvélin á íslenskri skrá.
Fyrsta flugvél
sinnar tegundar
!"#"$
% "&' (&
)* &# +&(&
)#&
,&' (& % "&'
-$"
-$'
$ !"#
.# /
01$/
01 !/ $ &#(
2
! 1 % "&'
3 &'
31 /&
3 45 6 7(&
,89& /5 &&
:;$/
0%!
0" <"# 0"&'
0"1 =
>=##  &
? && " &
415 11 609($#
!
(
! $"' @=//
,&' 81 % "&' >9 9
"#
$%
AB@C
08
$
6
6
6
6
6
6
6
6
6
6
6
6
$= &#
= $
6
6
6 6 6
6 6
6 6
6
6 6
6
6
6
6
6
6
6
6
6
6
6
6
6
6
6
6
6
6
6
D EF
D 6
EF
D 6EF
6
D 6EF
6
D EF
D EF
D 6EF
D EF
6
6
D 6 EF
6
6
6
6
6
6
6
6
6
6
6
6
6
6
6
6
6
6
3$ "'
'# &
> "( 8 " '# G
) 0"
6
6
6
6
6
6
6
6
6
6
6
6
6
6
? 8 *+
>3 H #&" !/"'
6
6
6
6
6
6
6
6
6
6
6
6
>36 I 1 1"'&' " "/ >36 0="' " "$##/ 1 = "( $ &
ÞETTA HELST ...
VIÐSKIPTI
GUNNAR Felixson, fráfarandi for-
stjóri Tryggingamiðstöðvarinnar,
gagnrýndi harðlega vinnubrögð
starfsfólks Samkeppnisstofnunar í
ræðu sinni á aðalfundi TM í gær.
Tók Gunnar til umfjöllunar tvö
mál sem verið hafa til meðferðar hjá
Samkeppnisstofnun. Annars vegar
mál sem hófst árið 1997 með húsleit í
starfstöðvum SÍT og Íslenskrar end-
urtryggingar og lokið var með sátt
sl. vor. Hins vegar svokallað Capas-
mál sem hófst á árinu 2002 og lokið
var með sátt í síðasta mánuði.
Gunnar sagði niðurstöðu fyrra
málsins hafa verið viðunandi en svo
hefði ekki verið í Capas-málinu. „Ég
hef hingað til álitið að rannsóknar-
eða eftirlitsaðilar ættu að kanna mál
af óhlutdrægni og ekki fyrirfram að
gefa sér sekt eða sakleysi þeirra að-
ila sem til skoðunar væru. En
reynsla mín af þessum málum er
önnur. Ég get ekki betur séð en að
starfsmenn stofnunarinnar hafi gef-
ið sér sekt okkar fyrst og síðan reynt
að tína allt til til að undirbyggja slíka
niðurstöðu.
Langtímum saman var ekkert til-
lit tekið til rökstuddra andsvara og
sannleikanum ýtt til hliðar í lengstu
lög. Svo virðist sem starfsfólk stofn-
unarinnar trúi frekar sleggjudómum
götunnar eða ásökunum talsmanna
neytendasamtaka og stjórnmála-
manna, sem hag hafa af því að tor-
tryggja tryggingafélögin, en gögn-
um þeim sem fyrir þeim liggja,“
sagði Gunnar. Telur hann ljóst að
„þessi gagnrýnisverðu vinnubrögð
Samkeppnisstofnunar“ hafi skaðað
tryggingafélögin verulega. „Við höf-
um legið undir ámæli viðskiptavina
okkar ómaklega um árabil. Og það er
alvarlegt mál þegar meginástæða
þess er óvönduð vinnubrögð opin-
berra eftirlitsaðila,“ sagði Gunnar.
Afskráning umhugsunarefni
„Það hlýtur að vera eigendum og
stjórnendum Tryggingamiðstöðvar-
innar umhugsunarefni á næstu mán-
uðum, í ljósi þröngs eignarhalds og
lítilla viðskipta, hver framtíð félags-
ins er í Kauphöll Íslands,“ sagði
Gunnlaugur S. Gunnlaugsson,
stjórnarformaður félagsins, á aðal-
fundinum. Minntist hann á miklar
sviptingar í íslensku viðskiptalífi á
undanförnum árum sem hefðu m.a.
leitt til þess að bæði Sjóvá og VÍS
hefðu verið afskráð úr Kauphöll Ís-
lands. „Er nú svo komið að TM er
eina skráða tryggingafélagið í Kaup-
höllinni,“ sagði Gunnlaugur. „Í kjöl-
farið af yfirtökum á Sjóvá-Almenn-
um tryggingum og VÍS hafa tengsl
bankanna og tryggingafélaganna
eflst mjög, sem og sameiginleg
markaðssetning og sölustarfsemi.
Augljóst er að við þurfum að mæta
þessu með enn öflugri þjónustu við
viðskiptavini okkar og skapa okkur
sérstöðu sem viðskiptavinurinn kann
að meta.“
Gunnlaugur tilkynnti á fundinum
að starfsmönnum TM í fullu starfi,
og öðrum hlutfallslega, yrði greiddur
150 þúsund króna kaupauki vegna
ársins 2004. Þá samþykkti fundurinn
að greiða 100% arð eða rúmar 932
milljónir króna.
Trúa frekar sleggju-
dómum götunnar
Morgunblaðið/Árni Torfason
Gagnrýni Gunnar Felixson gagnrýndi harðlega vinnubrögð starfsfólks
Samkeppnisstofnunar á aðalfundi TM í gær.
BANKARÁÐ Landsbanka Íslands
hefur ákveðið að hækka hlutafé
bankans um 800 milljónir króna að
nafnvirði, eða um 9,88%, með áskrift
nýrra hluta. Verður hlutaféð selt til
núverandi hluthafa bankans á sölu-
genginu 14,25. Heildarsöluverð
nýrra hluta er því 11,4 milljarðar
króna.
Halldór J. Kristjánsson, banka-
stjóri Landsbankans, segir að þessi
ákvörðun sé í samræmi við heimild
sem veitt var á aðalfundi bankans í
byrjun febrúarmánaðar. „Þetta er til
að auka hlutaféð bæði til að styrkja
eiginfjárstöðuna í ljósi þess vaxtar
sem varð á síðasta ári, og enn fremur
til að styrkja fjárhagsstöðu bankans
til áframhaldandi vaxtar á þessu
ári,“ segir Halldór.
Samtals verða 100 milljónir króna
að nafnvirði af hinu nýja hlutafé not-
aðar til að bjóða þeim hluthöfum,
sem eiga 100 þúsund krónur að nafn-
verði eða minna, að kaupa að
minnsta kosti 10 þúsund krónur að
nafnverði, sem jafnframt verður
minnsti hlutur sem hægt verður að
kaupa í útboðinu. Segir Halldór að
þetta sé sérstaklega gert til þess að
auka hlutdeild smærri hluthafa í
hluthafahópnum.
Í tilkynningu frá Landsbankanum
segir að ef ekki næst að selja alla
hina nýju hluti til núverandi hluthafa
hafi bankastjórnin heimild til að leita
kaupenda að því sem eftir stendur af
útgáfunni. Skulu þá hlutir annað-
hvort vera seldir með því að bjóða
hluthöfum aukinn hlut eða með því
að leita kaupenda utan hluthafahóps
bankans. Skulu hlutir þá boðnir á
sama verði og stóð hluthöfum til
boða.
Hlutafé Landsbankans
aukið til frekari vaxtar
Morgunblaðið/Brynjar Gauti
Aukning Stefnt er að því að hlut-
deild smærri hluthafa í Landsbanka
Íslands verði sérstaklega aukin í
hlutafjárútboðinu.
ÞÓTT liðin séu hátt í tuttugu ár
man Björgólfur Thor Björgólfsson
það ennþá þegar lögreglan barði að
dyrum á heimili foreldra hans einn
morgun og tók föður hans, Björgólf
Guðmundsson, með til yfirheyrslu.
Þegar klukkan var orðin átta að
kvöldi dags, og ekkert hafði spurst
til föður hans, kveikti Björgólfur
Thor á sjónvarpinu og sá í fréttum
að faðir hans hafði, ásamt öðrum
stjórnendum Hafskipa, verið
hnepptur í varðhald. Þannig hefst
grein í bandaríska viðskipta-
tímaritinu Forbes þar sem fjallað er
um þennan eina
Íslending sem
kemst á lista
tímaritsins yfir
500 ríkustu menn
í heimi, Forbes
500, en grein
þessi er forsíðu-
frétt í tímaritinu.
Þá segir að all-
ar götur frá því
þetta gerðist hafi
Björgólfur Thor
róið að því öllum árum að end-
urreisa orðstír fjölskyldunnar.
„Virðing er mér efst í huga. Völd
og peningar eru aðeins leiðin til
virðingar “ segir hann í viðtali við
Forbes.
„Eins og forfeður hans víking-
arnir varð Björgólfur Thor reiður,
hefndi sín og varð mjög ríkur,“ seg-
ir í greininni.
Ekki of valdamikill
Í greininni er rakinn ferill Björg-
ólfs allt frá því að hann útskrifaðist
með gráðu í fjármálafræði frá New
York háskóla árið 1991. Farið er yf-
ir viðskipti hans í Rússlandi og í A-
Evrópu auk þess sem fjallað er um
viðskipti hans hérlendis, kaupin á
Landsbankanum og Eimskip auk
samruna Pharmaco og Delta í Ac-
tavis. Forbes segir hann þó ekki
vilja eignast óvini í landi sem er að
verða of lítið fyrir hann. Hann vilji
ekki vera álitinn of valdamikill á Ís-
landi.
„Ég hef öðlast þá virðingu sem
ég vildi. Nú get ég hafið seinni
helming lífs míns,“ segir Björgólfur
Thor að lokum.
Meðal þeirra yngstu
Á lista Forbes yfir þá einstaklnga í
heiminum sem eiga yfir einn millj-
arð Bandaríkjadollara er samtals
691 milljarðamæringur. Björgólfur
Thor er númer 488 á listanum. Ef
aldur þeirra sem eru á listanum er
skoðaður er Björgólfur Thor sá 16.
yngsti, 38 ára að aldri.
Í leit að
virðingu
Björgólfur Thor
Björgólfsson
þar haft eftir talsmanni Bakkavarar
að yfirtökutilboðið snerist um út-
þenslu en ekki fækkun starfa.
Þá segir í The Business að for-
svarsmenn Geest telja að samruni
við Bakkavör sé skynsamlegur í ljósi
tilþrifamikilla breytinga nýverið á
breskum matvörumarkaði. For-
svarsmenn Bakkavarar eru sagðir
ætla sér að viðhalda uppbyggingu
rekstrar Geest en þeir hafi ekki tekið
fram hvort grípa þurfi til uppsagna á
starfsfólki við samrunann.
Haft er eftir stjórnarformanni
Geest, John Banham lávarði, að
stjórnin hafi tekið vel tilboði Bakka-
varar enda sé þar á ferðinni fyrir-
tæki sem sé staðráðið í að stækka
enn frekar á markaði fyrir ferskar
tilbúnar matvörur. Auk þess sé
„VIÐ höfum uppskriftina að ár-
angri,“ hefur Telegraph eftir Ágústi
Guðmundssyni, stjórnarformanni
Bakkavarar, en breskir fjölmiðlar
hafa síðustu daga fjallað um fyrir-
hugaða yfirtöku Bakkavarar Group
á Geest.
Uppskriftina segir Ágúst byggða
á að fá stjórnendur Geest til að
starfa áfram hjá fyrirtækinu. Þeirra
á meðal er forstjórinn Gareth Voyle,
en laun hans verða hækkuð úr 345 í
500 þúsund pund nái kaupin fram að
ganga, að því er segir í frétt Tele-
graph.
Í frétt icBirmingham segir einnig
frá launahækkun Voyle en þar kem-
ur fram að Bakkavör hafi ekki tekið
ákvörðun um hvort aðrir stjórnend-
ur verði áfram hjá fyrirtækinu. Er
margt líkt með gildum og markmið-
um fyrirtækjanna tveggja. Blaðið
segir að gengið verði frá samningum
um kaupin á Geest um miðjan maí,
að því gefnu að samþykki 75% hlut-
hafa fáist.
Lélegir í fótbolta
Hvers vegna Ísland, 280 þúsund
manna þjóð? spyr icBirmingham, og
svarar því til að ein ástæðan geti ver-
ið tengslin við fjármálamenn í Birm-
ingham á Englandi og getuleysi
þeirra í fótbolta.
Segir frá Guy Green, einum af eig-
endum ráðgjafarfyrirtæksins Evers-
heds sem vinnur með Bakkavör að
kaupunum á Geest. Green kynntist
forsvarsmönnum Bakkavarar þegar
þeir sóttust eftir að kaupa Wine &
Dine árið 2001 en hann sá þá um ráð-
gjöf fyrir Wine & Dine. Ári síðar,
þegar Bakkavör sóttist eftir að
kaupa Katsouris Foods var Green
þeim til ráðgjafar og kynnti þá fyrir
fjármálamönnum í Birmingham, þ.e.
hjá Bank of Scotland, Royal Bank og
HSBC. Green mun á hinn bóginn
hafa komist í kynni við og líkað vel
við menn frá KB banka og Baugi.
Fleiri bættust í hópinn, bæði Bretar
og Íslendingar.
Þar kom að Green skoraði á Ís-
lendingana í fótbolta og er skemmst
frá því að segja að Íslendingarnir
lögðu bresku fjármálamennina 6-1 í
leik sem háður var á Íslandi og 2-0 í
seinni leik þeirra í Bretlandi. Segir
blaðið að sjálfstraust víkinganna hafi
aukist talsvert við þetta.
Uppskriftin að árangri Bakkavarar
● HEILDARVIÐSKIPTI í Kauphöll Ís-
lands námu 5,4 milljörðum króna í
gær. Þar af voru viðskipti með hluta-
bréf fyrir 4,4 milljarða. Úrvalsvísitala
Kauphallarinnar hækkaði lítillega,
eða um 0,1%, og er lokagildi hennar
3.845 stig.
Af úrvalsvísitölufyrirtækjunum
hækkaði gengi Bakkavarar mest,
eða um 2,8%. Bréf Flugleiða lækk-
uðu hins vegar mest, eða um 2,0%.
Hlutabréf hækkuðu almennt í
verði í helstu kauphöllum Evrópu í
gær.
Lítilsháttar hækkun
í Kauphöllinni
: 'J
0KL E
E
!>0@
MN
E
E
BB .-N
E
E
)!N
: $
E
E
AB@N MO 7&$
E
E