Morgunblaðið - 12.03.2005, Qupperneq 24

Morgunblaðið - 12.03.2005, Qupperneq 24
Vorsýning Kynjakatta verður haldin 12. og 13. mars 2005 í reiðhöll Gusts, Álalind, Kópavogi. Sýningin er opin frá klukkan 10 - 18 báða dagana. Akureyri | Fjórða Íslands- mótinu í krullu lauk í Skauta- höllinni á Akureyri í vikunni með fjórum leikjum. Fyrir lokaumferðina var ljóst hvaða lið hrepptu gull og silfur, Fimmtíuplús sigraði með yf- irburðum, Kústar höfðu þegar tryggt sér silfurverðlaun og Skytturnar náðu þriðja sæt- inu. Öll liðin sem þátt tóku í mótinu eru úr röðum Krullu- deildar Skautafélags Akureyr- ar. Lið skipað leikmönnum 50 ára og eldri sigraði með yf- irburðum á mótinu, vann alla átta leiki sína og hlaut 16 stig, 5 stigum meira en næsta lið. Liðið heldur í næstu viku í víking til Skotlands til þátt- töku á heimsmeistaramóti leikmanna 50 ára og eldri. Í liðinu, sem keppti á Ís- landsmótinu undir heitinu Fimmtíuplús, eru þeir Gísli Kristinsson, Hallgrímur Vals- son, Sigurgeir Haraldsson, Ágúst Hilmarsson og Júlíus Fossberg Arason. Morgunblaðið/Kristján Fimmtíuplús meistarar Sóparar Höfuðborgin | Akureyri | Suðurnes | Landið | Árborg Minnstaður Höfuðborgarsvæðið Brjánn Jónasson, brjann@mbl.is, sími 569-1100. Suðurnes Helgi Bjarnason, helgi@mbl.is, sími 569-1310 og 669-1310. Akureyri Margrét Þóra Þórsdóttir, maggath@mbl.is og Kristján Kristjánson, krkr@mbl.is, sími 461-1600. Vesturland Ásdís Haraldsdóttir, asdish@mbl.is, sími 898-5258. Austurland Steinunn Ásmundsdóttir, aust- urland@mbl.is, sími 669-1115. Árborgarsvæðið og Landið Helgi Bjarnason, helgi@mbl.is, sími 569-1310 og 669-1310 og Guðrún Aðalsteinsdóttir, frett@mbl.is, sími 569-1290. Mínstund frett@mbl.is Þingmennska er eitthvað sem, sumir að minnsta kosti, láta sig dreyma um. Íbúar Grundarfjarðar fengu tækifæri til þess á dögunum að gerast þingmenn í einn dag. Reyndar var þingstaðurinn ekki við Aust- urvöll heldur á Jeratúni þar sem sal- arkynnin voru ekki af verri endanum, nýtt og glæsilegt húsnæði Fjölbrautaskóla Snæ- fellinga. „Bjóðum tækifærunum heim“ var yfirskriftin og þingstörfum stjórnaði ráð- gjafafyrirtækið Alta. „Þetta byrjar allt á orðum,“ sagði stjórnandinn, „og síðan er að láta verkin tala.“ Hugmyndir, ábendingar og tillögur streymdu frá þingfulltrúum og var þeim safnað dyggilega og haldið til haga. Síðan er það bara spurningin hvort þinghaldið skili einhverju til bættara sam- félags. Það mun tíminn leiða í ljós.    Marsipanterta á boðstólum er tákn um að eitthvað merkilegt hafi gerst í Grundarfirði. Fyrir skömmu birtist hafnarvörðurinn með eina slíka í vigtarskúrnum að morgni dags og hafði kallað á hafnarstjórann, sjálfan bæjarstjórann, til þess að skera fyrstu sneiðina. Fastagestir í vigtarskúrnum vissu ekki hvaðan á sig stóð veðrið því bollarnir höfðu meira að segja verið þvegnir. Um ástæðu veisluhaldanna upplýsti síðan hafn- arstjórinn í snjallri ræðu þar sem fram kom að á land í Grundarfjarðarhöfn hafði í febr- úarmánuði borist mesti afli síðan mælingar hófust. Og síðan var skálað í bleksterku kaffi.    Höfnin er lífæð Grundfirðinga, það kom berlega í ljós á áðurnefndu íbúaþingi og þegar þátttakendur voru beðnir að nefna tækifæri í framtíðaruppbyggingu staðarins var Grundarfjarðarhöfn efst í huga flestra. Frystihótel er í burðarliðnum, það er að segja staður til að safna saman frystum fiski áður en hann er fluttur til vinnslu. Skemmtiferðaskip eru farin að venja komu sína til Grundarfjarðar en 10 slík munu hafa viðkomu í höfninni á komandi sumri. Aug- lýst hefur verið nýtt deiliskipulag fyrir hafnarsvæðið með nýjum vegi sem tengir saman smábátahöfn og skipahöfn og svæði þar sem gert er ráð fyrir hafnsækinni starf- semi þannig að fram undan eru áfram bjart- ir tímar í Grundarfirði.    Hitaveita er nú væntanlega í sjónmáli hjá Grundfirðingum en heita vatnið hefur streymt upp úr borholunninni í bráðum eitt ár frá því að það fannst við austanverðan Kolgrafarfjörð. Á íbúaþinginu sáu menn ýmsa möguleika í heita vatninu en það sem bar hæst var ný sundlaug sem opin væri allt árið. Úr bæjarlífinu GRUNDARFJÖRÐUR EFTIR GUNNAR KRISTJÁNSSON FRÉTTARITARA Menningar- ogsafnanefndBlönduóssbæjar hefur ákveðið að auglýsa eftir kynningarlagi fyrir sumarhátíðina Mat og menningu sem fram fer á Blönduósi í sumar. Texti lagsins verður að vísa til hátíðarinnar. Keppt verð- ur í Félagsheimilinu 15. júlí en sama dag verður hagyrðingakvöld. Kemur þetta fram á vef Húna- hornsins. Ýmislegt verður á Mat og menningu. Í Kvennaskólanum verður sýning sem Aðalbjörg Ingvarsdóttir mun annast. Ungmennasamband Aust- ur-Húnvetninga mun standa fyrir almennings- hlaupi. Þá er stefnt að opnun hafíssafns í Hilde- brandtshúsi fyrir hátíðina. Kynningarlag Þakkartónleikar fyr-ir stuðning fyr-irtækja, fé- lagasamtaka og einstaklinga við kaup á nýju rafmagnspíanói til nota í Grunnskólanum á Blönduósi voru haldnir í Blönduóskirkju í vikunni. Aðalhvatamaður að söfn- uninni, Hugrún Sif Hall- grímsdóttir kennari, bauð upp á skemmtun hvar börn í öllum bekkjum skólans sungu fjölda laga. Hugrún, sem jafnframt er tónlistarkennari, lék und- ir á hið nýja píanó og var það manna mál að gleði hafi skinið úr hverri sál. Morgunblaðið/Jón Sigurðsson Gleði í hverri sál Afmælisdagurskáldsins Þór-bergs Þórð- arsonar verður haldinn hátíðlegur í dag frá kl. 14 til 16 á Skólavörðustíg 6b. Þar verður fjallað um ljóðaþýðingar og upp- lestur á þýddum ljóðum úr esperanto. Kristján Ei- ríksson yrkir af þessu til- efni til hagyrðinga: Þórberg hyllum í þessum rann’ sem þar er vani. Eflaust það gleður okkar mann á astralplani. Í Hvítum hröfnum frá árinu 1922 eru vísurnar „Far vel!“ eftir Þórberg: Ég syrgi ekki sálu þína, – en samt er mér annt um þig, – því ég hafði ungur eignast ástmey, sem grætti mig. En hún er nú glötuð og gengin gjálífis-villustig. Og því hef ég aldrei elskað og aldrei grátið þig. Afmæli Þórbergs pebl@mbl.is Kárahnjúkar | Samkvæmt samkomulagi sem náðst hefur milli Impregilo og verka- lýðsfélaga hefur Impregilo hafið aðgerðir sem ætlað er að hvetja starfsmenn með lögheimili á Íslandi utan virkjunarsvæðis- ins til lengri samfelldrar vinnu hjá fyrir- tækinu. Munu þeir sem starfa lengur en sex mánuði fá sérstaka launauppbót fyrir hvern unninn dag. Ingvar Sverrisson, lög- fræðingur hjá ASÍ, segir að uppbótin sé á bilinu 400–750 kr. á dag, eftir launaflokki viðkomandi starfsmanns. Þá hefur Impregilo einnig ákveðið að bjóða fullgildum iðnaðarmönnum með sveinspróf í rafiðnaði, tréiðnaði og málm- iðnaði sérstaka launauppbót á hvern unn- inn tíma, til að fá aukið hlutfall iðnaðar- manna með fyllstu réttindi og reynslu til stafa að við virkjunina. Segir Ingvar að iðnaðarmenn sem uppfylli þessi skilyrði fái greiddar aukalega 350 krónur á hverja vinnustund. Ingvar segir samkomulagið marka ákveðin tímamót en bendir á að enn standi nokkur stór atriði út af borðinu; skattamál erlendra starfsmanna og ágreiningur varð- andi iðnréttindi þeirra. Sagði hann verka- lýðshreyfinguna mjög ósátta við hversu langan tíma yfirskattanefnd tæki sér til að fara yfir skattamál erlendra starfsmanna, en hún hefur eitt slíkt mál til umfjöllunar nú. Segir Ingvar að á meðan niðurstaða nefndarinnar liggi ekki fyrir sé ekki hægt að leysa þessi mál í heild. Fá launaupp- bót eftir sex mánaða starf Árnes | Ákveðið hefur verið að sameina grunnskólana í Skeiða- og Gnúpverja- hreppi í einn skóla, Þjórsárskóla, og að hann verði í Árnesi. Skólahald leggst við það af í Brautarholti á Skeiðum. Hreppsnefnd Skeiða- og Gnúpverja- hrepps var sammála því að sameina skólana enda kom fram við umfjöllun að nemendum hefur fækkað verulega og útlit er fyrir enn meiri fækkun á næstu árum. Rannsóknarstofnun Kennaraháskóla Ís- lands telur að skólastarfinu sé betur borgið á einum stað og könnun bendir til að for- eldrar séu sama sinnis. Meirihluti hrepps- nefndar samþykkti að sameinaði skólinn verði í Árnesi enda gæti húsnæðið þar tek- ið við starfseminni allri án mikilla breyt- inga. Tveir fulltrúar greiddu atkvæði gegn þeirri ákvörðun, vildu að fyrst yrði gerð frekari könnun á því hvort skólahúsnæðið hentaði betur og hvort hagkvæmara væri að reka skólann í Brautarholti eða Árnesi. Í framhaldi af ákvörðun sinni skipaði hreppsnefnd vinnuhóp til að fjalla um nýt- ingu skólahúsnæðisins í Brautarholti. Þjórsárskóli verður í Árnesi ♦♦♦ AUGLÝSINGADEILD netfang: augl@mbl.is eða sími 569 1111
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.