Morgunblaðið - 12.03.2005, Side 29
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 12. MARS 2005 29
FERÐALÖG
KOKKARNIR Jens Vestergaard
og Mikkel Maarbjerg á veitinga-
húsinu Ensemble í Kaupmanna-
höfn hafa bætt við sig Michelin-
stjörnu samkvæmt frétt í Berl-
ingske Tidende og eru þær nú
tvær. Fjallað er um þá í nýjasta
hefti Alt om mad sem fylgir Bo
Bedre og eru þeir þar í hópi
ungra danskra stjörnukokka sem
hafa vakið mikla athygli síðustu
ár. Eins og fram kom í umfjöllun
Morgunblaðsins sl. sumar um þá
félaga yfirgáfu þeir veitingastað-
inn Kommandanten, sem þá var
eini veitingastaðurinn í Kaup-
mannahöfn með tvær Michelin-
stjörnur, fyrir þremur árum og
opnuðu eigið veitingahús.
Ensemble hefur notið vaxandi
vinsælda en máltíð fyrir einn
með víni kostar um þúsund krón-
ur danskar eða um 10.690 ís-
lenskar krónur. Algengt verð á
sambærilegum veitingastöðum
er nær helmingi hærra.
KAUPMANNAHÖFN
Ensemble fær aðra stjörnu
Ensemble
Tordenskjoldsgade 11
1055 Kaupmannahöfn
Sími: 33-1133-52. Netfang: www.restaurantensemble.dk
OPNAÐUR hefur verið ferðavef-
urinn www.ferdalangur.net. Stofn-
andi er Margrét Gunnarsdóttir bóka-
safns- og upplýsingafræðingur en
hún sinnir vefnum að loknum vinnu-
degi hjá Landspítala – háskólasjúkra-
húsi.
Tilgangur ferðavefjarins er að
miðla fróðleik til áhugasamra ferða-
langa, þeirra sem gjarnan ferðast á
eigin vegum um meginland Evrópu
og vilja afla sér upplýsinga áður en
haldið er af stað. Margrét segir að
hugmyndin hafi vaknað fyrir einu til
tveimur árum.
„Ástæðan fyrir hugmyndinni er
trúlega margþætt. Ferðaáhuginn
vaknaði þegar ég dvaldi sem skipti-
nemi á Ítalíu þegar ég var unglingur.
Síðar var ég fararstjóri á Ítalíu eitt
sumar með Ferðaskrifstofunni Út-
sýn.
Löngu síðar, eða 1999, tók ég aftur
til við fararstjórn í sumarfríum og hef
síðan farið allmargar ferðir fyrir
Bændaferðir víðsvegar um Evrópu
og ferðast til Ítalíu með nokkra ís-
lenska kóra, segir Margrét.
Hún hefur haldið ítarlegar dag-
bækur um alla staði sem hún hefur
farið um.
„Ég hugsaði sem svo að einhvern
tímann yrði ástæða til að draga þetta
fram og gera eitthvað úr því. Í starfi
mínu sem bókasafns- og upplýsinga-
fræðingur hef ég unnið afar mikið
með Netið og kynnst þar mörgum
skemmtilegum möguleikum. Í vetur
duttu „réttu tólin“ upp í hendurnar á
mér að mér fannst og þá var mér ekki
lengur til setunnar boðið og ákvað að
hrinda þessu í framkvæmd.“
Margrét sendir einnig út vikuleg
fréttabréf í tölvupósti í tengslum við
vefinn.
Hún segir ófáar stundirnar sem
eytt er við tölvuna að loknum hefð-
bundnum vinnudegi. „Ég er hins veg-
ar trúuð á að svona íslenskur ferða-
vefur geti þrifist vel. Það vantar alltaf
efni á íslensku og það vantar vef sem
ekki er eyrnamerktur einhverri
ferðaskrifstofu. Vef, sem getur nýst
fólki sem vill ferðast á eigin vegum og
nýta sér kosti þá sem bjóðast með
ýmsum lágfargjaldaflugfélögum eftir
að Iceland Express hóf starfsemi.
Skemmtilegast er þegar fólk tekur
þátt í þessu með mér með ábend-
ingum um vefsíður og ferðamögu-
leika og gististaði sem nýst geta okk-
ur hinum.“
Upplýsingarnar á vefnum eru m.a.
fengnar úr dagbókum Margrétar og
fróðleiksmolum sem hún hefur viðað
að sér í kringum fararstjórnina. Hún
vaktar einnig marga erlenda ferða-
vefi og nýtir þaðan gagnlegar upplýs-
ingar. „Svo er fólk líka farið að senda
mér alls konar skemmtilegar ábend-
ingar.“
NETIÐ | Nýr vefur
Fróðleikur fyrir ferðalanga
TENGLAR
.....................................................
www.ferdalangur.net
Morgunblaðið/Þorkell
Margrét Gunnarsdóttir hefur í frístundum unnið að gerð ferðavefjarins.
Margrét hefur ferðast víða og er hér í Porto Venere, Cinque Terre á Ítalíu.
Ódýrari bílaleigubílar fyrir
Íslendinga
Bílar frá dkr. 1.975 vikan
Bílaleigubílar
Sumarhús í
DANMÖRKU
www.fylkir.is sími 456-3745
Innifalið í verði: Ótakmarkaður akstur,
allar tryggingar, engin sjálfsábyrgð.
(Afgreiðslugjöld á flugvöllum.)
Höfum allar stærðir bíla, 5-7 manna
og minibus, 9 manna og rútur með/
án bílstjóra.
Sumarhús
Útvegum sumarhús í Danmörku af
öllum stærðum, frá 2ja manna og
upp í 30 manna hallir. Valið beint af
heimasíðu minni eða fáið lista.
Sendum sumarhúsaverðlista;
Dancenter sumarhús
Lalandia orlofshverfi
Danskfolkeferie orlofshverfi
Hótel. Heimagisting. Bændagisting.
Ferðaskipulagning.
Vegakort og dönsk gsm-símakort.
Fjölbreyttar upplýsingar á
heimasíðu; www.fylkir.is
410 4000 | landsbanki.is
Ferðalán
Nánari upplýsingar á landsbanki.is eða í næsta útibúi.
Það getur breytt öllu að hafa aðgang að ferðaláni
á hagstæðum kjörum. Þá er aðeins spurning um
að fylgja eigin innsæi og taka sér gott frí.
• Þú færð lán fyrir ferðinni
• Þú færð lán fyrir gjaldeyrinum
• Þú getur sótt um á landsbanki.is og reiknað þitt lán
Besti tíminn til að fara í frí
er þegar þú þarft á því að halda!
Vika í Danmörku
hertzerlendis@hertz.is
19.350 kr. - ótakmarkaður akstur, kaskó, þjófavörn, flugvallargjald og skattar.*Verð á viku miðað við 14 daga leigu.*
Opel Corsa eða sambærilegur
ÍS
LE
N
SK
A
A
U
G
LÝ
SI
N
G
A
ST
O
FA
N
/S
IA
.I
S
H
ER
2
77
07
03
/2
00
5
50 50 600
Bókaðu bílinn heima
- og fáðu 500 Vildarpunkta