Morgunblaðið - 12.03.2005, Side 49
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 12. MARS 2005 49
Uppboð
Uppboð munu byrja á skrifstofu embættisins í Bæjarhrauni
18, Hafnarfirði, sem hér segir á eftirfarandi eignum:
Birkihæð 9, (221-4905), ehl. gþ. Garðabæ, þingl. eig. Guðbjörg Magn-
úsdóttir, gerðarbeiðandi sýslumaðurinn í Hafnarfirði, þriðjudaginn
15. mars 2005 kl. 14:00.
Erluás 16, (225-6897), Hafnarfirði, þingl. eig. Ragnhildur Ragnarsdótt-
ir, gerðarbeiðendur Íbúðalánasjóður og Kaupþing Búnaðarbanki
hf., þriðjudaginn 15. mars 2005 kl. 14:00.
Grandatröð 10, (207-4968), Hafnarfirði, þingl. eig. Björn Gíslason,
gerðarbeiðendur Hafnarfjarðarbær og Íslandsbanki hf., þriðjudaginn
15. mars 2005 kl. 14:00.
Jófríðarstaðavegur 12, (207-6550), Hafnarfirði, þingl. eig. Ásmundur
Ársælsson, gerðarbeiðandi Samvinnulífeyrissjóðurinn, þriðjudaginn
15. mars 2005 kl. 14:00.
Ölduslóð 28, 0301, (208-0881), Hafnarfirði, þingl. eig. Helga S. Sigur-
björnsdóttir og Karl Ólafsson, gerðarbeiðandi Íbúðalánasjóður,
þriðjudaginn 15. mars 2005 kl. 14:00.
Öldutún 16, 0001, ehl. gþ. Hafnarfirði, þingl. eig. Jóhann Páll Guðna-
son, gerðarbeiðandi Söfnunarsjóður lífeyrisréttinda, þriðjudaginn
15. mars 2005 kl. 14:00.
Sýslumaðurinn í Hafnarfirði,
11. mars 2005.
Uppboð
Uppboð mun byrja á skrifstofu embættisins á Bjólfsgötu
7, Seyðisfirði, sem hér segir á eftirfarandi eign:
Bjarkargrund 3, Fellahreppi, fastnr. 221-7125, þingl. eig. Hagverk
sf., gerðarbeiðandi Kraftvélar ehf., miðvikudaginn 16. mars 2005
kl. 14:00.
Sýslumaðurinn á Seyðisfirði,
11. mars 2005.
Sendiráð — Íbúð
Bandaríska sendiráðið óskar að taka á leigu
fallega, góða íbúð eða hæð, helst í eða nálægt
miðbænum, án húsgagna. Æskileg stærð
100—140 fm, tvö eða fleiri svefnherbergi, góðir
skápar. Leigutími er að minnsta kosti 3 ár. Til-
boð óskast á skrifstofutíma í síma 562 9100,
Anna Einarsdóttir í #22284, fax 562 9123, 693
9234 eða netfang einarsdottirax@state.gov
Uppboð
Embættinu hefur borist krafa Árna Pálssonar,
hrl., Strandgötu 29, Akureyri, skiptastjóra db.
Jóhanns Matthíasar Jóhannssonar, kt. 151011-
7219, síðast til heimilis á Bálkastöðum, Húna-
þingi vestra, sem lést 28. mars 1999, um upp-
boð skv. 1. mgr. 8. gr. l. nr. 90/1991 á jörðinni
Bálkastaðir ytri, fnr. í Landskrá fasteigna
144097, eignarhl. 213-3226, 213-3227, 213-
3228, 213-3229, 213-3230, 213-3232 og Bálka-
staðir syðri fnr. í Landskrá fasteigna 144098,
eignarhl. 213-3233, 213-3234, 213-3235,
Húnaþingi vestra, ásamt öllu sem henni fylgir
og fylgja ber. Vísað er jafnframt til dóms
Hæstaréttar Íslands í máli nr. 216/2003, sem
kveðinn var upp 16. júní 2003.
Þingfesting uppboðsmálsins/fyrirtaka fór fram
þriðjudaginn 25. janúar 2005.
Byrjun uppboðs á framangreindum eignum
fer fram í skrifstofu embættisins í Hnjúkabyggð
33, Blönduósi, fimmtudaginn 17. mars 2005
kl. 13:30.
Sýslumaðurinn á Blönduósi,
10. mars 2005,
Bjarni Stefánsson.
Húsnæði óskast
Félagslíf
Dvergshöfða 27, 110 Rvík
Bjóðum upp á eftirfarandi þjón-
ustu fyrir líkama og sál:
Heilnudd - Ilmolíunudd - Svæða-
nudd - Höfuðbeina- og spjald-
hryggsmeðferð/Cranio Sacral -
Heilun - Andleg leiðsögn - Miðl-
un - Spámiðlun - Tarotlestur.
Bænahringur miðvikudag kl. 20.
Hádegishugleiðsla miðvikudag
kl. 12.15. Námskeið.
Nánari uppl. heilunarsetrid.is,
sími/símsvari 567 7888.
12.3. Snjór og meiri snjór.
Dagsferð með Jeppadeild. Brott-
för frá gömlu Esso-stöðinni í
Mosfellsbæ við hliðina á Krón-
unni kl. 9:00. Skrá þarf þátttöku
á skrifstofu Útivistar í síma 562
1000. Fararstj. Hallgrímur Krist-
insson.
13.3. Þingvallagangan 3. hl.
Heiðarbær — Þingvellir. Far-
arstj. Gunnar Hólm Hjálmars-
son. Verð 2.100/2.500 kr. Brott-
för frá BSÍ kl. 10:30.
17.3. Deildarfundur jeppa-
deildar kl. 20:00 hjá Arctic
Trucks, Nýbýlavegi 2, Kópavogi.
18.3.-20.3. Hrauneyjar/Kerl-
ingarfjöll
Þátttaka háð samþykki fararstjóra.
www.utivist.is
Raðauglýsingar 569 1111
Raðagauglýsingar
sími 569 1100
Tilkynningar
Félagsmenn Trésmiða-
félags Reykjavíkur!
Orlofshús - launakönnun
Lokafrestur til að sækja um orlofshús í sumar
er til 15. mars. Hægt er að sækja um á netinu,
www.trnet.is .
Eins minnum við á að skila launakönnuninni.
Trésmiðafélag Reykjavíkur.
Raðauglýsingar
sími 569 1100
Raðauglýsingar
FRÉTTIR
ELLEFU nemendur voru skipaðir á
sérstakan heiðurslista fyrir góðan
námsárangur við Menntaskólann
Hraðbraut á þriðjudag með með-
aleinkunnina 9. Með sæti á listanum
hlutu þeir niðurfellingu hluta skóla-
gjalda auk setu í sérstakri nefnd
sem vinnur að innra gæðastarfi skól-
ans. Hákon Sveinsson, aðstoð-
arskólastjóri, segir heiðurslista sem
þennan upprunninn í Bandaríkj-
unum og markmið hans að hvetja
aðra nemendur við skólann.
Að sögn Hákonar voru nemendur
bæði verðlaunaðir fyrir góða með-
aleinkunn, ástundun og fyrir viðhorf
sitt til skólans. Í verðlaununum end-
urspeglast viðleitni skólayfirvalda til
að þjóna afburðanemendum og umb-
una þeim fyrir framúrskarandi ár-
angur. Hákon býst við að skólinn
muni halda áfram að verðlauna nem-
endur sína með þessum hætti enda
góð auglýsing fyrir skólann. „Við
viljum að þeir sem hyggi á nám í
framhaldsskóla eða hafi hætt og vilji
taka þráðinn upp að nýju líti á skól-
ann sem álitlegan valkost sem umb-
uni nemendum fyrir góðan árang-
ur.“
Menntaskólinn Hraðbraut er ætl-
aður nemendum sem vilja ljúka
námi á tveimur árum í stað fjögurra
og segir Hákon það ætlun stjórn-
enda skólans að einskorða fjölda
hans við 200 nemendur til að há-
marka þjónustu við hvern nemanda.
„Hraðbraut er lítill og persónulegur
skóli. Hann hentar hins vegar ekki
öllum enda unnið í skorpuvinnu,“
segir hann og bendir á að kennt sé
fjórar vikur í senn og aðeins þrjú fög
í einu. Próf í fögunum er á fimmtu
viku og er að þeim tíma loknum gefið
vikulangt frí. Þetta hentar ekki öll-
um nemendum enda leggur skólinn
áherslu á að nemendur séu fljótir að
tileinka sér hröð vinnubrögð og ann-
að skipulag en víða tíðkast. Þá sé
markmið verðlaunanna að hvetja
aðra nemendur í námi sínu. „Heið-
urslisti í þessum anda er uppruninn í
Bandaríkjunum. Þetta er fyrst og
fremst virðingarsæti í nefnd ásamt
stjórnendum skólans. Nefndin mun
funda reglulega og er ætlunin að
hún endurspegli gagnrýni nemenda
á skólastarfið,“ segir Hákon. Þeir
nemendur sem hljóta viðurkenn-
inguna fá að auki niðurfellingu 25%
skólagjalda. Þau eru 190.000 krónur
á ári og ætti verðlaunaféð að nema
tæpum 50.000 krónum.
Sæti á heiðurslista hvatning til nemenda
Hákon Sveinsson, aðstoðarskólastjóri Menntaskólans Hraðbrautar, afhenti ellefu afburðanemendum skólans heið-
ursviðurkenningu fyrir góðan námsárangur á þriðjudag.
DRÍFUVINAFÉLAGIÐ verður
stofnað í Veiðisafninu á Stokkseyri í
dag, laugardaginn 12. mars, kl. 14.
Drífa var framleiðsluheiti eina ís-
lenska skotvopnsins sem vitað er til
að hafi verið raðsmíðað hér á landi.
Það er Páll Reynisson, for-
stöðumaður Veiðisafnsins sem
ásamt afkomendum Jóns heitins
Björnssonar frá Dalvík á frumkvæði
að stofnun félags áhugamanna um
þennan merkilega kafla í íslenskri
iðnsögu. Rannsókn og söfnun heim-
ilda um Drífurnar og sögu þeirra er
eitt fyrsta rannsóknaverkefni Veiði-
safnsins á Stokkseyri.
Alls smíðaði Jón um 120 Drífu-
byssur á 14 árum og merkti með
raðnúmerum frá 101 og uppúr. Hver
byssa var sérsmíðuð og er nokkur
munur á eintökum. Flestar voru
byssurnar einskota, en einnig smíð-
aði Jón útfærslu með skotgeymi.
Tilgangurinn með stofnun Drífu-
vinafélagsins er að safna upplýs-
ingum og varðveita heimildir um
sögu Drífanna frá Dalvík. Að sögn
Páls hefur hann aflað upplýsinga um
hvar helmingur Drífanna er nú nið-
urkominn.
Félagar í Drífuvinafélaginu geta
allir orðið sem hafa áhuga á Drífum,
skotvopnum og skotveiðum almennt.
Skráning er félagsmönnum að
kostnaðarlausu og er tekið við ósk-
um um skráningu hjá Veiðisafninu á
Stokkseyri. Einnig óskaði Páll eftir
því að þeir sem eiga Drífur, eða vita
um slíkar byssur, láti félagið vita af
þeim. Sett hefur verið upp síða um
Drífurnar og félagið á heimasíðu
Veiðisafnsins.
Drífurnar frá Dalvík
Morgunblaðið/RAX
Páll Reynisson með Drífu í fanginu.
TENGLAR
..............................................
www.hunting.is/drifurnar/
UNDIRRITAÐUR mótmælir hér
með orðum Þorgerðar Katrínar
Gunnarsdóttur menntamálaráð-
herra í Morgunblaðinu föstudaginn
11. mars, þar sem hún segir: „Ég
veit ekki til þess að þeir fulltrúar
minnihlutans sem eru í ráðinu hafi
haft einhvern fyrirvara á því þegar
þeir settust í ráðið að þeir myndu
ekki sinna sínum lögboðnu skyldum,
en þiggja engu að síður laun fyrir
setu sína í útvarpsráði.“ Þessi orð
eru órökstudd og ærumeiðandi.
Undirritaður tók þátt í leynilegri
atkvæðagreiðslu um það hver tillaga
útvarpsráðs um mann í stöðu frétta-
stjóra útvarps skyldi vera. Fyrirséð
var hver niðurstaðan yrði og því
skilaði undirritaður auðu.
Ég óska eftir að mennta-
málaráðherra taki orð sín til baka.
Kjartan Eggertsson, fulltrúi
Frjálslynda flokksins í útvarpsráði.“
PEUGEOT 407-línan verður
frumsýnd hjá Bernhard ehf. í
Vatnagörðum á morgun og
sunnudag.
Peugeot 407 kemur í alls 22 út-
færslum, allt eftir þörfum hvers
og eins, með allt frá 1,8 l bens-
ínvél upp í 3,0 l bensínvél ásamt
nokkrum dísilvélum.
Þetta mikla framboð er ný-
gerðum samningi við Peugeot í
Danmörku að þakka en það sam-
starf eykur þjónustu Peugeot á
Íslandi og styttir afgreiðslutíma.
Peugeot 407 er fáanlegur frá
2.190.000 krónum.
Peugeot 407
frumsýndur
Yfirlýsing