Morgunblaðið - 12.03.2005, Page 51
Dagný Jónsdóttir hefur komið nær árlega á
bókamarkaðinn frá árinu 1978. Hún kaupir
yfirleitt 4 til 5 bækur í hvert sinn og heillaðist
þetta árið af spennusögum Patricia Cornwall.
ÁRLEGUM bókamarkaði Félags íslenskra
bókaútgefenda í Perlunni lýkur á morgun.
Markaðurinn hefur verið starfræktur í rúma
hálfa öld og segir Sæunn Ósk Gunnarsdóttir,
framkvæmdastjóri markaðarins síðastliðin sex
ár, marga gesti hafa komið árlega svo áratug-
um skipti. Þeir líti orðið á markaðinn sem fast-
an áfangastað í tilverunni þar sem hægt er að
nálgast nýlegt og gott lesefni fyrir lítinn pen-
ing.
Sæunn segir kaupendur á öllum aldri og
segist hún sjá kunnuglegum andlitum bregða
fyrir ár eftir ár. Fjöldi þeirra sem komið hefur
í ár er svipaður og í fyrra en samt þykist hún
greina færri bókakaup einstaklinga nú en síð-
ustu ár. Á því kann hún enga skýringu utan að
kaupin gangi yfirleitt í bylgjum. Þó telur hún
líklegt að fólk hafi keypt fleiri bækur um síð-
ustu jól og neiti sér því um bókakaup á mark-
aðnum í ár.
Ævisögur, þjóðlegur fróðleikur og barna-
bækur eru söluhæstu bækurnar á markaðnum
þessa dagana.
Haldinn í hálfa öld
Bókamarkaðinn hefur verið haldinn með
hléum frá árinu 1954. Fyrst var hann til húsa í
gamla Listaskálanum sem eitt sinn stóð við
hlið Alþingishússins. Upphafsmenn voru þeir
Lárus Blöndal bóksali og Jónas Eggertsson,
þá starfsmaður Ísafoldar og síðar bókaútgef-
andi og bóksali. Létu þeir félagar hanna merki
bókamarkaðarins strax fyrsta árið. Þeir héldu
markaðinn nokkuð reglulega í Listaskálanum,
eða þar til sameinað félag útgefenda og bók-
sala tók við honum. Eftir það var markaðurinn
á milli húsa og féll nokkrum sinnum niður. Síð-
ustu árin hefur bókamarkaður Félags ís-
lenskra bókaútgefenda verið haldinn ýmist í
Perlunni eða Smáralind.
Árlegum bókamarkaði lýkur á morgun í Perlunni
Morgunblaðið/Jim Smart
Haukur Harðarson, fyrrverandi bæjarstjóri á
Húsavík, fann nokkrar bækur eftir kunningja
sína og fyrrverandi skólafélaga að Laugum
veturinn 1954–55. Hann segist kaupa færri
bækur í ár enda hafi hann nýlega minnkað
við sig húsnæði og leyfi það ekki fleiri bækur.
Sæunn Ósk Gunnarsdóttir, framkvæmdastjóri
bókamarkaðarins síðastliðin sex ár, segist sjá
kunnugleg andlit ár eftir ár á markaðnum.
Sömu andlitin ár eftir ár
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 12. MARS 2005 51
Toyota Corolla árg. '96, ek. 164
þús. km. Topp bíll! Nýlega skipt
um tímareim, dempara að aftan,
bremsuklossa, framan og aftan,
kveikjulok, kertaþræði og kerti.
Upplýsingar í síma 822 7868.
Isuzu Trooper árgerð 1999. 33"
breyttur. Nýleg dekk. Ekinn 164
þús. km, en 75 þús. á vél. Fallegur
bíll. Verð 1,6 millj. Upplýsingar í
síma 820 6832.
Til sölu Ford 250, 6l dísel, árg.
'04. Ekinn 3 þús. km. Einnig Ford
350, 7,3l dísel, árg. '01. Uppl. í
símum 894 3765 og 587 1099.
Til sölu Dodge Ram árg. '95. Ek-
inn 190 þúsund. 5,9 Cummings dí-
sel, sjálfskiptur, rafmagn í rúðum,
skriðstillir, samlæsingar. Bíll í
góðu standi. Upplýsingar í síma
845 1970.
Toyota Hilux árg. '93, ek. 160
þús. km. Til sölu Toyota Hilux DC
bensín árg. 9/93, ek. 160 þús. 33"
góð dekk, dráttarkúla, hiti í sæt-
um, hiti í húsi. Verð 460 þús. Upp-
lýsingar í síma 696 0031.
Opel Zafira Comfort 04/2000
Ekinn 108 þ. km, 1.8, sjálfskiptur,
álfelgur, dráttarkúla, sumar- +
vetrardekk. Verð 1.390.000. Tilboð
1.190.000. Áhvílandi 630.000.
TOPPBÍLAR, Funahöfða 5,
sími 587 2000 eða toppbilar.is
Nissan Terrano 2,4, árg 1990,
ekinn 181 þús. km. Súpergott ein-
tak. Upplýsingar í síma 894 1213.
Wagoneer árgerð '87. 38". Loft-
púðar og Koni demparar f/a.
Þrír aukabensíntankar. Dana 44
f/a o.fl. o.fl.
Upplýsingar í síma 861 7080.
Toyota Tacoma, árg. '03, ek. 24
þús. mílur BilarUSA.com
Íslenskir starfsmenn geta fundið
draumabílinn, mótorhjólið eða
húsbílinn. Erum með sambönd við
margar bíla-heildsölur. Sendið
okkur fyrirspurnir á
www.bilarusa.com eða á
info@bilarusa.com
Toyota Landcruiser LX 06/2004
5 gíra, ekinn 13 þ. km, 35" breyt-
ing, 17" álfelgur, hraðastillir, loft-
kæling, kastarar + grind, vind-
skeið, dráttarkúla, filmur. Verð
5.460.000. Áhvílandi 3.000.000.
Skipti athugandi á ódýrari.
TOPPBÍLAR, Funahöfða 5,
sími 587 2000 eða toppbilar.is
Jeppar
MMC Pajero Sport 2001 3000 cc
slagrými, ek. 113 þús. km., sjálf-
sk., 4x4. CD, álfelgur, rafm. í öllu,
loftkæling, ABS, 5 dyra, skráður
5 manna. Verð 2 millj. Upplýsing-
ar í síma 699 1933.
Gullfallegur Grand Cherokee-
jeppi. Gríptu tækifærið! Nýkom-
inn frá USA. Eins og nýr Grand
Cherokee Laredo 2004 (12/03).
4x4. Verð 3,4 m. Tilboð 2,9 m. stg.
Sjá www.4x4OffRoads.com/
grandm - 821 3919.
Sendibílar
Renault Traffic-sendibíll. Til
sölu mjög fallegur og vel með far-
inn Renault Trafic árg. 03/03, ek-
inn 78.000 km. Álfelgur, sumar-
og vetrardekk, stálfelgur, topp-
bogar o.fl. o.fl. Uppl. í s. 893
8939.
Bílar óskast
Óska eftir ódýrum bíl með '06-
skoðun. Óska eftir góðum bíl með
'06-skoðun á 0-30.000 krónur. Má
þarfnast lagfæringa en verður að
vera gangfær. Sími 661 9660.
Ökukennsla
Ökukennsla Reykjavíkur ehf.
Ökukennsla akstursmat.
Ævar Friðriksson
Toyota Avensis '02,
863 7493/557 2493.
Gylfi Guðjónsson
Subaru Impreza,
696 0042/566 6442.
Gylfi K. Sigurðsson
Nissan Almera,
892 0002/568 9898.
Snorri Bjarnason
Toyota Avensis, bifhjólak.
892 1451/557 4975.
Sverrir Björnsson
Volkswagen Passat,
892 4449/557 2940.
Vagn Gunnarsson
Mersedes Benz,
894 5200/565 2877.
Glæsileg ný kennslubifreið,
Subaru Impreza 2004, 4 wd.
Akstursmat og endurtökupróf.
Gylfi Guðjónsson,
símar 696 0042 og 566 6442.
Fellihýsi
Coleman Cheyene fellhýsi til
sölu, tilbúið fyrir sumarið, með
fortjaldi, sólarrafhlöðu, upp-
hækkað, lítið notað. Uppl í síma
691 3992 eða 567 6992.
Tjaldvagnar
Ægisvagn árg. '99 með fortjaldi
og kassa á beisli. Verð 450 þús.
Upplýsingar í síma 897 0444.
Vélsleðar
Vélsleði til sölu m. öllu
Skidoo MXZ 800, árg. 2000/12, ek-
inn 1900 km. Verð 490 þús.
(Listaverð 620 þús.).
Upplýsingar í síma 840 3022.
Hjólhýsi
Fullbúið hús, tilbúið til flutnings.
Íbúðarhjólhýsi, sem skiptist í
stofu, eldhús, barnaherbergi,
hjónaherbergi, snyrtingu og sér-
bað. Fullbúið hús sem vert er að
skoða. Verð aðeins 1.750 þús.
Sími 895 3040.
Kerrur
Kerra til sölu. Dantrailers vönd-
uð dönsk kerra, 220x130x40 cm,
með bremsum. Verð kr. 234.500
m. vsk. Upplýsingar í síma 465
1332 á kvöldin.
Cargo 2205 m. hurðum. Mál:
205x130x100 cm. Burðargeta 450
kg. Hafið samband í síma 421
4037 eða lyfta@lyfta.is. Mikið úr-
val af kerrum og vinnulyftum á
www.lyfta.is
Bílar aukahlutir
Vantar dekk! Vantar dekk undir
Unimo Benz. Dekkjastærð er 10,5
eða 12,5x20. Hafið samband í s.
894 0145 eða 453 8145. Endilega
hafið samband ef þið vitið um
einhvern sem getur reddað mér
svona dekkjum. Kv. Ragnar.
Vinnuvélar
Vantar staurabor Óska eftir
staurabor fyrir 3 t. beltagröfu - til
greina kemur af öðrum
tækjum líka.
Uppl. veitir Þorbergur í síma
862 4991 eða tobbi57@simnet.is
Valtarar. Til sölu valtarar, 8 tonn,
árgerð 1999-2000. Upplýsingar í
síma 892 3524.
Nissan Patrol GR árg. '96. Ek.
140 þús. Samlæsingar. Góður og
fallegur bíll. Verð 1.450 þús. Upp-
lýsingar í síma 693 3342.
Musso 01/00 Ekinn 92.000 km,
sjálfskiptur, álfelgur, útvarp/
geislaspilari, dráttarbeisli.
Verð 1.720.000 - Tilboð 1.580.000.
Upplýsingar í síma 894 5899.
Mitsubishi Outlander, nýskr.
5.03, ek. 28 þ., 4x4, dökkgrár,
dráttarkúla, Cd. Verð 2.200.000,
engin skipti. Sími 822 1721.
Smáauglýsingar 569 1111 www.mbl.is/smaaugl
FRÉTTIR
EVA Magnúsdóttir, upplýsingafulltrúi Sím-
ans, segir um gagnrýni Arnar Orrasonar,
framkvæmdastjóra fjarskiptasviðs Og Voda-
fone í Morgunblaðinu á miðvikudag, að öll
önnur fjarskiptafyrirtæki hafi jafngreiðan að-
gang að dreifikerfi Símans og fyrirtæki hafi að
sínu eigin kerfi, rétt eins og lög kveði á um.
Arnar sakaði m.a. Símann um að hindra
keppninauta sína í samkeppni, með seina-
gangi.
„Síminn hefur ekki verið fundinn sekur um
að misnota aðstöðu sína í samkeppni vegna
hindrunar í aðgangsneti. Þessi fullyrðing um
að Síminn beiti hindrunum um aðgang að
kerfi sínu á ekki við rök að styðjast. Þvert á
móti hefur Síminn ekkert á móti því að sam-
keppnin sé sanngjörn, heiðarleg og byggist á
lagalegu jafnræði á milli samkeppnisaðila,“
segir Eva.
Í grein sinni segir Arnar að samkeppni í
grunnneti hafi verið til staðar norður í landi
þar sem fyrirtækið Fjarski hafi lagt ljósleið-
ara til Akureyrar. Blikur séu hins vegar á lofti
í þeim efnum þar sem Landssíminn hafi gerst
stór hluthafi í Fjarska.
Eva segir að meginhagsmunir Símans með
kaupum í Fjarska séu m.a. að samnýta fjár-
frekan fjarskiptabúnað fyrirtækjanna víðs
vegar um landið og vonast sé til að samlegð-
aráhrif skili sér í betri þjónustu við orkuiðn-
aðinn í landinu. Fjarski verði áfram rekinn
sem sjálfstætt fyrirtæki.
„Síminn hefur öfluga starfsemi um allt land
og með samstarfi af þessu tagi geta fyrirtækin
sameinast um uppbyggingu á fjarskiptaþjón-
ustu fyrir orkuiðnaðinn,“ segir Eva.
Upplýsingafulltrúi
Símans um ásakanir
Á ekki við rök
að styðjast