Morgunblaðið - 12.03.2005, Page 64
ÓVENJUMIKIL loftmengun var í
borginni í gærmorgun og mátti
þannig sjá mengunarský sem lá yfir
borginni fram eftir degi.
Að sögn Lúðvíks Gústafssonar,
deildarstjóra mengunarvarna á um-
hverfissviði Reykjavíkurborgar,
fólst mengunin fyrst og fremst í
svifryki sem stafar af uppþyrluðu
göturyki, en einnig var nokkuð um
mengun í formi útblásturs bíla sem
skýrði þá gulu slikju sem var á
skýinu.
Segir Lúðvík svifryksmagnið hafa
náð ákveðnu hámarki í kringum tíu-
leytið í gærmorgun, en þá var það
um 470 µg/m³ en aðeins þremur tím-
um fyrr, eða klukkan sjö, var magn-
ið um 150µg/m³. Var svifryksmeng-
unin, að sögn Lúðvíks, á hraðri
niðurleið eftir því sem á daginn leið.
Þess má geta að heilsuverndar-
mörkin miðast við 50 µg/m³ á sólar-
hring.
Aðspurður hvort fólki stafi hætta
af þessu miklu svifryksmagni í lofti
svarar Lúðvík því neitandi og segir
enga ástæðu til að óttast svona ein-
staka toppa sem vari í nokkra
klukkutíma. Segist hann þó ekki
mæla með því að fólk sem er við-
kvæmt fyrir í öndunarfærum fari að
skokka við helstu umferðargötur
þegar ástandið er eins og það var í
gærmorgun.
Hlýja loftið eins og lok
Að sögn Einars Sveinbjörnsson-
ar, veðurfræðings á Veðurstofu Ís-
lands, má rekja uppsöfnun meng-
unarefna í Reykjavík í gær annars
vegar til þess hve hægur vindur hafi
verið og hins vegar til svokallaðs
hitahvarfs í lofti. „Venjan er að loft
kólni með hæð, en þegar loft hlýnar
með lofthæðinni í stað þess að kólna
þá tölum við um hitahvarf. Hlýja
loftið hér í 2–300 metra hæð fyrir
ofan okkur virkar eins og lok, þann-
ig að það verður engin lóðrétt
blöndun lofts. Þannig að uppsöfnun
efna sem eiga sér stað vegna um-
ferðarinnar berast trauðlega í
burtu,“ segir Einar og tekur fram
að gera megi ráð fyrir svipuðu veð-
urfari fram yfir helgi.
Mengunarský yfir borginni
Morgunblaðið/RAX
Mengunarskýið sem lá yfir höfuðborginni í gær má rekja til mikils magns af
svifryki í lofti sem ekki komst burt þar sem vindur var hægur yfir borginni.
MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLUNNI 1, 103 REYKJAVÍK, SÍMI 569 1100, SÍMBRÉF 569 1181, PÓSTHÓLF 3040,
ÁSKRIFT-AFGREIÐSLA 569 1122, NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, AKUREYRI: KAUPVANGSSTRÆTI 1 LAUGARDAGUR 12. MARS 2005 VERÐ Í LAUSASÖLU 220 KR. MEÐ VSK.
Heilsukoddar
Heilsunnar vegna
Opi› í dag laugardag
frá kl. 11-16
HILDUR Vala Einarsdóttir er Idol-stjarna Ís-
lands 2005 en hún sigraði í Idol-stjörnuleitinni í
beinni útsendingu á Stöð tvö í Vetrargarðinum í
Smáralind í gærkvöldi. Hildur Vala söng til úr-
slita á móti Heiðu, Aðalheiði Ólafsdóttur.
Keppnin var æsispennandi og rífandi
stemmning í Vetrargarðinum en þar var hvert
einasta sæti fyrir löngu uppselt. Um 135 þúsund
atkvæði voru greidd í gegnum síma eða með
sms-skilaboðum og var mjótt á mununum að því
er þáttastjórnendurnir, þeir Jói og Simmi,
sögðu.
Hildur Vala söng lögin „The boy who giggled
so sweet“ með Emelíönu Torrini, „Líf“ sem
Stefán Hilmarsson söng á sínum tíma og „Án
þín“ með Trúbrot en það lag tók hún síðan aft-
ur eftir að úrslit lágu fyrir við mikinn fögnuð
áhorfenda.
Hildur Vala tekur við Idol-stjörnutitlinum af
Kalla Bjarna sem var valinn fyrsta Idol-stjarna
Íslands í fyrra.
Morgunblaðið/Árni Torfason
Hildur Vala syngur sigurlagið í Smáralindinni þegar úrslit lágu fyrir í gærkvöldi, umkringd öðrum þátttakendum í keppninni.
Hildur Vala Idol-stjarna Íslands 2005
SKOSKA sveitin Franz Ferdinand
heldur tónleika hér á landi hinn 27.
maí næstkomandi, í Kaplakrika
Hafnarfirði.
Hljómsveitin var hiklaust „heit-
asta“ sveit síðasta árs, dáð bæði af
gagnrýnendum sem plötukaup-
endum en tvær milljónir eintaka
hafa nú selst af fyrstu plötu sveit-
arinnar, sem er samnefnd henni./58
Franz Ferdin-
and til Íslands
GÍSLA Erni
Garðarssyni
leikara og
leikstjóra
hefur verið
boðið að leik-
stýra Vojtsek
eftir Georg
Büchner í
Barbican-
listamiðstöð-
inni í London. Sýningin er
hluti af nýrri sýningarröð sem
Barbican Centre og Young
Vic-leikhúsið standa saman að
og ber yfirskriftina Ungir
snillingar og vísar til þess að
einungis eru valin leikrit sem
höfundar skrifuðu fyrir 30 ára
aldur. Georg Büchner (1813–
1837) skrifaði Vojtsek 23 ára
að aldri.
Gísli Örn segir það spenn-
andi verkefni að takast á við
þetta verk og ætlar að nota ís-
lensku leikarana Nínu Dögg
Filippusdóttur, Ingvar E. Sig-
urðsson og Ólaf Egilsson í
helstu hlutverk. Frumsýning
er ákveðin í London 10. októ-
ber en stefnt er á frumsýningu
í Reykjavík u.þ.b. mánuði fyrr.
Leikstýrir
Vojtsek í
Barbican
Centre
Gísli Örn
Garðarsson
Teknir
fyrir fjölda
innbrota
HÉRAÐSDÓMUR Reykjavíkur úr-
skurðaði í gær tvo 15 ára pilta í gæslu-
varðhald til næstkomandi mánudags
vegna gruns um fjölda innbrota á höf-
uðborgarsvæðinu.
Þeir voru handteknir í gær vegna
níu innbrota sem framin hafa verið á
heimilum á Seltjarnarnesi á undan-
förnum vikum og hafa þeir viður-
kennt nokkur þeirra.
Þeir liggja einnig undir grun um
fleiri innbrot. Einkum sóttust þeir
eftir verðmætum á borð við tölvur,
myndavélar og annað sem hægt er að
koma í verð á götunni. Lögreglan í
Reykjavík fer með rannsókn málsins.
NÝIR bílar hafa lækkað í verði síð-
ustu vikurnar og mánuðina vegna
hækkunar gengis íslensku krónunn-
ar gagnvart erlendum gjaldmiðlum,
samkvæmt upplýsingum nokkurra
helstu bifreiðaumboðanna, en
Bandaríkjadalur er nú kominn í
rúmar 58 krónur og evra niður fyrir
80 kr.
Verðlækkunin er gjarnan á bilinu
2–5% eftir bílategundum og umboð-
um og meiri sé litið lengra aftur í
tímann. Nokkuð er hins vegar mis-
munandi eftir umboðum hvernig þau
framkvæma lækkanirnar. Í sumum
tilvikum er gefinn afsláttur frá gild-
andi verðlistaverði og í öðrum tilvik-
um er verðlistaverðið lækkað sem
slíkt. Í enn öðrum tilvikum hafa
verðhækkanir frá verksmiðjum er-
lendis vegna nýrra árgerða til dæmis
eða betri búnaðar bifreiðanna ekki
verið teknar inn í verð hér á landi
sem skyldi.
Talsmenn bílaumboðanna sem
Morgunblaðið ræddi við segja flestir
hverjir að ekki sé reynt að eltast við
gengissveiflurnar til mjög skamms
tíma, heldur horft til þróunar geng-
isins til nokkurs tíma og gildi það
jafnt um það þegar verð lækki á bíl-
um þegar gengi krónunnar styrkist
og eins þegar gengið veikist og til-
efni sé til verðhækkunar. Þannig hafi
það til mynda verið árið 2002 þegar
gengi krónunnar lækkaði verulega
og tilefni hafi verið til verðhækkunar
á bílum. Almennt talað sé samkeppn-
in það hörð á þessum markaði og al-
menningur það vel upplýstur um
verð að ekki dugi annað en að standa
sig í samkeppninni. Hún sjái til þess
að verðið lækki þegar tilefni sé til
þess vegna styrkingar krónunnar.
Nýir bílar lækka í verði