Morgunblaðið - 14.03.2005, Síða 2
2 MÁNUDAGUR 14. MARS 2005 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
SAGAN AF PÍ
SAGA SEM FÆR MANN
TIL AÐ TRÚA Á GUÐ
KOMIN Í KILJU
HAFA KEYPT STERLING
Pálmi Haraldsson og Jóhannes
Kristinsson hafa keypt norræna lág-
fargjaldaflugfélagið Sterling fyrir
tæplega fimm milljarða króna. Fé-
lagið flýgur á tæplega 30 áfangastaði
í Evrópu en um 90% af farmiðunum
eru seld á Netinu. Í fyrra flutti fé-
lagið liðlega 1,8 milljónir farþega.
Pálmi segir menn strax sjá mögu-
leika að tengja saman leiða- og sölu-
net Iceland Express við Sterling en
hins vegar sé ekki tímabært að ræða
hvort félögin verði sameinuð.
Sagðir undirbúa árás
Ísraelar hafa samið áætlanir um
árásir á skotmörk í Íran ef samn-
ingaviðræður um meintar tilraunir
Írana til að framleiða kjarnavopn
fara út um þúfur, að sögn breska
blaðsins The Sunday Times. Blaðið
segir að valdamestu ráðherrar Ísr-
aelsstjórnar hafi lagt blessun sína
yfir áætlanirnar á fundi í síðasta
mánuði.
Páfi heim af sjúkrahúsi
Jóhannes Páll II páfi útskrifaðist
af sjúkrahúsi í Róm síðdegis í gær
eftir að hafa legið þar í átján daga
vegna öndunarerfiðleika. Fyrr um
daginn talaði páfi opinberlega í
fyrsta skipti frá því að hann gekkst
undir barkaskurð á sjúkrahúsinu 24.
febrúar.
400 bíða eftir hjartaaðgerð
Liðlega 200 manns eru nú á bið-
lista eftir hjartaþræðingu en það
getur þýtt 4–5 mánaða biðtíma. Bið-
listinn hefur orðið til frá því í fyrra-
vor en þá hafði nær tekist að eyða
honum. Rúmlega 400 manns bíða
eftir einhvers konar hjartaaðgerðum
og segir Gestur Þorgeirsson, yf-
irlæknir á hjartadeild LSH, að
ástandið í þessum málum sé ekki
viðunandi til lengdar.
Peningaþvætti afhjúpað
Yfirvöld á Spáni hafa komið upp
um glæpahring sem talinn er hafa
stundað stórfellt peningaþvætti í
tengslum við fíkniefnaviðskipti,
vopnasölu og vændi, að sögn
spænskra embættismanna.
Norðanátt fram á föstudag
Hafís hefur borist inn á Bakkaflóa
og Vopnafjörð en hafís er nú fyrir
öllu Norðurlandi og siglingaleiðin
varhugaverð allt frá Horni og austur
að Vopnafirði. Spáð er áframhald-
andi norðaustanátt næstu daga og
ekki útlit fyrir að þar verði breyting
á fyrr en á laugardaginn. Norðanátt-
in getur því orðið til þess að þjappa
ísnum enn nær ströndinni.
Y f i r l i t
Í dag
Sigmund 8 Minningar 22/26
Fréttaskýring 8 Dagbók 28/30
Vesturland 12 Myndasögur 28
Viðskipti 13 Víkverji 28
Erlent 14/15 Staður og stund 30
Listir 16, 31/32 Leikhús 34
Daglegt líf 17 Bíó 34/37
Umræðan 18/19 Ljósvakar 38
Bréf 19 Veður 39
Forystugrein 20 Staksteinar 39
* * *
Morgunblaðið Kringlunni 1, 103 Reykjavík. Sími 5691100 Innlendar fréttir frett@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson, aðstoðarfréttaritstjóri, aij@mbl.is Sigtryggur Sigtryggsson, aðstoðarfréttaritstjóri, sisi@mbl.is Erlendar fréttir Ásgeir Sverrisson, fréttastjóri,
asv@mbl.is Viðskipti vidsk@mbl.is Agnes Bragadóttir, fréttastjóri, agnes@mbl.is Úr verinu Hjörtur Gíslason, fréttastjóri, hjgi@mbl.is Daglegt líf Guðbjörg Guðmundsdóttir, gudbjorg@mbl.is Menning menning@mbl.is Orri Páll Ormarsson, ritstjórnarfulltrúi,
orri@mbl.is Skarphéðinn Guðmundsson, skarpi@mbl.is Umræðan|Bréf til blaðsins Magnús Finnsson, fulltrúi ritstjóra, magnus@mbl.is Guðlaug Sigurðardóttir, gudlaug@mbl.is Minningar minning@mbl.is Hilmar P. Þormóðsson, Stefán Ólafsson Dagbók|Kirkju-
starf Ellý H. Gunnarsdóttir, elly@mbl.is Íþróttir sport@mbl.is Sigmundur Ó. Steinarsson, fréttastjóri, sos@mbl.is Útvarp|Sjónvarp Auður Jónsdóttir, dagskra@mbl.is mbl.is netfrett@mbl.is Guðmundur Sv. Hermannsson fréttastjóri gummi@mbl.is
VEGNA fréttar um 5% verðlækk-
un á nýjum bílum hjá einu bílaum-
boðinu vill Bílabúð Benna taka
fram að á tímabilinu nóvember
2004 til mars 2005 hefur verð á
nýjum bílum fyrirtækisins lækkað
um allt að 11%. Benedikt Eyjólfs-
son framkvæmdastjóri bendir á að
þannig hafi verðið á vel útbúnum
Porsche Cayanne-jeppa lækkað úr
6.726 þúsundum krónum í 5.990 þ.
kr. eða um nær 11%. Þá hafi
Chevrolet-bílarnir sem fyrirtækið
kynnti í október einnig lækkað,
verðið á Chevrolet Kalos SE 1.4
fimm dyra hafi t.d. lækkað úr
1.289 þ. kr. í 1.199 þ. kr. eða um
7%.
Benedikt segir lækkunina á
Porsche um það bil jafnmikla og
lækkun evrunnar gagnvart krón-
unni. Chevroletinn hafi ekki að
öllu leyti verið í evrum heldur í
gengiskörfu. „Við höfum auðvitað
verið að lækka verðið á bílunum
því við höfum verið að fá þá ódýr-
ari inn.“
Evran hefur lækkað meira
Benedikt bendir á að allir tali
um lækkun dollarans gagnvart
krónunni og margir gefi upp sem
ástæðu fyrir að verð hafi ekki
lækkað að þeir kaupi ekki inn í
dollurum heldur evrum. Stað-
reyndin sé hins vegar sú að evran
hafi líka lækkað gagnvart krón-
unni, eða um 10% á um þremur
mánuðum. Hlutfallslega hafi evran
reyndar lækkað meira gagnvart
krónunni en dollarinn frá áramót-
um.
Allt að 11% lækk-
un á nýjum bílum
STJÓRN Félags fréttamanna mun
eiga fund með Markúsi Erni Ant-
onssyni útvarpsstjóra fyrripartinn í
dag.
Að sögn Jóns Gunnars Grjet-
arssonar, formanns félagsins, er til-
efni fundarins ráðning Auðuns
Georgs Ólafssonar í stöðu frétta-
stjóra Útvarpsins. Spurður um þau
skilaboð sem stjórnin muni færa út-
varpsstjóra bendir Jón Gunnar á að
áskorun Félags fréttamanna standi
og einnig áskorun starfsmanna
Ríkisútvarpsins um að útvarpsstjóri
endurskoði ákvörðun sína þangað
til annað hafi komið í ljós.
Fram hefur komið að margir fé-
lagsmenn velti alvarlega fyrir sér
að segja upp störfum þar sem þeir
telji vegið að starfsheiðri sínum
með ákvörðun útvarpsstjóra.
Funda með
útvarpsstjóra
ÞYRLA Landhelgisgæslunnar, TF-
SIF, sótti vélsleðamann sem slas-
aðist er sleði hans féll niður í gil
norðan við Strút við Mýrdalsjökul
um klukkan þrjú á laugardag.
Björgunarsveitarmenn úr Björg-
unarsveit Hafnarfjarðar, sem af til-
viljun voru staddir á svæðinu, höfðu
leitað manninn uppi og hlúð að hon-
um þar til þyrlan kom á vettvang.
Hafði maðurinn ekið fram af
hengju og lent á ísvegg. Hann var
fluttur á Landspítala – háskóla-
sjúkrahús í Fossvogi. Ekki fengust
upplýsingar á spítalanum í gær um
hvort maðurinn hefði slasast alvar-
lega eða um líðan hans.
Vélsleðamaður
ók fram af hengju
MIKIÐ álag hefur verið á heilbrigð-
isstofnunum vegna smitana af völd-
um RS-veirunnar, sem einkum
leggst á mjög ung börn.
Þannig komu rúmlega eitt þús-
und börn á bráðamóttöku Barna-
spítala Hringsins í janúar- og febr-
úarmánuði hvorum fyrir sig og var
stór hluti þeirra barna með RS-
veirusýkingu eða inflúensu.
Þá kemur fram í farsótt-
arfréttum Landlæknisembættisins
að vegna faraldursins hafi verið
sett á laggirnar sérstök hágæslu-
deild fyrir mjög veik ung börn í
febrúar. Níu börn hafi þurft að
leggja inn á deildina og þar af hafi
þrjú börn þurft að fara í önd-
unarvél.
Fram kemur ennfremur í farsótt-
arfréttum, að þótt faraldurinn sé í
rénun megi búast við áframhald-
andi álagi af völdum hans næstu
vikurnar.
Mikið álag vegna
RS-veirunnar
KARLMAÐUR og kona sluppu
ómeidd þegar Toyota-jeppi sem
þau voru í rann stjórnlaust niður
ísilagða og bratta hlíð í Tind-
fjallajökli í gærdag. Tókst þeim að
kasta sér út úr bílnum þegar hann
fór að renna aftur á bak niður jök-
ulinn. Konan, sem var farþegi í
bílnum, rann á klakanum á eftir
bílnum nokkur hundruð metra nið-
ur hlíðina áður en henni tókst að
stöðva sig.
Stöðvaði sig með því að reka
hníf ofan í klakann
GPS-staðsetningartæki sem er í
jeppanum sýnir að hann rann um
670 metra leið og fallhæðin var um
200 metrar, að sögn bílstjórans.
Var hámarkshraðinn á bílnum í
þessu falli 63 kílómetrar á klukku-
stund.
Bíllinn rann framhjá gili og
stöðvaðist á snjóbrú neðarlega í
gilinu á hjólunum og er að sögn bíl-
stjórans alveg óskemmdur.
„Það var mikil hálka og rok og
ekki nóg grip fyrir bílinn svo hann
rann af stað. Ég ákvað að við skyld-
um kasta okkur út úr bílnum sem
við og gerðum. Bíllinn húrraði aft-
ur á bak niður. Ég náði fljótlega að
stöðva mig með hníf sem ég er með
á mér og gat stungið honum ofan í
klakann en farþeginn rann á eftir
bílnum niður og hvarf,“ segir hann.
Biðu í tvær klukkustundir í
17 gráðu frosti og hávaðaroki
„Við vorum bæði kappklædd en
ég var vettlingalaus við stýrið og
það gafst enginn tími til að gera
neinar ráðstafanir þegar við köst-
uðum okkur út,“ segir bílstjórinn.
Sá hann á eftir konunni hverfa
niður hlíðina á eftir bílnum og hafði
lengi vel engar upplýsingar um af-
drif hennar. Beið hann í óvissu þar
til björgunarsveitarmenn frá
Hvolsvelli og Hellu komust á stað-
inn um tveimur tímum seinna.
Biðin var erfið í hífandi roki og
17 gráðu frosti. „Við sáum ekkert
niður og vissum því ekkert um
ástandið á henni en hún náði síðan
símasambandi með GSM-síma og
gat látið vita af sér og að hún væri
ómeidd.“
Eftir að konan náði að stöðva sig
færði hún sig niður hlíðina þar sem
hún fann bílinn. Gat hún beðið í
honum þar til bílstjórinn og
björgunarsveitarmennirnir komu
þar að.
Aðstoðuðu björgunarsveit-
armenn þau við að koma bílnum
niður í byggð síðdegis í gær og
komust þau á honum til síns heima í
Reykjavík í gærkvöldi.
Bílstjórinn sem hefur stundað
fjalla- og jöklaferðir í yfir 20 ár
segist aldrei fyrr hafa þurft að
kalla á aðstoð. Samspil ísingar og
veðurs hafi valdið þessu óhappi.
Fyllilega réttlætanlegt hafi verið
að kalla eftir aðstoð til að hafa sem
bestan viðbúnað ef slys hefði orðið,
þar sem alger óvissa var um afdrif
farþegans. Sagði hann björg-
unarmennina eiga þakkir skildar
fyrir snögg viðbrögð.
Sluppu ómeidd eftir að hafa kastað sér úr jeppa sem rann
670 metra niður ísilagða hlíð í Tindfjallajökli í gærdag
Sá farþegann renna á
eftir bílnum og hverfa
Jeppinn rann aftur á bak niður jökulinn og framhjá gili og stöðvaðist á snjóbrú neðarlega í gilinu.