Morgunblaðið - 14.03.2005, Side 4
4 MÁNUDAGUR 14. MARS 2005 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Heimsferðir bjóða nú einstakt tækifæri í vor til að dveljast við frábær-
ar aðstæður á suðurströnd Spánar í 2 vikur á ótrúlegum kjörum. Þú
kaupir 2 flugsæti en greiðir aðeins fyrir 1. Beint flug til Costa del Sol
þar sem þú nýtur þjónustu fararstjóra Heimsferða allan tímann og
getur valið um spennandi kynnis-
ferðir. Við bjóðum þér góð íbúða-
hótel á meðan á dvölinni stendur.
Skógarhlíð 18, sími 595 1000.
www.heimsferdir.is
Verð kr. 19.990
Flugsæti með sköttum,
2 fyrir 1 tilboð.
Netverð.
Gisting frá kr. 1.990
M. v. 2 í stúdíóíbúð á Bajondillo.
Netverð á mann pr. nótt.
Munið Mastercard
ferðaávísunina
Tveir fyrir einn til
Costa del Sol
20. mars
frá kr. 19.990
Síðustu sætin
BRYNJÓLFUR Bjarnason, forstjóri
Símans, sendi frá sér yfirlýsingu í
gær, sem hér er birt í heild sinni:
„Vegna fréttaflutnings Stöðvar 2
dagana 8., 9. og 12. mars síðastliðinn,
og vegna annarra umræðna, tel ég
rétt að gefa frá mér eftirfarandi yf-
irlýsingu:
Ég er formaður stjórnar Almenna
lífeyrissjóðsins og varaformaður í
stjórn Bakkavarar. Auk þess á ég
sæti í stjórn Icelandic USA, Sindra
hf. og Farice ehf. Stjórn Símans hefur
verið kunnugt um stjórnarsetu mína í
öllum þessum félögum og er þeim
samþykk. Allar upplýsingar varðandi
stjórnarsetu af minni hálfu hafa legið
ljósar fyrir allan þann tíma er ég hef
setið við stjórnvölinn hjá Símanum.
Sem kunnugt er stendur nú yfir,
öðru sinni, undirbúningur að sölu rík-
isins á hlut sínum í Símanum. Ólíkt
því sem átti við í fyrri einkavæðing-
aráformum er Síminn nú skráður í
Kauphöll Íslands og vinnur fyrirtæk-
ið því nú eftir reglum sem gilda á
verðbréfamarkaði, þ.m.t. reglum um
stjórnarhætti og meðferð innherja-
upplýsinga. Annað sem greinir þessi
tvö ferli að er að stjórnendur Símans
tóku virkan þátt í söluferlinu fyrir
fjórum árum, en ekki nú. Sala ríkisins
á hlutabréfum í Símanum er alfarið í
höndum framkvæmdanefndar um
einkavæðingu. Hið alþjóðlega fjár-
málafyrirtæki Morgan Stanley veitir
nefndinni faglega ráðgjöf og aðra
þjónustu í tengslum við undirbúning
sölunnar. Á þessu stigi hafa stjórn-
völd enn ekki upplýst með hvaða
hætti staðið verði að sölu fyrirtæk-
isins. Eins er algerlega óljóst hvaða
fjárfestar munu verða til þess að
bjóða í Símann.
Því tel ég enga þá stöðu eða hags-
munaárekstra vera fyrir hendi sem
gefa tilefni til þess að ég víki úr
stjórnum þeirra fyrirtækja sem ég á
sæti í, að minnsta kosti ekki á þessari
stundu. Í umræðunni hefur verið
haldið á lofti að þess hafi verið óskað
að forveri minn í forstjórastól Símans,
Þórarinn Viðar Þórarinsson, segði sig
úr stjórn lífeyrissjóðsins Framsýnar
og Þróunarfélagsins vegna þáverandi
einkavæðingaráforma. Athygli skal
vakin á því að Þórarinn sagði sig úr
stjórnum þessara félaga 8. október
2001, eða mánuði eftir að ríkisstjórnin
samþykkti tillögu framkvæmda-
nefndar um einkavæðingu um sölu-
fyrirkomulag á fyrirtækinu. Af þessu,
sem og öllu ofangreindu, má vera ljóst
að ekki er um sambærileg mál að
ræða.
Allt frá því að ég hóf störf sem for-
stjóri Símans hef ég lagt áherslu á
það að skapa ró um starfsemi félags-
ins og vinna af einurð og heiðarleika
að stjórnun þess. Góð sala á fyrirtæk-
inu er mér meira virði en sú sannfær-
ing mín að á þessum tímapunkti sé
ekki um hagsmunaárekstra að ræða
vegna mögulegs áhuga félaga sem ég
tengist. Af þeim sökum hef ég tekið
þá ákvörðun að segja mig úr stjórnum
Bakkavarar, Almenna lífeyrissjóðsins
og Sindra hf. Geri ég þetta með heild-
arhagsmuni Símans í huga og til þess
að söluferli fyrirtækisins verði hafið
yfir allan vafa.
Yfirlýsing frá Brynjólfi Bjarnasyni forstjóra Símans
Segir sig úr stjórnum
þriggja félaga
HAFÍS barst í gær inn á Bakkaflóa og
Vopnafjörð. Hafís er úti fyrir öllu Norður-
landi og er siglingaleiðin orðin mjög var-
hugaverð allt frá Horni og austur um allt til
Vopnafjarðar. Hafísjaka hefur rekið á fjörur
og ís er á leið inn Skagafjörð og Húnaflóa,
samkvæmt upplýsingum Þórs Jakobssonar,
veðurfræðings á Veðurstofu Íslands.
Veðurstofan spáir áframhaldandi norðaust-
anátt næstu daga og lítur ekki út fyrir að
breyting verði þar á fyrr en á laugardaginn,
en þá er spáð hvassri austlægri átt með
slyddu eða rigningu og hlýnandi veðri. Norð-
anáttin getur orðið til þess að þjappa ísnum
enn nær ströndinni, að sögn Þórs Jakobs-
sonar.
Sá jaka fljóta inn Vopnafjörð
og fór þeim fjölgandi
„Við fengum fregnir af því að það væri þétt
ísspöng 3,3, sjómílur fyrir norðan Svínalækj-
artanga, á norðanverðu Langanesi, og mikið
jakahröngl við Fontinn yst á Langanesi,“ seg-
ir Þór.
Í gærmorgun bárust einnig þær fréttir að
ís væri kominn inn á Bakkaflóa og hafn-
arvörður á Vopnafirði sagðist sjá jaka fljóta
inn Vopnafjörð og fór þeim fjölgandi. Þá hafa
stakir jakar sést á fjörum alveg frá Bakka-
firði og út að Digranesvita. Tilkynningar bár-
ust frá Hrauni á Skaga um að þar sæist ís og
ísspöng og tilkynnt var um íshrafl við Sauða-
nesvita við Siglufjörð.
„Við höfum fengið fregnir af hafís á Húna-
flóa, þetta eru spangir á vestanverðum Húna-
flóa og dreifður ís eða stakir jakar eru á allri
siglingaleið á Húnaflóa,“ segir Þór.
Veðurstofan sendi frá sér hafísviðvörun í
gær um að ísdreifar og spangir væru á sigl-
ingaleiðinni úti fyrir öllu Norðurlandi, út af
norðanverðum Vestfjörðum og við Norðaust-
urland.
Skip þræddu sér leið með
landi til að komast hjá ísnum
Skip þurftu að breyta fyrirhuguðum sigl-
ingaleiðum sínum í gær vegna hafíss og
slæms skyggnis norður af landinu, samkvæmt
upplýsingum Tilkynningaskyldunnar.
Skip fór í gegnum mjög þéttan ís við
Skagatá og þurfti að þræða sér leið með landi.
Júpíter ÞH varð að fara út af hefðbundinni
siglingaleið og sigla inn allan Bakkaflóa til að
komast suður fyrir Gerpi og tankskip sem var
á leið út Eyjafjörðinn sneri til baka vegna íss.
Það hefur gert siglingar enn erfiðari að
hríð er norður og austur af landinu og
skyggni afar lítið og því geta litlir jakar, sem
ekki sjást í ratsjá, reynst hættulegir. Þegar
birta tók í Grímsey í gærmorgun kom hins
vegar í ljós að hafísinn, sem barst að eynni sl.
föstudagskvöld og á laugardag, var nánast að
öllu leyti horfinn.
„Við sjáum bara þennan hroða sem kom á
fjörur í gær [laugardag]. Það hefur að vísu
ekki verið gott skyggni í dag en við sjáum
engan ís,“ segir Óttar Jóhannsson, oddviti í
Grímsey, í gær.
Ekki hefur þurft að loka höfninni ennþá að
sögn Óttars og er ekki talin hætta á að bátar
skemmist í höfninni komi ísinn aftur upp að
eynni, en Grímseyingar eru reiðubúnir að
strengja vír fyrir höfnina á tveimur stöðum ef
þörf krefur.
Eigendur tveggja báta í Grímsey fóru fyrir
helgi með báta sína upp í Eyjafjörð til að geta
róið þaðan á línu þegar fregnir bárust af að ís
nálgaðist eyna.
Bendir til að ísinn sé ekki alveg
samfelldur fyrir norðan
Þór Jakobsson segir að fregnir af að ísinn
hafi færst frá Grímsey bendi til þess að ísinn
sé ekki alveg samfelldur fyrir norðan. Því
megi ætla að þótt siglingaleiðir lokist muni
það ekki vara lengi.
Flugvél Landhelgisgæslunnar fór í eftirlits-
og ískönnunarflug síðastliðinn laugardag og
fer hún aftur í könnunarflug í dag. Þá mátti
sjá þéttar ísspangir fimm til tíu sjómílur suð-
austur af Langanesi sem lágu til austurs.
Aukið eftirlit hefur verið á Veðurstofu Ís-
lands um helgina vegna hafíssins fyrir norð-
an.
Siglingaleiðin orðin mjög varasöm úti fyrir öllu Norður- og Norðausturlandi vegna hafíssins
Norðanátt fram á föstudag getur
þjappað ísnum nær landi
Morgunblaðið/Erlingur Thoroddsen
Stórir hafísjakar voru komnir upp að landi í gær í Geirsvík vestan við Rauðanúp á Melrakkasléttu. Þannig var ástandið víða á sléttunni.
MIKIÐ er um landfasta ísjaka í víkum og lónum á Melrakkasléttu allt frá Ásmundarstöðum
vestur í Leirhöfn. Í Hraunhöfn, vestan Hraunhafnartanga, hrönnuðust myndarlegir jakar upp
í briminu. Út af Hraunhafnartanga mátti líta nokkra stóra jaka, sem lónuðu utan við brim-
garðinn.
Landfastan ís mátti í gær sjá við Brúsavík og Skinnalónsey og töluverður ís var kominn inn á
Skinnalónið. Rifsvíkin var full af jökum og Rifstanginn austanverður. Þá var töluvert hrafl
komið inn á Sigurðarstaðavík. Ofan af Rauðanúp má sjá ístungu nálægt landi og nokkru utar
samfellda ísrönd. Vegna hríðar sást ekki hvort þar var um að ræða hina eiginlegu ísbrún eða
hvort þar hafi verið önnur ístunga.
Myndarlegur jaki sást utan við hafnarmynnið á Raufarhöfn og er ekki talið ólíklegt, miðað
við vindátt, að hann nái landi í hafnarmynninu eða við það.
Landfastir ísjakar í víkum og
lónum á Melrakkasléttu
Raufarhöfn. Morgunblaðið.