Morgunblaðið - 14.03.2005, Síða 9

Morgunblaðið - 14.03.2005, Síða 9
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 14. MARS 2005 9 FRÉTTIR Opið virka daga frá kl. 10-18 laugardaga frá kl. 10-16 • Engjateigi 5 • Sími 581 2141 Nýjar peysur                               Eddufelli 2 Bæjarlind 6 sími 557 1730 sími 554 7030 Nýkomið Str. 36-56 Kynnum úrval af postulíni frá Arzberg. Falleg hönnun og vönduð vara. Kynningarverð! Kynn ing! RÍKISKAUP mátu hvað kostar að flytja Ægi og Tý fram og til baka til Póllands, flytja áhöfnina út o.s.frv. þegar ákveðið var að ganga til samn- inga við pólsku stöðina Morsku um breytingar og endurbætur á varð- skipunum. Að teknu tilliti til þess var tilboð Morsku um sjö milljónum kr. lægra en tilboð Slippstöðvarinnar. Eins og fram hefur komið fékk Slippstöðin þriðju hæstu einkunnina þótt tilboð hennar hafi verið næst- lægst þar sem hún hefur ekki ISO- vottun, öfugt við Morsku. Ingólfur Sverrisson, deildarstjóri hjá Samtökum iðnaðarins (SI), seg- ist álíta að ekki hafi þurft að bjóða breytingar og endurbætur á varð- skipunum út á Evrópska efnahags- svæðinu. Hann líti á þetta sem hvert annað útboðsverk og ekki sé skylt að bjóða þau út nema þau losi 500 millj- ónir króna. Ingólfur segir skorta á vilja til þess að halda verkefnum af þessu tagi innanlands. „Ég held að þetta sé stjórnkerfislægur vandi fremur en það skorti á vilja stjórn- valda. Það er eins og embættis- mannakerfið geri ekkert til þess að setja sig inn í það hvernig á að fram- fylgja vilja stjórnvalda til þess að gera allt sem hægt er til að halda svona verkum inni í landinu.“ Vottun ræður ekki úrslitum Spurður um vægi ISO-vottunar sem pólska stöðin hefur en ekki Slippstöðin segir Ingólfur: „Skipa- iðnaðurinn hér býr við það og hefur alltaf gert að vera undir mjög ströngu eftirliti flokkunarfélaga og Siglingamálastofnunar og hvert ein- asta handtak er tekið út. Hvort stöð- in er ISO-vottuð eða ekki ræður eng- um úrslitum í þessu sambandi enda hefur þessi stöð gert við og smíðað fjöldann allan af skipum sem stand- ast ýtrustu gæðakröfur yfirvalda.“ Tilboð Slippstöðvarinnar sjö milljónum króna hærra Þurfti ekki að bjóða verkið út á Evrópska efnahagssvæðinu, segir SI IÐNAÐARRÁÐHERRA, Valgerður Sverrisdóttir, segist hafa orðið fyrir vonbrigðum með að breyt- ingar og endurbætur á varðskip- unum hefðu ekki farið til inn- lendrar skipasmíðastöðvar og hún telur lítið reynt til þess að halda verkum í landinu. Hún segist ætla að kynna sér betur útboð Ríkis- kaupa vegna breytinga og endur- bóta á varðskipunum Ægi og Tý í vikunni. „Eins og hlutirnir eru í dag er- um við ekki samkeppnishæf, meðal annars vegna þess að aðstöðugjald er endurgreitt hér sem nemur 4,5%. En það er búið að fara í mikla vinnu að frumkvæði okkar í iðnaðar- og viðskiptaráðuneytinu í sambandi við þessi mál. Í sam- anburði við aðrar þjóðir þyrfti endurgreiðslan að vera 6%. Það myndi strax hjálpa og ég held að það sé mál sem verður að ein- henda sér í. Svo finnst mér reynd- ar líka að það sé lítið reynt til þess að halda verkum í landinu. Ég geri mér grein fyrir því að það eru lög sem gilda um útboð og eins það að samkvæmt EES-samningnum er ekki heimilt að mismuna þjóðum innan svæðisins. Engu að síður virðast þjóðirnar beita ýmsum brögðum til þess að halda svona mikilvægum verkefnum í landi,“ segir iðnaðarráðherra. Lítið reynt til að halda verkum í landinu MEÐ skjótum viðbrögðum tókst slökkviliðsmönnum frá Vík í Mýr- dal og bændum í nágrenni við Dyr- hólaey að koma í veg fyrir að sinu- eldur, sem kviknaði milli bæjanna Loftsala og Dyrhóla við Dyrhólaey í gær, bærist í íbúðarhús og sum- arhús. Tilkynnt var um eldinn skömmu eftir hádegi í gær. Samkvæmt upp- lýsingum lögreglu er talið að um fjórir hektarar lands hafi brunnið. Eldurinn breiddist mjög skjótt út þar sem mikið rok var og sinan þurr. Kom slökkvilið frá Vík og bændur komu frá nærliggjandi bæjum með haugsugur fullar af vatni og dældu á eldinn. Leit í fyrstu út fyrir að eldurinn myndi berast í byggingarnar en vindáttin snerist og beindi eldinum frá bygg- ingunum. Tókst með samhentu átaki 20 til 30 slökkviliðsmanna og bænda að ráða niðurlögum eldsins og tók slökkvistarfið um tvo klukkutíma. Morgunblaðið/Jónas Erlendsson Mikill sinubruni varð á milli bæjanna Dyrhóla og Loftsala í Dyrhólahverfi í Mýrdal síðdegis í gær. Slökkviliðs- mönnum og bændum tókst með snarræði að koma í veg fyrir að eldurinn bærist í íbúðarhúsið á Loftsölum. Sinueldur ógnaði bygg- ingum við Dyrhólaey ÍSLANDSMIÐILL hefur gangsett fyrsta þráðlausa stafræna sjónvarpsdreifikerf- ið á Akureyri og nær útsendingarsvæðið í fyrstu í bænum og nágrenni hans. Ak- ureyringar og nærsveitarmenn fá þar með sömu þjónustu og íbúar suðvestur- hornsins, en í boði er lággjalda áskrift- arsjónvarp með góðum myndgæðum, 8 erlendar sjónvarpsstöðvar og 3 íslensk- ar. „Þetta er blandaður pakki, frétta-, fræðslu- og íþróttarásir og barnaefni svo eitthvað sé nefnt,“ sagði Njörður Tóm- asson, framkvæmdastjóri Íslandsmiðils, þegar dreifikerfið var opnað. Áskrifandi þarf myndlykil ásamt loft- netabúnaði til að ná útsendingum. Ljós- gjafinn á Akureyri sér um sölu og sér einnig ásamt Rafmönnum um uppsetn- ingu. Áskriftargjaldið er 1.790 krónur á mánuði og stofngjaldið er tæpar 8.000 krónur. „Þetta er tvímælalaust liður í því að efla svæðið og bæta okkar stöðu, að bjóða fólki hér upp á öll lífsins gæði,“ sagði Kristján Þór Júlíusson, bæjarstjóri á Akureyri, sem opnaði dreifikerfið formlega. Þráðlaust stafrænt sjón- varpsdreifikerfi á Akureyri Morgunblaðið/Kristján Kristján Þór Júlíusson bæjarstjóri opnaði fyrir þjónustuna með form- legum hætti og naut aðstoðar Njarðar Tómassonar framkvæmdastjóra. smáauglýsingar mbl.is

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.