Morgunblaðið - 14.03.2005, Síða 11
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 14. MARS 2005 11
FRÉTTIR
UM HELGINA var undirritaður
samningur í Danmörku, þar sem
þeir Pálmi Haraldsson og Jóhannes
Kristinsson keyptu norræna lágfar-
gjaldaflugfélagið Sterling, sem er
stærsta lágfargjaldaflugfélagið á
Norðurlöndum. Kaupverðið er tæpir
fimm milljarðar króna.
„Ég og félagi minn Jóhannes rek-
um nokkur eignarhaldsfélög og við
leitum stöðugt að nýjum viðskipa-
tækifærum. Við sáum ákveðin tæki-
færi í Sterling, þegar við fréttum af
því á síðasta ári, að norska skipa-
félagið Fred. Olsen hefði lýst yfir
áhuga á því að selja félagið,“ segir
Pálmi.
Hann segir að þeir hafi í kjölfar
þess sett sig í samband við félagið og
þeir hafi undanfarna mánuði unnið
að athugun á því að kaupa félagið.
„Við komumst fljótlega að því að það
eru miklir möguleikar í þessu félagi
fyrir okkur. Félagið er í sjálfu sér
ágætlega rekið, þótt það hafi ekki
verið rekið með hagnaði. Það er með
réttu vöruna, réttu flugvélarnar,
rétta konseptið og við höfum trú á
því, að það sé hægt að reka lágfar-
gjaldaflugfélag með hagnaði,“ segir
Pálmi jafnframt.
Samstarf Iceland
Express og Sterling
Pálmi er spurður hvers konar
samstarf verði á milli félags þeirra
Iceland Express og Sterling: „Við
sjáum strax í upphafi
þá möguleika að tengja
saman leiða- og sölunet
Iceland Express við
Sterling. Farþegar
sem munu kaupa miða
hjá Iceland Express,
munu geta keypt sér
áfram miða með Sterl-
ing og öfugt. Þetta
mun veita ýmsa þægi-
lega möguleika fyrir ís-
lenska ferðalanga og
ekki síður fyrir íbúa
Suður-Evrópu, sem
vilja ferðast norður á
bóginn, hvort sem er
hingað til Íslands eða
til hinna Norður-
landanna.“
Hann segir það ekki tímabært að
ræða hvort Iceland Express og
Sterling verði sameinuð í einu félagi.
Slíkir möguleikar verði skoðaðir síð-
ar.
Pálmi segir að samningaviðræður
um þessi kaup, hafi verið langar og
strangar. Þær hafi hafist í lok síðasta
árs og nú um helgina hafi náðst sam-
komulag með undirritun kaupsamn-
ings.
Spurður um verð-
mæti samningsins og
hvernig kaupin séu
fjármögnuð, segir
Pálmi: „Við kaupum
100% eignarhlut í
Sterling á tæpa fimm
milljarða króna. Við
unnum mjög náið með
Kaupthing í Lúxem-
borg, sem var okkar
ráðgjafi í þessu máli, og
fjármögnunin er þann-
ig bæði með okkar eigin
framlagi og lánsfé.“
90% farmiða seldir
á Netinu
Félagið flýgur á tæp-
lega 30 áfangastaði í
Evrópu, frá Kaupmannahöfn, Osló
og Stokkhólmi.
Flestir áfangastaðir Sterling eru í
Suður-Evrópu, en einnig á megin-
landi Evrópu, Bretlandi og Írlandi,
auk þess sem félagið flýgur á milli
átta áfangastaða á Norðurlöndum.
Um 90% af farmiðum Sterling eru
seld á Netinu, sem Pálmi segir að
þýði mun minni kostnað við farmiða-
söluna.
Pálmi segir að Sterling hafi tapað
rúmlega 100 milljónum danskra
króna á síðastliðnu ári. „Það er ljóst
að við munum leggja allt aðrar
áherslur í rekstrinum en gert hefur
verið. Við þurfum að skoða tekjulið-
ina, kostnaðarþættina og breyta fé-
laginu samkvæmt okkar áherslum,
því við höfum það sem mottó að reka
okkar félög með því sem kallað er á
ensku „One Page Management“ en í
því felst m.a. að stytta boðleiðir og
auka hagkvæmni. Við teljum að tap-
ið á liðnu ári, hafi að mestu leyti
komið til vegna ytri aðstæðna, svo
sem þróunar á eldsneytisverði. Stað-
reyndin er sú að félagið hefur vaxið
mjög hratt, eða úr því að vera með
um 70 þúsund farþega árið 2000 til
tæplega tveggja milljóna á þessu ári,
í áætlunarflugi. Þessi hraði vöxtur
hefur auðvitað kostað sitt í markaðs-
setningu og fleiru. Við munum nú
draga úr þessum hraða vexti og
reyna að einskorða okkur við þennan
markað sem er til staðar. Okkar
skilaboð inn í félagið eru alveg skýr:
Félagið verður rekið með hagnaði á
árinu 2005. Okkur hefur áður tekist
að snúa dæminu við í rekstri. Við
teljum það reyndar vera okkar sér-
svið og við munum einbeita okkur að
því nú.“
Í kynningu á heimasíðu félagsins
kemur fram að það sé fyrsta lág-
gjaldaflugfélagið á Norðurlöndum.
Fram kemur að á liðnu ári hafi far-
þegafjöldi félagsins verið liðlega 1,8
milljónir. Til samanburðar má geta
þess að Flugleiðir, sem nú bera nafn-
ið FL Group fluttu á liðnu ári 1,3
milljónir farþega í áætlunarflugi.
Félagið hefur verið í eigu tveggja
dótturfélaga norska skipafélagsins
Fred. Olsen, Ganger Rolf ASA og
Bonheur ASA, sem bæði eru skráð
félög í Kauphöllinni í Osló. Félagið
er með höfuðstöðvar sínar í Kaup-
mannahöfn og starfsmenn þess eru
liðlega 600.
16% markaðshlutdeild
í Evrópu
Lágfargjaldaflugfélög í Evrópu
höfðu um 16% markaðshlutdeild á
árinu 2004 og væntingar fráfarandi
eigenda félagsins eru að svigrúm sé
til þess að auka hlutdeildina í allt að
25%.
Sterling hóf starfsemi sem leigu-
flugfélag 1960 og 1994 bættist frakt-
flug við starfsemi félagsins. Árið
2001 breyttu eigendur um stefnu,
hættu fraktflugi, drógu úr leiguflugi
og hófu áætlunarflug, með sérstaka
áherslu á lág flugfargjöld.
Þessi breytta áhersla skilaði sér
fljótt í auknum farþegafjölda, því ár-
ið 2001 flaug um hálf milljón farþega
með félaginu í leiguflugi, en í áætl-
unarflugi aðeins um 200 þúsund. Á
liðnu ári var fjöldi farþega í áætl-
unarflugi hins vegar kominn í rúm-
lega 1,2 milljónir, en leiguflugsfar-
þegar voru innan við 600 þúsund.
Áætlanir félagins fyrir árið í ár
gera ráð fyrir því að farþegar í áætl-
unarflugi verði yfir 1,6 milljónir en
farþegafjöldi í leiguflugi fari niður
fyrir 400 þúsund.
Einn yngsti flugfloti
í Evrópu
Flugfloti Sterling samanstendur
af 10 Boeing 737–800 vélum, sem eru
að sögn Pálma einn yngsti flugfloti
Evrópuflugfélaga. Vélarnar eru ým-
ist í rekstrarleigu eða í eigu Sterling.
Hver vél tekur 189 farþega. „Þessar
vélar eru taldar þær bestu sem til
eru í heiminum. Meðalaldur þeirra
er þrjú og hálft ár, þær eru mjög
sparneytnar og nútímalegar. Við er-
um því að fá þann besta flugflota sem
völ er á á markaðnum,“ segir Pálmi
Haraldsson að lokum.
Keyptu stærsta lágfargjaldaflugfélag á Norðurlöndum á tæpa fimm milljarða
Pálmi og Jóhannes
eignast Sterling
! "# #
!
$#
!
%
"&
Pálmi Haraldsson og
Jóhannes Kristinsson
hafa í félagi keypt
skandinavíska lágfar-
gjaldaflugfélagið Sterl-
ing. Gengið var frá
kaupsamningnum nú
um helgina. Agnes
Bragadóttir hitti Pálma
að máli og fræddist um
þessi síðustu viðskipti
þeirra félaga.
agnes@mbl.is
Pálmi Haraldsson,
annar tveggja nýrra
eigenda Sterling.
SAMTÖK sjálfstæðra skóla
voru stofnuð á fjölmennum
fundi í Reykjavík í síðustu
viku og var Margrét Pála
Ólafsdóttir kosin formaður
samtakanna.
„Ég held að tímasetning
stofnunar þessara samtaka
sé hárétt og nauðsynleg nú
þegar áhugi bæði foreldra,
viðskiptalífs og stjórnvalda
eykst stöðugt á innihaldi
náms, bæði á leik- og
grunnskólastigi, sem og
öðrum skólastigum. Ég
man þá tíð fyrir aldarfjórð-
ungi þegar ekki nokkur
maður nennti að tala um
leikskólamenntun barna.
Það hafa orðið vatnaskil.
Áhuginn hefur aukist og
það er tímabært að okkar
rödd hljómi,“ sagði Mar-
grét Pála á fundinum og
tók fram að sér væri sér-
stakt ánægjuefni að allir
þeir þrjátíu og sex sjálf-
stæðu leik- og grunnskólar
sem reknir eru á landinu
hafi kosið að vera með í
stofnun samtakanna.
„Við vitum öll að hug-
sjónabundna markmið okk-
ar mun aldrei rúmast innan
hins stóra hverfisskóla sem
á að þjóna öllum. Við vitum
öll að til að taka þau sér-
stöku skref til að geta gert
nákvæmlega eins og okkar
hugsjón býður okkur í
skólastarfi, til að gera það
albesta sem við viljum gera
fyrir börn þá vitum við að
við þurfum að stíga aðeins
út fyrir. Að hið faglega
frelsi krefst þess að ramm-
inn í kringum okkur sé
frjálsari en hið opinbera
kerfi hefur leyft,“ sagði
Margrét Pála.
kvæmdastjóri ráðsins, á að
Verslunarráð hefur í gegn-
um tíðina lagt áherslu á að
hlúa að fyrirtækjum sem
eiga undir högg að sækja.
Sagðist hann líta á skóla-
stjórnendur sem forystufólk
í litlum fyrirtækjum sem
ástæða væri til að hlúa að
og stuðla að aukinni
grósku, enda væru grunn-
skólarnir afar mikilvægir
þar eð þeir leggja grunn að
menntun einstaklinganna.
Hvetur til samstarfs
við skóla erlendis
Minnti hann á að í ná-
grannalöndum okkar væru
20–30% leik- og grunn-
skólas sjálfstæðir og hvatti
til þess að nýstofnuðu sam-
tökin ættu samstarf við
samtök sjálfstæðra skóla í
Evrópu.
Á fundinum voru auk
Margrétar Pálu kosin í
stjórn þau Edda Huld Sig-
urðardóttir, sem er vara-
formaður, Grímur Atlason,
Lovísa Hallgrímsdóttir og
Margrét Theodórsdóttir.
Þorgerður Katrín Gunn-
arsdóttir menntamálaráð-
herra fagnaði í ávarpi sínu
stofnun samtakanna enda
nauðsynlegt að sjálfstæðir
skólar fái rödd í samfélag-
inu. „Það er afar mikilvægt
að sjálfstæðir skólar þrífist
í skólakerfinu og að mínu
mati höfum við verið að
fjölga tækifærum fólksins í
landinu með einkaskólum
og sjálfstæðum skólum. Það
er ekkert því til fyrirstöðu
að aðrir en opinberir aðilar
sinni menntun íslenskra
barna. Reynslan sýnir að
það hafi gefist vel. Mik-
ilvægt er að forystumenn
sem koma að menntamálum
átti sig á því að tilvist sjálf-
stæðra skóla er ekki ógnun
við okkar samfélag heldur
miklu frekar tækifæri til að
halda áfram að byggja á
þeirri grunngerð sem við
erum stolt af í okkar sam-
félagi.“
Bakhjarl hinna nýstofn-
uðu samtaka er Versl-
unarráð. Á fundinum
minnti Þór Sigfússon, fram-
Verslunarráðið verður bakhjarl Samtaka sjálfstæðra skóla sem stofnuð voru á dögunum
Tímabært
að okkar
rödd hljómi
Morgunblaðið/Jim Smart
Margrét Pála Ólafsdóttir, nýkjörinn formaður samtakanna.