Morgunblaðið - 14.03.2005, Side 27
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 14. MARS 2005 27
Smáauglýsingar 569 1111 www.mbl.is/smaaugl
Heilsa
NÝTT NÝTT NÝTT
Viltu léttast hratt og örugglega?
Anna Heiða léttist um 35 kg, ég
um 25 kg, Dóra um 15, þú?
www.diet.is-www.diet.is
Hringdu! Margrét s. 699 1060.
Herbalife
Frábærar heilsu- og megrunar-
vörur. Aðstoð veitt ef óskað er.
www.slim.is - www.slim.is
Ásdís - 699 7383.
Húsnæði í boði
Skammtímaleiga í Vesturbæn-
um. Björt og rúmgóð 2ja her-
bergja íbúð í Vesturbænum. Leig-
ist reglusömum aðila í nokkra
mánuði. Leigist með öllum
nauðsynjum. s.ara@get2net.dk /
0045 32956785.
105 Rvík - Laus núna. 80 fm
íbúð, björt og falleg til leigu til 1.
ágúst 2005. Mánaðarleiga 80 þús.
+ trygging. Baldur1@simnet.is
Námskeið
Orka manns og náttúru Erla
Stefáns sjáandi verður með nám-
skeið laugardaginn 9.apríl kl.13-
18 í Púlsinum. Lærðu m.a. að nota
spáprik og pendúl til að mæla
orku. Nánari uppl.á
www.pulsinn.is
Skemmtanir
Leoncie, hin frábæra söngkona
vill skemmta um land allt með
heitustu powerpop-smellina sína.
Radio rapist, Ást á pöbbnum,
Wrestler o.fl. Diskurinn fæst í
Skífubúðum og Tólf tónum.
Bókunasími 691 8123.
www.leoncie-music.com.
Bókhald
Skattskýrslur, bókhald, laun,
vsk, eldri framtöl, stofnun ehf.,
afsöl og fl. Góð/ódýr þjónusta. S.
699 7371, Grand-ráðgjöf ehf.
Skattframtöl
Skattframtal 2005. Framtalsþjón-
usta fyrir einstaklinga og félög.
Einfalt framtal kr. 2.700. Stofnun
ehf. og hf. Ódýr og vönduð þjón-
usta. Framtalsþjónusta HR, sími
663 4141.
Þjónusta
Íbúðaþrif - Heimilisþrif
Hreint og fágað í krók og kima.
Einnig roskinn smiður með fima
fingur, tilbúinn í léttar viðgerðir
á hurðum, hillum, skápum og
breyti um lit á veggjum.
Uppl. í síma 694 9565.
Hitaveitur/vatnsveitur
Þýskir rennslimælar fyrir heitt
og kalt vatn.
Boltís sf.,
s. 567 1130 og 893 6270.
Byggingavörur
Bátar
Vélbátur til sölu, einnig lyfta á
kassa á sendibíl.
Upplýsingar gefur Bjarni Haralds-
son, sími 453 5124.
Bílar
Toyota Tacoma, árg. '03, ek. 24
þús. mílur BilarUSA.com
Íslenskir starfsmenn geta fundið
draumabílinn, mótorhjólið eða
húsbílinn. Erum með sambönd við
margar bíla-heildsölur. Sendið
okkur fyrirspurnir á
www.bilarusa.com eða á
info@bilarusa.com
Nissan Patrol GR árg. '96. Ek.
140 þús. Samlæsingar. Góður og
fallegur bíll. Verð 1.450 þús. Upp-
lýsingar í síma 693 3342.
Mitsubishi Galant ES 3000,
árgerð 1999, ekinn 70 þús. km.
Verð 1.250 þús. Uppl. í síma
892 0932 eða 565 6132.
Mercedes Benz E280 '93. M.
Benz E280 '93 til sýnis og sölu á
Bílasölu Guðfinns, Bíldshöfða 8.
Ek. 200 þ. km, ssk., rafm. í rúðum,
toppl., sumar- og vetrardekk. 6
cyl., tæpl. 200 hö. Skoðaður '06.
Verð 790 þ.
Jeppar
MMC Pajero Sport 2001 3000 cc
slagrými, ek. 113 þús. km., sjálf-
sk., 4x4. CD, álfelgur, rafm. í öllu,
loftkæling, ABS, 5 dyra, skráður
5 manna. Verð 2 millj. Upplýsing-
ar í síma 699 1933.
Ökukennsla
Ökukennsla Reykjavíkur ehf.
Ökukennsla akstursmat.
Ævar Friðriksson
Toyota Avensis '02,
863 7493/557 2493.
Gylfi Guðjónsson
Subaru Impreza,
696 0042/566 6442.
Gylfi K. Sigurðsson
Nissan Almera,
892 0002/568 9898.
Snorri Bjarnason
Toyota Avensis, bifhjólak.
892 1451/557 4975.
Sverrir Björnsson
Volkswagen Passat,
892 4449/557 2940.
Vagn Gunnarsson
Mersedes Benz,
894 5200/565 2877.
Vinnuvélar
Valtarar. Til sölu valtarar, 8 tonn,
árgerð 1999-2000. Upplýsingar í
síma 892 3524.
Þjónustuauglýsingar 569 1111
FJARLÆGJUM STÍFLUR
VALUR HELGASON ehf.
Sími 896 1100 - 568 8806
Röramyndavél til að skoða og
staðsetja skemmdir í frárennslislögnum
DÆLUBÍLL
úr vöskum, wc-lagnir, baðkerum,
niðurföllum, þak- og drenlögnum
Smáauglýsingar
sími 569 1100
Smáauglýsingar
sími 569 1100
ÍÞRÓTTASAMBAND fatlaðra
sem hefur umsjón með starfi
Special Olympics á Íslandi stóð
nýlega fyrir ráðstefnu á Grand
hóteli, þar sem þátttakendur voru
einstaklingar sem hafa tekið þátt
í leikum Special Olympics.
Ráðstefnan var á vegum Spec-
ial Olympics í Evrópu, SOE, og er
haldin í tengslum við átaksverk-
efni þar sem markmiðið er að
auka þátttöku íþróttafólks í
ákvarðanatöku og í félagsstarfi og
þjálfa einstaklinga í að koma fram
og tjá sjónarmið sín varðandi
íþróttastarfið. Leiðbeinandi var
Nolwin Grassin sem starfar á
skrifstofu samtakanna í Brussel.
Henni til aðstoðar voru fulltrúar
fræðsluráðs ÍF, Anna Lea
Björnsdóttir og Guðmundur Sig-
urðsson.
Opinn stjórnarfundur
Valdir voru 9 þátttakendur og
hafði hver þeirra einn aðstoð-
armann. Aðstoðarfólk kom úr röð-
um formanna, stjórnarfólks og
þjálfara aðildarfélaga ÍF. Í lok
ráðstefnunnar var haldinn „opinn
stjórnarfundur“ þar sem ýmsar
ábendingar komu fram.
Þátttakendur voru sammála um
að verkefnið væri athyglisvert og
lærdómsríkt og ákveðið hefur
verið að kynna það nánar innan
íþróttahreyfingar fatlaðra.
Fræðsluráð ÍF mun koma með
tillögu að framkvæmd hér á landi
sem kynnt verður aðildarfélögum
ÍF, segir í fréttatilkynningu.
Þátttakendur frá Akureyri og
Ísafirði komust ekki á ráðstefn-
una vegna veðurs.
Þátttakendur í lok ráðstefnunnar með viðurkenningarskjöl og gjafir,
f.v. Ólafur Þormarr, Sigurður Valur Valsson og Lára Ingimundardóttir.
Ráðstefna
um íþróttir
fatlaðra
Hrafnhildur Sverrisdóttir, Helgi Magnússon, Sigmundur Ingimarsson og
Berglind Hrafnkelsdóttir með viðurkenningarskjöl og gjafir.
AÐALFUNDUR Krabbameins-
félags Reykjavíkur verður miðviku-
daginn 16. mars kl. 20, í húsakynn-
um félagsins í Skógarhlíð 8.
Að loknum aðalfundarstörfum
flytur Kristinn Tómasson, yfirlækn-
ir Vinnueftirlitsins, erindi sem hann
nefnir „Vinnuvernd og tóbaks-
varnir“.
Kaffiveitingar verða að loknum
fundi. Nýir félagsmenn velkomnir.
Aðalfundur
Krabbameins-
félags Reykjavíkur
SÍÐAN í ágúst 2003 hefur Friend-
tex á Íslandi stutt baráttuna gegn
krabbameini á þann hátt að um
fimmtíu sölufulltrúar Friendtex
hafa boðið viðskiptavinum sínum að
styrkja Krabbameinsfélagið með
því að kaupa litla bangsa, en allur
ágóðinn hefur runnið til félagsins.
Viðtökur hafa verið mjög góðar hér
á landi, eins og á öðrum sölusvæð-
um Friendtex í Danmörku, Svíþjóð,
Noregi, Finnlandi, Belgíu, Þýska-
landi og Hollandi, segir í frétta-
tilkynningu.
Um síðustu áramót höfðu um 75
þúsund bangsar verið seldir í þess-
um löndum. Friendtex á Íslandi hef-
ur þegar styrkt Krabbameins-
félagið um 800 þúsund krónur.
Ákveðið hefur verið að halda
áfram að selja bangsana, sem kosta
500 krónur. Nú verður bætt við bol-
um. Þeir kosta 3.900 krónur og
rennur ágóðinn til Krabbameins-
félagsins.
Á vefsíðu Friendtex (www.-
friendtex.is) er hægt að fylgjast
með því hve margir bangsar og bol-
ir eru seldir og á vefsíðu Krabba-
meinsfélagsins (www.krabba-
meinsfelagid.is) eru upplýsingar
um starf félagsins.
Bangsar og bolir til styrktar
Sigurbjörg Stefánsdóttir sölufulltrúi, Kristrún Gróa Óskarsdóttir sölu-
fulltrúi, Ragnar Áki Ragnarsson, framkvæmdastjóri Friendtex á Íslandi,
Steinunn Sigurðardóttir sölufulltrúi og Jesper Rasmussen frá Friendtex í
Danmörku. Þessir þrír sölufulltrúar seldu mest á síðasta ári.
FRÉTTIR