Morgunblaðið - 14.03.2005, Qupperneq 31

Morgunblaðið - 14.03.2005, Qupperneq 31
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 14. MARS 2005 31 MENNING                       ! "! # $ % &  '( # )    !  *   $   +!)       -  .  $  +!   !(   * (   +/     # )  0(   !    ! *      ! *   )  ! *  0(   . +(     ) )  #    !  ! (      1"  !"  +   # 2 /  )   +#       1 $#   #    $      3       1$#   #       $   !     1 $#   #   3 $     3 4 $    / / " * . " )  1)   0 . " #     !  # $  .   Ármúla 15 • sími 515 0500 - fax 515 0509 www.fasteignakaup.is • fasteignakaup@fasteignakaup.is Grandahverfi - Vesturbær Erna Valsdóttir, löggiltur fasteignasali Páll Höskuldsson, Gsm 864 0500 Guðmundur Valtýsson, Gsm 865 3022 Til okkar hefur leitað viðskiptvinur sem vill kaupa rað-, par- eða einbýlishús helst við Aflagranda. Afhendingatíminn getur verið allt að sex mánuðir. Því viljum við koma þeim skilaboðum til þín, að það vilja fleiri búa í þínu húsi en þig grunar. AMERÍSKI dansflokkurinn Pilobol- us fyllti nánast Laugardalshöllina á laugardaginn var. Flokkurinn, sem hefur starfað frá 1971, ferðast víða um heim en er að öllu jöfnu stað- settur í Washington Depot, smábæ í norð-vestur Connecticut. Pilobolus dansleikhúsið starfrækir einnig Pilobolus Too en það er tveggja manna kompaný sem ferðast með fyrirlestra og námskeið ásamt sýn- ingum í skóla og á staði þar sem ekki er hægt að setja upp viðamiklar sýn- ingar. Pilobolus dansleikhúsið sam- anstendur af fjórum listrænum stjórnendum, framkvæmdastjóra og sex dönsurum. Dagskráin hófst á nýlegu dans- verki sem nefnist ,,Megavött við tón- list Radiohead, Primus og Square- pusher“. Í verkinu var lægsta rýmið mikið notað, það er fyrir neðan mið læri og hné. Þar krumpuðu dans- ararnir sig saman í litlum snöggum hreyfingum. Þeir hentu sér í koll- hnísa, rúlluðu snöggt á bakinu og stóðu jafnóðum upp aftur. Áhorf- endur á A svæði, gólffleti frá sviði að pöllum ókyrrðust, reigðu sig og teygðu, stóðu upp og færðu sig út á gang í von um að sjá dansinn á svið- inu. Það sem af verkinu sást voru kraftmiklir kollhnísar og hristar hreyfingar sem voru raflosta- kenndar við tónlistina. ,,Femme noir“, verk samið 1999 hófst á hæg- um hreyfingum svartklædds kven- dansara við blandaða píanótónlist. Konan faldi sig undir gríðarstórum svörtum hatti sem hún felldi af sér undir lok verksins. Þetta verk var síst af þeim fimm sem sýnd voru. ,,Walklyndon“ er eitt af elstu dans- verkum hópsins eða frá árinu 1971. Í því voru dansararnir klæddir lit- ríkum boxerbuxum. Verkið fjallar um samskipti, allt frá einföldum faðmlögum að japanskri sumo- glímu. Það var skondið og vakti hlátur áhorfenda á milli þess sem þeir teygðu sig í sætunum. Eftir hlé hófst sýning á nýlegu verki sem kallast ,,Symbiosis“ eða Samlíf. Verkið er dúett karls og konu og er um samband tveggja manneskja sem tengjast á ástríðufullan máta. Dansararnir báru hvor annan um sviðið í fallega samofnum hreyf- ingum undir ljúfum fiðlutónum. Það var engu líkara en dansararnir spiluðu tónlistina með nöktum lík- ömum sínum svo samofnir voru þeir tónlistinni. ,,Annar dagur“ eða ,,Day two“ var síðasta verk á dagskrá en það var flutt af öllum dansflokknum. Verkið lýsir öðrum degi sköpunar heimsins, allt frá fyrstu lífverunum til fljúgandi dýra. Tónlistin er eftir Brian Eno, David Byrne og Talking Heads. Klæddir húðlituðum g- streng, hoppuðu dansararnir um sviðið eins og engisprettur. Þeir lyftu hvor öðrum og hreyfðu sig í ætt við frummenn með rassana út í loftið. Þrír karldansarar fram- kvæmdu einfaldar tilbeiðsluhreyf- ingar að sið múslima. Í verkinu voru ótrúlega fallega samsettir vafningar tveggja dansara að ógleymdu flugi dansara á priki. Grófleikinn í hreyfingum dans- aranna og áreynsluleysið í dans- inum virðist standa fyrir utan alla lærða og viðurkennda danstækni. Útkoman var hrífandi. Dansinn var eðlilegur og náttúrulegur, uppruna- legur en samt fagmannlegur og í háum gæðaflokki. Pilobolus er sér á báti og sýningin var í alla staði mjög eftirminnileg. Þekktar myndir af uppstilltum dönsurunum þar sem einn heldur á hópnum sáust ekki á sýningunni. Myndirnar hafa mikið verið notaðar til að auglýsa sérstæði flokksins. Hvort einungis sé um vel unna tölvumynd að ræða veit ég ekki en eflaust hafa einhverjir orðið fyrir vonbrigðum að bera þá snilld ekki augum. Vissulega hefði ég vilj- að sjá Pilobolus annars staðar en í Laugardalshöll. Óupphækkað gólfið er aftaka slæmt svæði til áhorfs sýninga af þessu tagi. Þótt skjáir hafi verið staðsettir sitt hvorum megin við sviðið þjónuðu þeir ekki sínum tilgangi. Oftast sást engu bet- ur á skjáunum hvað fram fór á svið- inu og að sjálfsögðu eru áhorfendur að mæta á sýningu til að sjá lifandi list en ekki list á skjámiðli. Það er óskandi að í framtíðinni verði hægt að bjóða upp á listhópa af þessu tagi í betri húsakosti. Morgunblaðið/Árni Torfason „Pilobolus er sér á báti og sýningin var í alla staði mjög eftirminnileg.“ Fágaður frumleiki DANS Laugardalshöll Listrænir stjórnendur: Robby Barnett, Alison Chase, Michael Tracy, Jonathan Wolken. Dansarar: Mark Fucik, Renée Jaworski, Andrew Herro, Cleotha Mcjunkins lll, Jenny Mendez, Manelich Minniefee. Framkvæmdastjóri: Itamar Kubovy. Flokkstjóri: Susan Mandler. Uppfærslustjóri: Daniel Feith. Ljósa- umsjón: Scott Borowka. Rekstrarstjórn: Pilobolus TOO og Institute Mikey Rottman. Sýningarferðastjóri: Susan Ericson. Sviðsstjóri: Elizabeth Wills. Dansfyrirliði: Renée Jaworski. Ljósa- hönnun: Neil Peter Jampolis. Laugardagur 12. mars 2005. Pilobolus Lilja Ívarsdóttir ÍSLENSKA sem annað mál. Nám fallbeygingar nafnorða: hvernig þróast kunnáttan,“ er yfirskrift fyrirlesturs sem Kolbrún Frið- riksdóttir, M.A., verkefnisstjóri Icelandic Online, flytur á vegum Stofnunar Vigdísar Finnboga- dóttur á morgun kl. 12.15 í stofu 101 í Lögbergi. Greint verður frá rannsókn á því hvernig erlendir íslenskunem- ar við Háskóla Íslands tileinka sér fallbeygingu nafnorða. Fjallað verður um kunnáttu þeirra að loknu þriggja, sex og níu mánaða námi og skoðað hvernig hún þróast. Fyrirlesturinn er að hluta til byggður á nýlegri MA-rannsókn Kolbrúnar í íslenskri málfræði. Fyrirlestur um íslensku- nám erlendra nema Morgunblaðið/Kristinn

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.