Morgunblaðið - 14.03.2005, Blaðsíða 36
36 MÁNUDAGUR 14. MARS 2005 MORGUNBLAÐIÐ
Besta mynd ársins
Besti Leikstjóri - Clint Eastwood
Besta Leikkona - Hillary Swank
Besti Leikari í aukahlutverki - Morgan Freeman
Kvikmyndir.isDV
H.J. Mbl.
Tilnefnd til 3
Óskarsverðlauna
Óperudraugurinn
Heimsins stærsti
söngleikur birtist
nú á hvíta tjaldinu
í fyrsta sinn!
Mynd eftir Joel
Schumacher.Byggt á söngleik
Andrew Lloyd Webber.
Með Íslandsvininum, Gerard Butler
(Bjólfskviða), Emmy Rossum (Mystic River) ,
Miranda Richardson og Minnie Driver
Með tónlist eftir Sigur Rós!
Bráðfyndin gamanmynd frá Wes
Anderson, framleiðenda Royal
Tenenbaums með Bill Murray, Owen
Wilson, Kate Blanchett og Anjelicu
Huston í aðalhlutverkum.
i
, l i l
ill ,
il , l j li
í l l .
HÁSKÓLABÍÓ
LIFE AQUATIC KL. 5.30-8-10.30. B.I. 12 ÁRA RAY KL. 6-9.
LES CHORISTES (KÓRINN) KL. 6-8.MILLION DOLLAR BABY KL. 5.30-8-10.30. B.I. 14.
PHANTHOM OF THE OPERA KL. 6-9. B.I. 10. THE AVIATOR KL. 10. B.I. 12 Bráðfyndin gamanmynd frá Wes Anderson, framleiðenda Royal
Tenenbaums með Bill Murray, Owen Wilson, Kate Blanchett og
Anjelicu Huston í aðalhlutverkum.
r fy i y fr r , fr l i y l
il rr y, il , t l tt
j li t í l l tv r .
Með tónlist eftir Sigur Rós!
Flott
(HOPE
með D
Byggð
hinum
Sa
l tt
(
y
i
m
M.M. Kvikmyndir.com
Ó.H.T. RÁS 2
Það er léttúðugt og óformlegt andrúms-loft í fundarherbergi Norska sendi-ráðsins. Það liggur einhver hlátur íloftinu. Kannski er þessi kátína og
brosmildi einhver norsk þjóðarhefð sem enginn
hafði sagt mér frá og tengist á einhvern hátt
þeirri tilfinningu þegar maður er búinn að vera
úti á skíðum eða í snjókasti og brosið er frosið á
andlitinu. En ég er nokkuð viss um að nærvera
Sissel Kyrkjebø hefur eitthvað með þessa af-
slöppuðu en um leið kátu stemningu að gera.
Hún heilsar öllum með þéttu handataki og spyr
til nafns, rabbar svo við hvern og einn af mikilli
hlýju, á meðan menn koma sér fyrir og tínast
inn. Það er mikið hlegið og hátt. Ég er um leið
viss um að þessi framkoma hennar, hlý útgeisl-
un og jákvæðni eru ekki smár þáttur í þeirri
gríðarlegu velgengni sem þessi unga söngkona
hefur mátt fagna undanfarin ár.
„Landið ykkar er ‘æðislega flott’,“ segir hún
brosandi, stolt af íslensku orðunum sem hún er
búin að læra. „Hlutar þess eru mjög líkir Nor-
egi, m.a. birtan og litbrigðin uppi á fjöllum, en
svo eru aðrir hlutar mjög frábrugðnir. Ég vakn-
aði klukkan sex í morgun og fór ‘Gullna hring-
inn’, en það var eini tíminn sem ég hafði til að
fara í smálandkönnun. Næst ætla ég að skoða
meira.“ Sissel hlær dátt þegar ég útskýri
klaufalega að mig langi helst ekki að draga Ís-
land inn í viðtalið, enda séu blaðamenn mjög
meðvitaðir um „há dú jú læk Iceland?“-spurn-
inguna.
Sissel er hingað komin í tvennum erinda-
gjörðum. Annars vegar til að kynna tónleika
sína í Háskólabíói 30. september næstkomandi,
en einnig til að hitta Placido Domingo vegna
tónleika sem hún mun syngja með honum í Nor-
egi á næstu dögum. „Þetta var eini tíminn sem
við gátum hist, svo við ákváðum bara að hittast
hér. Þetta líf felur í sér óttalegt millilandahopp,“
segir Sissel, en með henni í för eru fréttamenn
TV2 í Noregi. „Ég söng dúett með Placido fyrir
tveimur árum. Raddirnar okkar blandast vel og
það er mjög gaman að syngja með honum. Við
náðum líka vel saman persónulega.“
Útivist og náttúruást
Sissel er Björgvinjarbúi og á æskuárunum
fór fjölskyldan í fjallgöngu og víðavangsgöngu
um hverja helgi. „Það var afar góð upplifun og
reynsla og ég held að hún hafi haft varanleg
áhrif á mig. Ég átti mjög sterk tengsl við fjöllin
og skógana. Svo var þetta ágætislíkamsrækt að
rölta svona upp í móti,“ segir Sissel. „Það er líka
gott að koma til Íslands, því þið eigið enn svo
mikið af náttúrunni. Sem Björgvinjarbúi er ég
mjög stolt af uppruna mínum og náttúrunni og
ég býst við að Íslendingar upplifi svipað stolt af
sinni náttúru.“
Nú eru tónleikaferðalög og líf tónlistarmanna
full af streitu og orkusugum. Hvernig heldurðu
þér í formi?
„Ég reyni að skokka mikið ásamt fleirum í
hljómsveitinni. Þegar við komum í nýja borg
tökum við gott morgunskokk og einn af nýrri
meðlimum sveitarinnar sagði að þetta hlyti að
vera heilbrigðasta hljómsveit sem hann hefði
nokkurn tíma verið í.“
Getur fólk þá hreinlega átt von á því þegar
það er að keyra í vinnunna að sjá heimsfræga
söngkonu skokkandi á gangstéttinni?
„Ja … Líklega myndi fólk ekki þekkja mig í
skokkgallanum og eplarauða í kinnunum í
morgunskokkinu,“ segir Sissel og skellir up úr.
„Þetta er samt alveg frábær leið til að kynnast
nýjum borgum. En ég hlakka til þegar ég kem í
september, því þá fæ ég mér örugglega gott
skokk í haustloftinu.“
Nú hefur þú neitað að festast í einhverju fari
eða formi og syngur í afar ólíkum stílum. Hvers
vegna er þetta?
„Ég get ekki hugsað mér að festa mig í einum
stíl. Það er mér náttúrulegt að prufa marga
hluti og vera í ólíkum hlutum. Ég hef ekki skap-
gerðina í að einbeita mér í eina átt. Það gefur
mér svo mikla orku að fá að prófa nýja hluti með
ólíku fólki og reyna við nýjar áskoranir. Ef mér
finnst eitthvert verkefni henta röddinni minni
þá geri ég það.“
Sissel hefur á ferli sínum tekið áhættur og
komið víða við í samstarfi við aðra tónlist-
armenn, m.a. með samstarfi við rapparann
Warren G. og dönsku pönkrokkssveitina Sort
Sol. „Í þessum málum fékk ég að gera það sem
ég geri vel, þ.e.a.s. að syngja fallegt og mel-
ódískt lag og þeir gerðu það sem þeir gera vel,
Warren G. rappaði og Sort Sol leikur sína tón-
list. Þarna hittust tveir andstæðir heimar og
mynduðu ákveðna skörun sem við höfðum
áhuga á að skoða. Það knýr mig svolítið áfram,
forvitnin um svona skörun og hvað maður fær
út úr því að blanda ólíkum hlutum saman. Ég
elska andstæður og ég kann vel að meta
spennuna. Útkoman úr þessum tveimur verk-
efnum var mjög falleg.“
Eins og tónlistarleg kartafla
„Mér þykir mjög mikilvægt að geta starfað
með ólíku fólki,“ segir Sissel. „Þegar Placido
heyrir tónlistina mína veit hann að ég get sung-
ið klassíska tónlist og þegar Paddy Maloney í
The Chieftains heyrir mig syngja, þá veit hann
að ég get sungið keltneska tónlist. Ég býst við
að rödd mín eigi við í alls konar stefnum, rétt
eins og kartafla, sem hægt er að nota í allan
mat. Hún er einföld og skýr og hefur ekki verið
steypt í eitthvert mót og þess vegna fæ ég tæki-
færi til að starfa á ólíkum sviðum.“
Rödd Sissel er einstök og illskilgreinanleg.
Hún fer á milli alls kyns stíla að því er virðist
fyrirhafnarlaust. „Röddin mín hefur einhvern
veginn alltaf verið þarna, eins og hún er. Mér er
mjög mikilvægt að „hljóma ekki klassískt“. Ég
á mér hljóðfæri sem ég vil að sé einstakt og eigi
einstakan hljóm. Ég verð líka að vera mjög
meðvituð um hvernig ég nota hana. Ég hugsaði
á tímabili um að fara út í klassískan söng, en það
var u.þ.b. hálftími. Ég hætti fljótt við það, það
var ekki fyrir mig. Þótt klassískur söngur sé
mjög góður fyrir röddina, þá getur fólk fest
söngstíl sinn í ákveðnu kerfi og þá er erfitt að
færa sig yfir í annað. Ef ég er að gera eitthvað
verð ég að þrá það afar heitt. Það get ég ekki
sagt um klassískan söng. Mig langar að vera
kartafla,“ segir Sissel og hlær aftur. „Ég hef þó
ekki afneitað klassískri þjálfun. Ég æfi mig og
þjálfa röddina með þeim aðferðum, en ég er
ekki til í að tileinka söngferil minn þessum stíl. Í
grundvallaratriðum eru það lögin sem skipta
máli og við getum valið með hvaða aðferð við
syngjum þau. Ég vil syngja textann og laglín-
una eins og ég syng þau og það er mér afar mik-
ilvægt að halda því svoleiðis.“
Efnisskrá fyrir tónleikana í Háskólabíói 30.
september næstkomandi er í mótun, en Sissel
segir að þar verði teknir nokkrir hápunktar fer-
ilsins auk nokkurra nýrra laga. „Þetta verður
mikil blanda popps, klassíkur og þjóðlaga-
tónlistar. Ég verð með ’skokkbandið’ með mér
auk íslensks stúlknakórs og aukatónlistar-
manna. Ég veit að þetta verður alveg frábært
‘alveg ædislega gott’,“ segir Sissel og fagnar
einlæglega sigri sínum yfir tungubrjótum ís-
lenskunnar.
Tónlist | Sissel Kyrkjebø heimsækir Ísland til að kynna tónleika og hitta Placido Domingo
Náttúrubarn
frá Björgvin
Miðasala á tónleika norsku söngkonunnar
Sissel Kyrkjebø í Háskólabíói 30. september nk.
hefst á morgun. Sissel heimsótti Ísland um
helgina, bæði til að kynna tónleikana og ræða við
Placido Domingo um tónleika í Noregi á næstu
dögum. Svavar Knútur Kristinsson heimsótti
Sissel í norska sendiráðinu og spjallaði við hana
um röddina, söngferilinn og náttúruástina.
svavar@mbl.is
Morgunblaðið/Árni Torfason