Morgunblaðið - 14.03.2005, Side 40
MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLUNNI 1, 103 REYKJAVÍK, SÍMI 569 1100, SÍMBRÉF 569 1181, PÓSTHÓLF 3040,
ÁSKRIFT-AFGREIÐSLA 569 1122, NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, AKUREYRI: KAUPVANGSSTRÆTI 1 MÁNUDAGUR 14. MARS 2005 VERÐ Í LAUSASÖLU 220 KR. MEÐ VSK.
ORKAN lækkaði verð á 95 oktana bensíni
um eina krónu á föstudaginn og kostar nú
bensínlítrinn á öllum stöðvum fyrirtækisins
96,10 kr. Tveggja króna afsláttur til viðbót-
ar bætist við sé notað fyrirfram greitt bens-
ínkort Orkunnar og er lítraverðið þá 94,10
kr.
Gunnar O. Skaptason, framkvæmdastjóri
Orkunnar, sagði að heimsmarkaðsverðið
hefði lækkað á föstudaginn og þeir hefðu
lækkað bensínverðið hjá sér í beinu fram-
haldi, enda hefði fyrirtækið jafnan forgöngu
í þeim málum. „Við erum fljótir að lækka en
seinir að hækka,“ bætti hann við.
Samkvæmt heimasíðum olíufélaganna
var sjálfsafgreiðsluverð á 95 oktana bensíni
hjá Atlantsolíu í gær 97,20 kr. Verðið var
96,10 til 98,60 krónur, mismunandi eftir
stöðvum í Reykjavík hjá Esso, 98,40 hjá
Skeljungi, 96,10–97,10 hjá ÓB og 98,10
ódýrast hjá Olís.
Bensínlítrinn
lækkaði um
eina krónu
FRAMKVÆMDIR standa nú yfir við stöðvarhús
Hellisheiðarvirkjunar Orkuveitu Reykjavíkur
við Kolviðarhól.
Við framkvæmdirnar starfa nú um 100
manns en reiknað er með að í sumar vinni um
350 manns við að reisa virkjunina, að sögn Ei-
ríks Bragasonar, verkefnisstjóra OR við virkj-
unina. Reiknað er með að raforkuframleiðsla
hefjist haustið 2006 og að hitaveituvatn fari að
streyma frá virkjuninni til höfuðborgarinnar
2008. Um er að ræða jarðvarmavirkjun og mun
hún nýta orku á sunnanverðu Hengilssvæðinu.
Boraðar verða alls um 20 holur, að jafnaði 2.000
metra djúpar, til að afla orkunnar. Nú þegar
hafa verið boraðar nægilega margar holur til
að tryggt sé að nægt gufuafl sé fyrir hendi fyrir
fyrsta áfanga virkjunarinnar. Boraðar verða
fleiri holur, bæði í rannsóknarskyni og eins til
að tryggja jafnari rekstur virkjunarinnar.
Framkvæmdir við nýtt orkuver Orkuveitu Reykjavíkur í fullum gangi
Morgunblaðið/RAX
Guðmundur Helgi Gestsson, starfsmaður Ístaks, var við störf á Hellisheiði og tyllti sér rétt sem snöggvast í rör sem notað verður í gufuveituna.
350 manns munu vinna á Hellisheiði í sumar
Orka úr iðrum/20–21
RÚMLEGA tvö hundruð manns
eru nú á biðlista eftir hjartaþræð-
ingu, sem getur þýtt 4–5 mánaða
langan biðtíma. Biðlistinn hefur
orðið til frá því í fyrravor, en þá
hafði nær tekist að eyða honum.
Rúmlega 400 manns alls bíða eftir
einhvers konar hjartaaðgerðum og
segir Gestur Þorgeirsson, yfirlækn-
ir á hjartadeild Landspítala – há-
skólasjúkrahúss að ástandið í þess-
um málum sé ekki viðunandi til
lengdar.
Biðlisti eftir hjartaaðgerðum
sundurliðast þannig að 215 manns
bíða eftir hjartaþræðingu, 10 bíða
eftir kransæðavíkkun, 30 bíða eftir
gangráðsísetningu eða rafhlöðu-
skiptum, 36 bíða eftir raflífeðlis-
fræðilegri rannsókn vegna hjart-
sláttartruflana, 55 bíða eftir
brennsluaðgerð vegna hjartsláttar-
truflana og 60 bíða eftir rafvend-
ingu, samkvæmt upplýsingum í
nýju tölublaði af Velferð, sem er
málgagn Hjartaheilla, samtaka
hjartasjúklinga, en þar er fjallað um
stöðuna í þessum málum.
Gestur Þorgeirsson sagði að
þessi lenging biðlista eftir hjarta-
þræðingum og aðgerðum skýrðist
af nokkrum þáttum. Í fyrsta lagi
hefði sumarlokun á dagdeild fyrir
hjartaþræðingar verið óvenjulöng í
fyrrasumar eða átta vikur, þannig
að biðlistinn hefði strax í fyrrahaust
verið orðinn um eitt hundrað
manns. Í haust og vetur hefði síðan
verið vakning meðal þjóðarinnar að
láta fylgjast vel með sér að þessu
leyti og því hefðu borist óvenju-
margar beiðnir um þræðingar. Í
þriðja lagi hefði loks annríki á
bráðadeildinni áhrif í þessum efnum
og sú hefði verið raunin í vetur.
Hefur áhyggjur af því að
aðstaða sé ekki viðunandi
Gestur sagði að biðlistar eftir
þræðingum hefðu skapast af og til
síðustu árin og það hefði verið
óvenjulegt að tekist hefði að eyða
þeim nánast að fullu eins og gerst
hefði í fyrravor. Það væri hægt að
flýta þræðingum þegar það væri
bráðnauðsynlegt, en stundum væri
erfitt að meta nauðsynina og því
væri mjög bagalegt að vera með of
langa biðlista.
„Ég hef verulegar áhyggjur af
aðstöðumálunum hjá okkur. Þessi
pláss sem eru ætluð fyrir þetta al-
genga vandamál hjartasjúkdómana
eru bara ekki nægilega mörg á
þessum eina spítala hérna. Það þarf
að fjölga þeim plássum,“ sagði Gest-
ur.
Hann sagði að þess bæri að geta
að hjartadeildin hefði fengið fjár-
veitingu upp á 23 milljónir kr. úr
sérstökum sjóði ráðuneytisins til
þess að gera átak í hjartaþræðing-
um nú á næstunni og unnið væri að
því að skipuleggja hvernig best yrði
staðið að því.
Gestur bætti því við að til viðbót-
ar hefði hjartalæknum fækkað, þar
sem sjúkrahúsið hefði tekið upp þá
stefnu að ráða ekki endilega lækna í
stað þeirra sem hættu vegna aldurs.
Því væru heldur færri menn að
vinna jafnvel meira verk en áður.
„Með fleiri hjartalæknum og betri
aðstöðu gætum við gert betur,“
sagði Gestur.
Hann sagði að það væri í sjálfu
sér kannski ekki óeðlilegt að fólk
gæti þurft að bíða í 4–6 vikur eftir
hjartaþræðingu, en þeir vildu ekki
að fólk þyrfti að bíða í nokkra mán-
uði. „Þetta er ekki alveg eins biðlisti
og biðlisti eftir liðaðgerð eða ein-
hverju slíku. Þetta getur verið dálít-
ið alvarlegt mál, þar sem það er oft
svolítið erfitt að meta áhættuna af
bið,“ sagði Gestur ennfremur.
215 á biðlista
eftir þræðingu
Ekki viðunandi ástand til lengdar, segir Gestur
Þorgeirsson, yfirlæknir hjartadeildar LSH
„ÉG get ekki hugsað mér að
festa mig í einum stíl. Það er
mér náttúrulegt að prufa
marga hluti og vera í ólíkum
hlutum. Ég hef ekki skap-
gerðina í að einbeita mér í
eina átt. Það gefur mér svo
mikla orku að fá að prófa
nýja hluti með ólíku fólki og
takast á við ný verkefni. Ef
mér finnst eitthvert verkefni
henta röddinni minni þá geri
ég það,“ segir norska söng-
konan Sissel Kyrkjebø í við-
tali við Morgunblaðið í dag.
Sissel leit við á Fróni til að
kynna tónleika sína 30. sept-
ember næstkomandi, en
einnig til að funda með Plac-
ido Domingo, sem bað hana
um að syngja með sér á tón-
leikum í Noregi á næstu dög-
um.
Miðasala á tónleika Sissel í
haust hefst á morgun./36
Morgunblaðið/Árni Torfason
Náttúrulegt
að prófa
ólíka hluti
GÓÐUR gangur er í viðræðum ríkisins og
Félags framhaldsskólakennara um nýjan
kjarasamning. „Við vonum að þetta fari að
klárast,“ sagði Gunnar Björnsson, formað-
ur samninganefndar ríkisins, í gærkvöldi.
Mikil fundarhöld voru yfir helgina og áttu
samningamenn ríkisins m.a. fund með
skólameisturum í gær til að leggja mat á
hvort fyrirkomulag sem samið var um við
BHM gæti virkað í framhaldsskólunum, að
sögn Gunnars.
Tveggja daga þing Kennarasambands Ís-
lands hefst í dag og er síður gert ráð fyrir að
endanlega verði gengið frá samningum á
meðan það stendur yfir.
Góður gangur
í viðræðum
MIKIL umferðarteppa myndaðist í
gærkvöldi milli klukkan sjö og átta
þegar gestir á tónleika hins heims-
fræga stórtenórs Placido Domingo
streymdu til Egilshallar í Grafarvogi
þar sem tónleikarnir voru haldnir.
Réðu umferðaræðarnar ekki við
þennan mikla fjölda og mynduðust
gríðarlangar biðraðir fyrir vikið. Um
tíma náði bílaröðin frá Egilshöll og
óslitið eftir Vesturlandsveginum nið-
ur undir Höfðabakkabrú en engin
óhöpp urðu.
Svipað var uppi á teningnum eftir
að tónleikum stórtenórsins lauk á
tólfta tímanum en samkvæmt upplýs-
ingum lögreglu gekk þó allt slysalaust
fyrir sig að því er hún vissi best og
greiddist úr umferðinni þegar á leið.
Lögreglan greiðir fyrir umferð að
loknum tónleikunum.
Umferðar-
teppa við
Egilshöll