Morgunblaðið - 18.03.2005, Blaðsíða 6
6 FÖSTUDAGUR 18. MARS 2005 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
ÖLL leikskólabörn í Reykjavík
munu eiga kost á sjö klukkustunda
vist á leikskóla á dag án endurgjalds
þegar áætlun um gjaldfrjálsan leik-
skóla verður komin að fullu í fram-
kvæmd. Næsta
skref í átt að
þessu markmiði
verður tekið
haustið 2006 þeg-
ar öll börn fá
tveggja klukku-
stunda vist án
endurgjalds, og
næstu skref
verða tekin á
næstu árum.
Kostnaður
borgarinnar vegna þessa verður að
óbreyttu um 850 milljónir króna á
ári, og er reiknað með því að leik-
skólagjöld fyrir fjölskyldu með eitt
barn á leikskóla geti lækkað um 246
þúsund krónur á ári þegar allir
áfangar verða komnir til fram-
kvæmda. Á sama tíma lækka gjöld á
einstæða foreldra og námsmenn um
tæplega 98 þúsund krónur á ári.
„Það er mín bjargfasta trú að leik-
skólinn eigi að vera almenn grunn-
þjónusta sem samfélagið á að veita
án þess að vera með íþyngjandi
gjaldtöku,“ sagði Steinunn Valdís
Óskarsdóttir borgarstjóri þegar hún
kynnti fjölmiðlum áætlunina á fundi
í leikskólanum Jörfa í gær.
Fyrsti áfanginn þegar kominn
Hún segir að í raun sé þegar búið
að hrinda fyrsta áfanganum í áætl-
uninni í framkvæmd, þar sem öll 5
ára börn fái í dag þrjár klukkustund-
ir á leikskóla án endurgjalds. Haust-
ið 2006 verður svo næsta skref tekið
með tveggja klukkustunda ókeypis
vist fyrir öll börn, og aðrar tvær
klukkustundir bætast við haustið
2008. Steinunn segir ekki búið að
ákveða hvenær síðasta skrefið verði
stigið og bætt við þremur klukku-
stundum fyrir börn yngri en fimm
ára, svo allir fái samtals sjö klukku-
stundir án endurgjalds, þó búið sé að
taka ákvörðun um að það verði gert.
Foreldrar munu eftir sem áður
greiða fyrir mat, auk þess sem greitt
verður fyrir umfram stundir, og
verður greitt eftir einum flokki.
Systkinaafsláttur verður felldur út,
en Steinunn segir að ekki hafi verið
tekin ákvörðun um hvenær á ferlinu
það verði gert.
„Ég tel að með þessu sé Reykja-
víkurborg að brjóta blað meðal ís-
lenskra sveitarfélaga og taka ákveð-
ið frumkvæði í þessum málum,“
sagði Steinunn Valdís. Hún sagði að
það verð sem greitt væri fyrir þjón-
ustuna ætti ekki að standa í vegi fyr-
ir notkun á leikskólum, og að víta-
hringur vinnu og leikskólagjalda
skapaðist ekki.
Kostnaður Reykjavíkurborgar
vegna þessarar niðurfellingar verð-
ur talsverður. Árlegur kostnaður
vegna áfanganna árin 2006 og 2008
er áætlaður 314 milljónir króna í
hvort skipti, og kostnaður við síðasta
áfangann verður um 368 milljónir
króna. Samtals verður því kostnað-
urinn 996 milljónir króna þegar upp
er staðið, sagði Steinunn Valdís. Á
móti kemur niðurfelling systkina-
afsláttar og auknar tekjur vegna
umframstunda, samtals 150 milljón-
ir króna á ári.
Steinunn segir að gert sé ráð fyrir
auknum útgjöldum vegna niðurfell-
ingar leikskólagjalda í þriggja ára
áætlun borgarinnar. „Í ljósi umræð-
unnar í landsmálum, þar sem allir
flokkar hafa lýst því yfir að þeir
stefni að því að leikskólinn sé gjald-
frjáls, má gera sér vonir um þátt-
töku ríkisins í þessum kostnaði.“ Í
því samhengi benti Steinunn á að
ríkið gæti t.d. greitt aftur 60% húsa-
leigubóta, eða 188 milljónir króna á
ári. Ef ríkið greiddi fasteignaskatt af
eignum sínum myndi það skila um
500 milljónir króna á ári í auknar
tekjur. Tekjustofnanefnd hefur sett
fram tillögur um að þetta gerist á
næstu þremur árum.
„Hvernig svo sem fram vindur í
þessum fjárhagslegu samskiptum
ríkis og sveitarfélaga er þetta okkar
stefna, sem mun birtast í þriggja ára
áætlun um rekstur, framkvæmdir og
fjármál sem verður lögð fram núna
um mánaðamótin,“ segir Steinunn.
90–95% barna á leikskóla
Reykvísk börn eru að meðaltali
rétt um átta klukkustundir á dag í
leikskólanum, og alls eru 90–95%
barna í hverjum árgangi á leikskól-
um borgarinnar. Um haustið 2006
lækka gjöldin hjá foreldrum sem eru
giftir eða í sambúð um 5.600 kr. á
mánuði, eða 67.200 kr. á ári. Leik-
skólagjöld fyrir einstæða foreldra og
námsmenn, sem greiða lægra gjald í
dag, lækkar um 2.320 kr. á mánuði á
sama tíma, eða 27.840 kr. á ári.
Gjöldin lækka um annað eins við
næsta áfanga haustið 2008, og þegar
síðasti áfanginn verður að veruleika
lækka gjöld á foreldra sem búa sam-
an um 8.400 kr. á mánuði, en á ein-
stæða foreldra og námsmenn um
3.480 kr.
Þegar allir áfangarnir verða
komnir til framkvæmda hafa því
gjöld á foreldra í sambúð með eitt
barn undir fimm ára aldri á leikskóla
í átta klst. á dag lækkað úr 28.080 kr.
á mánuði í 8.480 kr., eða um 19.600.
Steinunn sagði þessa lækkun í raun
jafngilda því að foreldrar fengju
40.000 kr. launahækkun, en af slíkri
hækkun myndi um helmingur
standa eftir þegar búið er að draga
frá skatta og önnur gjöld. Leikskóla-
gjöld fyrir einstæða foreldra og
námsmenn munu á sama tíma lækka
úr 14.960 kr. á mánuði í 8.480 kr. á
mánuði, eða um 6.480 kr, og verða
skil á milli foreldra eftir sambúðar-
formum þar með rofin og allir greiða
sama gjald fyrir umframstundir.
Aðspurð sagði Steinunn Valdís
ekki ljóst hvenær mismunandi gjald-
flokkar yrðu felldir út og allir for-
eldrar þurfa greiða eftir einum
flokki, ákvörðun um tímasetninguna
hefði enn ekki verið tekin.
Biðlistar eftir leikskólaplássum í
Reykjavík eru mjög misjafnir eftir
hverfum, að sögn borgarstjóra. „Í
sumum hverfum borgarinnar er
ástandið þannig að það eru börn
yngri en tveggja ára inni á leik-
skólum, jafnvel 16–18 mánaða. En til
dæmis uppi í Grafarholti eru einhver
börn á biðlista sem eru orðin tveggja
ára.“ Börn 18 mánaða eða eldri fá
boð um leikskólapláss en ekki endi-
lega í því hverfi sem sótt er um, sér í
lagi í nýrri hverfum.
Steinunn Valdís sagði að sú
ákvörðun að bjóða upp á sjö stundir
án endurgjalds frekar en átta stund-
ir, eða eitthvað annað, hefði verið
tekin m.a. með ummæli Þórhildar
Líndal, umboðsmanns barna, í huga,
þar sem hún varaði við því að börn
væru svo lengi á leikskólum sem
raun ber vitni.
„Við viljum með þessu hvetja öðr-
um þræði til meiri samvista foreldra
við börn sín, það er einn liður í
þessu.“ Steinunn segir að með þess-
ari kjarabót geti foreldrar hugsan-
lega átt auðveldara með það að
vinna styttri vinnudag og eyða þar
með meiri tíma með börnunum sín-
um, enda geti fjölskylda með eitt
barn lækkað útgjöld sín um 246 þús-
und krónur á ári þegar lokatak-
markinu er náð.
Reykjavíkurborg ætlar að bjóða upp á sjö stunda leikskólavist án endurgjalds
Leikskólagjöld lækka um allt
að 246 þúsund kr. á ári
Steinunn Valdís
Óskarsdóttir
Morgunblaðið/Ómar
Stefnt er að því að öll börn á leikskólaaldri í Reykjavík fái sjö klukkustunda leikskólavist án endurgjalds.
#
!
$!%
& '!
(
()
(
*
$
$
-
+
,&
-
$
$
-
+
" VERÐLAGSEFTIRLIT ASÍ vinn-
ur eftir samkomulagi sem gert var
við samtök verslunar og þjónustu
(SVÞ) um framkvæmd verðkannana.
Í því samkomulagi er kveðið á um
hilluverð enda hafi aðilar úr versl-
uninni lagt mikla áherslu á það að
hilluverð gildi þar sem svo auðvelt sé
að breyta kassaverði.
Þetta segir Henný Hinz, sem hef-
ur umsjón með verðlagseftirliti ASÍ.
Hún ítrekar að ástæða þess að
verðlagseftirlit ASÍ birti ekki nið-
urstöður í síðustu könnun um verð í
verslunum Bónuss sé að Bónus hafi
haft óeðlileg áhrif á niðurstöðurnar
og áreiðanleika könnunarinnar með
því að veita upplýsingar um könn-
unina til sinna manna.
Guðmundur Marteinsson, fram-
kvæmdastjóri Bónuss, segir leitt að
svona hafi farið með könnunina,
starfsmenn ASÍ hafi væntanlega
verið að gera sitt besta. Að öðru leyti
sé í raun fátt að segja, menn búi sig
einfaldlega undir næstu kannanir og
muni einfaldlega láta verkin tala.
Guðmundur segist hafa rætt við
ASÍ vegna málsins og hann sé alveg
sammála verkferlinu. „En það sem
ég er mjög ósáttur við er tíminn sem
þetta tók, að þetta skuli taka tvo
tíma inni í verslun. Það er allt of
langur tími. En þau voru að gera sitt
besta. Þetta var ákvörðun sem þau
tóku og ekkert við því að segja.“
Henný segir framkvæmd þessar-
ar könnunar ekki hafa verið frá-
brugðna öðrum slíkum könnunum
sem ASÍ hafi gert þótt aðstæður séu
kannski öðruvísi núna en oft áður og
menn hafi skoðað verð á mun fleiri
stöðum.
Unnið eftir
samkomu-
lagi við SVÞ
HÆSTIRÉTTUR dæmdi í gær
rúmlega þrítugan karlmann, Einar
Björn Ingvason, til að sæta fangelsi í
tvö og hálft ár fyrir rán, akstur án
ökuréttar, ölvunarakstur og að hafa
haft fíkniefni í vörslum sínum. Auk
þess var hann sviptur ökuréttindum
ævilangt.
Áður hafði héraðsdómur dæmt
Einar í tveggja ára fangelsi þar sem
hann hafði játað allt það atferli sem
honum var gefið að sök. Hæstiréttur
staðfesti úrskurð héraðsdóms að því
viðbættu að fangelsisvistin var lengd
um sex mánuði. Í dómi Hæstaréttar
kom fram að hann væri nú í þriðja
sinn sakfelldur fyrir rán. Hann hefði
að auki samfellda sögu um auðgun-
arbrot allt frá upphafi brotaferils
síns og þar til hann var dæmdur í
fimm mánaða fangelsi í Héraðsdómi
Reykjavíkur í fyrra, m.a. fyrir þjófn-
aðarbrot.
Var ákærða gert að greiða allan
áfrýjunarkostnað þar með talin
málsvarnarlaun skipaðs verjanda
síns.
Dæmdur til
fangavistar í
tvö og hálft ár
♦♦♦