Morgunblaðið - 18.03.2005, Blaðsíða 29

Morgunblaðið - 18.03.2005, Blaðsíða 29
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 18. MARS 2005 29 DAGLEGT LÍF Þátttökugjald er kr. 1.500.-. Innifalið er: kynningarhefti um gerð viðskiptaáætlana ásamt geisladiski sem hefur að geyma ýmis hagnýt hjálpargögn, t.d. vandað reiknilíkan, hagnýt eyðublöð og hljóðfyrirlestra. Frestur til að skila inn viðskiptaáætlun er 1. september 2005. Hægt er að skrá þátttöku á www.nyskopun.is eða með tölvupósti á nyskopun@nyskopun.is. • Er hugmyndin áhugavert viðskiptatækifæri? • Hversu mikil áhætta felst í framkvæmdinni og hver gæti ávinningurinn orðið? Þetta eru spurningar sem frumkvöðlar jafnt sem starfandi fyrirtæki þurfa að leita svara við. Með því að taka þátt í Nýsköpun 2005 er stigið fyrsta skrefið. Kynningarfyrirlestur mánudaginn 21. mars kl. 17:10-19:10: • Hvað prýðir góða viðskiptaáætlun? G. Ágúst Pétursson, verkefnisstjóri í Nýsköpun 2005 • Fjármál og fjármögnun: fulltrúi frá Íslandsbanka með stutt erindi Háskólinn í Reykjavík mánudaginn 21. mars kl. 17:10 - 19:10 „GOTT kaffi þarf að vera í góðu jafnvægi, það þarf að finna fyrir sætleika og mýkt en þó þarf það að vera kraftmikið og hafa góða fyllingu, “segir Jónína Soffía Tryggvadóttir sem er ný- krýndur Íslandsmeistari kaffibarþjóna og starfs- maður hjá Te og kaffi á Laugavegi 24. Jónína segist sjálf hafa far- ið að drekka kaffi fyrir fjórum árum þegar hún hóf störf á Te og kaffi. Hún fær sér lítinn cappuccino á morgnana en drekkur síðan aðeins espresso út daginn. „Annars er mað- ur smakkandi kaffi allan daginn í vinnunni til að athuga hvort það bragðist ekki rétt. Á Ítalíu yrðir þú litinn skrítnum augum ef þú pant- aðir þér annað en espresso um eða eftir hádegi. Þar er líka dónaskapur að fá sér mjólkurkaffi eins og capp- ucchino eftir máltíð, það yrði móðg- un við kokkinn, þú værir að segja að þú værir ekki saddur. En espresso þykir góður endir á góðri máltíð.“ „Mér finnst kaffidrykkja Íslend- inga hafa batnað mikið. Fyrir nokkr- um árum vorum við bara í brúsa- kaffinu en núna vill fólk meira af kaffidrykkjum og hefur smekk fyrir góðu kaffi. Við erum að verða meiri heimsborgarar í því eins og svo mörgu öðru.“ Jónína býður sjálf gestum heima- við upp á nýmalað pressukaffi: „Ég er með kvörn heima og mala baun- irnar um leið og ég skelli kaffinu í pressukönnuna.“ Smáatriðin mikilvæg Íslandsmeistaramót kaffibarþjóna var nú haldið í sjötta sinn. Jónínu finnst mótið mikið hafa þróast á þessum árum: „Keppnin er allt önn- ur núna. Það hefur verið mikil þró- un, nú er meiri áhersla lögð á tækni- leg atriði og margvísleg smáatriði sem verður að huga að þegar keppt er. Einnig er keppnin orðin þekktari meðal almennings, áhorfendum hef- ur fjölgað og mótið er allt orðið nokkuð stærra í sniðum.“ Jónína segir að þar sem þetta var í þriðja sinn sem hún tók þátt á Ís- landsmeistaramótinu þá hafi hún ekki undirbúið verklega þáttinn eins mikið og áður. Hún hafi aðallega verið að undirbúa sig í kollinum og með því að þjálfa aðra keppendur, frá Te og kaffi, sem höfðu ekki tekið þátt í keppninni áður. Hún segir þó mesta undirbúninginn fyrir mótið vera í frjálsa drykknum en þar þarf hún sjálf að velja hráefni og finna út hvað fer best saman. Heimsmeistaramót kaffibar- þjóna verður haldið í Bandaríkj- unum eftir mánuð og verður Jónína þar meðal þátttakenda ásamt landsliði kaffibarþjóna sem hún á sæti í. „Ég ætla ekki að breyta neinu stórvægilegu hjá mér fyrir heimsmeistaramótið, aðallega að fínpússa. Heimsmeistaramótið er einstaklingskeppni en landsliðið tek- ur fullan þátt í undirbúningi og að- stoðar í keppninni. Kaffið er framtíðin Jónína segist ekki enn þá hafa orðið vör við gesti sem koma á kaffihúsið og óska eftir kaffi sérstaklega búnu til af henni. Enda starfsfólkið á Te og kaffi allt mjög hæft. Kaffihúsið legg- ur áherslu á að starfsfólkið hafi áhuga á kaffi þegar það hefur störf. Jónína er aðeins 23 ára og segir lágan meðalaldur vera í kaffibar- þjónastarfinu, þrátt fyrir að þeir sem hafi áhuga á kaffi festist í fag- inu. „Ég get þó alveg séð mig í starfi tengdu kaffi í framtíðinni. Ég stunda nú nám í frönsku í Háskóla Íslands og starfa með því á kaffihúsinu sem ég lít einnig á nám út af fyrir sig.“ Kaffidrykkur (2 drykkir) bananasíróp 2 tsk. (Routin) tvöfaldur espresso 1 dl heitt súkkulaði ½ dl vanillukrem með 1 tsk. ban- anasírópi Ein teskeið af bananasírópinu er sett í botninn á glasinu (lítið vatns- glas), því næst er einföldum espresso (eða mjög sterkt löguðu kaffi) hellt í glasið, fyllt upp með súkkulaðinu (fer eftir stærð glassins hversu mikið þarf að nota af því) og að lokum er kreminu hellt yfir. Heitt og kalt 1 vanilluís-kúla tvöfaldur espresso brætt súkkulaði (t.d. frá cafe tasse) síróp að vild (t.d. jarðarberja) Þennan desert-drykk er smart að hafa í glasi á fæti. Vanilluískúlan er sett í botninn á glasinu, heitu kaffinu hellt yfir og svo er skreytt með brædda súkkulaðinu og sírópinu.  KEPPNI | Jónína S. Tryggvadóttir er Íslandsmeistari kaffibarþjóna Morgunblaðið/Júlíus Jónína Soffía Tryggvadóttir, Íslandsmeistari kaffibarþjóna.Þar er líka dónaskapur að fá sér mjólkurkaffi eins og cappucchino eftir mál- tíð, það yrði móðgun við kokkinn, þú værir að segja að þú værir ekki saddur. Úr brúsakaffi í kaffidrykki M or gu nb la ði ð/ Þ Ö K NÝLEGAR rannsóknir sýna að leikfimi á meðgöngu er ekki að- eins fullkomlega örugg heldur hefur hún marga kosti í för með sér. Konur, sem stunda líkams- rækt á meðgöngu að minnsta kosti tvisvar í viku, eiga síður á hættu að eignast stór börn. Þeim er síð- ur hætt við æðahnútum, bjúg, veikindum, þreytu, náladofa, mæði og öðrum fylgikvillum meðgöng- unnar. „Líkur á fósturláti og keis- araskurði eru minni og í fæð- ingum eru þær konur, sem stunda líkamsrækt, þrekmeiri og finna minna til á meðan á hríðum stend- ur. Þar að auki er ungum mæðr- um síður hætt við þunglyndi eftir meðgöngu,“ segir líkamsrækt- arþjálfarinn Krisztina G. Agueda, sem rekur líkamsþjálfunarstöðina Hreyfiland í húsnæði Hreyfigrein- ingar á Höfðabakka 9. Hreyfiland býður m.a. upp á leikfimi fyrir barnshafandi konur og stuðlar að heilsu og heilbrigði barna allt frá fósturskeiði og fram til sex ára aldurs. Að sögn Krisztinu leggur Hreyf- iland áherslu á að börn læri að verða meðvituð um eigin líkama og hafi áhuga á því að hreyfa sig og líða vel. „Þess vegna er mik- ilvægt að byrja snemma að venja börnin við og því er ekki úr vegi að hefjast strax handa þegar barn- ið er í móðurkviði. Leikfimin er sérsniðin fyrir barnshafandi kon- ur. Við leggjum áherslu á æfingar, sem hjálpa til við fæðingu, æfing- ar sem stuðla að heilbrigðum lík- ama á meðgöngu og sérstaka tón- list, sem hæfir bæði móður og barni. Í lok tímans er svo ávallt slökun, sem er nauðsynlegur þátt- ur í lífi hverrar barnshafandi konu og ekki síður mikilvægur til þess að styrkja tengsl móðurinnar og barnsins.“ Krisztina segir að með því að byrja í leikfiminni á meðgöngu venjist „bumbubúinn“ umhverfi sínu þegar í móðurkviði og skynji vellíðan móðurinnar að aflokinni hreyfingunni. „Ungbarnið er þeg- ar orðið vant því að móðirin hreyfi sig og líður því vel í því umhverfi, sem við höfum skapað því strax í móðurkviði.“  LEIKFIMI | Hreyfing barnshafandi kvenna hefur fjölmarga kosti Morgunblaðið/Arnaldur Konum sem stunda leikfimi þegar þær eru barnshafandi er síður hætt við æðahnútum, bjúg, veikindum, þreytu, náladofa og mæði. Bumbubú- arnir finna vellíðanina
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.