Morgunblaðið - 18.03.2005, Blaðsíða 37
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 18. MARS 2005 37
UMRÆÐAN
ENGINN má komast upp á milli
notanda fjölmiðils og þess sem
skrifar efnið, ekki eigendur fjöl-
miðils, ekki auglýsendur og enginn
hagsmunaaðili eða stjórn-
málamenn. Fréttamenn á fjöl-
miðlum þiggja hlutverk sitt af sam-
félaginu og starfa til að þjóna
almenningi. Sambandið milli þeirra
er í raun mjög strangt, því um leið
og slakað er á getur það glatað trú-
verðugleikanum. Fréttamenn eru
ekki verkfæri sem taka aðeins við
fyrirskipunum heldur eru þeir
skapandi starfsmenn sem hafa víð-
tæka yfirsýn og áhrif.
Fréttamenn eru alvanir að glíma
við þrýsting innandyra sem utan,
þrýstingurinn hefur fylgt stéttinni
nánast alla tíð, og blaða- og frétta-
menn á öllum fjölmiðlum þurfa að
búa við róg um að þeir séu hand-
bendi þessa eða hins eða að þeir
þjóni annarlegum hagsmunum. Það
gerðist t.d. í Hann-
esarmálinu, fjölmiðla-
málinu, Íraksmálinu
og núna er látið að við
liggja í „fréttastjóra-
málinu“. Það sem róg-
berar (hin raunveru-
legu handbendi) átta
sig hinsvegar ekki á,
er að fréttamenn láta
ekki kúga sig þótt þeir
séu vissulega misjafn-
lega harðir í horn að
taka. Þegar stjórn-
málamenn bregðast
lýðræðinu standa fréttamenn vörð
um það. Ómögulegt er að líða eða
hræðast lesti og veikleika stjórn-
málamanna sem batna ekki sjálfir
þótt þeir breyti (útvarps)lögunum.
Trúnaður blaða- og fréttamanna
er við lesandann,
áhorfandann, hlust-
andann. Efnið er gert
fyrir almenning en
ekki fyrir stjórn-
málamenn, eigendur,
stjórnendur, stofnanir
eða fyrirtæki úti í bæ.
Þeir sem vilja hafa
áhrif á fréttir og efni
fjölmiðla missa iðu-
lega sjónar á þessu og
snúa hlutunum á
hvolf; aðalatriðið
verður aukaatriðið.
Þeir verða argir og kvarta yfir
gagnrýnni hugsun og vinnubrögð-
um.
Fréttamenn þurfa að standa
vörð um sjálfstæði sitt og frelsi í
ákvörðunum og þeir þurfa hug-
rekki til að bregðast við tilraunum
annarra til að stjórna sér. Ef ein-
hver bognar verður hann „sölu-
maður“ eða „sófisti“ eins og tíðk-
aðist á tímum Sókratesar: Það voru
þeir sem tóku borgun fyrir að
sannfæra aðra um ákveðna nið-
urstöðu, málstað eða vöru. Sá sem
er þægur draumastarfsmaður er
ekki fagmaður og sá sem selur sig
áður en hann hefur störf kemst
aldrei á leiðarenda.
Fréttamenn á af-
skiptasemistímum
Gunnar Hersveinn fjallar
um samband fréttamanna
og notenda fjölmiðla
Gunnar Hersveinn
’Þegar stjórnmálamennbregðast lýðræðinu
standa fréttamenn
vörð um það.‘
Höfundur er sjálfstætt starfandi
fræðimaður.