Morgunblaðið - 18.03.2005, Blaðsíða 19
ÚTI Á LÍFINU
Að því er næturlífið varðar er Glasgow ein af svölustu borgunum. Frá skemmtilegri
krá með pilsklæddum afgreiðslumönnum til ríkmannlegrar byggingar frá
Viktoríutímabilinu, sem breytt hefur verið í næturklúbb, getur Glasgow lofað
kvöldskemmtun sem munað verður eftir! Og auk þess er tónlistarlífið í Glasgow
þrungið einstakri orku eins og vinsælu hljómsveitirnar Franz Ferdinand og Snow
Patrol hafa sýnt fram á.
Chinawhite
Nýlega opnaður staður með stíl þar sem áhrifum frá Balí, Jövu og Súmötru er beitt
til að bjóða upp á “skartgripaskrín allsnægta”! www.chinawhite-glasgow.com
Arta
Flottur, þéttsetinn staður í anda lúxusseturs Miðjarðarhafsstrandar þar sem hægt er
að borða, drekka og dansa. www.arta.co.uk
Corinthian
Ríkmannleg bygging frá Viktoríutímabilinu, sem hefur verið breytt í veitingastað og
bar. Sjón er sögu ríkari. www.corinthian.uk.com
The Arches
Einn af fremstu klúbbum Bretlands, en þangað mæta helstu plötusnúðarnir. Þar er
einnig svalur bar, sem fylgir opnunartíma kránna. www.thearches.co.uk
King Tut’s Wah Wah Hut
Þar hófst ferill sumra af stærstu hljómsveitum heims – eins og Oasis – og staðurinn
er á hraðri leið með að verða sérstakt aðdráttarafl ferðamanna. www.kingtuts.co.uk
www.icelandair.is
TÓNLISTARBORG
Ekki er hægt að heimsækja Glasgow núna í vor án þess að hlýða á frábæra tónlist
þar sem svið borgarinnar eru full af því besta í söng og dansi. Hér á eftir fer sumt
af því sem hæst ber:
Vortímabil skoska balletsins
Rafmagnað tímabil skoska landsballetsins, sem sýnir dans á heimsmælikvarða.
13.-16. apríl. www.theatreroyalglasgow.com
Sýningar á West End
Viðamiklar sýningar eru í borginni í vor og þar verða m.a. sýnd verkin Rebecca,
Joseph and the Amazing Technicolor Dreamcoat, Tommy, Sleeping Beauty on Ice
og Thoroughly Modern Millie. www.seeglasgow.com
Triptych 05
Súpertöff tónlistarhátíð þar sem boðið er upp á gamlar og nýjar goðsagnir, allt frá
The Fall til LCD Soundsystem. 27. apríl – 1. maí. www.triptych05.com
Big Big Country
Amerísk hátíð þar sem yfirskriftin í ár er Jimmy Webb, höfundur hinna klassísku
laga ‘Galveston’ og ‘Up Up and Away’. 11.-21. maí. www.soundsfine.co.uk
Fidelio
Skoska óperan flytur ógleymanlegt meistaraverk eftir Beethoven, sem sungið
verður á þýsku. 25. maí – 10. júní. www.theatreroyalglasgow.com
NETSMELLUR
Alltaf ódýrast til Evrópu
á netinu
kr.15.900*
*Netsmellur til Glasgow
VINNIÐ FRÍ TIL GLASGOW
Hér fáið þið tækifæri til að upplifa í reynd Skotland með stæl. Við
bjóðum upp á tækifæri til að vinna helgarfrí fyrir tvo til Glasgow,
þar sem eftirfarandi er innifalið: kvöldverður tvö kvöld, herbergi og
morgunverður á Ramada Glasgow City Hotel, kvöldverður á fyrsta
flokks veitingahúsi og flugferðir báðar leiðir í boði Icelandair.
Allt sem þarf að gera er að senda tölvupóst til okkar með nafni,
heimilisfangi og svarinu við þessari spurningu:
“Hvað heitir arkitektinn, sem var upphafsmaður Glasgowstílsins?”
Sendið svarið á offers@seeglasgow.com í síðasta lagi föstudaginn
25. mars 2005. Verðlaunin eru háð því að laust sé þegar bókað er.