Morgunblaðið - 18.03.2005, Blaðsíða 26

Morgunblaðið - 18.03.2005, Blaðsíða 26
26 FÖSTUDAGUR 18. MARS 2005 MORGUNBLAÐIÐ MINNSTAÐUR Grafarvogur | Heimilisfræði er vinsæl val- grein í efri bekkjum grunnskólans, og er mikið lagt í þessa námsgrein í Rimaskóla. Nemendur kepptu í kokkakeppni á miðvikudag þar sem þeir höfðu takmörkuð fjárráð og takmarkaðan tíma og göldruðu fram gómsæta rétti á borð við villigæsabringur, austurlenskt salat og fylltar svínalundir fyrir dómnefndina. Alls tóku um 80 krakkar úr Rimaskóla þátt í kokkakeppninni, en í úrslitakeppninni sem fram fór á miðvikudag tóku þátt sjö hópar með 24 krökkum. Áslaug Traustadóttir, heim- ilisfræðikennari Rimaskóla, segir að krakk- arnir séu ótrúlega klárir að elda miðað við ald- ur og reynslu og réttirnir sem þeir elduðu hafi verið ótrúlega bragðgóðir og frumlegir. Sig- urvegararnir voru þeir Eysteinn Júlíusson, Óli Ágústsson og Hörður Lárusson, sem elduðu austurlenskt salat með sesam-salatsósu og grilluðu nautakjöti ofan á. Þetta er annað árið sem þessi kokkakeppni er haldin en Áslaug segir að hugmyndin hafi komið úr sjónvarpsþætti á sjónvarpsstöðinni BBC Food, þar sem einstaklingar kepptu í eldamennsku, með takmarkaðan tíma og ákveðin viðmið fyrir hráefni. Hugmyndin var svo útfærð fyrir hópa og haldin kokkakeppni þar sem krakkarnir máttu nota að hámarki 900 krónur í hráefni, sem skólinn keypti, og máttu auk þess koma með tvær tegundir af hráefni að heiman, auk borðbúnaðar og íláta. Svo höfðu þeir klukkustund til þess að elda réttinn, sem varð að vera einhvers konar aðalréttur. Dómnefndina skipaði hópur fagfólks og mat- gæðinga, m.a. Ingvar Sigurðsson, mat- reiðslumeistari frá Argentínu steikhúsi, Jón Snorrason, matreiðslumeistari frá Tapas- barnum, og Sólveig Baldursdóttir, ritstjóri Gestgjafans. Hittast og æfa sig Áslaug segist viss um það að þessi kokka- keppni efli andann í skólanum. „Vinir hittast og elda saman og krakkarnir nota allt öðruvísi samskipti við að undirbúa þetta og vinna en þeir gera venjulega í skólanum. Þeir hittast markvisst í verkefnisundirbúningnum, þurfa að ákveða hvaða uppskrift þeir ætla að nota. Svo þurfa þau að hittast heima hjá sér til þess að æfa sig í samráði við fjölskyldurnar. Þetta tengir heimilið meira við skólann en margt annað sem er í gangi hjá okkur.“ Í heimilisfræðinni gilda aðeins önnur viðmið en annars staðar í skólastarfinu. „Það er svo mismunandi hvernig krakkarnir blómstra í grunnskólanum og í heimilisfræðinni eru ein- hverjir sem ná góðum árangri og verða mjög eftirsóttir í lið. Þetta snýr félagslegum hug- myndum að vissu leyti upp á rönd og þarna myndast nýir félagar. Svo er farið heim að elda og ég veit að hjá sumum hittist hópurinn heima hjá einum foreldrunum og öllum hinum for- eldrunum er boðið. Þannig að foreldrarnir hittu bæði börnin og foreldra vina barnanna,“ segir Áslaug. Heimilisfræðin er sífellt að verða vinsælli námsgrein, a.m.k. í Rimaskóla, þar sem hún er kennd sem valfag í 9. og 10. bekk. Í dag eru níu hópar í heimilisfræði, en fyrir 6 árum var ein- ungis einn hópur. „Það er mikil umræða um mat, matarmenningu og samvistir, þetta er að verða sjáanlegra í þjóðfélaginu og það hefur örugglega áhrif,“ segir Áslaug. Villigæsabringur, austurlenskt salat og fylltar svínalundir í kokkakeppninni í Rimaskóla Morgunblaðið/Sverrir Sigruðu með salati Margar hendur vinna létt verk hjá þeim Eysteini, Óla og Herði. Vinningsréttur Austurlenskt salat með nautastrimlum heillaði dómnefndina. Göldruðu fram gómsæta rétti HÖFUÐBORGARSVÆÐIÐ 300 g nautafille 1⁄2 dl ostrusósa 3 tsk. sykur Örlítið salt og nýmalaður svartur pipar Penslið kjötið með blöndu af ostru- sósu og sykri og steikið á pönnu við meðalháan hita. Passið að sósan brenni ekki en að kjötið lokist samt. Bakið kjötið í ofni við 180°C í 20–25 mínútur eftir því hversu þykkt það er. Látið kjötið standa í 15–20 mínútur þegar það kemur úr ofninum. Skerið í næf- urþunnar sneiðar Sósa 3 tsk. rifinn börkur af lime (passið að taka hvíta hlutann ekki með) 3 rif hvítlaukur 1 msk. fiskisósa safi úr 1 lime 2 tsk. sesamolía 1 dl sæt chilisósa Maukið allt hráefnið nema chilisós- una í matvinnsluvél og hrærið svo chili- sósunni saman við með skeið. Salat 1 poki hátíðar- eða klettasalatblanda 1 búnt vorlaukur 1 ferskur ananas 1⁄2 bakki baunaspírur 1⁄2 knippi ferskt kóríander 1⁄2 búnt steinselja Afhýðið ananasinn og kjarnhreinsið. Skerið í nettar sneiðar og sneiðarnar í bita. Skerið vorlaukinn í þunna aflanga strimla. Tætið kóríander og steinselju gróft og dreifið svo öllu saman á af- langan bakka eða fat. Hellið sósunni yf- ir og skerið nautakjötið í mjög þunnar sneiðar og dreifið yfir. Skreytið bakk- ann eða fatið með toppnum af ananas- inum og berið fram. Austurlenskt salat með nautastrimlum AKUREYRI Lóðasamningur | Á síðasta fundi bæjarráðs var tekið fyrir erindi frá Steingrími Péturssyni f.h. Eim- skipafélags Íslands ehf. varðandi uppsögn á lóðarleigusamningi frá því í ágúst 1987. Óskað er eftir að bæjaryfirvöld á Akureyri sýni fyrirtækinu skilning á starfsemi þess í bænum og hefji strax samninga við félagið um end- urnýjun á lóðarleigusamningi. Eins og fram kom í Morgunblaðinu ný- lega samþykkti bæjarstjórn á fundi sínum í byrjun mars sl. að segja lóð- arsamningum upp, að beiðni Hafna- samlags Norðurlands. Hörður Blön- dal hafnarstjóri sagði þá að þessi breyting væri gerð til þess að taka frá svæði sem tengdist Oddeyr- arbryggju og tryggja það til afnota fyrir sjóflutninga. Eimskip nýtir umrætt svæði undir starfsemi sína en Hörður sagði ennfremur að þessi breyting útilokaði félagið ekki frá því. Hins vegar væri verið að setja svæðið undir ákvörðunarvald hafn- arinnar. Borgarspjall | Guðmundur Sig- valdason flytur erindi í Borgarspjalli Auðlindadeildar í dag, föstudaginn 18. mars kl. 12. Erindið nefnist: Get- ur Akureyri verið til fyrirmyndar í sjálfbærri þróun? Í spjallinu verður sagt frá Staðardagskrá 21 fyrir Ak- ureyri og tekin dæmi um þá þætti sem miklu skipta um sjálfbæra þró- un í samfélagi eins og Akureyri. Sýning | Guðrún Jónsdóttir og Þorbjörg Halldórsdóttir opna sýn- ingu á Kaffi Karólínu á morgun, laugardaginn 19. mars kl. 14. Þetta er önnur sýningin af þremur sem þær standa fyrir. Að þessu sinni sýna þær handmálaðar ljósmyndir frá 1930–1960. Þær tengjast flestar Mývatni en þó gefur að líta nokkrar frá Eyjafjarðarsvæðinu. LEIKHÚSKÓRINN á Akureyri heldur upp á 10 ára starfsafmæli nú í vor. Að því tilefni verða haldnir tvennir afmælistónleikar í Ketilhús- inu, þeir fyrri í kvöld, föstudags- kvöldið 18. mars, en síðari tónleik- arnir verða annað kvöld, 19. mars. Flutt verða Bítlalög útsett af Roar Kvam kórstjóra fyrir 10 manna hljómsveit, einsöngvara og kór. Aðaleinsöngvarinn er hinn landsþekkti Pálmi Gunnarsson og einnig koma fleiri einsöngvarar við sögu og meðal þeirra eru félagar úr Leikhúskórnum. Hljóðfæraleik- ararnir eru allir atvinnutónlist- armenn. Leikhúskórinn er hópur áhuga- fólks innan Leikfélags Akureyrar. Fjárhagur kórsins er þó algerlega aðskilinn frá Leikfélaginu og fjár- magnar kórinn alla sína starfsemi með styrkjum frá velunnurum kórsins og fyrirtækjum á Eyjafjarð- arsvæðinu. Allar frekari upplýsingar má finna á heimasíðu kórsins http:// nett.is/leikhuskorinn/ og einnig er þar hægt að panta miða á tón- leikana. Bítlalögin hljóma á tvennum afmælistónleikum Leikhúskórsins. Bítlatónleikar Ólafsfjörður | Kylfingar í Ólafsfirði sitja ekki auðum höndum þótt ekki sé hægt að stunda íþróttina utan dyra á þessum árstíma. Golf- klúbbur Ólafsfjarðar hefur útbúið 18 holu púttvöll á 2. hæð í salthúsi Garðars Guðmundssonar og þar stendur nú yfir Ping-pútt- mótaröðin. Að sögn Ásgeirs H. Bjarnasonar, formanns mótanefnd- ar GÓ, er búið að teppaleggja hæð- ina í salthúsinu með fallegu grænu teppi, bora holur í steingólfið og setja í þær stangir. „Þarna eru æfingar þrjú kvöld í viku og á sunnudögum er keppt í púttmótaröðinni. Menn geta líka farið og keppt í miðri í viku en þá þurfa líkt og í öðrum mótum að vera minnst þrír saman í holli,“ sagði Ásgeir. Til þess að teljast þátttakandi í púttmótaröðinni þarf kylfingur að leika að minnsta kosti sex sinnum 18 holur á tímabilinu fram til 1. maí. Þeir geta leikið oftar, en það eru sex bestu hringirnir sem gilda í mótinu. „Það er töluverður áhugi fyrir þessu og þetta gefur ótrúlega mikið í púttsveiflunni. Það skiptir líka máli að vera í keppni en ekki að dúlla sér einn. Ég hafði ekki mikla trú á þessu í upphafi en þetta virkar mjög vel,“ sagði Ás- geir. Ekki er nauðsynlegt að vera fé- lagi í GÓ til að fá að taka þátt í mótinu, því þátttaka er heimil öll- um bæjarbúum. Glæsileg verðlaun eru í boði fyrir fimm efstu sætin og verða þau afhent sigurvegurum í maí. Morgunblaðið/Helgi Jónsson Púttvöllur Helgi Barðason púttar í aðstöðunni í salthúsinu en þau Birnir Björnsson og Sigríður Hannesdóttir fylgjast með. Púttvöllur í salthúsinu VERKLEGAR framkvæmdir vegna nýbyggingar við Hjúkrunarheimilið Hlíð hafa verið boðnar út. Nýja byggingin verður vestan við núver- andi byggingar og þar verða 60 hjúkrunarrými í einstaklingsher- bergjum, eldhús og matsalur, bún- ingsaðstaða fyrir starfsfólk, stiga- hús, lyfta og tengigangur við eldri byggingu. Heildarstærð byggingarinnar verður um 4.000 fermetrar en húsið verður á þremur hæðum. Viðbygg- ingin við Hlíð er samstarfsverkefni heilbrigðis- og tryggingamálaráðu- neytisins og Akureyrarbæjar. Arki- tektar viðbyggingarinnar eru Arki- tektur.is en verkfræðihönnun er í höndum VST hf. Fyrirhuguð verklok eru 15. september 2006 og því má gera ráð fyrir að húsið verði komið í rekstur um miðjan október sama ár. Viðbygging við Hjúkrunarheimilið Hlíð Framkvæmdir boðnar út      
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.