Morgunblaðið - 18.03.2005, Blaðsíða 27

Morgunblaðið - 18.03.2005, Blaðsíða 27
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 18. MARS 2005 27 MINNSTAÐUR Kelp Fyrir húð hár og neglur PÓSTSENDUM www.simnet.is/heilsuhorn Glerártorgi, Akureyri, s. 462 1889 fæst m.a. í Lífsinslind í Hagkaupum, Árnesaptóteki Selfossi, Yggdrasil Kárastíg 1. Fjarðarkaupum Borgartúni 24 Lyfjaval Hæðarsmára Lyfjaval Þönglabakka                               SUÐURNES FULLTRÚAR yngstu og elstu kyn- slóða væntanlegra notenda voru viðstaddir upphaf framkvæmda við fimmtíu metra innisundlaug við Sundmiðstöðina í Keflavík. Meðal þeirra voru Ingi Þór Jóhannsson, gamall sundkóngur Suðurnesja, og Gunnhildur Gígja Ingvarsdóttir, nemandi við leikskólann Garðasel. Ingi Þór er 89 ára gamall og syndir 400 metra á hverjum degi. „Það er númer eitt hjá mér að synda. Það liðkar mann og gerir gott. Sundið er besta íþrótt sem hægt er að hugsa sér,“ segir hann. Engin sundlaug var í Keflavík þegar Ingi Þór var að alast upp. Sem barn og unglingur synti hann í sjónum. Segir að þeir strákarnir hafi oft farið inn á Fitjar, sjórinn hafi hitnað á leirunum. Hann fór til Reykjavíkur í vikutíma og lærði sjálfur að synda í gömlu laugunum. Síðar fór hann á Íþróttaskólann í Haukadal og lagði þar áherslu á sundið. Þótt Ingi hafi aldrei fengið sund- kennslu náði hann góðum árangri í íþróttinni. Var sundkóngur Suð- urnesja í fjögur eða fimm ár og komst á verðlaunapall á Íslands- mótum. Þá tók hann eitt sinn við silfurbikar úr hendi Ólafs Thors sem mesti sundkappi Keflavíkur. Hann segir að mikil breyting hafi orðið í aðbúnaði sundmanna þegar fyrsta sundlaugin var byggð í Keflavík en hún var vígð árið 1939. Í laugina var notaður sjór en hún var hituð upp. Syndir 400 metra á hverjum degi Morgunblaðið/Helgi Bjarnason Reykjanesbær | Framkvæmdir eru hafnar við byggingu 50 metra innisundlaugar við Sundmiðstöðina í Keflavík og yf- irbyggðan vatnagarð. Er þetta önnur 50 metra innisund- laugin hér á landi en ekki er langt síðan slík laug var tekin í notkun í Laugardalnum í Reykjavík. Eignarhaldsfélagið Fasteign ehf., sem Reykjanesbær á aðild að, byggir sundlaugina en Reykjanesbær tekur hana á leigu að framkvæmdum loknum. Er áætlað að það verði í mars á næsta ári. Áður hefur komið fram að bærinn mun greiða um 50 milljónir kr. á ári fyrir afnot af mannvirkinu. Keflavíkurverktakar byggja mannvirkið og er heild- arkostnaður áætlaður 645 milljónir kr. Fyrsta skóflu- stungan var tekið við athöfn við Sundmiðstöðina í gær. Það verk önnuðust fulltrúar væntanlegra notenda, meðal annars nemendur í leikskólanum Garðaseli, Myllubakkaskóla og Holtaskóla, sundfólk úr Íþróttabandalagi Reykjanesbæjar og Íþróttafélaginu Nesi og gamlar sundkempur. Hreyfing er hluti af námskrá Garðasels og nemendur Myllubakka- skóla og Holtaskóla munu sækja skólasund í nýju innilaug- inni. Aukið aðdráttarafl Bygging innisundlaugarinnar hefur verið hönnuð í náinni samvinnu Reykjanesbæjar og Fasteignar, að því er fram kom við athöfnina í gær. Meðal annars var lögð áhersla á að nýta húsnæði sem fyrir er í Sundmiðstöðinni og ekki hefur nýst. Þannig verða búningsklefarnir í kjallara núverandi byggingar. Innisundlaugin á að uppfylla kröfur sem keppnislaug fyr- ir öll innanlandsmót, Norðurlandamót og alþjóðleg mót, þó ekki alþjóðleg meistaramót. Fram kom við athöfnina í gær að þegar er búið að panta þar tíma fyrir tvö mót á næsta ári. Í miðri lauginni verður brú sem hægt verður að lyfta upp og breyta henni í tvær 25 metra keppnislaugar og kenna þar tveimur bekkjum á sama tíma. Vatnsleikjasvæði, svokallaður vatnagarður, verður á milli nýju innilaugarinnar og gömlu útisundlaugarinnar, yf- irbyggður að hluta. Árni Sigfússon bæjarstjóri sagði við upphaf framkvæmda í gær þegar hann kynnti framkvæmd- ina að garðurinn myndi auka mjög aðdráttarafl Sund- miðstöðvarinnar fyrir fjölskyldufólk. Byggð 50 metra inni- laug og vatnagarður Morgunblaðið/Helgi Bjarnason Skóflustunga Margir lögðu hönd á plóginn þegar framkvæmdir hófust við stóru innisund- laugina í Keflavík, meðal annars nemendur leikskóla og grunnskóla sem nota laugina. Vatnagarður Yfirbyggt vatnaleikjasvæði mun auka aðdráttarafl Sundmiðstöðvarinnar.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.