Morgunblaðið - 18.03.2005, Blaðsíða 58

Morgunblaðið - 18.03.2005, Blaðsíða 58
58 FÖSTUDAGUR 18. MARS 2005 MORGUNBLAÐIÐ Miðasala opnar kl. 15.30 2 vikur á toppnum í USA & Íslandi Sýnd kl. 8   Will Smith og Kevin James (King of Queens) í skemmtilegustu gamanmynd ársins! Will Smith er  J.H.H. kvikmyndir.com  SV mbl Hann trúir ekki að vinur hennar sé til þar til fólk byrjar að deyja! MISSIÐ EKKI AF ÞESSUM MAGNAÐA SPENNUTRYLLI MEÐ ROBERT DE NIRO SEM FÆR HÁRIN TIL AÐ RÍSA Hann trúir ekki að vinur hennar sé til þar til fólk byrjar að deyja! MISSIÐ EKKI AF ÞESSUM MAGNAÐA SPENNUTRYLLI MEÐ ROBERT DE NIRO SEM FÆR HÁRIN TIL AÐ RÍSA Yfir 15.000 gestir!   SV. Mbl  SV. Mbl EINI THX LÚXUSSALUR LANDSINSI I I Frábær grínmynd fyrir alla fjölskylduna jamie kennedyj i Alan cummingl i i ll l l Sýnd kl. 4 og 6 Ísl tal jamie kennedyi Alan cummingl i CLOSER Sýnd kl. 10 B.i. 14 ára. Ó.Ö.H. DV S.V. MBL. M.M.J. Kvikmyndir.com ATH! GÆTI HUGSANLEGA VAKIÐ ÓTTA UNGRA BARNA  Ó.H.T. Rás 2 A MIKE NICHOLS FILM “…það mátti því búast við því að Closer væri góð mynd en hún er gott betur en það.” Þ.Þ. FBL Frábær grínmynd fyrir alla fjölskyldunar r rí f rir ll fj l l Sýnd kl. 4, 6 og 8 m. ísl. tali Sýnd kl. 4, 6, 8 og 10 m. ensku taliSýnd kl. 5.50 og 10.10 Sýnd kl. 8 og 10.20. B.i. 16 ára. kl. 5.40, 8 og 10.20. Will Smith er Will Smith ogKevin James (King of Queens) í skemmtilegustu gamanmynd ársins! 2 vikur á toppnum í USA & Íslandi  J.H.H. kvikmyndir.com  SV mbl Sýnd kl. 5.30, 8 og 10.30. Yfir 15.000 gestir! JULIA ROBERTS JUDE LAW CLIVE OWEN NATALIE PORTMAN         Sýnd kl. 6 m. ísl. tali Sýnd kl. 8 og 10 m. ensku tali PHIL Elverum er Mt. Eerie en var áður The Micro- phones. Undir síðarnefnda nafninu hefur Elverum gefið út nokkrar af merkustu skífum óháða geirans undanfarin ár og ber þar helst að nefna Glow, pt. 2 frá 2001. Sú plata var valin plata ársins af hinum valdamikla og smekkstýr- andi vef, www.pitchforkmedia.com. Fyrir tveimur árum síðan kom svo út platan Mount Eerie og lagði Elverum þá niður Microphones nafnið og tók upp listamanns- nafnið/hljómsveitarnafnið Mount Eerie í staðinn. Elverum er nú staddur á Íslandi og ætlar að halda hér nokkra hljómleika. Lokið er hádegistónleikum sem fram fóru í matsal Menntaskólans við Hamrahlíð á miðviku- daginn og í gær lék Elverum í Frumleikhúsinu í Kefla- vík. Í dag klukkan 17 spilar hann í Smekkleysubúðinni ásamt Woelv (sem er listamannsnafn konu hans, Gen- eviève Castrée), Skakkamanage og Brite Light, sem er ný íslensk kvennasveit. Lokatónleikarnir eru svo í Klink og Bank á morgun klukkan 20 og þá leika einnig Þórir, Woelv og Gavin Portland. Blaðamaður hitti á Elverum, stuttu fyrir tónleika hans í MH, og settist niður með honum í matsalnum og ræddi stuttlega við hann. Elverum er hæglætismaður, afar kurteis og sýnilega djúpþenkjandi eins og aðdáendur hans hafa fengið að kynnast, en plötur hans eru lyklaðar og hlaðnar margháttuðum merkingum og skilaboðum. Tónlistin sértæk og fer í óvæntar áttir, 10 mínútna hljóð- verk fylgir á eftir tveggja mínútna sýrupoppi. Elverum útskýrir fyrir blaðamanni að han sé nýbúinn að bæta einu „e“-i við nafnið sitt en það var áður stafsett Elvrum. Þetta er fyrsta heimsókn hans til Íslands og segist hann búinn að vera veikur síðan á sunnudag, en nú (á miðvikudegi) sé hann óðum að braggast. Elverum er frá Washingtonríki í Bandaríkjunum, og hefur gert út frá höfuðborg ríkisins, Olympiu. Hann hef- ur starfað þar náið með og fyrir K Records fyrirtækið goðsagnakennda, sem er í eigu Calvin Johnson, leiðtoga Beat Happening. „Þetta hefur verið dálítið bein lína hjá mér. Ég byrjaði að vinna í plötubúð, fór að garfa í tónlist, byrjaði í hljóm- sveit með gaurum sem voru á mála hjá K og svo frv. Eitt leiddi af öðru einhvern veginn.“ Spurður um það, af hverju hann hafi lagt niður Micro- phones-nafnið, segist hann einfaldlega hafa viljað byrja upp á nýtt, skilja við sig allt það sem fólk var farið að tengja við Microphones. „Æ ... þetta var orðið svo mikið. Mér fannst óþægilegt að vera kominn í þá stöðu að finnast ég þurfa að bregðast við einhverjum fyrirfram hugmyndum fólks.“ Sumir myndu kalla það óskynsamlegt að leggja niður nafn sem er orðið þekkt en Elverum segir að bragði þeg- ar þessu er fleygt á loft: „Það skiptir mig ekki máli. Ég er í þessu vegna tónlist- arinnar sjálfrar. Og það er sannkölluð blessun að ég hef getað lifað af henni hingað til.“ Við þetta fór Elverum upp að magnaranum sínum, stillti gítarinn sinn og tróð svo upp fyrir menntskæl- ingana, einn með rafmagnsgítar í fullum matsal. Í kring- um hann myndaðist bogi áheyrenda og Elverum viður- kenndi að hann væri nokkuð óöruggur við þessar aðstæður. En svo byrjaði hann að syngja … Tónleikar | Mount Eerie á Íslandi Morgunblaðið/Jim Smart Phil Elverum (Mount Eerie) stillir sér upp í Norður- kjallara Menntaskólans við Hamrahlíð. Ókeypis er á Smekkleysutónleikana í dag en aðgangs- eyrir inn á Klink og Bank á morgun er 500 krónur. arnart@mbl.is Byrjað upp á nýtt MEÐLIMIR hljómsveitar- innar Keane eru sannarlega Íslandsvinir, eftir vel heppn- aða tónleika á Iceland Airwaves-tónlistarhátíðinni í Listasafni Reykjavíkur á síðasta ári. Þeir hafa nú til- kynnt að á tónleikastuttskíf- unni Live Recordings 2004, sem kemur út 4. apríl næst- komandi, verði eitt lag af tónleikunum, „Everybody’s Changing“, en Rás 2 tók þá upp. Lagalistinn er svohljóð- andi: 1. „Somewhere Only We Know“ (Forum, London 10.5.’04) 2. „We Might As Well Be Strangers“ (Columbiafritz, Berlin 19.5.’04) 3. „ Allemande“ (BNN That’s Live Session, Amsterdam 7.7.’04) 4. „This Is The Last Time“ (óraf- magnað, Mill St Brewery, Toronto 20.9.’04) 5. „Everybody’s Changing“ (Airwav- es Festival, Reykjavik 23.10.’04) 6. „Bedshaped“ (Brixton Academy, London 17.11.’04) Keane gefur út lag frá Airwaves Gríðarleg stemmning var í Hafnarhúsinu þegar Tom Chaplin og félagar í Keane spiluðu á Airwaves í októbermánuði. Morgunblaðið/Árni Torfason ATHYGLI vekur að á X-Dominoslistanum, vin- sældalista XFM, dagsett- um 16. mars, eru alls tíu lög af þrjátíu íslensk. Ber það vott um að verið sé að sinna íslenskri rokk- tónlist á stöðinni og að hlustendur vilji heyra hana. Hljómsveitirnar, lögin og sætaskipan eru sem hér segir: 6. Lights On The Highway – „Jamison State“, 11. Brain Police – „Paranoia“, 12. Jan Mayen – „Damn Straight“, 14. Lokbrá – „Stop the Music“, 19. Vínyll – „Every Dreamers Nightmare“, 20. Hoffman – „Bad Seeds“, 24. Days Of Our Lives – „The Solary Index“, 25. Noise – „No Tomorrow“, 26. Motorfly – „Gold For Free“, 28. Jeff Who – „Death Before Disco“. Toppsætið tekur hins vegar Beck með lagið „Epro“. Íslenskt á X-FM Lokbrá á lagið „Stop the Music“ á listanum en það er á væntanlegri plötu, Army of Sound- waves, sem kemur út í byrjun apríl. Morgunblaðið/Árni Torfason Tíu íslensk lög á X-Dominoslistanum
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.