Morgunblaðið - 18.03.2005, Qupperneq 31
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 18. MARS 2005 31
MENNING
„TRÚARLEGUR kveðskapur Hall-
gríms rímar vel við páskahátíðina
og einnig er væntanlegt þriðja bind-
ið í ritröð Árnastofnunar um verk
Hallgríms Péturssonar,“ segir Jó-
hanna Bergmann, sérfræðingur við
Þjóðmenningarhúsið, en Hallgrímur
Pétursson er Skáld mánaðarins í
Þjóðmenningarhúsinu og verður
opnuð sýning um skáldskap hans og
ævi í dag.
„Á sýningunni fæst innsýn í verk
Hallgríms og útgáfur á þeim og
þann innblástur sem þau veita öðr-
um listamönnum, ekki síst í nútím-
anum. Drepið er á æviatriði Hall-
gríms og staldrað við atburði sem
marka hvörf í hans ferli.
Ævi Hallgríms var um margt
óvenjuleg og vörðuð örlagaríkum
atburðum og kynnum. Hann fylgdi
ekki forskrift 17. aldar um hefð-
bundinn menntaveg og gott embætti
þrátt fyrir að hafa átt þess kost.
Þvert á móti lætur Hallgrímur
stjórnast af eigin hvötum, hleypir
heimdraganum og fer utan ungur
maður og kvænist loks ástinni sinni,
henni Guðríði Símonardóttur, konu
sem kynnst hafði ánauðug framandi
menningu í Alsír,“ segir Jóhanna
Bergmann.
Við opnun sýningarinnar flytur
Margrét Eggertsdóttir, fræðimaður
hjá Stofnun Árna Magnússonar,
ávarp um Hallgrím Pétursson og
Magnea Tómasdóttir söngkona og
Guðmundur Sigurðsson organisti
flytja Passíusálma í útsetningu
Smára Ólasonar tónlistarfræðings.
Allir eru velkomnir að vera við opn-
un sýningarinnar.
Skáld mánaðarins er samvinnu-
verkefni Þjóðmenningarhússins,
Stofnunar Árna Magnússonar, sem
setur sýninguna upp í bókasal,
Landsbókasafns – Háskólabókasafns
sem lánar bækur og handrit, Stofn-
unar Gunnars Gunnarssonar, sem
setur upp sýningu og efnir til við-
burða að Skriðuklaustri, og Skóla-
vefjarins ehf. sem opnar vefgátt um
skáldið á slóðinni www.skolavef-
ur.is.
„Sérfræðingar Árnastofnunar
vinna nú að mjög ítarlegri og fræði-
legri ritröð um öll verk Hallgríms
Péturssonar sem í munu vera átta
bindi en nú þegar eru komin út tvö
bindi. Þriðja bindið er væntanlegt
um þessar mundir,“ segir Jóhanna.
Við opnunina verður eiginhand-
arrit Hallgríms af Passíusálmunum
til sýnis en af öryggisástæðum verð-
ur það síðan fjarlægt og eftirgerð
höfð á sýningunni.
„Þá verður líka sýnd eftirgerð
eina málverksins sem til er af Hall-
grími og varðveitt er á Þjóðminja-
safninu. Þá verða til sýnis fjölmörg
handrit og útgáfur af verkum Hall-
gríms sem eru orðnar mjög margar
og fjölbreyttar. Þá verða sýndir
geisladiskar með tónlist sem samin
hefur verið við skáldskap hans og
hægt að hlusta á tónlistina og svo er
vefgátt Skólavefjarins aðgengileg á
sýningunni þar sem alls kyns upplýs-
ingar um skáldið er að finna.
Einnig verður sýnd frumgerð
listaverks eftir Barböru Árnason en
hún myndskreytti eina hátíð-
arútgáfu af Passíusálmunum og
höggmynd Páls Guðmundssonar í
Húsafelli en hann hjó Hallgrím í
stein. Af öðru sem nefna má af sýn-
ingunni er legsteinn sem Hallgrímur
gerði eftir Steinunni dóttur sína og
var týndur í tvær aldir en fannst aft-
ur 1964 í Hvalsnesi. Hann tók dauða
hennar mjög sárt og það er vitað að
skáldskapur hans breyttist eftir
þetta og varð trúarlegri en fram að
því,“ segir Jóhanna Bergmann.
Sýningin stendur til 31. maí nk. og
verður efnt til ýmissa viðburða í
tengslum við hana. Sýningar í Þjóð-
menningarhúsinu eru opnar alla
daga vikunnar frá kl. 11 til 17.
Skáldskapur Hall-
gríms Péturssonar
Morgunblaðið/Þorkell
Margrét Eggertsdóttir og Philiph Ruughton með höggmynd Páls Guð-
mundssonar frá Húsafelli af Hallgrími Péturssyni. Gerðarsafn lánaði verkið.
Bókmenntir | Skáld mánaðarins í Þjóðmenningarhúsinu
ÞEIR sem ekki héldu vatni yfir
sýningu Ólafs Elíassonar, „Frost
Activity“, sem var í A-sal Hafn-
arhússins í fyrra, ættu ekki að
verða fyrir vonbrigðum með sýn-
ingu Brynhildar Þorgeirsdóttur,
Myndheimur, í sama sal. Virkar
hún sem andhverfa sýningar
Ólafs. Í stað þess að hækka salinn
með speglum dregur Brynhildur
hann saman með svörtu taui og
gríðarlegum steypuklumpum sem
hún raðar utan um súlur í salnum.
Í stað léttleika „Frost activity“ er
rýmið því þungt og myrkt og gest-
ir verða þátttakendur í framandi
hugarheimi en ekki sjónarspili
eins og því sem Ólafur skapaði.
Hugarheimur, eða réttar sagt
myndheimur Brynhildar Þorgeirs-
dóttur, er á margan hátt súr-
realískur. Einhver afmynduð
furðukvikindi sem búa djúpt í
sjávarbotni eða í dimmum helli á
annarri plánetu. Sum þeirra sýn-
ast slepjuleg skriðdýr sem gætu
stokkið á mann og sogað úr manni
allt blóð eða merg eða kannski
verpt inn í mann eggjum. Það er
jafnframt eitthvað við þessi fall-
ísku form í bland við opin belglaga
form með rauðlituðu gleri innan-
borðs sem er furðulega kynferð-
islegt, líkt og þegar Alien og
Predator stönsuðu og störðu hvor
á annan í miðju einvígi í nýlegri
samnefndri kvikmynd. En andlits-
Framandlegur myndheimur
MYNDLIST
Listasafn Reykjavíkur
– Hafnarhúsið
Opið alla daga frá 10–17.
Sýningu lýkur 24. apríl.
Brynhildur Þorgeirsdóttir
Jón B.K. Ransu
Morgunblaðið/Ómar
Myndheimur Brynhildar Þorgeirsdóttur í porti Hafnarhússins.
fall þess fyrrnefnda er nefnilega
fallískt og andliti þess síðarnefnda
svipar til ...
Brynhildur hefur löngum sagst
vera bara gamaldags styttugerð-
arkona og kvað svo einmitt síðast
í viðtali við Gylfa Gíslason í sjón-
varpinu fyrir skömmu. Ég verð nú
að játa að mér hefur oft þótt
Brynhildur vera skemmtilega á
mörkum listmunagerðar og
skúlptúrs. Hér er þó mikið meira
en bara styttugerð í gangi. Nær
Brynhildur að skapa furðulegum
einstaklingum sínum sannfærandi
heimili með dúndrandi rýmisinn-
setningu. Það léttir svo all-
verulega yfir þeim hluta sýning-
arinnar sem er í porti Hafnar-
hússins þar sem rýmið er opið og
landslag, þ.e. náttúruöflin, jörð,
eldur og vatn, spila mikilvæga
rullu. Það breytir því þó ekki að
fyrirmyndirnar sýnist áfram sótt-
ar til framandlegs heims. Er með-
vitund og þekking listakonunnar á
samspili ólíks efnis í háum klassa
og formfræðin annarleg en
skemmtileg og höfðar til lík-
amlegra kennda og ímyndunarafls
langtum fremur en rökhugsunar.
Minnir listakonan rækilega á sig
með þessari sýningu og að hún sé
svo sannarlega í framlínu mynd-
höggvara á Íslandi. Metnaðurinn
til fyrirmyndar og ekki hægt að
segja annað en að listakonan hafi
gengið alla leið með myndheim
sinn.