Morgunblaðið - 18.03.2005, Side 49

Morgunblaðið - 18.03.2005, Side 49
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 18. MARS 2005 49 FRÉTTIR G JÖ F G JÖ F G JÖ F Re-Nutriv Revitalizing Comfort Creme Hreinn munaður handa húð þinni. Finndu hvernig þetta frábæra krem smýgur inn í húðina, yngir hana og lífgar upp á augabragði. Tryggðu þér framtíð með færri línum með því að nýta öfluga náttúrukjarna í baráttunni gegn öldrun húðarinnar - þar á meðal fágætan Reishi svepp og kínversk úlfaber - sem efla eðlilega kollagenframleiðslu hennar. ÓTRÚLEGA virk og lífgandi efni sem vinna gegn öldrun. ÓLÝSANLEGA yndislegt dekur við húðina, athvarf í erli dagsins. ÓVENJULEGA öflug rakagjöf og djúpnæring. Re-Nutriv Revitalizing comfort Creme - hreinn munaður handa húð þinni nýtt Gjöfin þín: Glæsileg snyrtitaska með Re-Nutriv hreinsikremi, andlitsvatni og 24 stunda kremi fylgir öllum keyptum vörum í Re-Nutriv línunni.* Verðgildi gjafarinnar er kr. 11.200. *Meðan birgðir endast. Í TILEFNI af 60 ára afmæli Flug- málastjórnar Íslands stendur nú yfir sýning í Ráðhúsinu í Reykjavík þar sem stiklað er á stóru í sögu stofnunarinnar í máli og myndum. Stofnunin tók til starfa 15. mars 1945 en hlutverk hennar er að byggja upp og sjá um hvaðeina er lýtur að rekstri flugvalla og rekstr- arumhverfi flugrekenda. Á sýningunni er mikið safn gam- alla og nýrra ljósmynda og kvik- mynda og m.a. er sýnd kvikmynd þegar Bretar afhentu Íslendingum Reykjavíkurflugvöll árið 1946. Einnig eru sýningargestir fræddir um stjórnun flugumferðar á ís- lenska flugstjórnarsvæðinu en um það fara vélar á leið milli Evrópu og Ameríku. Íslendingar voru með- al þeirra ríkja sem skrifuðu undir stofnsáttmála Alþjóða flug- málastofnunarinnar, ICAO, árið 1944 og hefur stofnunin upp frá því fylgt ákvæðum sem felast í samn- ingnum og viðaukum hans. Rúm- lega 300 manns starfa í dag hjá Flugmálastjórn í Reykjavík og víða um landið og dótturfyrirtækinu Flugfjarskiptum. Sýningin er opin daglega milli kl. 12 og 19 til og með 23. mars. Morgunblaðið/Árni Sæberg Fjölmargir gestir voru viðstaddir opnun afmælissýningar Flugmála- stjórnar sem nú stendur í Tjarnarsal Ráðhúss Reykjavíkur. Sýna 60 ára flugmálasögu Afmælissýning Flugmálastjórnar Íslands í Ráðhúsinu í Reykjavík STUÐNINGSYFIRLÝSING bakhjarla verkefnisins Vist- vernd í verki var nýlega undirrituð í umhverfisráðuneyt- inu. Vistvernd í verki snýst um að breyta á einfaldan hátt ýmsum venjum í daglegu lífi til að gera það vistvænna án þess að draga úr lífsgæðum. Alls taka 13 sveitarfélög hérlendis nú þátt í verkefninu og hafa um 500 heimili lokið þátttöku sem felst í því að tileinka sér nýjar venjur sem fela í sér að bera sameiginlega umhyggju fyrir um- hverfinu. Landvernd sér um framkvæmd verkefnisins hérlendis með stuðningi umhverfisráðuneytisins. Við þetta tækifæri stilltu stuðningsaðilarnir sér upp ásamt umhverfisráðherra og fulltrúum Landverndar og voru þeir með táknrænan hlut, hver fyrir sitt fyrirtæki. Frá vinstri talið eru Bryndís S. Valdimarsdóttir frá Yggdrasil með hreinlætisvörur sem hlífa umhverfinu, Ragna I. Halldórsdóttir frá SORPU með taupoka sem er handhægt að kaupa í til að spara plastið, Kristinn G. Bjarnason frá Toyota með hjólkopp en Toyota selur m.a. bíla með tvígengismótor sem nýta allt rafmagn sem bíl- arnir framleiða og eyða því umtalsvert minna bensíni, Sigfús Guðfinnsson, frá Brauðhúsinu í Grímsbæ með brauðhleif, allur bakstur hjá Brauðhúsinu er úr lífrænt ræktuðum hráefnum, Páll Samúelsson, stjórnarformað- ur Toyota, Ólöf Guðný Valdimarsdóttir, formaður Land- verndar, Sigríður Anna Þórðardóttir, umhverfis- ráðherra, Guðríður Vestars með tíkina Mímí, Dýrabær er hunda- og kattasnyrtistofa og verslun með vörur fyrir hunda, ketti og hesta sem eru náttúrulegar og án allra aukaefna, Sigrún Guðjónsdóttir frá Tæknivali með litla fartölvu, í Tæknivali fást einu tölvurnar á Íslandi sem bera norræna umhverfismerkið Svaninn, Benedikt G. Sigurðsson frá Landsvirkjun og Þóra Bryndís Þór- isdóttir, verkefnisstjóri Vistverndar í verki hjá Land- vernd. Morgunblaðið/Ómar Frá vinstri: Bryndís S. Valdimarsdóttir, Ragna I. Halldórsdóttir, Kristinn G. Bjarnason, Sigfús Guðfinnsson, Páll Samúelsson, Ólöf Guðný Valdimarsdóttir, Sigríður Anna Þórðardóttir umhverfisráðherra, Guðríður Vestars, Sig- rún Guðjónsdóttir, Benedikt G. Sigurðsson og Bryndís Þórisdóttir. Styðja Vistvernd í verki Dymbilvika eða páskavika Í FRÉTT á baksíðu Morgunblaðsins í gær var talað um að milt veður yrði í páskavikunni, þ.e. næstu viku. Í bókinni Saga daganna eftir Árna Björnsson segir að vikan fyrir páska sé oftast kölluð dymbilvika, en þó er tekið fram að vikan sé stundum köll- uð páskavika. Algengast sé að með páskaviku sé átt við vikuna eftir páska. Europris samþykkti ekki forsendur ASÍ LEIFUR Arason, fjármálastjóri hjá Europris, segir ekki rétt sem kemur fram í frétt um verðkönnun ASÍ, að verslunin hafi neitað að taka þátt í verðkönnuninni. Hann segir að verslunin hafi beðið fulltrúa ASÍ um lista yfir þær vöru sem kannaðar yrðu og jafnframt að vörunum yrði rennt í gegnum afgreiðslukassa. Þessu hefði verið hafnað og því hefði Europris ekki talið sig getað tekið þátt í könnuninni á þeim forsendum sem hún var lögð upp með. Niðurstöður ekki til sölu FYRIRSÖGNIN „Keypt ánægja?“ á frétt um íslenzku ánægjuvogina í Viðskiptablaði Morgunblaðsins í gær gaf ekki rétta mynd af efni frétt- arinnar. Þar kom fram að fyrirtæki, sem taka þátt í könnuninni, sem IMG framkvæmir, greiða fyrir skýrslu með niðurstöðunum. Könnunin er unnin samkvæmt al- þjóðlega viðurkenndri aðferðafræði og fyrirtæki, sem þátt taka, geta ekki keypt sér hagfellda niðurstöðu frekar en við á í öðrum viðhorfskönn- unum, sem IMG gerir fyrir við- skiptavini sína. LEIÐRÉTT UM helgina verða liðin tvö ár frá því innráisin í Írak hófst. Hér á landi verður efnt til aðgerða af því tilefni í Reykjavík og á Akureyri. Í Reykjavík verður komið saman á Ingólfstorgi, á morgun, laugar- dag, kl. 14. Þar verður stutt dag- skrá, en að öðru leyti verða að- gerðirnar fyrst og fremst táknrænar þar sem athyglinni verður beint að þeim tugþúsund- um sem látið hafa lífið vegna stríðsins, segir í tilkynningu frá fundarboðendum. Á sama tíma koma stríðsand- stæðingar á Akureyri saman á Restaurant Karólína. Þar verður efnt til fundar, þar sem Kristinn H. Gunnarsson alþingsmaður og Anna Rögnvaldardóttir mennta- skólanemi flytja ávörp. Mótmæla Íraksstríðinu HÁTÆKNIIÐNAÐUR verður efst á baugi á Iðnþing sem hefst í dag á Hallveigarstíg 1. Á þinginu verður kynnt skýrsla sem Þórólfur Árnason, fyrrverandi borgarstjóri, hefur unnið fyrir Samtök iðnaðar- ins og iðnaðar- og viðskiptaráðu- neytið um þróun, stöðu, framtíð og tækifæri hátækniiðnaðar á Íslandi og stöðu hans og stefnu á Norð- urlöndum og Írlandi. Á þinginu flytja einnig ávörp Vilmundur Jósefsson, formaður Samtaka iðnaðarins og Valgerður Sverrisdóttir, iðnaðarráðherra. Fimm forystumenn í hátækni- fyrirtækjum mun ræða stöðu greinarinnar, en það eru Stefán Jökull Sveinsson, framkvæmda- stjóri þróunarsviðs Actavis Group hf., Jón Ágúst Þorsteinsson, for- maður Samtaka sprotafyrirtækja, Hörður Arnarsson, forstjóri Mar- els hf., Einar Mäntylä, í stjórn Samtaka líftæknifyrirtækja og Hilmar B. Janusson, fram- kvæmdastjóri þróunarsviðs Össur- ar hf. Á þinginu verða veitt verðlaun úr Verðlaunasjóði iðnaðarins. Hátækniiðnaður á Iðnþingi LEIKVELLIR eru ekki hættulaus svæði því þar geta leynst sprautunál- ar og fleira skaðlegt. Herdís L. Storgaard, verkefnastjóri barna- slysavarna hjá Lýðheilsustöð, segir brýnt að foreldrar fari vel yfir leik- velli í nágrenni við hús sín þar sem misjafnt sé hversu reglulega opin- berir eftirlitsmenn fari yfir þá. Starfsmönnum í leik- og grunnskól- um sé hins vegar skylt að fara yfir leikvelli við skólana samkvæmt reglugerð um öryggi leikvallatækja og leiksvæða og eftirlit með þeim, frá árinu 2002. Herdís segir sprautunálar ekki finnast meira í einum borgarhluta en öðrum og ekki sé hægt að fullyrða að höfuðborgarsvæðið sé verra hvað þetta varðar en landsbyggðin. Ekki hefur verið tekið saman hvort fleiri sprautunálar séu að finn- ast á leikvöllum en áður. Haraldur Briem sóttvarnalæknir telur að til- fellum hafi ekki fjölgað síðustu ár. Herdís segir nauðsynlegt að farga sprautunálum á réttan hátt. Best sé að setja þær í plastflöskur í stað þess að setja þær beint í ruslafötur þar sem næsti maður geti slasað sig á þeim. Enn fremur sé nauðsynlegt að leita strax til læknis ef fólk stingur sig á sprautunál. Herdís segir fleiri hættulega hluti að finna á leikvöllum eins og t.d. gler- brot, lyf og sígarettustubba. Dæmi eru um að börn hafi fengið eitrun af því að borða sígarettustubba. Þá hafi mannasaur einnig fundist á leiksvæðum barna. Foreldrar leiti að sprautunálum á leikvöllum SAMTÖK iðnaðarins (SI) hafa lýst miklum vonbrigðum yfir því að sam- ið hafi verið við pólska skipasmíða- stöð um endurbætur á varðskipun- um Ægi og Tý „þótt færa megi haldbær rök fyrir að íslenskt tilboð hafi verið fullt eins hagstætt,“ að því er segir í fréttatilkynningu frá SI. „Gera verður þá kröfu til viðkomandi ráðherra að þeir taki fast á máli þessu og sýni í verki að þeir láti ekki verkefni fara úr landi að nauðsynja- lausu.“ SI segja að nú sé endurtekin sag- an frá því fyrir þremur árum að sömu skip voru send í endurnýjun til Póllands. Viðgerðin á Tý hafi þá orð- ið 60% dýrari en samið hafði verið um og tæplega 90% dýrari á Ægi. Vitnað er til sameiginlegrar stefnu sem iðnaðarráðuneytið og SI mótuðu 2002 og fjallaði m.a. um opinber kaup á þessu sviði. „Hún var kynnt öllum sem málið varðar og þung áhersla lögð á að koma á formlegu samráði skipaiðnaðarins og viðkomandi stjórnvalda um framkvæmd opin- berra útboða vegna kaupa á nýsmíði og/eða þjónustu.“ Samtök iðnaðarins segja að því miður virðist sem ásetn- ingur yfirvalda hafi gufað upp þar sem bæði útboðsgögn, samningsferl- ið og útreikningur varðandi endur- bætur á varðskipunum séu nú sama marki brennd og áður. Verkefnin fari ekki úr landi að nauðsynjalausu

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.