Morgunblaðið - 18.03.2005, Blaðsíða 51
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 18. MARS 2005 51
DAGBÓK
... meira fyrir áskrifendur
Tveir
fyrir einn
Framan á Morgunblaðinu í dag er miði
með tilboði til áskrifenda um tvo miða
á verði eins á sýninguna The Return
of Houdini í Borgarleikhúsinu.
Framvísa þarf miðanum í miðasölu
Borgarleikhússins. Vegna takmarkaðs
sætaframboðs gildir að fyrstir koma fyrstir
fá. Tilboðið gildir á sýningar laugardaginn
26. mars klukkan 15.00 og 20.00.
fyrir áskrifendur
Bragi Árnason prófessor í efnafræði varðsjötugur hinn 10. mars sl. og lætur núaf störfum fyrir aldurs sakir. Af því til-efni stendur efnafræðiskor raunvís-
indadeildar fyrir kveðjufyrirlestri Braga í hátíð-
arsal Háskóla Íslands kl. 15 í dag. Fyrirlestur
Braga verður á almennum nótum og eru allir vel-
komnir. Þó getur ekki talist ólíklegt að Bragi
snerti á sínu uppáhaldsumræðuefni, vetnisvæð-
ingu Íslands, en hann hefur lengi verið ötull tals-
maður vetnisvæðingar og hafa rannsóknir hans á
vetni og framleiðslu þess vakið mikla athygli.
„Með minnkandi olíuframleiðslu í heiminum
mun mikilvægi endurnýjanlegra orkulinda fara
vaxandi. Orkulinda eins og lífmassa, vatnsorku,
vindorku, ölduorku, sjávarfallaorku, jarðhita,
orku í geislun sólar og sólarorku sem varðveitt er
í höfunum sem varmi. Þá eru vistfræðilegar
ástæður, eins og nauðsyn þess að draga úr út-
streymi gróðurhúsalofttegunda og annarra meng-
andi efna eins og brennisteinstvíoxíðs og köfn-
unarefnisoxíða, líklegar til að stuðla að aukinni
notkun endurnýjanlegra orkulinda,“ segir Bragi
og bætir við að vetni sé hagkvæmasta leiðin til að
færa orkuna frá framleiðslustað til nýtingarstað-
ar. „Vetni er einfaldasta eldsneytið sem framleiða
má, úr vatni með rafgreiningu. Það er algjörlega
hreint og umhverfisvænt. Þegar því er brennt
myndast einungis vatn, sama magn og fór í að
framleiða vetnið. Mikilvægt er þó einnig að þegar
vetni er brennt í efnarafölum er nýtni eldsneytis-
ins tvisvar til þrisvar sinnum betri en þegar elds-
neyti er brennt í hefðbundnum brunahreyflum.
Þegar eldsneyti er brennt í brunahreyflum er
efnaorkunni breytt í varma með lágri nýtni.
Fræðilega getur hún varla orðið meiri en 40%, en
í venjulegum bensínvélum er hún um 20%. Í
efnarafölum er efnaorku eldsneytisins hins vegar
breytt í raforku með hárri nýtni, sem fræðilega
gæti orðið allt að 100%, en í frumgerðum núver-
andi vetnisbýla er hún um 50–60%.“
Hvað græða Íslendingar á vetnisvæðingu?
„Í fyrsta lagi myndi það gera okkur óháð utan-
aðkomandi orku, þ.e.a.s. við yrðum ekki lengur
háð kaupum á olíu frá öðrum löndum. Uppbygg-
ing framleiðslu- og dreifikerfis fyrir vetni yrði því
tiltölulega einföld og ódýr miðað við það sem yrði
hjá stórþjóðum. Þá höfum við gnægð af raforku til
að framleiða vetnið. Hér á landi er búið að virkja
um 8 TWst á ári og ef innlend orka ætti að koma í
stað alls innflutts eldsneytis þyrfti að virkja til
viðbótar 5 TWst á ári. Þá hefðu Íslendingar virkj-
að um 26% af áætlaðri virkjanlegri raforku.“
Vísindi | Bragi Árnason flytur kveðjufyrirlestur í hátíðarsal Háskólans
Íslendingar óháðir erlendri orku
Bragi Árnason er
fæddur í Reykjavík árið
1935. Hann nam efna-
fræði við Tækniháskól-
ann í München árið 1961
og stundaði rannsóknir
við sama skóla og einn-
ig við Kaupmanna-
hafnarháskóla og kjarn-
eðlisfræðirannsóknar-
stofnunina í Risö. Þá
hlaut hann Dr. Scient.-
gráðu frá HÍ árið 1976.
Bragi hefur starfað við rannsóknir og
kennslu í efnafræði frá árinu 1963, en við HÍ
frá árinu 1976.
Kona Braga er Sólveig Rósa Jónsdóttir og
eiga þau fjórar dætur og átta barnabörn.
EGLA í nýju ljósi, er nýstárleg nálgun á
Egils sögu Skallagrímssonar, en hér er
um að ræða brúðuleikhús með þátttöku
trúðs. Hallveig Thorlacius stýrir brúðu-
leikhúsinu í sýningunni sem verður sett
upp í fyrsta skipti í langan tíma opinber-
lega í kvöld kl. 20 í Bæjarleikhúsi Mos-
fellsbæjar.
„Það má segja að þetta sé ferðasýning.
Ég er búin að vera að flakka með hana í
skóla og víðs vegar. Ég sýni hana þó
sjaldan opinberlega fyrir almenning,“
segir Hallveig. „Það er greinilegt að Egill
hefur enn mikið aðdráttarafl í hugum
fólks. Kannski er fólk líka forvitið að sjá
hvernig Íslendingasögurnar fara í munni
trúðs.“
Hallveig segir ástæðurnar fyrir því að
hún valdi Egils sögu aðallega vera þær að
sagan sé í senn spennandi og vel skrifuð.
„Persóna Egils er svo flókin og hefur all-
ar þessar andstæður í sér. Hann er ekki
bara eitthvað eitt. Það sem drífur mig
áfram í því að segja þessa sögu er í fyrsta
lagi að ég hef svo lengi verið að velta því
fyrir mér hvernig ég geti sagt Íslend-
ingasögurnar, því ég hef alltaf verið
sannfærð um að brúðuleikhús hentaði vel
til að nálgast þessar sögur. Svo þegar ég
fann þennan trúð í sjálfri mér, þá gat ég
komið að þessu frá enn einni hliðinni
vegna þess að þessi tegund af trúð sem ég
leik er eins og búddistarnir segja; hann
hefur huga byrjandans. Trúðurinn getur
svo vel komið til skila þessari blóðugu
sögu sem er vissulega full af grimmd.“
Egla í nýju ljósi í Bæjarleikhúsi Mosfellsbæjar
„BÁRÐARBOOGIE“ nefnist diskóhelgi
sem haldin verður á Hótel Búðum um
helgina. Meðal viðburða á Bárðarboogie
verður fyrirlestur Kjartans Guðbergs-
sonar (Dadda Diskó) sem hefur árum
saman staðið í stefni þeirra fleyta sem
sigla á öldum diskósins hér á landi.
Daddi hefur að eigin sögn sett saman
misábyggilega kenningu um að þegar
Helgu dóttur Bárðar Snæfellsáss rak
vestur um höf til Grænlands hafi hún í
raun ekki endað í Bröttuhlíð hjá Eiríki
rauða heldur farið upp með vesturströnd-
inni að Discoeyju (sem er til) þar sem hún
kynntist töfralækni sem ku vera forfaðir
Travolta-ættarinnar. „Helga, sem er sögð
hafa haft „göróttar“ mjaðmahreyfingar,
hefur væntanlega kennt lækninum þessi
nýju vísindi sem líklegast hafa borist
mann frá manni, kynslóð eftir kynslóð og
endað sem grunnur þess sem John
Travolta gerði ódauðlegt í Saturday Night
Fever. Eða ekki ...“ segir Daddi, sem mun
einnig bregða undir sig alvarlegri og fræði-
legri fæti, þar sem hann mun tíunda raun-
verulega tilurð diskótónlistar og diskó-
dansins. „Allir gestir fá síðan einfalt
verkefni til að leysa þannig að úr verður
lífræn skemmtun á mest töfrandi stað
landsins.“
Að sjálfsögðu verður síðan boðið upp á
alvöru diskótónlist og dansað fram eftir
nóttu á sunnanverðu Snæfellsnesi.
Morgunblaðið/Golli
Diskóhelgi á Hótel Búðum
TÍU ár eru nú liðin síðan listahátíðin Gull-
kistan var haldin á Laugarvatni og er nú
undirbúningur kominn á fullt fyrir nýja
Gullkistu sem haldin verður í sumar.
Þeim sem áhuga hafa á að sækja um
þátttöku í Gullkistunni 2005 er bent á
slóðina www.gullkistan.is, en umsóknar-
frestur um þátttöku er til 20. mars nk.
Umsóknarfrestur vegna
Gullkistunnar að renna út