Morgunblaðið - 18.03.2005, Page 53
Leikendur:
Aðalbjörg Þóra Árnadóttir
Atli Þór Albertsson
Björn Ingi Hilmarsson
Guðjón Davíð Karlsson
Guðmundur Ólafsson
Guðrún Ásmundsdóttir
Halldór Gylfason
Halldóra Geirharðsdóttir
Jóhanna Friðrika Sæmundsdóttir
Jóhannes Haukur Jóhannesson
Oddný Helgadóttir
Ólafur Steinn Ingunnarson
Orri Huginn Ágústsson
Pétur Einarsson
Sara Dögg Ásgeirsdóttir
Theodór Júlíusson
„Algjör draumur“
MK Mbl
„ ..ein skemmtilegasta
leiksýning sem ég hef séð“
KHH Kistan.is
Draumleikur
SÝNINGAR LAUGARDAGS- OG SUNNUDAGSKVÖLD • ATHUGIÐ AÐ SÝNINGAFJÖLDI ER TAKMARKAÐUR
eftir August Strindberg
Leikstjóri: Benedikt Erlingsson Leikmynd: Gretar Reynisson
N
æ
st
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 18. MARS 2005 53
DAGBÓK
Staðurogstund
http://www.mbl.is/sos
Félagsstarf
Árskógar 4 | Bað kl. 8–14, handa-
vinna kl. 9–12, smíði og útskurður
kl. 13–16.30.
Bólstaðarhlíð 43 | Almenn handa-
vinna, hárgreiðsla, böðun, frjálst að
spila í sal, fótaaðgerð.
Dalbraut 18–20 | Kl. 9–11 kaffi og
dagblöð, kl. 9–12 baðþjónusta, kl. 9–
16.45 hárgreiðslustofan opin, kl. 10–
13 námskeið, kl. 11.15–12.15 matur, kl.
14–15 söngstund, kl. 14.30–15.30
kaffi.
Félag eldri borgara í Kópavogi | Fé-
lagsvist í kvöld kl 20.30 í Gjábakka-
.Brids í Gjábakka í dag kl. 13.15.
Félagsstarf aldraðra, Garðabæ |
Slökunarjóga og teygjur kl. 10.30
og 11.30. Aðalfundur FEBG í Kirkju-
hvoli kl. 14.
Hraunbær 105 | Kl. 9 almenn
handavinna–bútasaumur, útskurður,
hárgreiðsla, kl. 10 fótaaðgerð, kl. 12
hádegismatur, kl. 14 bingó, kl. 15
kaffi.
Hraunsel | Moggi, rabb og kaffi frá
kl. 9, leikfimi kl. 11.30, tréútskurður
í Lækjarskóla kl. 13, boccia kl. 13.30.
Dansleikur með Caprí Tríó kl.
20.30.
Hvassaleiti 56–58 | Frjáls aðgang-
ur að opinni vinnustofu, postulíns-
málning. Böðun virka daga fyrir há-
degi. Fótaaðgerðir.
Hæðargarður 31 | Félagsstarfið er
öllum opið. Betri stofa og Lista-
smiðja kl. 9–16: Handverk og mynd-
list. Gönuhlaup kl. 9.30, bridge kl.
13.30. Páskagleði í dymbilviku: Sýn-
ing, uppákomur, markaður, nýbökuð
páskabrauð og gönguferð „Út í blá-
inn“. Fastir liðir eins og venjulega.
Allir velkomnir. Uppl s. 568–3132.
Norðurbrún 1, | Kl. 9 smíði, kl. 9
hárgreiðsla, kl. 9–12 myndlist, kl. 10
boccia, kl. 14 leikfimi.
Vesturgata 7 | Kl. 9–16 hárgreiðsla
og fótaaðgerðir, kl. 9.15–14.30
hannyrðir, kl. 11.45–12.45 hádeg-
isverður, Kl. 13.30 sungið við flygil-
inn við undirleik Sigurgeirs, kl.
14.30–16 dansað við lagaval Hall-
dóru, rjómaterta í kaffitímanum
Handverssala í dag kl. 13–16 margt
góðra muna.
Vitatorg, félagsmiðstöð | Smiðja
kl. 8.45, leirmótun og hárgreiðsla
kl. 9, morgunstund og fótaaðgerðir
kl. 9.30, leikfimi kl. 10, páskabingó
kl. 13.30 allir velkomnir.
Þórðarsveigur 3 | Bænastund og
samvera kl. 10.
Kirkjustarf
Akureyrarkirkja | Æfing fermingar-
barna kl. 15 (börn sem fermast 19.
mars). – Æfing fermingarbarna kl.
16 (börn sem fermast 20. mars).
Breiðholtskirkja | Foreldramorgunn
kl. 10–12. Kaffi og létt spjall.
Grafarvogskirkja | „Á leiðinni
heim“. Helgistund með Passíu-
sálmalestri alla virka daga kl. 18 í
Grafarvogskirkju, í dag les les Þór-
unn Sveinbjarnardóttir alþingis-
maður.
Hallgrímskirkja | Starf með öldr-
uðum alla þriðjudaga og föstudaga
kl. 11–15. Súpa, leikfimi, kaffi og
spjall.
Hvítasunnukirkjan Fíladelfía |
Kirkja unga fólksins – samkoma kl.
19.30. Bænastund kl. 19 fyrir sam-
komu. Þorkell Héðinn Haraldsson
talar. Tómas Davíð Ibsen leiðir lof-
gjörð. Allir velkomnir. www.filo.is.
Kvenfélag Langholtssóknar | Hinn
árlegi kökubasar verður haldinn í
safnaðarheimili kirkjunnar á morg-
un, laugardaginn 19. mars, og hefst
kl. 13. Mikið úrval af heimabökuðum
kökum og tertum. Allur ágóði renn-
ur í gluggasjóð.
London-fargjald frá
Reykjavík til Sauðárkróks
ÉG hef verið að velta fyrir mér eftir
hverju er farið þegar fargjöld hér
innanlands eru niðursett.
Ég bý úti á landi en er í skóla í
Reykjavík. Ég hef notað mér flug
milli Sauðárkróks og Reykjavíkur
nokkuð. Að morgni föstudagsins 25.
febrúar hringdi móðir mín í Flug-
félag Íslands í Reykjavík og pantaði
fyrir mig flug frá Reykjavík til Sauð-
árkróks. Ég mætti á völlinn rétt fyr-
ir kl. 20 því flugvélin átti að fara í
loftið kl. 20.45. Þegar ég skráði mig
inn, rétti ég fram námsmannakort
og bjóst auðvitað við að fá afslátt
eins og vanalega. Innritunardaman
sagði að ég væri bókuð í 1 af 4 síð-
ustu sætunum í vélinni og þau sæti
væru alltaf seld fullu verði. Ég
spurði út í þetta. Konan sagði að
þetta væri bara svona, dýrt væri að
borga bensín á vélarnar o.fl. Þegar
vélin var farin í loftið fór ég að at-
huga hversu mörg sæti væru laus,
þau voru 8 talsins, í 19 sæta vél,
þannig að vélin var rúmlega hálf.
Það kom upp í huga mér hvort síð-
ustu 4 sætin væru seld fyrst eða síð-
ast!
Sara Katrín Stefánsdóttir,
Norðurbrún 9, Varmahlíð.
Björgum Bobby
ÆTLAR einhver að gera eitthvað í
máli Bobby Fischers? Ætlar Davíð
Oddsson ekki að sjá til þess að ves-
lings maðurinn komist frá Japan?
Maður á ekki endalaust að beygja
sig fyrir Bandaríkjamönnum. Ís-
lensk stjórnvöld eiga að taka á sig
rögg og koma honum úr þessari
prísund. Hann veslast bara upp ef
hann lendir í Bandaríkjunum.
Gunnlaugur Hólm Sigurðsson.
Dóra týndist
frá Skipasundi
DÓRA er 7 mánaða og týndist laug-
ardaginn 12. mars frá Skipasundi 8.
Hún var með bláa ól merkt nafninu
Dóra. Hún er
hvít og brönd-
ótt og þessir
litir eru á sitt-
hvorum helm-
ing andlits
hennar. Ef
einhver hefur
séð hana eða veit hvar hún gæti
haldið sig þá vinsamlega hafið sam-
band í síma 517 2641 eða 695 2641.
Velvakandi
Svarað í síma 5691100 kl. 10–12
og 13–15 | velvakandi@mbl.is
AÐALHEIÐUR Valgeirsdóttir myndlist-
arkona opnar í dag sýningu á verkum
sínum í Artóteki á fyrstu hæð Grófar-
húss, Tryggvagötu 15. Sýningin er önnur
í röð sýninga á verkum listamanna sem
eiga listaverk í Artóteki – Listhlöðu í
Borgarbókasafni.
Aðalheiður lauk prófi úr grafíkdeild
Myndlista- og handíðaskóla Íslands árið
1982. Sýningin í Grófarhúsi er 9. einka-
sýning Aðalheiðar en hún sýndi m.a. í
Listasafni Kópavogs, Gerðarsafni, árið
2001 og árið eftir í Hallgrímskirkju. Hún
hefur tekið þátt í fjölmörgum samsýn-
ingum víða um heim.
Fyrstu árin eftir að námi lauk ein-
beitti Aðalheiður sér að grafík og teikn-
ingu en á síðustu árum hefur hún unnið
jöfnum höndum við grafík og málverk.
Verk Aðalheiðar eru oftast á hug-
lægum nótum og blandast þar saman
náttúruvitund og óhlutbundinn veru-
leiki. „Ég velti fyrir mér tilverunni og
tíminn er sterkur þáttur, segir Aðal-
heiður m.a. um verk sín. „Tíminn er af-
stæður og óáþreifanlegur en samt
mælanlegur. Ég nota mikið liti í verk-
unum en þau eru þó oft einlit með blæ-
brigðum og oft vinn ég myndraðir þar
sem innbyrgðis tengsl litanna eru mikil-
væg og skapa heild.“
Aðalheiður Valgeirsdóttir sýnir í Artóteki
Ljósmynd/Lárus Karl Ingason
Sýningin stendur til 10 apríl.
Opið er mánudaga-fimmtudaga kl.
10-20, föstudaga kl. 11-19 og um
helgar kl. 13-17.