Morgunblaðið - 04.04.2005, Blaðsíða 11
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 4. APRÍL 2005 11
FRÉTTIR
!
"
# $
" % & '
"(
)
** + ,,-
%
%
%
/ (
0
*.
1 (
2 33
4(" 5%(6 (! 4(
75
%
(
8
!
" # $ %& '( %))* +&,))
Aðalfundur Líftæknisjóðsins hf. verður haldinn
í Ársal á Radisson SAS Hótel Sögu,
þriðjudaginn 12. apríl 2005 kl. 16:00.
Á dagskrá fundarins verða eftirtalin mál:
1 Venjuleg aðalfundarstörf samkvæmt 14. grein
í samþykktum félagsins.
2 Afskráning af Kauphöll Íslands.
3 Önnur mál sem eru löglega borin fram.
Gögn samkvæmt 4. mgr. 88. gr. laga nr. 2/1995 um
hlutafélög, munu verða hluthöfum til sýnis á skrifstofu
félagsins á Suðurlandsbraut 30, viku fyrir fundinn.
Aðgöngumiðar og atkvæðaseðlar verða afhentir á
fundarstað.
Stjórn Líftæknisjóðsins hf.
Samtök ferðaþjónustunnar - SAF - eru málsvari og
sameiginlegur vettvangur íslenskra fyrirtækja sem stunda
rekstur á sviði ferðaþjónustu. Aðild að SAF er heimil
öllum sem telja sig til ferðaþjónustufyrirtækja.
Samtök ferðaþjónustunnar, Húsi atvinnulífsins, Borgartúni 35, Sími 511-8000, www.saf.is
Dagskrá:
kl. 09:00 -12:00
Fundir faghópa
•Afþreyingarfyrirtæki
Gæða- og öryggismál, norðurljósin og framtíð hvalveiða
•Ferðaskrifstofur
Störf nefndarinnar og SAF, væntingar fyrirtækjanna
•Flugfélög
Reglugerð um bótarétt farþega, ný skýrsla um framtíð flugmála
•Veitinga- og gististaðir
Reykingar á veitingahúsum, áfengisverð, hagtölur
•Bílaleigur
Fyrirkomulag aðalskoðana, vörugjöld
•Hópbifreiðafyrirtæki
Ávinningur umhverfisstarfs og gjaldtaka af samgöngumannvirkjum
kl. 13:00 - 15:45
Setning, Jón Karl Ólafsson, formaður SAF
Ávarp Sturlu Böðvarssonar, samgönguráðherra
SALA OG MARKAÐSSETNING Á NETINU
Distribution of the Future for the Travel Industry
Direct Consumer Marketing
Theodore Evers, Travelocity
Viðskiptatækifæri á netinu
Magnús Orri Schram, Háskólanum í Reykjavík
Pallborðsumræður.
Þátttakendur: Theodore Evers, Magnús Orri Schram,
Sigmundur Halldórsson (Icelandair),
Pétur Óskarsson (VIATOR) og Árni Gunnarsson
(Flugfélagi Íslands) sem stýrir umræðum.
Kaffi
kl.15:45
Almenn aðalfundarstörf
kl.19:30
Kvöldverðarhóf félagsmanna
Þann 8. apríl verður MARKAÐSTORG SAF haldið í
Gullteig á Grand Hótel Reykjavík þar sem fyrirtækin
kynna vörur sínar og þjónustu fyrir starfsfólki
ferðaskrifstofanna. Yfir hádegisverði flytur Einar
Gústafsson, forstöðumaður Ferðamálaráðs Íslands í
Bandaríkjunum, fyrirlestur um þróun eftirspurnar í
Bandaríkjunum í ljósi gengis dollars og íslenskrar
krónu og segir frá Iceland Naturally verkefninu.
Nánari upplýsingar eru á vef SAF www.saf.is.
AÐALFUNDUR
SAMTAKA FERÐAÞJÓNUSTUNNAR
Grand Hótel Reykjavík, 7. apríl 2005
Aðalfundur Samtaka
ferðaþjónustunnar er opinn
fulltrúum frá aðildarfélögum SAF
MORGUNBLAÐINU hefur borist
eftirfarandi yfirlýsing frá Páli Torfa
Önundarsyni, yfirlækni blóðmeina-
fræðideildar og blæðaramiðstöðvar
LSH.
„Hið sanna um meintan
stjórnsýsluvanda á LSH
Þegar ég las yfirlýsingu fram-
kvæmdastjórnar LSH á miðopnu
Morgunblaðsins þ. 2. apríl 2005 (köll-
uð „Hið sanna um rekstur LSH“) þá
kom mér strax í hug frægt sléttu-
band sem ort var um embættismann
sem þótti halla réttu máli:
Grundar dóma, hvergi hann,
hallar réttu máli.
Stundar sóma, aldrei ann
illu pretta táli.
Sé sléttubandið lesið aftur á bak
hljóðar það svo:
Táli pretta illu ann.
Aldrei stundar sóma.
Máli réttu hallar hann.
Hvergi grundar dóma.
Líklega var yfirlýsing stjórnar
LSH skrifuð 1. apríl því henni er
greinilega ætlað að vera gabb. Yf-
irlýsingin er kattaþvottur. Hún
sneiðir hjá aðalálitamálinu sem í um-
ræðunni hefur verið. Stóra álitamál-
ið er lögmæti stjórnkerfis LSH, þ.e.
hvort réttir faglegir yfirmenn (þ.e.
yfirlæknar sérdeilda) hafi verið
sviptir starfsábyrgð sinni með ólög-
mætum hætti? Hvort aðrir yfirmenn
hafi verið settir í staðinn án lagastoð-
ar og með ólögmætum hætti, og
hvort slíkir yfirmenn geti gefið bind-
andi fyrirmæli? Hvort bætt hafi ver-
ið við stjórnendum (– jafnvel óþörf-
um og ólöglegum stjórnendum –) á
LSH með myndun og/eða útþenslu
nýs stjórnunarlags (sannanlegum
nýráðningum, þ.e. viðbót)?
Að mínu áliti og lögmanna minna
sviptir stjórnkerfið á LSH rétta yf-
irlækna lögvörðum réttindum sín-
um. Stjórnkerfið seinkar eða hindrar
ákvarðanir og þar með þróun þess-
arar mikilvægu lækningastofnunar
auk þess sem kerfið kostar mikla
fjármuni, sem að mínu mati væri
betur varið til bættrar sjúkraþjón-
ustu. Ríkisendurskoðun hefur
reyndar einnig vakið athygli á um-
svifamiklu stjórnkerfi LSH miðað
við sjúkrahús í Englandi.
Að gefnu tilefni benti ég forstjóra
LSH strax á þetta vandamál í febr-
úar 2001 með rökstuddri greinar-
gerð tveggja reyndra og virtra lög-
manna, Hreins Loftssonar og
Þórðar Bogasonar. Ég afhenti for-
stjóra LSH greinargerðina og Þórð-
ur lögmaður kynnti hana á sama
fundi með forstjóra LSH. Formaður
læknaráðs, Sverrir Bergmann, var á
fundinum því reynslan hefur kennt
mér að gott sé að hafa vitni.
Álitsgerðin var hundsuð. Fyrir
liggur að yfirstjórn spítalans virðir
ekki lögákveðið skipulag. Allar full-
yrðingar nú um hagkvæmni hins
ólöglega skipulags eru til þess eins
gerðar að þyrla ryki í augu almenn-
ings og ráðamanna, þ.m.t. ráðherra
heilbrigðismála. Tilgangurinn er sá
að drepa málinu á dreif.
Það liggur fyrir, að álitsgerð lög-
mannanna var stungið undir stól af
skrifstofu forstjóra LSH. Ekkert
svar barst til mín frá forstjóra,
hvorki „sent“ né afhent. Hvergi finn-
ast bókanir sem benda til þess að
álitið hafi fengið umfjöllun á LSH.
Það var ekki kynnt í stjórnarnefnd
og því var haldið leyndu fyrir ráð-
herra. Það var beinlínis fullyrt bréf-
lega við ráðherra að álitið hefði aldr-
ei verið „sent“ spítalanum. Þetta er
mjög alvarlegt. Mér finnst það ekki
vera heiðarlegt. Þess vegna er málið
nú úr höndum sjúkrahússins enda
geta stjórnendur þar ekki úrskurðað
í eigin málum.
Í ljósi forsögunnar þykir mér afar
einkennilegt, að ráðuneytið skuli
fjórum árum síðar finna hjá sér þörf
til þess að hvítþvo stjórn LSH með
því að lýsa yfir lögmæti skipulagsins
með fullkomlega ómálefnalegum
hætti sbr. Morgunblaðið 1. apríl sl.
Því virðist eitthvað meira en lítið
vera bogið við stjórnsýsluna í ráðu-
neytinu líka.
Ráðherra heilbrigðismála, ríkis-
stjórnin og Alþingi eiga ekki að
kunna ráðuneytinu neinar þakkir
fyrir þau vinnubrögð, að sópa vand-
anum óleystum undir teppi. Slíkt er
ekki mönnum sæmandi. Ráðuneyti
heilbrigðismála og stjórnendum
LSH ber einfaldlega að fara að lög-
um. Ráðuneytinu ber jafnframt að
svara lögfræðilegu áliti málefnalega
lið fyrir lið. Það hefur ekki verið gert
og lögmenn mínir hafa ekki skipt um
skoðun um ólögmæti skipulagsins.
Fleiri lögmenn, jafnvel vel hnút-
um kunnugir í heilbrigðisráðuneyt-
inu og í stjórnsýslunni, hafa haft
samband við mig og stutt niðurstöðu
álits okkar. Fyrrverandi landlæknir,
sem virtur er fyrir sterka réttlæt-
iskennd, styður einnig álit mitt, en
hann þekkir afar vel til hugmynda-
fræðinnar við smíði laga um heil-
brigðisþjónustu og hinna faglegu
sjónarmiða sem lögin byggjast á.“
Yfirlýsing um meintan
stjórnsýsluvanda á LSH
BOBBY Fischer fékk afhent ríkis-
fangsbréf sitt í sérstöku kvöldverð-
arhófi sem stuðningsnefnd skák-
meistarans hélt honum á föstudags-
kvöld. Afhenda átti Fischer ríkis-
fangsbréfið við hátíðlega athöfn á
Reykjavíkurflugvelli við komu hans
til landsins, en ekki varð úr því þá.
Þau Bobby Fischer og Miyoko
Watai unnusta hans glöddust ásamt
Sæmundi Pálssyni, þegar þau
fengu skjölin afhent.
Morgunblaðið/Golli
Fischer fær ríkisfangsbréfið
Úrslitin í enska boltanum
beint í símann þinn