Morgunblaðið - 24.04.2005, Page 17
anum á sínum tíma og það vakti kát-
ínu á fundinum þegar Guðrún sagði
frá því þegar sjónvarpsfréttamaður
spurði hvort Kvennalistakonur hefðu
gleymt að kjósa sér formann, ein-
hverju sinni þegar formenn stjórn-
málaflokkanna voru boðaðir í sjón-
varpssal.
Guðrún sagði að Kvennalistinn
hefði varla orðið til ef ekki hefði verið
fyrir sagnfræðingana í hópi stofnend-
anna. Sagnfræðingarnir minntust ís-
lenskra kvennalista í byrjun síðustu
aldar og töldu tíma til kominn að end-
urtaka leikinn. Og Guðrún tók undir
með sænskri nöfnu sinni að þörf væri
á femínískum stjórnmálaflokkum þar
sem margar konur teldu sig hvergi
eiga heima pólitískt nú á tímum man-
sals, nauðgana og aukins ofbeldis
gegn konum.
Guðrún minntist Kvennalistans
með glampa í augum. „Eins og töfra-
teppi sem bar okkur inn í óþekktar
víddir inni í okkur sjálfum.“ Hún
minntist samstöðu, hvatningar, sköp-
unar og gleði, m.a. á ógleymanlegri
hringferð um Ísland 1984. Þá ferðað-
ist full rúta af konum og börnum um
byggðir landsins til að fræðast um
reynslu kvenna á mismunandi stöð-
um. Á kosningafundum sátu allir í
hring og ræddu dagvistarmál og
fleira sem dæmi voru um að útgerð-
armönnum þótti ekki flokkast undir
pólitík. Allar Kvennalistakonurnar
höfðu hlutverk á fundunum, ekki bara
þingkonurnar þrjár, hvort sem það
var að halda ræðu eða lesa ljóð, og var
það í samræmi við lýðræðislegar
vinnuaðferðir Kvennalistans.
Kvennalistinn skilaði miklu til ís-
lenskra kvenna, að mati Guðrúnar,
m.a. því sem hún telur mikilvægast:
Hann veitti konum innblástur og
hvatningu til að krefjast réttinda
sinna og gaf þeim rödd til að beina at-
hygli að málefnum kvenna. „Rödd
femínismans má ekki þagna,“ sagði
Guðrún. Hún benti á að orðið fem-
ínismi hafi ekki verið notað í Kvenna-
listanum, það hafi ekki verið fyrr en
með stofnun Femínistafélags Íslands
fyrir tveimur árum, og framtíðin verði
að leiða í ljós hvort það verði að
stjórnmálaafli.
Kvennaflokkar hvati hver
sem kosningaúrslitin verða
Á fundinum á þriðjudaginn hélt hin
danska Drude Dahlerup einnig fyr-
irlestur, en hún er prófessor í stjórn-
mála- og kynjafræðum við Stokk-
hólmsháskóla. Hún benti m.a. á að
munur væri á íslenska Kvennalistan-
um og sænska FI. „Bróderuð kosn-
ingaspjöld verða aldrei notuð í Sví-
þjóð eins og á tímum Kvennalistans á
Íslandi,“ sagði hún og vakti hlátur
meðal áheyrenda. Dahlerup hefur
fylgst með kvennabaráttu á Íslandi
lengi og sagði frá því að skemmtilegt
hefði verið að vera vitni að samvinnu
kvenna í bæjarstjórn á Akureyri í
upphafi níunda áratugarins, þar sem
þrjátíu konur komu sér saman um af-
stöðu tveggja fulltrúa kvennafram-
boðsins, sem dæmi um lýðræðislegar
vinnuaðferðir Kvennalistans. „Þetta
er ekki hægt til lengdar en þetta var
ótrúlegt og frábært,“ sagði Dahlerup.
Dahlerup benti á að jarðvegurinn
fyrir kvennaframboð á Íslandi í byrj-
un níunda áratugarins hafi verið ólík-
ur því sem hann er nú í Svíþjóð. Á Ís-
landi hafi 5% þingmanna verið konur
en þær séu nú 45% þingmanna í Sví-
þjóð. „En femínískir stjórnmálaflokk-
ar virka alltaf hvetjandi á aðra stjórn-
málaflokka hver sem kosningaúrslitin
eru.“
Fræðistörf Dahlerup hafa m.a.
beinst að kynjakvóta og hefur hún
bent á að mörg ríki sem hingað til hafi
verið eftirbátar Norðurlandanna
hvað varðar jafnrétti kynjanna séu nú
að nálgast þau og fara fram úr þeim
með því að koma á kynjakvótum í
stjórnmálum og atvinnulífi. „Algengt
er að segja að jafnrétti komi með tím-
anum, það þurfi bara að sýna þolin-
mæði. Það er áhugavert að fylgjast
með því sem gerist þegar hraðleiðin
er valin eins og í Costa Rica og Rú-
anda til dæmis,“ sagði Dahlerup.
Þessi ríki eru að taka söguleg stökk
í jafnréttismálum og Dahlerup lagði
áherslu á að baráttufólk fyrir jafnrétti
þar ætlaði sér alls ekki að bíða í 70–80
ár eftir að ná sömu stöðu og á Norð-
urlöndunum, en það er sá tími sem
tekið hefur að ná núverandi ástandi á
Norðurlöndunum. „Við getum verið
stolt af norræna módelinu en það má
spyrja sig hvort sögulegt stökk er
ekki nauðsynlegt á Norðurlöndunum
núna,“ sagði Dahlerup að lokum.
ði
steingerdur@mbl.is
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 24. APRÍL 2005 17
Við leikum út ýmsum trompum og bjóðum
í heimsókn.
SIEMENS
Keramíkhelluborð, EH 755501E
Tvær spanhellur og tvær hraðsuðuhellur.
Snertihnappar.
Búhnykksverð: 89.000 kr. stgr.
SIEMENS
Keramíkhelluborð, ET 725501
Fjórar stiglaust stillanlegar hraðsuðuhellur,
snertihnappar.
Búhnykksverð: 69.000 kr. stgr.
SIEMENS
Bakstursofn, HB 330550S
58 lítra, 8 hitunaraðgerðir.
Sökkhnappar o. fl. o. fl.
Búhnykksverð: 69.000 kr. stgr.
SIEMENS
Kæli- og frystiskápur, KG 26V422
186 lítra kælir, 54 lítra frystir. Orkuflokkur A.
Hxbxd = 155 x 60 x 64 sm.
Búhnykksverð: 59.000 kr. stgr.
SIEMENS
Kæliskápur, KS 33V622
235 lítra kælir, 78 lítra frystir. Orkuflokkur A.
Hxbxd = 170 x 60 x 64 sm.
Búhnykksverð: 55.000 kr. stgr.
SIEMENS
Uppþvottavél, SE 34E238SK
Fjögurra kerfa uppþvottavél á alveg einstöku verði.
Búhnykksverð: 48.000 kr. stgr.
SIEMENS
Uppþvottavél, SE 35M562SK
Glæsileg vél úr ryðfríu stáli. Fimm þvottakerfi.
Orkuflokkur, þvottahæfni, þurrkhæfni: A/A/A.
Búhnykksverð: 78.000 kr. stgr.
SIEMENS
Þvottavél, WXB 2462EU
Gæðagripur á frábæru verði.
Tekur 5 kg, vindur upp í 1200 sn./mín.
Búhnykksverð: 49.000 kr. stgr.
• Seljum öll smátæki frá Bosch og Siemens
með 25% afslætti.
• Einnig er í gildi góður afsláttur
á öllum ryksugum frá Siemens.
• Búhnykksverð á þráðlausum símum
og farsímum frá Siemens.
• Lampar á tombóluverði.
Ýmsar lampagerðir á rýmingarsölu.
Allt að 50% afsláttur.
• Einnig tilboðsverð á ýmsum fleiri stórum tækjum.
• Komið og gerið góð kaup.
Vorbúhnykkur hefst mánudag 18. apríl.
GH
-S
N
05
04
00
1