Morgunblaðið - 28.06.2005, Page 2
Í dag
Fréttaskýring 8 Umræðan 28/30
Úr verinu 12 Bréf 31
Viðskipti 13 Minningar 31/36
Erlent 14/15 Hundar 39
Suðurnes 19 Dagbók 40
Landið 19 Víkverji 40
Akureyri 20 Velvakandi 41
Austurland 20 Staður og stund 42
Daglegt líf 21/22 Menning 44/49
Listir 23 Ljósvakamiðlar 50
Forystugrein 26 Veður 51
Viðhorf 28 Staksteinar 51
* * *
2 ÞRIÐJUDAGUR 28. JÚNÍ 2005 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
VILL ÓPERU Í KÓPAVOG
Gunnar Birgisson, bæjarstjóri í
Kópavogi, hefur látið gera frum-
teikningar að óperuhúsi sem hann
vil reisa í nágrenni við Salinn og
Gerðarsafn. Hugmynd hans er að
Íslenska óperan flytji í húsið en
hann gerir ráð fyrir að byggingin
myndi kosta 1,5–2 milljarða.
Hópnauðgun í Pakistan
Hæstiréttur Pakistans hóf í gær
að hlýða á mál Mukhtar Mai sem
árið 2002 varð fórnarlamb hóp-
nauðgunar sem þorpsráðið í
heimabæ hennar hafði fyrirskipað.
Fjórtán menn voru sóttir til saka,
átta voru sýknaðir í undirrétti en
sex dæmdir til dauða. Mai áfrýjaði
þar sem hún krafðist refsingar yfir
þeim átta sem voru sýknaðir. Úr-
skurður hæstaréttar kemur til
með að hafa fordæmisgildi í svip-
uðum málum í Pakistan.
Dreif ing efnis á netinu
Hæstiréttur Bandaríkjanna
felldi í gær úrskurð þess efnis að
hægt verði að sækja framleiðendur
hugbúnaðar, sem gerir fólki kleift
að dreifa efni svo sem tónlist og
kvikmyndum á netinu, til saka fyr-
ir brot á lögum um höfundarétt.
Þorskstofninum hnignar
Stjórnvöld hafa alltaf leyft meiri
veiðar á þorskstofninum en Haf-
rannsóknastofnun mælir með en
hún hefur gefið út mat á stofninum
í þrjátíu ár. Þrír starfsmenn stofn-
unarinnar skrifa grein í Morg-
unblaðið í dag þar sem m.a. er
bent á að þorskstofninn endurnýist
ekki með sama hætti og hann
gerði 1985 og fyrir þann tíma.
Þessu er líkt við umhverfisslys af
mannavöldum.
Y f i r l i t
Morgunblaðið Kringlunni 1, 103 Reykjavík. Sími 5691100 Innlendar fréttir frett@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson, aðstoðarfréttaritstjóri, aij@mbl.is Sigtryggur Sigtryggsson, aðstoðarfréttaritstjóri, sisi@mbl.is Erlendar fréttir Ásgeir Sverrisson, fréttastjóri,
asv@mbl.is Viðskipti vidsk@mbl.is Agnes Bragadóttir, fréttastjóri, agnes@mbl.is Úr verinu Hjörtur Gíslason, fréttastjóri, hjgi@mbl.is Daglegt líf Guðbjörg Guðmundsdóttir, gudbjorg@mbl.is Menning menning@mbl.is Orri Páll Ormarsson, ritstjórnarfulltrúi,
orri@mbl.is Skarphéðinn Guðmundsson, skarpi@mbl.is Umræðan|Bréf til blaðsins Magnús Finnsson, fulltrúi ritstjóra, magnus@mbl.is Guðlaug Sigurðardóttir, gudlaug@mbl.is Minningar minning@mbl.is Hilmar P. Þormóðsson, Stefán Ólafsson Dagbók|Kirkju-
starf Ellý H. Gunnarsdóttir, elly@mbl.is Íþróttir sport@mbl.is Sigmundur Ó. Steinarsson, fréttastjóri, sos@mbl.is Útvarp|Sjónvarp Auður Jónsdóttir, dagskra@mbl.is mbl.is netfrett@mbl.is Guðmundur Sv. Hermannsson fréttastjóri gummi@mbl.is
!
"
#
$
%
&
'() *
+,,,
SÉRA Ragnar Fjalar
Lárusson, fyrrverandi
prófastur, lést að
kvöldi 26. júní síðast-
liðins á líknardeild
Landspítalans í Kópa-
vogi, 78 ára að aldri.
Ragnar Fjalar
fæddist á Sólheimum í
Skagafirði 15. júní
1927, sonur sr. Lárus-
ar Arnórssonar, sókn-
arprests á Miklabæ, og
Jensínu Björnsdóttur.
Hann lauk guðfræði-
prófi frá Háskóla Ís-
lands 1952 og var veitt
Hofsósprestakall sama ár. Ragnar
Fjalar var sóknarprestur á Siglu-
firði frá 1955 til 1968, að hann var
skipaður sóknarprestur í Hallgríms-
prestakalli í Reykjavík. Þar þjónaði
Ragnar Fjalar til ársins 1998, er
hann lét af störfum fyrir aldurs sak-
ir. Hann var prófastur í Reykjavík-
urprófastsdæmi vestra frá 1994–97.
Ragnar Fjalar gegndi ýmsum
trúnaðarstörfum fyrir kirkjuna og
átti m.a. sæti í siðanefnd Presta-
félags Íslands frá stofnun hennar og
til starfsloka. Ragnar
Fjalar var mikill safn-
ari og safnaði m.a. spil-
um, seðlum og íkonum
um dagana. Þekktast-
ur er hann þó fyrir
bókasafn sitt sem hef-
ur að geyma margvís-
legt fágæti, einkum
biblíur og sálmabækur,
allt frá upphafi prent-
verks á Íslandi. Hann
stundaði um árabil
rannsóknir á vöggu-
prenti og hlaut fyrir
það starf sitt riddara-
kross hinnar íslensku
fálkaorðu árið 1998, auk embætt-
isverka sinna. Ragnar Fjalar var
einn helsti sérfræðingur þjóðarinn-
ar á þessu sviði.
Ragnar Fjalar var mikill dýra-
verndarsinni og tók virkan þátt í
umræðu á þeim vettvangi. Ritaði
m.a. fjölmargar greinar í Morgun-
blaðið um það efni.
Eftirlifandi eiginkona sr. Ragnars
Fjalars Lárussonar er Herdís
Helgadóttir, fyrrverandi hjúkrunar-
deildarstjóri. Þau eiga sex börn.
Andlát
RAGNAR FJALAR
LÁRUSSON
SAMBAND ungra sjálfstæðismanna
fagnaði í gær 75 ára afmæli en sam-
bandið var stofnað í Hvannagjá á
Þingvöllum 27. júní árið 1930. Í til-
efni tímamótanna stóðu ungir sjálf-
stæðismenn fyrir hátíðarstjórn-
arfundi á Þingvöllum í gær, þar sem
Geir H. Haarde, varaformaður Sjálf-
stæðisflokksins, flutti ávarp. Í gær
hóf göngu sína greinaflokkur á vef
ungra sjálfstæðismanna, www.sus-
.is, með greinum eftir fyrrverandi
formenn SUS í tilefni afmælisins.
Fyrsta greinin sem birt hefur verið
er eftir Ásgeir Pétursson, fyrrver-
andi sýslumann og bæjarfógeta, sem
var formaður SUS 1955–57. Þess má
geta að fyrsti formaður SUS var
Torfi Hjartarson. Formaður SUS er
Hafsteinn Þór Hauksson.
Hafsteinn Þór Hauksson og Þorbjörg Helga Vigfúsdóttir við minnisvarða
um Bjarna Benediktsson, fyrrverandi formann Sjálfstæðisflokksins.
SUS fagnaði
75 ára afmæli
EKKERT er hæft í þeim ummælum
Vilhjálms Bjarnasonar, aðjúnkts við
viðskipta- og hagfræðideild Háskóla
Íslands, í Morgunblaðinu í gær, að
þýski bankinn Hauck & Aufhäuser
hafi aldrei átt hluti þá sem bankinn
var skráður fyrir í Eglu hf. Þetta seg-
ir í yfirlýsingu sem Egla hf. sendi frá
sér í gær.
„Hauck & Aufhäuser gerðist hlut-
hafi í Eglu hf. hinn 15. janúar 2003,
ásamt Keri hf. og Vátryggingafélagi
Íslands hf., og var eigandi helmings
hlutafjár félagsins þegar það keypti
kjölfestuhlut af íslenska ríkinu í Bún-
aðarbanka Íslands hf. hinn 16. janúar
2003,“ segir í yfirlýsingunni. Vitnað
er til ummæla Vilhjálms í Ríkisút-
varpinu á sunnudag og í Morgun-
blaðinu í gær þess efnis að eignar-
hlutur þýska bankans hafi raun-
verulega verið í höndum S-hópsins.
Um hafi verið að ræða lán með veði í
hlutabréfunum.
„Þessar fullyrðingar eru rangar,“
segir í yfirlýsingunni frá Eglu. „Eina
lánafyrirgreiðslan sem Egla hf. naut í
þessum viðskiptum kom frá Lands-
bankanum, viðskiptabanka Eglu hf.,
eins og fram kom í yfirlýsingu sem
Egla hf. sendi frá sér í apríl 2003.“
Um fullyrðingu Vilhjálms í Morg-
unblaðinu í gær, þess efnis að engar
upplýsingar komi fram í ársskýrslu
þýska bankans um að hann eigi hlut í
Búnaðarbankanum, segir:
„Eðlilega finnast engar upplýsing-
ar um að Hauck & Aufhäuser hafi átt
hlut í Búnaðarbankanum. Hauck &
Aufhäuser var hluthafi í Eglu hf.,
sem keypti kjölfestuhlut í Búnaðar-
banka Íslands hf. ásamt fleiri fjár-
festum, og þau bréf voru færð í árs-
reikningi Hauck & Aufhäuser á því
tímabili sem bankinn átti hlut í Eglu
hf., eins og fram kemur í yfirlýsingu
frá Hauck & Aufhäuser 27. júní 2005.
Jafnframt skal það áréttað enn og
aftur að Hauck & Aufhäuser átti full-
trúa í bankaráði Búnaðarbankans og
síðar KB banka, frá því gengið var
frá kaupum Eglu hf. á kjölfestuhlut í
Búnaðarbankanum þar til á síðasta
aðalfundi KB banka.
Vangaveltur um að Hauck & Auf-
häuser hafi ekki tekið fullan þátt í
kaupunum á kjölfestuhlut í Búnaðar-
banka Íslands hf., í gegnum kaup sín
í Eglu hf., eiga ekki við nein rök að
styðjast og sætir undrum að kennari
við jafn virta stofnun og viðskipta- og
hagfræðideild Háskóla Íslands, skuli
láta hafa slíkar órökstuddar dylgjur
eftir sér í fjölmiðlum,“ segir í yfirlýs-
ingunni frá Eglu hf.
Ekkert hæft í um-
mælum Vilhjálms
Framkvæmdastjóri Hauck & Aufhäuser um eignina í Búnaðarbankanum
MORGUNBLAÐINU hefur borist
eftirfarandi yfirlýsing frá Hauck &
Aufhäuser bankanum vegna um-
ræðu um sölu íslenska ríkisins á
Búnaðarbankanum.
„Frankfurt am Main, 27. júní 2005.
Hauck & Aufhäuser bankanum
bauðst á sínum tíma að taka þátt í
útboðsferli vegna sölu íslenska rík-
isins á Búnaðarbanka Íslands hf. Að
okkar mati var Búnaðarbankinn
áhugaverður fjárfestingarkostur,
þrátt fyrir að verðið væri hátt á
þeim tíma. Enginn vafi leikur á að
Kaupþing banki hf., sem varð til við
samruna Búnaðarbanka Íslands hf.
og Kaupþings banka hf., hefur stað-
ið sig afar vel og gert mjög góða
hluti. Undirritaður hefur notið þess
að sitja í stjórn bankans allt þar til
ég gekk úr stjórn bankans á síðasta
aðalfundi, og vona að framlag mitt
hafi orðið til góðs. Við hjá Hauck &
Aufhäuser erum eindregið þeirrar
skoðunar að Íslendingar geti verið
stoltir af að hafa byggt upp jafn-
öfluga fjármálastofnum og Kaup-
þing banki hf. er.
Við lýstum því yfir í upphafi að
við værum skammtímafjárfestar en
myndum virða í hvívetna samninga
við íslenska ríkið um lágmarkstíma
eignarhalds á bankanum. Það fyr-
irheit höfum við efnt.
Á því tímabili sem við höfum átt
hlutabréf í Eglu hf., en það félag á
hlutabréf í Búnaðarbankanum og
síðar í Kaupthing banka hf., hafa
þau verið bókuð í ársreikningi bank-
ans.
Okkur þykir miður að efasemdir
skuli hafa vaknað um heilindi okkar
í þessu máli og að nafn bankans
skuli dragast með neikvæðum hætti
inn í umræðu um einkavæðingu á
Íslandi.
Virðingarfyllst,
f.h. Hauck & Aufhäuser bankans
Peter Gatti, framkvæmdastjóri.“
Hlutabréfin voru
bókuð í ársreikn-
ingi bankans
Taldi Búnaðarbankann áhugaverða fjár-
festingu þrátt fyrir að verðið væri hátt
ALVÖRU þungarokkarar láta ekki
smátroðning á sig fá enda erfitt að
troða fólki um tær ef það hoppar
bara nógu mikið. Mismunandi til-
finningar mátti þó lesa úr andlits-
svip tónleikagesta á Nasa í gær en
þar tróð bandaríska þungarokks-
hljómsveitin Megadeth upp. Hljóm-
sveitin stóð við gefin loforð um
kröftuga tónleika og ekki var annað
að sjá en tónleikagestir væru sáttir.
Tilfinninga-
sveiflur á
Megadeth-
tónleikum
Morgunblaðið/Sverrir