Morgunblaðið - 28.06.2005, Qupperneq 52

Morgunblaðið - 28.06.2005, Qupperneq 52
MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLUNNI 1, 103 REYKJAVÍK, SÍMI 569 1100, SÍMBRÉF 569 1181, PÓSTHÓLF 3040, ÁSKRIFT-AFGREIÐSLA 569 1122, NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, AKUREYRI: KAUPVANGSSTRÆTI 1 ÞRIÐJUDAGUR 28. JÚNÍ 2005 VERÐ Í LAUSASÖLU 220 KR. MEÐ VSK. LÖGREGLAN í Reykjavík hefur áhyggjur af frágangi á afrein á gatnamótum Miklubrautar og Kringlumýrarbrautar og telur að breytingar sem gerðar hafa verið á afreininni séu afturför. Árni Friðleifsson varðstjóri í umferðardeild hefur skoðað aðstæður og komið ábendingum á framfæri við Gatnamálastofu. Ekki hefur verið tilkynnt um óhöpp á þessum stað eftir breytingarnar, sem felast í því að bílar á leið norður Kringlumýrarbraut hafa ekki lengur sérafrein þegar þeir beygja til austurs inn á Miklubraut. Nú verða þeir að bíða við þrengingu á afreininni eftir umferð á Miklu- brautinni. Segir Guðmundur Guðnason, verk- efnisstjóri hönnuða fyrir gatnamótin, að þessar breytingar hafi verið gerðar til að fækka óhöpp- um. „Þetta var óhappastaður og þá var farið í að gera gatnamótin einsleit,“ segir hann og vísar til þess að í öllum hinum beygjunum hafi afrein- ar verið með biðskyldu og bílar þurft að víkja fyrir umferð á aðalbrautinni. „Umferðin sem tekur hægri beygju af Kringlumýrarbraut þarf því nú að bíða eftir umferð á Miklubraut. Þar sem þetta er stuttur kafli var það mat hönn- unarhópsins að þetta væri betri kostur upp á umferðaröryggi en það sem fyrir var.“ Gamla fyrirkomulagið órökrétt Guðmundur segir að vissulega sé þessi breyt- ing óþægilegri fyrir þann sem beygir af Kringlumýrarbraut og þarf að bíða eftir umferð á Miklubraut en að sama skapi þægilegri fyrir umferð á Miklubraut. Muni það minnka hættu á óhöppum. Hann segir að gamla fyrirkomulagið, þar sem umferð á Miklubraut þurfti að þvera afrein af Kringlumýrarbraut til að komast inn að Kringl- unni, hafi verið órökrétt að því leytinu að um- ferð á Miklubraut sem er aðalbraut hafi ekki átt réttinn inn að Kringlu. Árni Friðleifsson lögregluvarðstjóri segir á hinn bóginn að gamla fyrirkomulagið hafi geng- ið ágætlega og hann minnist þess ekki að óhöpp hafi verið tíð á afreininni þótt óhöpp hafi hins vegar orðið á sjálfum gatnamótunum. „Við höf- um nokkrar áhyggjur af svona aðgerðum og sjáum fyrir okkur að hugsanlega geti orðið þarna mikið af óhöppum a.m.k. til að byrja með, s.s. aftanákeyrslum, og við höfum komið ábend- ingum okkar til Gatnamálastofu,“ segir hann. „Það getur þó vel verið að í framtíðinni muni þetta ganga vel en maður setur alltaf varnagla þegar breytingar af þessu tagi eiga sér stað.“ Morgunblaðið/RAX Bíll kemur af Kringlumýrarbraut og þarf að bíða eftir umferð á Miklubraut. Til bóta segir hönnuður. Lögreglan segir breytinguna afturför. Lögreglan óttast óhöpp í kjölfar breytinga við Kringlumýrarbraut FRAMKVÆMDIR eru nú hafnar á svæði Vals á Hlíðarenda en þar stendur til að byggja nýtt íþrótta- hús með áfastri stúku og nýjan keppnisvöll. Grímur Sæmundsen, formaður Vals, segir að tengibygg- ingin verði einnig stækkuð en í henni verður félagsaðstaða sem og aðstaða fyrir skrifstofuhald og þjónustu. „Við ætlum að klára þetta í áföngum. Íþróttahúsið verður tilbú- ið haustið 2006 en tengibyggingin vorið 2007,“ segir Grímur. Á Hlíðarenda eru nú tvö íþrótta- hús en það nýrra verður rifið. Að sögn Gríms er það hluti af heildar- endurskipulagningu á svæðinu. „Þetta hefur staðið til mjög lengi og verið í vönduðum undirbúningi,“ segir Grímur sem gerir ráð fyrir að þetta verði besta aðstaða á Íslandi til að iðka knattspyrnu, körfubolta og handbolta. Morgunblaðið/Árni Torfason Framkvæmdir hafnar á Hlíðarenda AFDRIFARÍKAR breytingar urðu á þorskstofninum um árið 1985 sem valda því að stofninn er ekki lengur fær um að endurnýjast með sama hætti og hann gerði áratugina á und- an og væntanlega um aldir. Þróun hrygningarstofnsins og minnkandi nýliðun „verður varla skilgreind öðruvísi en sem nýliðunarbrestur eða jafnvel sem umhverfisslys“. Þetta kemur fram í grein í Morg- unblaðinu í dag eftir þrjá starfsmenn Hafrannsóknastofnunar, fiskifræð- ingana Ólaf Karvel Pálsson og Einar Hjörleifsson og verkfræðinginn Höskuld Björnsson. Í greininni kemur fram að nýliðun þorsks, þ.e.a.s. viðbót við stofninn á hverju ári, var 340 milljón fiskar árið 1983 en þremur árum síðar hrapaði hún í 87 milljónir. Fyrir 1986 hafði nýliðun aldrei farið nálægt 100 millj- ón fiska mörkunum en frá 1986 hefur nýliðun sex sinnum verið neðan þeirra marka. Fyrir 1986 var annar hver árgangur stærri en 200 milljón fiskar en eftir 1986 hefur enginn ár- gangur náð þeirri stærð. Í samtali við Morgunblaðið sagði Einar Hjörleifsson, einn greinarhöf- unda, að þó að mörkin væru dregin við árið 1985 væri hugsanlegt að þáttaskilin hefðu orðið nokkrum ár- um fyrr. Á hinn bóginn hefði verið gengið svo harkalega fram gegn þorskárgöngunum frá 1983 og 1984 að þeir árgangar hefðu aldrei skilað sér í hrygningarstofninn og því væri gild ástæða til að draga mörkin við 1985. Aðspurður sagði Einar ekki úti- lokað að aðstæður í sjónum hefðu breyst með þeim afleiðingum að ný- liðun minnkaði en þar sem ekkert lægi fyrir um það væri fráleitt að miða við að orsakanna væri að leita í umhverfinu. Ástæðan fyrir minnk- andi nýliðun væri sú að veiðar hefðu gengið of nærri hrygningarstofnin- um. Það mætti því líkja hnignun þorskstofnsins við umhverfisslys af mannavöldum. | 27 Líkt við umhverfis- slys af mannavöldum Eftir Rúnar Pálmason runarp@mbl.is Hrygningarstofn þorsks minnkar og dregur úr nýliðun  Meira á mbl.is/ítarefni FJÁRMÁLAEFTIRLITIÐ telur sig hafa fullar heimildir til afla upplýsinga jafnt frá einstaklingum sem lögaðilum um eignarhluti í fjármálafyrirtækjum sem þeir eiga eða hyggjast eignast. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu sem FME sendi frá sér í gær vegna ummæla Páls Pálssonar, stjórnarformanns Sparisjóðs Hafnarfjarðar, um að FME hafi farið út fyrir valdheim- ildir sínar. Páll Gunnar Pálsson, forstjóri FME, segir að stofnunin hafi ótví- ræðar heimildir og skyldur til að kanna hvort virkur eignarhlutur sé að stofnast hjá fjármálafyrirtækj- um. Þær heimildir nái til allra sem eigi hlut í fjármálafyrirtækjum og heimildir þeirra gagnvart stofn- fjáreigendum sparisjóða séu skýr- ar. Fjármálaeftirlitið svarar stjórnarformanni Sparisjóðs Hafnarfjarðar Hefur fulla heimild til eftirlits  Telur sig | 10 SÓLIN fer umhverfis jörðina. Rétt eða rangt? Þessi fullyrðing var lögð fyrir þátttakendur í Eurobarometer- viðhorfskönnun til vísinda og tækni, sem gerð var á vegum fram- kvæmdastjórnar ESB í 32 Evr- ópulöndum, þ. á m. á Íslandi. Nið- urstaðan fyrir löndin öll var sú að 29% töldu þessa fullyrðingu vera rétta. 66% vissu hins vegar að hún er röng. Séu svörin greind eftir ein- stökum löndum kemur í ljós að 36% svarenda á Íslandi sögðu fullyrð- inguna vera sanna en 61% ranga. Í könnuninni voru m.a. lagðar 13 fullyrðingar fyrir þátttakendur til að kanna almenna vísinda- og tækniþekkingu þeirra. Þegar heild- arniðurstaða allra svaranna er dregin saman kemur í ljós að með- altal réttra svara var 68% á Íslandi. 12 þjóðir gátu hins vegar oftar gef- ið rétt svör í könnuninni en íslensku þátttakendurnir. Svíar náðu best- um árangri og svöruðu að meðaltali 79% rétt í könnuninni, næstir komu Danir (74%) og Hollendingar (74%). Íslendingar voru hins vegar sú þjóð sem gaf sjaldnast röng svör í könnuninni. Að meðaltali svöruðu Íslendingarnir rangt í 15% tilvika, en 17% sögðust annaðhvort ekki vita svarið eða neituðu að svara spurningunum. Meðaltal rangra svara í löndum ESB var 21%, 66% svöruðu rétt og 13% sögðust ekki vita svarið eða neituðu að svara. 36% Íslend- inga sögðu sólina snú- ast um jörðu

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.