Morgunblaðið - 28.06.2005, Page 12

Morgunblaðið - 28.06.2005, Page 12
12 ÞRIÐJUDAGUR 28. JÚNÍ 2005 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Togarar í 100 ár Úr verinu á morgun ÚR VERINU BÁTASMIÐJAN Trefjar í Hafn- arfirði afgreiddi nú í júní nýjan Cleopatra 33 bát til Seahouses, norður af Newcastle á austur- strönd Englands. Kaupendur báts- ins eru feðgarnir Stephen og Neal Priestley. Neal Priestley verður skipstjóri á bátnum. Báturinn hef- ur hlotið nafnið Portia. Portia er bátur af gerðinni Cleopatra 33,10 metra langur og mælist 10 brúttó- tonn. Heimahöfn bátsins er í Seahous- es. Báturinn er sérútbúinn til hum- ar- og krabbaveiða með gildrum. Áætlað er að báturinn muni draga á bilinu 700–800 gildrur á dag. Lest bátsins er fyrir 14 380 lítra fiskikör. Lestin er einnig útbúin með úðunarkerfi til að halda humri lifandi um borð. Í lúkar er svefnpláss fyrir tvo ásamt eldunaraðstöðu með eldavél, örbylgjuofni og ísskáp. Aðalvél bátsins er af gerðinni Cummins 430 hestöfl. Siglingatæki eru af gerðinni Simrad og Furuno. Bát- urinn hefur þegar hafið veiðar. Trefjar selja bát til Bretlands KOLMUNNAAFLINN er nú orð- inn ríflega 207.000 tonn, þrátt fyr- ir slaka veiði í lok síðustu viku. Þá lönduðu fjögur skip afla sínum hér á landi, þar af eitt færeyskt. Leyfi- legur heildarafli er 345.000 tonn og því eru óveidd tæplega 138.000 tonn. Erlend skip hafa landað hér 90.000 tonnum og því hafa fiski- mjölsverksmiðjurnar tekið á móti 297.400 tonnum samkvæmt upp- lýsingum Samtaka fiskvinnslu- stöðva. Síldarvinnslan á Seyðis- firði hefur tekið á móti mestu af kolmunna, 67.600 tonnum. Næst kemur Eskja á Eskifirði með 63.300 tonn, Síldarvinnslan í Nes- kaupstað hefur tekið á móti 40.800 tonnum, Loðnuvinnslan á Fá- skrúðsfirði er með 36.300, Ísfélag Vestmannaeyja er með 33.700 tonn. HB Grandi á Vopnafirði hef- ur tekið á móti 23.200 tonnum, Nordic Factory á Djúpavogi hefur tekið á móti 12.800 tonnum, Hrað- frystistöð Þórshafnar er með 9.900 tonn og Vinnslustöðin í Vest- mannaeyjum er með 9.800 tonn. Þá hafa verksmiðjurnar tekið á móti 23.000 tonnum af norsk-ís- lenzkri síld í sumar, þar af 5.000 tonnum af erlendum skipum. Mest hefur borizt til Norðfjarðar, tæp- lega 7.000 tonn. HB Grandi á Vopnafirði er með tæp 6.000 tonn, Vinnslustöðin er með 3.800, til Krossaness hafa borizt 2.400 tonn, 2.000 tonn til Ísfélagsins, 1.800 tonnum hefur verið landað á Fá- skrúðsfirði og 80 tonnum á Djúpa- vogi. Nærri 300.000 tonn af kolmunna á land VAXANDI áhugi hefur verið meðal fjárfesta á fé- lögum í norsku fiskeldi að undanförnu. Ástæðan er hagstæðara rekstrarumhverfi félaga í greininni. Frá þessu er greint í Morgunkorni Íslandsbanka og segir þar ennfremur: „Fiskeldisfélög í Norsku Kaup- höllinni hafa átt erfitt uppdráttar undanfarin ár. Af- koman hefur verið léleg sökum lágs afurðaverðs á mörkuðum. Gengi félaganna hefur þannig lækkað tals- vert á síðastliðnum árum. Á þessu ári hefur verð á laxaafurðum hins vegar hækkað um 25% auk þess sem ESB samdi nýlega við Norðmenn um lágmarksverð á afurðum sem fluttar eru inn til landa sambandsins. Þetta hefur vakið áhuga fjárfesta á félögunum. Stærstu tíðindin áttu sér stað fyrr í þessum mánuði þegar John Fredriksen, ríkasti maður Noregs, keypti óvænt 48% eignarhlut í Pan Fish fyrir um átta millj- arða íslenzkra króna. Í kjölfarið hefur Fredriksen lagt fram yfirtökutilboð í félagið. Frá því Fredriksen keypti hefur gengi félagsins hækkað um 44%. Í lok síð- ustu viku tilkynnti Fredriksen svo um kaup á 25% eignarhlut í Fjord Seafood auk þess sem annar fjár- festir, Jens Ulltveit-Moe, keypti 10,8% hlut í félaginu. Það sem af er ári hefur gengi fiskeldisfyrirtækjanna í Kauphöllinni í Osló hækkað umtalsvert.“ Meiri áhugi á fiskeldi  Sjóminjasafnið í Reykjavík heimsótt UMFERÐARRÁÐ sendi frá sér ályktun á dögunum um akstur tor- færumótorhjóla. Í ályktuninni segir að stórátak þurfi að gera til að stemma stigu við hverskonar ólög- legum akstri torfærubifhjóla, sem og utanvegaakstri á þessum tækjum. Ólafur Guðmundsson, fulltrúi í umferðarráði, hélt fyrirlestur um vandann á fundi umferðarráðs. Að sögn hans er víða pottur brotinn í þessum efnum og vandinn varðar ökuréttindi, skráningu, tryggingar, löggæslu og náttúruvernd. „Aðal- málið er að það er bannað að aka á ótryggðum og óskráðum hjólum yf- irhöfuð, nema þegar sérstök leyfi fyrir akstursíþróttir gilda. Þetta eru sömu reglurnar og gilda fyrir akstur torfærujeppa og hingað til hafa þeir ekki verið til vandræða. Því miður er ekki hægt að segja það sama um tor- færuhjólin,“ segir Ólafur. Ástæðan fyrir þessari þróun á síð- ustu árum er margþætt að mati Ólafs. Í fyrsta lagi er hér aga- og ábyrgðarleysi nokkurra hjólamanna um að kenna. Í öðru lagi eru lög og reglur um þessi mál hér á landi ekki nægilega ljós og úr takti við nú- tímann. „Umferðarlögin hér eru þannig að þau gilda allstaðar og fyrir öll vélknúin tæki. Annarsstaðar gilda umferðarlögin gjarnan fyrir al- menna umferð og önnur lög gilda fyrir akstur utan umferðar. Í Bret- landi er mönnum t.d. frjálst að aka á ótryggðu og óskráðu hjóli á landi í einkaeign eða á lokuðu svæði, en þá keyra menn á sína eigin ábyrgð. Hér máttu ekki hreyfa við ökutæki nema það sé tryggt og slík trygging kostar töluverðar fjárupphæðir.“ Að mati Ólafs gerir þetta fyrir- komulag það að verkum að menn freistast til að halda hjólunum sínum fyrir utan kerfið. Í þriðja lagi nefnir Ólafur að mjög erfitt er fyrir lögregluna að fram- fylgja þessum lögum. Morgunblaðið hafði samband við Þorgrím Guð- mundsson, yfirmann umferðardeild- ar, og staðfesti hann ummæli Ólafs. „Okkur berast oft kvartanir vegna þessara hjóla en þegar við mætum á svæðið eru þau ekki lengi að forða sér og ómögulegt fyrir okkur að veita þeim eftirför um fjöll og firn- indi. Ef hjólin eru þar að auki óskráð eru engin númer sem við getum rak- ið til eigenda þeirra,“ sagði Þorgrím- ur. Umferðarráð ályktar um akstur mótorhjóla utan vega Stórátak brýnt gegn akstri utan vega Umferðarráð vill átak gegn utanvegaakstri torfærumótorhjóla. Menn freistast til að halda hjólum fyrir utan kerfið SUMARSKÓLI um smáríki hófst í þriðja skipti í gær og setti Páll Skúlason, fráfarandi rektor HÍ, skól- ann sem mun standa í tvær vikur. Í tilkynningu frá Háskóla Íslands segir að á þriðja tug nemenda sæki sumarskólann víðs vegar að frá Evr- ópu og Bandaríkjunum, auk þess sem allir fyrirlestrar verða sendir beint út til bandarískra háskólastúd- enta í gegnum fjarfundabúnaði. Meðal kennara við skólann eru Neill Nugent og Clive Archer sem báðir koma frá Manchester Met- ropolitan háskólanum á Englandi, Alyson Bailes, forstöðumaður sænsku friðarrannsóknastofnunar- innar (SIPRI), og Christine Inge- britsen frá Washington-háskóla í Seattle en öll eru þau meðal þekkt- ustu fræðimanna í Evrópu- og smá- ríkjafræðum og varnarmálum í heiminum, að því er fram kemur í til- kynningu HÍ. Íslendingar munu einnig nýta sér fjarfundatæknina því stúdentar hér á landi geta hlustað á fyrirlestra sem Christine Ingebritsen heldur í Seattle. Sumarskólinn er samstarfsverk- efni tíu háskóla, níu frá löndum í Evrópu, þ.e. Litháen, Eistlandi, Möltu, Noregi, Svíþjóð, Bretlandi, Hollandi og Íslandi en sá tíundi er Washington-háskólinn í Seattle í Bandaríkjunum. Sumarskóli um smáríki settur í gær

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.