Morgunblaðið - 28.06.2005, Síða 34

Morgunblaðið - 28.06.2005, Síða 34
34 ÞRIÐJUDAGUR 28. JÚNÍ 2005 MORGUNBLAÐIÐ MINNINGAR ✝ Ólína Jörunds-dóttir fæddist á Bíldudal 18. júní 1924. Hún lést á LSH 20. júní síðastliðinn. Foreldrar hennar voru Jörundur Bjarnason, skipstjóri á Bíldudal, f. 5. sept- ember 1875, d. 30. maí 1951, og eigin- kona hans, Steinunn Halldóra Guðmunds- dóttir, f. 17. janúar 1884, d. 20. desember 1963. Systkini Ólínu voru Sigurmundur, f. 3. september 1908, d. 17. maí 1999, Lilja, f. 17. júlí 1910, d. 11. janúar 1995, Bjarni Dufland, f. 1. desember 1912, d. 25. maí 1990, og Garðar, f. 9. ágúst 1916. Ólína giftist 25. nóvember 1949 Svavari Kristjónssyni, rafverk- taka, f. 4. júní 1927. Börn þeirra eru: 1) Guðný, f. 17. september 1950, maki hennar Sveinn Óttar Gunnarsson, f. 5. september 1950, sonur þeirra Kristjón Freyr, f. 1970, maki Jóra Jóhannsdóttir. 2) Jörundur, f. 25. ágúst 1952, maki Sif Matthíasdóttir, f. 1. júní 1954, dætur þeirra Hrönn Ólína, f. 1978, maki Georg Friðriksson, Katla, f. 1982, og Hildur, f. 1987. 3) Erla Kristín, f. 2. september 1957, maki Smári Ragn- arsson, f. 13. febrúar 1954, synir þeirra Sveinn Ívar, f. 1986, Andri Sævar, f. 1990, og Einar Sindri, f. 1992. 4) Lilja Steinunn, f. 23. apríl 1960, maki Bjarni Jónsson, f. 23. febrúar 1959, börn þeirra Íris Hlín, f. 1982, Svavar Jón, f. 1985, og Lilja Dögg, f. 1990. 5) Auður Ólína, f. 13. desember 1962, börn hennar og Arnórs Steingríms Guðjónssonar, f. 6. júlí 1961, skil- in, Nanna Ólína, f. 1996, og Vil- hjálmur Svavar, f. 1999. Ólína fæddist og ólst upp á Bíldudal, fór í Húsmæðraskólann á Laugarvatni 1944 og Héraðs- skólann á Núpi 1946. Svavar og Ólína hófu búskap í Vestmanna- eyjum en bjuggu í Reykjavík frá árinu 1951. Ólína var heimavinn- andi húsmóðir frá giftingu en síð- ari árin vann hún við bókhald vegna reksturs manns síns. Útför Ólínu fer fram frá Graf- arvogskirkju í dag og hefst at- höfnin klukkan 15. Ég veit að mamma hefði ekki vilj- að mikla lofræðu en mér er bæði ljúft og skylt að minnast hennar í nokkr- um orðum. Hún var skemmtileg kona sem gaman var að umgangast, glaðlynd og vildi hafa mikið líf í kringum sig. Hún hafði gaman af að fara út á með- al fólks, hafði gaman af að dansa og fara í leikhús, fara í lengri og styttri ferðalög sem hún var óþreytandi við á yngri árum og hafði einnig áhuga á andlegum málefnum. Hún var list- ræn, snillingur í höndunum, fróð- leiksfús og hafði gaman af að tileinka sér nýja kunnáttu og prófa eitthvað nýtt. Ég hef ekki tölu á þeim fjölda námskeiða sem hún sótti en þau spönnuðu vítt svið því áhugamálin lágu víða. Hún var líka framsýn og hugmyndarík og sumar hugmyndir sem hún fékk sýndi sig seinna að voru langt á undan sinni samtíð. Hún var næm, hógvær, vinnusöm og heið- arleg, stolt og glæsileg kona. Ég vildi, fyrir rúmum áratug, verða kennd til beggja foreldra. Á þeim tíma var slíkt ekki leyfilegt þannig að í staðinn tók ég upp henn- ar nafn sem millinafn í virðingar- skyni við hana. Hún sagði aldrei neitt um hvort henni líkaði þessi breyting eður ei, en stuttu eftir breytinguna afhenti hún mér hring í „skírnar- gjöf“. Hún bar takmarkalausa umhyggju fyrir og elsku til barna og barna- barna. Ef hún fékk nasasjón af því að eitthvað vantaði einhvers staðar eða einhverrar aðstoðar væri þörf, leið ekki á löngu þar til hún var búin að leggja sitt lóð á vogaskálarnar. Hún var örlát með eindæmum og ekkert var of gott fyrir fólkið hennar. Já, ég átti frábæra mömmu og er stolt af því að vera dóttir hennar. Ég sakna hennar sárt og hefði svo gjarn- an viljað fá að hafa hana lengur en ég er þakklát fyrir að hún skyldi hafa verið þátttakandi í mínu lífi svona lengi. Ég þakka mömmu fyrir allt sem hún var mér og mínum. Auður Ólína. Með nokkrum orðum vil ég minn- ast elsku mömmu minnar. Hún hefði sjálf ekki viljað neitt orðskrúð um eigið ágæti því hún vildi láta verkin tala. Margar minningar hrannast upp í hugann. Ég hef alltaf litið mjög mikið upp til hennar og hún verið mér fyrirmynd í svo ótalmörgu. Hún var hugmynda- og hæfileika- rík á mjög mörgum sviðum, fram- takssöm og fylgin sér, glæsileg kona að öllu leyti, hress, skemmtileg og mjög heiðarleg í samskiptum við aðra. Þá var hún mjög ern og minn- ug. Hún var félagslynd og vildi hafa líf í kringum sig. Hún mjög dugleg við að fara út á meðal fólks og í leik- hús með okkur og síðar barnabörnin. Hún bar takmarkalausa umhyggju fyrir okkur börnunum og barnabörn- unum. Reyndi að komast að því hvort eitthvað vantaði án þess að spyrja beint heldur að komast að því í um- ræðunni. Þegar ég átti afmæli núna í vor spurði hún hvað ég vildi í afmælis- gjöf, hvort mig vantaði eitthvað. En þetta voru einmitt spurningar sem við fengum alltaf þegar við áttum af- mæli eða að jólin nálguðust. Var eitt- hvað sem okkur vanhagaði um? Við fórum síðan í bæinn og fundum það sem mig langaði í. Eftir það bauð hún okkur á kaffihús en það var alveg ein- kennandi fyrir hana að bjóða upp á eitthvað eftir svona verslunarferðir. Þetta lýsir henni vel því henni þótti sælla að gefa en að þiggja. Mamma var mikil útivistarmann- eskja og hafði mjög gaman af því að ferðast. Þegar við vorum að alast upp fórum við mikið í tjaldferðir og sum- arhús. Fyrir tveimur árum komu mamma og pabbi með okkur á útihá- tíð í Galtalæk um verslunarmanna- helgi og voru hjá okkur. Þau leigðu herbergi rétt hjá og keyrðu á útihá- tíðarsvæðið. Mikið hlúði mamma að sumarbú- staðnum í Kjósinni og sami glæsileik- inn þar að verki eins og í Eikjuvog- inum. Hún hlúði að plöntum og hugsaði vel um sjálfsprottna græð- linga sem hún flutti til þannig að þeir ættu betri vaxtarskilyrði. Elsku mamma, ég kveð þig með miklum söknuði, harmur okkar allra er mikill en minning þín lifir hjá okk- ur. Kærar þakkir fyrir allt og allt. Lilja Steina. Fallin er frá móðir mín Ólína Jör- undsdóttir eftir stutt en erfið veik- indi. Mamma var mikil dugnaðarkona og fyrirmyndar húsmóðir. Heimili hennar og pabba var alla tíð afar glæsilegt. Pabbi og mamma voru mjög samhent hjón og áttu fimmtíu og fimm ára brúðkaupsafmæli á síð- asta ári. Mamma hafði mjög gaman af því að ferðast og fóru þau pabbi mikið í ferðalög um landið með okkur börnin og seinna út um allan heim. Mamma var mikil fjölskyldumanneskja og var mjög ánægð þegar hún hafði fjöl- skylduna í kringum sig. Barnabörnin dýrkuðu hana og sóttu mikið í hana. Ég kveð þig með söknuði. Þín dóttir, Erla Kristín. Ég kynntist Ólínu tengdamóður minni fyrir rúmum þrjátíu árum. Hún var mjög pólitísk kona og hafði ákveðnar skoðanir á hlutunum. Það var því einstaklega gaman að ræða við hana. Hún fylgdist vel með. Mér eru kærar þær stundir sem við áttum saman við eldhúsborðið í Eikjuvogi, en þar var rætt landsins gagn og nauðsynjar. Hún var mikill femínisti og jafnréttissinnuð, en þó ekki ein- göngu til handa kynsystrum sínum, henni var í mun að allir ættu jafnan rétt. Hún var áhugasöm um að kynn- ast nýjum hlutum. Hún var alltaf til í ýmisleg uppátæki. Hann er ómetanlegur stuðningur- inn sem við hjónin fengum frá Ólínu og Svavari alveg frá upphafi búskap- ar okkar. Fyrir hann er ég eilíflega þakklát. Ólína og Svavar voru í hesta- mennsku lengi. Þó Ólína væri hætt að fara á bak, hafði hún ekki síður gaman að því að umgangast hestana og fylgjast með því sem fjölskyldan var að gera. Þar áttum yndislegar stundir í saman. Þau hjón hafa komið sér upp bú- stað í Kjósinni. Það var oft mikið sungið og dansað þegar komið var í sveitina eftir sleppitúr. Þar var Ólína yfirleitt fremst í flokki. Hún var mik- ill dansari og hafði gaman af. Ólína var alla tíð mikil íþrótta- og útivist- arkona. En í seinni tíð hefur mestur tími þeirra Svavars farið í að gróð- ursetja og rækta landið sitt í Kjós- inni. Ólína hafði gaman af því að um- gangast yngri kynslóðina og gerði sér far um að sinna barnabörnunum vel. Hún gat dregið fram leikföng við allra hæfi. Það voru ófá leikritin sem voru sýnd í Eikjuvoginum í fjöl- skylduboðum. Það var endalaust hægt að fara í klæðaskápana hjá Ólínu og finna föt, skó, hárkollur og annað djásn sem hentaði hverjum karakter. Ólína var mikil gæfumann- eskja, hún átti fyrirmyndar eigin- mann og fimm börn, sem öll hafa orð- ið að myndarfólki. Elsku Ólína, ég vil þakka þér allan stuðninginn og góðu stundirnar sem ég höfum átt saman. Þær hefðu vissulega mátt vera miklu fleiri. Ég bið góðan guð að styrkja Svavar í missi sínum sem og aðra fjölskyldu- meðlimi. Sif Matthíasdóttir. Það var fallegur morgunn og ég hafði mætt snemma til vinnu. Síminn hringdi og ég fann á mér að það hafði eitthvað alvarlegt hafði komið fyrir. Tengdamamma hafi veikst alvarlega um nóttina. Við slíkar fréttir stöðvast tíminn og hugurinn fer að reika aftur til liðinna tíma. Næstu sólarhringar liðu meðan við sátum við hliðina á þér, stundum öll börnin þín ásamt mökum og hluta af barnabörnum. Við rifjuðum upp liðna tíma og sagð- ar voru ýmsar sögur frá fyrri tíð. Þá kom í ljós hversu samheldin fjöl- skyldan þín er og hversu mikil virð- ing var borin fyrir þér. Alla tíð hélst þú vel utan um börnin þín og barna- börnin og það var þér mikið hjartans mál að þau menntuðu sig. Þú varst alltaf til staðar ef einhver þurfti á hjálp að halda og tilbúin að rétta hjálparhönd. Þú varst í senn bæði orðheldin og heiðarleg og fram- kvæmdagleðin í þér sá um að því væri komið í verk sem þurfti að fram- kvæma. Sá griðastaður frá skarkala hversdagslífsins sem þú og Svavar bjugguð fjölskyldunni í sumarhúsi ykkar í Lækjarási í Kjósinni er ein- stakur. Hann ber vott um samheldni og snyrtimennsku ykkar hjóna um ókomin ár. Ræktarsemi þín er ekki bara við börnin þín heldur fengu litlu sjálfsánu græðlingarnir sem þú hlúð- ir að í Kjósinni á hverju vori að njóta þess líka. Af þinni einskærri alúð og grænu fingrum er kominn vísir að skógi sem við munum njóta á næstu árum. Það verður frábrugðið næsta gamlárskvöld því að þá vantar glað- væra konu sem glatt hefur okkur með nærveru sinni flest okkar bú- skaparár en ég veit að hún verður með okkur í anda. Ég kveð þig, Ólína, með söknuði í hjarta og þakka þér fyrir allt sem þú hefur gert fyrir okkur Lilju og börn- in okkar. Viska þín mun fylgja börn- um okkar um ókomin ár. Kæri Svavar, missir þinn er mikill, en með Guðs hjálp munum við Lilja ásamt börnum okkar gera okkar besta til að styrkja þig í sorginni. Guð geymi þig, elsku Ólína. Nú legg ég augun aftur, ó, Guð, þinn náðarkraftur mín veri vörn í nótt. Æ, virst mig að þér taka, mér yfir láttu vaka þinn engill, svo ég sofi rótt. (Þýð. S. Egilsson.) Bjarni Jónsson. Elsku amma. Það er erfitt að setj- ast niður og rita þér kveðjubréf. Helst vill maður engan þurfa að kveðja og þá síst af öllu ástvini sem eru manni kærir eins og þú. Við átt- um ekki von á slíkum fréttum, en hver á hins vegar nokkurn tíma von á slíku? Þín er sárt saknað og er það djúpt tómið sem þú skilur eftir þig. Við hugsum til allra þeirra stunda sem við höfum átt með þér og hörm- um nú að þær verði ekki fleiri. Öll þau skipti sem við hittumst í Kjósinni að skemmta okkur á hestum og hvert með öðru, að mála bústaðinn, spila vist, gróðursetja eða bara til að sýna sig og sjá aðra. Einnig allar stund- irnar í Eikjuvoginum, ómælda magn- ið af nýbökuðum pönnukökum, heita- pottsferðirnar í gamla daga og hin fjölmörgu fjölskylduboð þar sem við frændsystkinin eyddum miklum tíma í að undirbúa skemmtiatriði kvöldsins. Það tekur okkur sárt að þér gefist ekki færi á að kynnast fyrsta langömmubarninu þínu sem fæðast mun nú í sumar og sömuleiðis að viðkomandi alist upp án þess nokkurn tíma að kynnast þér, sem varst okkur hinum ómetanleg. Ávallt höfum við litið upp til þín, enda hefur þú ætíð staðið fast á þínum skoðun- um og haft eitthvað um öll mál að segja, lítil sem stór. Sárast af öllu þykir okkur hins vegar að við komum aldrei aftur til með að heyra rödd þína eða að inni- legt bros þitt eigi ei framar eftir að hlýja okkur um hjartarætur. Allt verður öðruvísi en áður. Vita máttu, elsku amma, að við munum ávallt geyma minninguna um brosið, hláturinn og stundirnar sem við áttum saman svo lengi sem við lif- um. Þú hefur haldið áfram á næsta áfanga ferðar þinnar um veröldina, á undan okkur hinum og getum við því aðeins beðið þess að leiðir okkar mætist þegar hin alvalda klukka slær okkur hinum síðustu hljómum. Þínar sonardætur, Hrönn, Katla og Hildur. Elsku amma. Nú ertu farin og eftir sitjum við með sorg í hjarta. Það eru ógleymanlegar stundirnar sem við áttum saman. Þegar við vorum yngri komum við oft í Eikjuvoginn á góðum sumardögum til þess að fara í pollinn hjá þér eins og þú kallaðir heita pott- inn ykkar alltaf. Þegar við komum til ykkar afa voru ávallt ýmsar kræs- ingar á borðum. Þú fórst einnig oft með okkur í bæinn eða eitthvað ann- að og ósjaldan endaði sú ferð á kaffi- húsi, ísbúð eða á matsölustað. Þegar við komum í heimsókn til þín eða þú til okkar tókstu okkur oft á eintal til þess að ræða við okkur, hvernig gengi í skólanum, hvort okk- ur vanhagaði um eitthvað og ræddir við okkur hvort þú gætir liðsinnt okkur á einhvern hátt. Þú varst svo ung í anda, fjörug og alltaf til í að gera eitthvað skemmtilegt með okk- ur. Þegar þið afi buðuð börnum, tengdabörnum og barnabörnum heim var það til siðs hjá okkur frændsystkinunum að vera með ýmis skemmtiatriði, til dæmis frumsamin leikrit eða tískusýningar þar sem við fórum í fataskápinn hennar ömmu. Öll barnabörnin voru sjálfkrafa með- limir klúbbsins og kölluðum við hann Bleiku bólurnar og sáum við eldri um að stjórna öllu saman. Amma var mikill dýravinur og passaði vel upp á að smáfuglarnir væru ekki truflaðir þegar þeir lágu á eggjum. Til dæmis mátti enginn labba yfir brúna upp í sumarbústað sumarið sem fuglanir voru með hreiður undir brúnni. Hundurinn okkar, Líf, var í miklu uppáhaldi hjá ömmu. Hún þekkti hljóðið í bílnum þegar þau komu í heimsókn og vældi við útidyrnar til að komast út til að taka á móti ömmu og afa og fá harð- fiskroð frá þeim. Við fráfall þitt hefur ákveðið tóma- rúm myndast í hjörtum okkar. Það er undarleg tilfinning að hugsa til þess að hitta þig aldrei aftur þegar við för- um í heimsókn í Eikjuvoginn. En við eigum margar yndislegar minningar um þig og minnumst þín með hlýhug. Guð blessi minningu þína, elsku amma. Íris Hlín, Svavar Jón og Lilja Dögg. Þetta er undarlegt líf. Stundum er gleði og stundum er sorg, án ástæðu eða tilgangs. Óútreiknanlegt og ófyr- irsjáanlegt, eins og veðrið eftir ár. Stundum er fólk veikt og stundum heilsuhraust, hver og hvers vegna, enginn veit. Það eina sem virðist öruggt í þessu lífi er að engu er lofað í upphafi. Það er enginn viðstaddur fæðinguna sem segir: Þú munt lifa í 85 ár og hljóta þetta mikla hamingju og þetta miklar sorgir. Búa við þetta góða heilsu eða heilsuleysi. Ekki hafa áhyggjur, lífshamingjunni mun verða réttlátt skipt niður hjá þér eins og öllum öðrum. Lífið fær maður ekki með innbyggðu réttlæti. Það eina sem maður getur gert er að vera þakklátur fyrir það góða í lífinu. Fyr- ir það sem maður fær, því enginn lof- aði því í upphafi. Stundum er maður heppinn. Það undarlegasta við þetta líf er hins vegar þegar það hverfur. Þegar það stoppar, hættir, er ekki lengur. Fólk deyr einhvern veginn ekki, en gerir það samt. Fólk hverfur bara ekki si svona, en gerir það samt. Fólk deyr og hverfur og eftir stöndum við með tómarúm í hjartanu og lífinu. Einhvern veginn er allt í einu komið gat og maður getur ómögulega skilið hvers vegna eða hvað maður á að gera. Heill heimur horfinn. Þar sem áður voru minningar, saga, reynsla, hlátur, dans, þvottur og skúringar, er allt í einu ekki neitt. Nema steinn í garði. Það eina sem maður getur gert er að vera þakklátur fyrir að þessi manneskja, amma mín, var eitt af því góða í lífinu, þar sem maður var heppinn. Takk, amma mín, fyrir allt, þú varst frábær. Minningarnar um þig geymi ég á sérstökum stað. Kveðja. Kristjón Freyr. ÓLÍNA JÖRUNDSDÓTTIR Pantanir í síma 562 0200 Á fallegum og notalegum stað á 5. hæð Perlunnar. Aðeins 1.250 kr. á mann. Perlan ERFIDRYKKJUR Minningarkort Krabbameinsfélagsins 540 1990 krabb.is/minning

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.