Morgunblaðið - 28.06.2005, Page 39
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 28. JÚNÍ 2005 39
FRÉTTIR
YFIR 300 hundar af tæplega 40 tegundum voru
sýndir á sumarsýningu Hundaræktarfélags Ís-
lands um helgina, sem fór ákaflega vel fram að
sögn aðstandenda sýningarinnar. Um 40 börn og
unglingar tóku jafnframt þátt í keppni ungra
sýnenda, sem orðin er fastur liður í hundasýn-
ingum félagsins.
Þrír dómarar komu til landsins til að dæma
hundana og voru þeir allir sammála um að sýn-
ingin hafi verið ákaflega glæsileg í alla staði.
Enrique Filippini frá Argentínu fór jafnframt
fögrum orðum um land og þjóð, sagði að Íslend-
ingar kæmu sér fyrir sjónir sem vingjarnlegt fólk
sem byggði fallegt land. Enrique ferðast allan
ársins hring um heiminn til að dæma á hundasýn-
ingum og segist reyna að nýta sýningar til að
miðla reynslu sinni til hundaeigenda og rækt-
enda. Hann segir að almennt hafi hundarnir á
sýningunni verið í háum gæðaflokki og ljóst sé að
íslenskir ræktendur leggi metnað í ræktunina,
enda hafi um 80% af hundunum sem hann dæmdi
verið afar fallegir.
Karl-Erik Johanson frá Svíþjóð hefur áður
komið til Íslands til að dæma á hundasýningum
og segist sjá þó nokkrar framfarir í rækt-
unarmálum frá því hann var hér síðast fyrir
nokkrum árum. Um sigurvegara sýningarinnar,
whippet-tíkina ungu, segir hann að þar sé á ferð-
inni stórglæsileg tík, sem þrátt fyrir ungan aldur
hafi allt til að bera sem sigurvegara geti prýtt.
Hún sé í senn gullfalleg, með gott geðslag og
framúrskarandi hreyfingar. Karl-Erik dæmdi
jafnframt hvolpa á aldrinum 6–9 mánaða og valdi
úr hópi þeirra írsku settertíkina Cararua Alana,
sem sigurvegara, tík sem eigi sannarlega fram-
tíðina fyrir sér.
Hans Åke Sperne er orðinn íslensku hunda-
áhugafólki að góðu kunnur, enda hefur hann
margoft komið hingað til lands og haldið hér fyr-
irlestra og námskeið, auk þess að dæma hunda.
Hann hefur átt og ræktað íslenska fjárhunda í
tvo áratugi og þykir sérfræðingur um þjóð-
arhund okkar Íslendinga. Hann segir að vissu-
lega hafi margir fallegir íslenskir fjárhundar ver-
ið á sýningunni, en þeir hafi þó verið býsna
misjafnir að gæðum. Auk þess hafi suma
hundana skort hugrekki, eiginleika sem þurfi að
vera til staðar hjá hundum af þessari tegund.
Hans Åke leggur áherslu á að við ræktun ís-
lenska fjárhundsins verði í framtíðinni hugað vel
að lunderni jafnt sem útliti.
Áhersla á þjálfun barna og unglinga
Hann dæmdi jafnframt yngstu hvolpana, 4–6
mánaða og sagði þá marga hafa verið bráð-
efnilega. Agnarsmár síðhærður chihuahua-
hvolpur, Stjörnuskins Karl, var sigurvegari í
yngri hvolpaflokki og segist Hans Åke hafa séð í
honum afar vel byggðan hvolp, með dásamlegt
lunderni, hugrakkan og glaðan.
Hluti af starfsemi Hundaræktarfélags Íslands
er þjálfun barna og unglinga í þeirri sérstöku
tækni að sýna hunda, en í keppni á því sviði eru
meðal annars metin samskipti barns við hund og
hæfni í að draga fram helstu kosti hvers hunds.
Það kom í hlut Hans Åke að dæma ungu sýnend-
urna og segist hann bæði hafa verið með kökk í
hálsi og tár í augum þegar hann horfði á börnin
með hundana. Þau hefðu sýnt mikla færni og
væru í langflestum tilvikum betri í sýningarhring
en fullorðnir sýnendur. Hann segir ljóst að
barna- og unglingastarf félagsins hafi eflst til
muna og nú orðið séu fjölmargir ungir sýnendur
komnir í fyrsta klassa.
Hundarnir þóttu
í háum gæðaflokki
Morgunblaðið/ÞÖK
Unga fólkið setti mikinn svip á hundasýninguna.
Morgunblaðið/Jón Svavarsson
Besti öldungur sýningarinnar var írska settertíkin Tandra-Ásta Sóllilja.
Eigandi hennar er Arinbjörn Friðriksson og á myndinni er Enrique Fil-
ipgini frá Argentínu, en Þorbjörg Ásta Leifsdóttir sýndi tíkina.
Morgunblaðið/Jón Svavarsson
Besti hvolpur í flokki 6 til 9 mánaða var valinn írska settertíkin Cararua
Alana, en með henni á myndinni eru Karl Erik Johanson, dómari frá Sví-
þjóð, og Auður Sif Sigurgeirsdóttir.
Sumarsýning Hundaræktar-
félagsins var um helgina.
Brynja Tomer fylgdist með.
Morgunblaðið/Jón Svavarsson
Ágústa Pétursdóttir fædd 1991 varð hlutskörpust ungra sýnenda í eldri
flokki. Með henni á myndinni er dómarinn Hans Åke Sperne og ameríski
Cocker Spaniel-hundurinn Gull-Gæfu Wet N Vild.
Morgunblaðið/Jón Svavarsson
Besti hundur sýningarinnar var að þessu sinni Whippet-tíkin Courtborne
Keyzers Arwen sem keppti sem ungliði, en eigandi hennar er Gunnur Sif
Sigurgeirsdóttir sem jafnframt er á myndinni.
Höfundur er áhugamaður um hundarækt.
FJÓRIR nemendur landskeppninnar
í efnafræði, sem fram fór í febrúar
sl., voru valdir til að keppa fyrir
hönd Íslands á 37. Ólympíuleikunum
í efnafræði sem fara fram í Taívan
dagana 16.–25. júlí í sumar. Þeir eru:
Tomasz Halldór Pajdak, Arnar Þór
Stefánsson, Hildur Knútsdóttir og
María Óskarsdóttir.
Jakob Tómas Bullerjahn getur
ekki verið með þar sem hann verður
orðinn tvítugur í sumar, en kepp-
endur á ólympíuleikunum verða að
vera yngri en 20 ára. Inga Steinunn
Helgadóttir ákvað að taka heldur
þátt í Ólympíuleikunum í stærðfræði
og Þórey María Maríusdóttir tekur
þátt í Ólympíuleikunum í eðlisfræði.
Í júní og júlí verður ólympíuliðið í
tveggja vikna þjálfun í Háskóla Ís-
lands fyrir Ólympíuleikana. Tveir
þjálfarar fara með ólympíuliðinu til
Taívans, en þeir eru Finnbogi Ósk-
arsson og Gísli Hómar Jóhannesson.
Félagar úr Efnafræðifélagi Ís-
lands og Félagi raungreinakennara
höfðu umsjón með landskeppninni
en markmið keppninnar er að efla
áhuga framhaldsskólanema á efna-
fræði. Menntamálaráðuneytið veitti
styrk fyrir ferðinni til Taívans en
aðrir styrktaraðilar eru Sparisjóður
Reykjavíkur og nágrennis, Actavis,
Seðlabanki Íslands, Málning, VGK
verkfræðistofa, Sementsverk-
smiðjan, A&P Árnason, Prókaría,
Lyfjaþróun og Ensímtækni.
Ólympíuleikarnir
í efnafræði
Fyrir ríkissátta-
semjara
Í frétt blaðsins á laugardaginn var
sagt frá því að þau þrjú bæjarstétt-
arfélög sem slitu sig frá samflotsvið-
ræðum á sínum tíma hefðu náð sam-
komulagi um nýja samninga. Var
einnig tekið fram að þeir hefðu verið
samþykktir af félagsmönnum.
Hið rétta er að bæjarstéttarfélag
Hafnarfjarðar hefur náð samkomu-
lagi, sem félagsmenn hafa staðfest
en bæjarstéttarfélög Akraness og
Kópavogs náðu ekki samkomulagi
við launanefnd sveitarfélaga og hef-
ur deilu þeirra verið vísað til ríkis-
sáttasemjara.
Glaðr og reifr
skyli gumna hverr
Í minningargrein Heimis Áskels-
sonar um Ketil Högnason á blaðsíðu
24 í Morgublaðinu í gær, mánudag-
inn 27. júní, urðu tvær leiðar misrit-
anir. Önnur varð í örstuttri tilvitnun
í Hávamál. Þar átti að standa:
Glaðr og reifr
skyli gumna hverr
unz sinn bíðr bana
Hin villan var í tilvitnun í Hómer.
Þar átti að standa: „En hvort
heldur okkur þykja orð Hómers
um að hinir ódauðlegu guðir muni
„flytja þig til hins Elysiska vallar“
við hæfi eða við tökum undir inn-
gangsorð hinnar íslezku Hóm-
ilíubókar um að „Fögnuður verður
þessa heims sá hæstur er góður
maður fagnar engla tilkvomu á
dauðastund sinni“, er víst að
minningin lifir um góðan dreng.“
LEIÐRÉTT
♦♦♦