Morgunblaðið - 28.06.2005, Qupperneq 49

Morgunblaðið - 28.06.2005, Qupperneq 49
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 28. JÚNÍ 2005 49 NÝJASTA plata Ölvis, The Blue Sound, sem kom út fyrir stuttu á Resonant í Englandi hefur verið að fá glimrandi dóma í erlendum blöð- um og netmiðlum. Gagnrýnandi Uncut segir plötuna vera stórt stökk frá fyrri plötu tón- listarmannsins og spáir henni mikl- um vinsældum innan ákveðins hóps jaðartónlistarunnenda. Að sjálf- sögðu þykir flestum þeim sem rita um plötuna merkilegt að á henni leiki tveir af meðlimum Sigur Rósar, þeir Orri Dýrason og Georg Holm sem og María Huld Markan Sigfús- dóttir úr Aminu en þeir gera sér vís- ast ekki grein fyrir íslenskum tón- listarveruleika. Á plötunni er einnig að finna Jóel Pálsson, Helga Sv. Helgason, Prince Valium og Arnar Geir Ómarsson sem auk þess að leika á trommur hannar umslag plötunnar, sem er (að mati undirrit- aðs) mjög smekklegt og vandað. Móðgandi hátt diskaverð Örlygur segist vera mjög ánægð- ur með viðtökurnar, sérstaklega í ljósi þess að það sé ekki mikið fjöl- miðlabatterí á bak við hann. Plöt- unni verður ekki dreift á Íslandi og segir Örlygur ástæðuna einfaldlega vera þá að diskaverð hér á landi sé ónáttúrulega hátt. „Þetta er algjör móðgun, bæði við tónlistarmenn og tónlistarunnendur. Ég bendi fólki á að versla frekar í gegnum netið. Ef farið er inn á www.resonantlabel.com er til dæmis hægt að fá plötuna á 1700 kr. með sendingarkostnaði inniföldum. Það munar um minna.“ Næstu tónleikar Ölvis verða 20. júlí á Gauki á Stöng. „Ég stefni á að fara út og fylgja plötunni eftir en það er erfitt að finna tíma þegar maður er bæði í vinnu og skóla.“ Tónlist | Örlygur Þór Örlygsson sendir frá sér plötu Ölvis fær glimrandi dóma Ljósmynd/Bjarni og Kiddi Örlygur Þór Örlygsson, eða Ölvis eins og hann nefnir sig, er mikill útivistarmaður. Eftir Höskuld Ólafsson hoskuldur@mbl.is A LOT LIKE LOVE kl. 3.45 - 6 - 8.15 - 10.30 HITCHHIKER´S GUIDE... kl. 8 - 10.10 SVAMPUR SVEINSSON m/ísl.tali. kl. 4 ÁLFABAKKI BATMAN BEGINS kl. 5.10 - 6.30 - 8.10 - 9.30 - 11 B.i. 12 ára. HOUSE OF WAX kl. 10.30 B.i. 16 ára. THE WEDDING DATE kl. 8 THE ICE PRINCESS kl. 6 KRINGLAN BATMAN BEGINS kl. 8 - 10.40 A LOT LIKE LOVE kl. 8 MR. AND MRS. SMITH kl. 8 - 10.15 BATMAN BEGINS kl. 5.30 - 8 - 10.30 A LOT LIKE LOVE kl. 6 CRASH kl. 8 - 10 AKUREYRI KEFLAVÍK    BATMAN EINS OG ÞÚ HEFUR ALDREI SÉÐ HANN ÁÐUR ! frumsýnd 29.júní SAMBÍÓIN Álfabakka Keflavík og HÁSKÓLABÍÓ fr sý .j í Í I lf fl ví Í Nýr og miklu betri leðurblökumaður. H.L. / Mbl. Loksins, Loksins  M.M.M / Xfm 91,9  Kvikmyndir.is Gleymdu hinum. Þetta er alvöru Batman Ó.Ö.H / DV Gleymið öllum hinum Batman myndunum. Þessi er málið Andri Capone / X-FM 91,9 Þórarinn Þ / FBL  D.Ö.J. / Kvikmyndir.com “Einn af stærstu smellum ársins.”  B.B. Blaðið H.B. / SIRKUS     BATMAN BEGINS kl. 3.20 - 4 - 5 - 6.20 - 7 - 8 - 9.20 - 10 BATMAN BEGINS VIP kl. 5 - 8 THE WEDDING DATE kl. 6 25.06. 2005 7 4 9 2 6 2 1 0 2 8 9 11 15 18 36 14 22.06. 2005 2 3 23 30 32 45 17 47 14 VÁKORT Eftirlýst kort nr. 4539-8618-0017-6940 4741-5200-0012-5404 Afgreiðslufólk, vinsamlegast takið ofangreind kort úr umferð og sendið VISA Íslandi sundurklippt. VERÐLAUN kr. 5000 VISA ÍSLAND Álfabakka 16, 109 Reykjavík. Sími 525 2000. Fulltrúa Íslands í fegurðar-samkeppninni Miss Intercont- inental, Ingunni Sigurpálsdóttur, er spáð góðu gengi í keppninni. Í net- kosningu um hvaða stúlka muni bera sigur úr býtum og hefur Ingunn ver- ið með flest atkvæði þeirra sem taka þátt síðan á föstudag. Ingunn hefur hlotið 21,8% atkvæða en í öðru sæti er bandaríska stúlkan með 18,5% at- kvæða en rúmlega 60 stúlkur keppa til úrslita 29. júlí. Keppnin fer fram í Kína og heldur Ingunn utan 9. júlí. Kosningin fer fram á www.miss- intercontinental.com en hægt verður að fylgjast með undirbúningi Ing- unnar á heimasíðu Fegurðar- samkeppni Íslands, www.ungfru- island.is.    Keflvíska rokksveitin Deep Jimiand the Zep Creams hefur ver- ið vakin úr dvala. Sveitin kom óvænt fram sem gestahljómsveit á tónleikum með Brain Police á Gauknum síðasta föstudag og nú hefur hún ákveðið að halda sína eigin tónleika. Fólk folk@mbl.is Deep Jimi and the Zep Creams.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.