Morgunblaðið - 28.06.2005, Side 16

Morgunblaðið - 28.06.2005, Side 16
Ólafsvík | Óli Freyr sem er 6 ára gamall var að sýna vini sín- um, Emanúel, sem er tveimur árum yngri, hvað hann er klár á hjólabretti á pallinum í Ólafsvík. Emanúel virtist hafa meiri áhuga á sleikipinnanum en að sjá tilþrifin hjá vininum. Óli Þór lét það ekki á sig fá og einbeitti sér að því að ná sem mestri leikni á hjólabrettinu og var orð- inn sveittur og þreyttur áður en yfir lauk. Það fer ekkert á milli mála að hann ætlar sér að ná ár- angri í greininni. Morgunblaðið/Alfons Áhugalítill vinur Hjólabretti Akureyri | Suðurnes | Austurland | Landið Minnstaður Höfuðborgarsvæðið Brjánn Jónasson, brjann@mbl.is, sími 569-1100. Suðurnes Helgi Bjarnason, helgi@mbl.is, sími 569-1310 og 669-1310. Akureyri Margrét Þóra Þórsdóttir, maggath@mbl.is og Kristján Kristjánson, krkr@mbl.is, sími 461-1600. Vesturland Ásdís Haraldsdóttir, asdish@mbl.is, sími 898-5258. Austurland Steinunn Ásmundsdóttir, aust- urland@mbl.is, sími 669-1115. Árborgarsvæðið og Landið Helgi Bjarnason, helgi@mbl.is, sími 569-1310 og 669-1310 og Guðrún Aðalsteinsdóttir, frett@mbl.is, sími 569-1290. Mínstund frett@mbl.is Nú þegar sól er hæst á lofti og „nóttlaus voraldar veröld“ ríkir í Skagafirði, eins og um allt land, virðist sem mannlífið fái mýkri og mildari svip og viðmót. Gömul deilumál sem þóttu nær óleysanleg fyrir örfáum vik- um leysast upp og hverfa rétt eins og þau hafi aldrei verið til. Fjölmiðlar hafa verið iðnir við að flytja fréttir af mörgum ásteyt- ingarefnum innan sveitarstjórnar Skaga- fjarðar, og jafnvel látið að því liggja að allt samstarf innan þess hóps sé í uppnámi. Hins vegar brá svo við fyrir rúmri viku að sá hópur manna sem veit fátt veit betra og skemmtilegra en þeysa um á vélfákum heimsótti Skagafjörð, og nú brá svo við að bæði sveitarstjóri og forseti sveitarstjórnar áttu hvor í sínum bílskúr, gljáfægðan krómi sleginn gæðing, og meira að segja leður- galla. Íklæddir öllum öryggisgræjum óku þeir svo í fylkingarbrjósti nokkurra kíló- metra langrar skrúðreiðar frá Varmahlíð til Sauðárkróks. Þykir nú öllum sýnt, ef koma upp ágreiningsmál innan sveitarstjórnar muni þessir tveir beisla fákana að fornum sið og þeysa út í náttúruna þar sem leysa má öll deilumál fjarri erli hversdagsins.    Náðst hefur sátt innan stjórnar hins gamla Sparisjóðs Hólahrepps og er þar nú allt ein kærleikskeðja, að vísu þurfti Hæsti- réttur aðeins að koma að málinu og gefa góðar leiðbeiningar, en það er annað mál.    Um helgina var haldinn árlegur kaþólskur dagur á Hólum, sem að þessu sinni var helgaður minningu um Guðmund biskup góða Arason sem sat Hóla 1203 til 1237 og varð umtalaður fyrir guðrækni sína og góð- vild. Að vísu ríkti ekki alltaf sátt um ákvarð- anir þessa ágæta biskups, og átti hann meira að segja aðild að einni af þeim stór- orrustum sem háðar voru á þrettándu öld- inni og því ekki ólíklegt að hann hefði getað fundið sig jafnvel í nútímanum, ef þannig hefði staðið á. Fjöldi fólks lagði leið sína heim til Hóla og hlýddi á dr. Stefán Karls- son handritafræðing, ásamt ýmsum fleirum fjalla um Guðmund góða og Hauk Guð- laugsson leika á orgel kirkjunnar. Úr bæjarlífinu SKAGAFJÖRÐUR EFTIR BJÖRN BJÖRNSSON FRÉTTARITARA Snorrastofa í Reyk-holti stendur fyriropnum fyrirlestri um fornleifarannsóknir í Reykholti í kvöld klukkan 20.30 í Bókhlöðusal stofn- unarinnar. Guðrún Svein- bjarnardóttir fornleifa- fræðingur mun fjalla um stöðu rannsóknanna, en erindið er liður í röð Fyr- irlestra í héraði. Fornleifauppgreftr- inum hefur miðað vel áfram og hefur komið í ljós fjöldi merkilega minja, ekki hvað síst í þeim kirkjugrunni, sem haldið var áfram að rann- saka nú í sumar, segir í fréttatilkynningu frá Snorrastofu. Guðrún Sveinbjarnardóttir er verkefnisstjóri þeirra fornleifarannsókna sem fram hafa farið í Reykholti undanfarin ár. Fyrirlesturinn er öllum opinn. Reykholts- rannsókn Sparisjóður Mýra-sýslu flutti síðast-liðinn föstudag í nýtt húsnæði við Digra- nesgötu. Húsið sem er 1.200 fm á þremur hæð- um og afar glæsilegt, blasir við þegar ekið er yfir Borgarfjarðarbrúna og inn í Borgarnes. Af því tilefni var opið hús á sunnudaginn fyrir Borg- nesinga og nærsveitunga, þar sem kostur gafst á að skoða húsakynni, máta betri sætin og njóta veit- inga í boði Sparisjóðsins. Sparisjóðurinn hefur eflst á síðustu árum og fram hefur komið að síð- asta ár var það besta í sögu sjóðsins. Sparisjóð- urin hefur selt Borgar- byggð sparisjóðshúsið við Borgarbraut og verður það gert að ráðhúsi. Morgunblaðið/Guðrún Vala Elísdóttir Skoða nýtt hús SPM Sigrún Haraldsdóttirhorfði á lúp-ínufláka í fullum blóma: Iðjusemi aldrei brást auðnir lífi gæddi. Blómið sinni bláu ást bera melinn klæddi. Húsið sem hún býr í stendur á blárri brekku- brún nærri Rauðavatni og segir hún lúpínuna fara vel við vatnið: Glóey vösk á vatnið skín, vekur morgunblæinn. Himinbláa brekkan mín býður góðan daginn. Kristján Bersi Ólafsson hefur illan bifur á lúp- ínunni sem „veður yfir allt og eirir engu“: Lúpínuna lofa ég vart, landsins gróðri hún eyðir. „Smávini fagra, foldarskart“ fyrst af öllu hún deyðir. Halldór Blöndal var á ferð um Rangárvallasýslu og þótti lúpínan of áber- andi í landslaginu: Það er sagt í hálfum hljóðum sem haft er eftir konum fróð- um að labbi um með land í skjóð- um lúpínan á Njáluslóðum. Af lúpínu pebl@mbl.is Borgarnes | Uppsetningu á eimi til fram- leiðslu á sérstöku gæðavodka er nú að ljúka í vínblöndunarstöð Ölgerðar Egils Skallagrímssonar hf. í Borgarnesi. Hér er um að ræða afar vandaðan og dýran búnað, að því er fram kemur á vef blaðsins Skessuhorns. Undanfarið hefur verið unn- ið að hækkun hússins að hluta eða þar sem nýi eimirinn er undir. Til þessa hefur farið fram vínblöndun í stöðinni en nú á að framleiða sérstakt gæðavodka og miðað sérstaklega við er- lenda markaði en um 70% af núverandi framleiðslu er flutt út. Kristmar Ólafsson framkvæmdastjóri segir blaðinu að stefnt sé að því að þessi nýi drykkur verði mark- aðshæfur í september. Hefja fram- leiðslu á vodka Blönduós | Bæjarráð Blönduósbæjar hefur samþykkt bókun þar sem átalið er vinnu- ferli við ákvörðun um staðsetningu nýs veiðihúss Veiði- félags Blöndu og Svartár og skorað á stjórn Veiði- félagsins að end- urskoða ákvörðun sína. Húsið verður byggt á Hólabæ í Langadal en einn- ig voru kröfur um að byggja það við Blönduós, við að- alveiðisvæði Blöndu. Fram kemur í bókun bæjarráðs að það hafi lýst vilja sínum til að útvega lóð fyrir veiðihús í nágrenni við veiðisvæði 1 í Blöndu og staðsetja húsið í samvinnu við stjórn Veiðifélagsins. Stjórnin hafi ekki séð ástæðu til að svara því erindi. Bæjarráðið átelur vinnubrögð við ákvörðun um staðarval veiðihússins og tel- ur þau hafa verið ófagleg. Vakin er athygli á því að kynningargögn og undirbúningur fyrir þessa miklu fjárfestingu hafi verið ábótavant. Fram kemur að um er að ræða fjárfestingu upp á hundruð milljóna kr. Átelja vinnu- brögð við staðsetningu veiðihúss ♦♦♦

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.