Morgunblaðið - 28.06.2005, Side 13

Morgunblaðið - 28.06.2005, Side 13
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 28. JÚNÍ 2005 13 VIÐSKIPTI/ATHAFNALÍF ÞETTA HELST ... VIÐSKIPTI ● HLUTABRÉFAVIÐSKIPTI námu 2,2 milljörðum króna í Kauphöll Íslands í gær og hækkaði Úrvalsvísitalan um 0,3% í 4.126 stig. Mest hækkuðu hlutabréf í Burðarási í verði, um 1,3% og fóru í 15,30 krónur en verð hlutabréfa í Flögu lækkaði mest, um 2,3% í 3,90 krónur. Burðarás hækkar og Flaga lækkar ● PÓST- og fjarskiptastofnun hefur gengið að tilboðum Ríkisútvarpsins og 365 ljósvakamiðla ehf. í UHF-tíðnir fyrir stafrænt sjónvarp á landsvísu en tíu rásir voru boðnar út til útsendinga. Einungis þessi tvö fyrirtæki lögðu fram tilboð. Ríkisútvarpið fær út- hlutað þremur rásum og verður ein rásanna alfarið notuð til að dreifa háskerpusjónvarpi. 365 ljós- vakamiðlar ehf. fá úthlutað tveimur rásum. Bjóðendum var gert skylt, samkvæmt útboðslýsingu, að tryggja að uppbygging á dreifikerfi til 98% landsmanna yrði lokið innan tveggja ára. Tilboð beggja fyrirtækja þóttu uppfylla skilyrði um útbreiðslu send- inga og þjónustu við notendur og var því gengið að þeim báðum. Úthlutað fimm rásum fyrir stafrænt sjónvarp ● ÁHUGI fjárfesta í Noregi hefur vaknað á félögum í norsku fiskeldi að undanförnu. Ástæðan er hag- stæðara rekstrarumhverfi félaga í greininni, að því er segir í Morg- unkorni Íslandsbanka. John Fredriksen, ríkasti maður Noregs, keypti tæplega helmings eignarhlut í Pan Fish fyrir um átta milljarða íslenskra króna fyrr í þess- um mánuði og þóttu það mikil tíð- indi. Nýverið festi hann einnig kaup á fjórðungshlut í Fjord Seafood og annar fjárfestir, Jens Ulltveit-Moe, keypti 11% hlut í félaginu, segir í frétt Íslandsbanka. „Fiskeldisfélög í Norsku Kauphöll- inni hafa átt erfitt uppdráttar und- anfarin ár. Afkoman hefur verið léleg sökum lágs afurðaverðs á mörk- uðum. Gengi félaganna hefur þannig lækkað talsvert á síðastliðnum ár- um. Á þessu ári hefur verð á laxa- afurðum hins vegar hækkað um 25% auk þess sem ESB samdi ný- lega við Norðmenn um lágmarksverð á afurðum sem fluttar eru inn til landa sambandsins. Þetta hefur vakið áhuga fjárfesta á félögunum.“ Fjárfesta í norsku fiskeldi ● BOOKER-verslunarkeðjan er í fjórða sæti á lista breska blaðsins The Sunday Times yfir hundrað stærstu einkafyrirtæki á Bretlandseyjum sé miðað við sölutölur þeirra, líkt og gert er á lista Forbes and Fortune í Banda- ríkjunum. Velta Booker í fyrra nam tæplega 3.400 milljónum punda eða liðlega 400 milljörðum íslenskra króna en Booker-keðjan er ný á listan- um yfir stærstu fyrirtækin eftir að Baugur keypti Big Food Group, af- skráði það úr Kauphöllinni, og skipti félaginu í tvö félög, Booker og Ice- land. Debenhams-verslunarkeðjan er í níunda sæti á listanum með 1,9 milljónir punda í veltu en Iceland lend- ir í 21. sæti á listanum með veltu upp á 1.472 milljónir punda, jafngildi um 175 milljarða íslenskra króna. Veðmálafyrirtækið Coaral Eurobet er efst á listanum með 5.400 millj- arða punda veltu. Booker fjórða stærsta fyrirtækið í Bretlandi GREININGARDEILDIR bankanna spá 0,3 til 0,5% hækkun á vísitölu neysluverðs í júlí. Það þýðir að verð- bólga á 12 mánaða grundvelli verður 3,6 til 3,8%. Verðbólgan í júní er 2,8%. Gangi spárnar eftir mun verðbólga nálgast efri þolmörk verðbólgumark- miðs Seðlabankans, sem er 4%. Íslandsbanka spáir mestri hækkun vísitölu neysluverðs í júlí, eða 0,5%. Gangi sú spá eftir mun 12 mánaða verðbólgan hækka um eitt prósentu- stig á einum mánuði og fara í 3,8%. Henný Hinz, verkefnisstjóri verðlags- eftirlits Alþýðusambands Íslands, seg- ist geta tekið undir þessa spá Íslands- banka. Helstu forsendur þessarar spár Ís- landsbanka eru hækkun matvæla- verðs, hækkun íbúðaverðs og hækkun eldsneytisverðs í júní. Útsölur á fatnaði og skóm muni lækka vísitöluna en þær nái þó ekki að koma í veg fyrir miklar hækkanir á öðrum liðum. Um mánaða- mótin mun svo dísilolía hækka veru- lega með upptöku olíugjalds og mun það hafa áhrif til nokkurrar hækkunar, að mati bankans. Landsbanki Íslands spáir 0,4% hækkun vísitölunnar. Forsendur þeirr- ar hækkunar eru fyrst og fremst hækkun á eldsneytisverði og hækkun á fasteignaverði en samkvæmt tölum frá Fasteignamati ríkisins hækkaði fast- eignaverð í maí um 3,8%. Bankinn reiknar þó ekki með svo mikilli hækk- un í júlí. KB banki reiknar með 0,3% hækkun á vísitölu neysluverðs í júlí en það þýðir að 12 mánaða verðbólga fer úr 2,8% í 3,6%. Bankinn segir að svo virðist sem tímabundin hjöðnun verðbólgunnar í kjölfar breytinga á útreikningi vísitölu neysluverðs og verðstríðs á matvöru- markaði sé á enda runnin og verðbólg- an sé aftur að síga að efri þolmörkum verðbólgumarkmiðs Seðlabankans. Ástæða mikillar hækkunar 12 mánaða verðbólgu á milli mánaða er sögð liggja í óvenju lágri verðbólgumælingu í júlí í fyrra og nokkuð miklum hækkunum á matvælaverði og húsnæðisverði nú. Áhrif verðhækkana á olíu á verðlag í landinu segir KB banki verða minni en ætla mætti. Hagstofa Íslands mun birta vísitölumælingu í júlí hinn 12. júlí. Bankarnir spá 3,6 til 3,8% verðbólgu í júlí Morgunblaðið/Árni Torfason Matvara hækkar Áhrif verðstríðsins halda áfram að ganga til baka.                     !"#$ % ÍSLANDSBANKI mun opna sölu- skrifstofu í Kaupmannahöfn næsta haust. Er það liður í áformum bank- ans um að leggja meiri áherslu á skuldsetta fjármögnun á Norður- löndunum og á óhefðbundna fjár- mögnun. Íslandsbanki hefur undanfarin ár verið virkur markaðsaðili í láns- fjármögnun skuldsettra kaupa á fyrirtækjum í Norður-Evrópu. Til viðbótar að sjá um og taka þátt í hefðbundnum lánveitingum og millilagsfjármögnun í tengslum við verkefni sem leidd eru af áhættu- fjárfestingasjóðum, hefur bankinn tekið að sér samþætta fjármögnun verkefna án aðildar áhættu- fjárfesta. Með opnun skrifstofunnar í Kaupmannahöfn verður þessi ein- ing bankans með starfsfólk í þrem- ur borgum, Reykjavík, London og Kaupmannahöfn. Fyrir utan starfsemi skuldsettrar fjármögnunar, er opnun söluskrif- stofunnar liður í að styrkja við- skiptasambönd Íslandsbanka við fyrirtæki og fjármálastofnanir á Norðurlöndunum. Millilagslánasjóð í Danmörku Íslandsbanki hefur ráðið Nikolaj W. Galskjøt til starfa innan skuldsettr- ar fjármögnunar og verður hann í Kaupmannahöfn. Hlutverk Nikolaj verður að efla uppbyggingu skuld- settrar fjármögnunar á Norður- löndunum, utan Íslands. Galskjøt starfaði áður fyrir Citibank í Ósló og London og ABN Amro í London og Kaupmannahöfn, þar sem hann vann að uppbyggingu skuldsettrar fjármögnunar á Norðurlöndunum. Að undanförnu hefur hann kannað möguleika á að stofna millilags- lánasjóð í Danmörku sem miðar að litlum og meðalstórum fyrirtækjum. Bjarni Ármannsson, forstjóri Ís- landsbanka, segir í fréttatilkynn- ingu frá Íslandsbanka að opnun söluskrifstofu í Danmörku muni styrkja viðskiptatengsl bankans við fyrirtæki og fjármálastofnanir á Norðurlöndunum og gera bank- anum kleift að veita núverandi við- skiptavinum víðtækari þjónustu. Íslandsbanki opnar skrifstofu í Kaupmannahöfn                      &!' ()"*+,#- !").()"*+,#- /..'0)()"*+,#- /*)1)2 ,#- ()"*+,#- 3()"*+,#- $ % 4%.,#- 5*+6%/%.,#- 50*%,#- 3% 4%.$ % ,#- ),#- #7) .+!,#- ,)7,#- !)**) 72)# !%)4-,#- 8 *),#-  ! "   .).1*)$ % ,#- /()%,#- +17%,#- )14")%),#- 39#!:.% 7;1*)%%,#- " &  ,"% ,#- <,)7,#- => !%!&=!)"* $ ,#- 0*1 !-,)1#)? !,-,#- @)?%1 !01%,#- A%% * !01%,#- B")-)C :4),#- # $ %  & ' * !*)4..,#-  .D?7#7)1),#- 3% 9$ % ,#- 2!*)#E *1*)%  '#- @:.#:),#- &() * FGDH 91 ! '1 .-')1            C    C    C C C  C      C C  C C C C C C C /)?!%#)2 #?))'1 .-')1 C C C C C C C C C C C C C C C C C C C C C C C C C C IJ IC  J I  J I J IC J I J C I J C I J IC J C C C C C C C C C I J C ICJ I J C C C C C C C C C C )'1 .+!  % @4"19".  5*+  - - - - - - -   - C - - -  C - - - C C C C -   - -  C C  C C C C C C C                    C           C                  C         C    C  C  A1 .+!96K -.)- @-L!,**%) ! 70 '1 .+!      C   C   C C C  C   C C C C C C C C C @-CM' *2#),% 0*,*!#72)- @-C .?!17#)?#)!0.*!4-,#*) !"#% !- @-C A%#?))')*#72)0%*%#E - @-C141%K!#%-  N O=        @ D P      GG P       5 P ..         FGDP "Q "%        

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.