Morgunblaðið - 28.06.2005, Qupperneq 15

Morgunblaðið - 28.06.2005, Qupperneq 15
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 28. JÚNÍ 2005 15 ERLENT Frábær ferðaleikur fyrir al la f jölskylduna omdu við á næstu Olís-stöð, fáðu stimpil í Ævintýrakortið og ævintýraglaðning! Yf ir 10 00 gl æ sil eg ir vi nn in ga r! IBRAHIM Jaffari, forsætisráðherra Íraks, kvaðst í gær þeirrar hyggju að taka myndi tvö ár að tryggja öryggi í Írak. Á sunnudag lét Donald Rums- feld, varnarmálaráðherra Bandaríkj- anna, í ljós það mat að slíkt gæti tekið allt að tólf ár. „Tvö ár munu nægja og meira en það til að tryggja öryggi í landi okk- ar,“ sagði íraski forsætisráðherrann á blaðamannafundi í Lundúnum. Hvatti hann nágrannaþjóðir Íraka til að herða eftirlit á landmærum sínum til að greiða fyrir því að takast mætti að sigrast á uppreisnarmönnum í landinu. Donald Rumsfeld, varnarmálaráð- herra Bandaríkjanna, sagði í sjón- varpsviðtali á sunnudagskvöld að mörg ár kunni að líða þar til tekist hafi að sigrast á skæruliðum í Írak. Í máli ráðherrans kom fram það mat að her- og lögreglusveitir Íraka myndu á endanum brjóta uppreisnina á bak aftur frekar en að erlendu her- liði í landinu tækist það. Í viðtalinu, sem Fox-sjónvarpsstöðin sýndi, sagði Rumsfeld: „ Slíkar uppreisnir hafa til- hneigingu til að vara í fimm, sex, átta, tíu, tólf ár. Erlendu hersveitirnar í landinu munu ekki berja niður upp- reisnina. Við ætlum að skapa aðstæð- ur sem gera írösku þjóðinni og írösk- um öryggissveitum kleift að sigrast á uppreisnarmönnunum.“ Rumsfeld kvaðst ennfremur óttast að ný bylgja ofbeldis- og óhæfuverka myndi ríða yfir fyrir kosningar sem fram eiga að fara í Írak í desem- bermánuði. Nýjar skoðanakannanir sýna að stuðningur við innrásina í Írak hefur minnkað verulega í Bandaríkjunum að undanförnu. Rumsfeld sagði mik- ilvægt að bandaríska þjóðin stæði að baki valdhöfum vestra í þessu efni en bætti við að óráðlegt gæti verið að taka skoðanakannanir of bókstaflega. „Taki menn að eltast við skoðana- kannanir verða þeir fljótt sjóveikir.“ Rúmlega 1.000 manns, langflestir Írakar, hafa týnt lífi í landinu frá því að ríkisstjórn heimamanna tók við völdum í aprílmánuði. „Tvö ár nægja til að tryggja öryggi í Írak“ Donald Rumsfeld segir að erlent her- lið muni ekki sigrast á skæruliðum SPÆNSKI nautabaninn Andy Garcia ríður hesti í bar- daga við tryllt naut. Nautaat hefur verið stundað á Spáni frá seinni hluta 17. aldar. Nautabaninn er yfirleitt fótgangandi og er þá kallaður torreador. Þegar nautabaninn situr hest er hann hins vegar kallaður rejoneador. Reuters Maður og naut í trylltum dansi Manila AFP. | Gloria Arroyo, forseti Filippseyja, baðst í gær afsökunar er hún viðurkenndi að hún hefði hringt í fulltrúa kjörstjórnar þegar kosningar fóru fram í maímánuði í fyrra. Hún kvaðst hins vegar ekki hafa gerst sek um tilraun til að hagræða úrslitunum. Arroyo lét þessi orð falla í sjón- varpsávarpi í gær en mjög hefur verið þrýst á hana um að hún segi af sér vegna ásakana um að hún hafi leitast við að tryggja kjör sitt með ólögmæt- um hætti. Fyrir um þremur vikum kom fram hljóðupptaka þar sem kvenrödd heyrist ræða við mann sem talinn er fulltrúi í kjörstjórn Filipps- eyja sem er sjálfstæð stofnun og starfar án afskipta stjórnvalda. Virð- ist konan leitast við að fá manninn til að breyta tölum úr forsetakosningun- um. Arroyo viðurkenndi að hún hefði hringt í manninn en staðfesti raunar ekki með afdráttarlausum hætti að röddin á upptökunni væri hennar. Sagði hún tilganginn með símtalinu á hinn bóginn ekki hafa verið þann að hafa áhrif á niðurstöðu kosninganna. Hún hefði hringt í fjölmarga á kjör- dag. Hún játaði hins vegar að hún hefði gerst sek um „dómgreindar- brest“ með því að hringja í fulltrúann. „Mér þykir þetta leitt. Ég iðrast þess einnig að hafa ekki gert ykkur grein fyrir þessu fyrr,“ sagði Arroyo. Kvaðst hún bera fulla ábyrgð á gjörð- um sínum. Arroyo hafnaði hins vegar kröfum um afsögn og lagði áherslu á að þegar hún hefði hringt í fulltrúa kjörstjórn- ar hefði legið fyrir af hálfu erlendra eftirlitsmanna að kosningarnar hefðu farið fram samkvæmt settum reglum. Þá hefðu úrslitin og verið í samræmi við kosningaspár. Skoðanakannanir sýna að fylgi við Arroyo fer ört minnkandi á Filipps- eyjum. Auk ásakana um kosninga- svindl halda andstæðingar hennar því fram að ættmenni hennar hafi þegið mútur af mönnum sem reka jueteng, ólöglegt en vinsælt form fjárhættu- spils sem um margt minnir á lottó. Þá glíma Filippseyingar við erfiðan efnahagsvanda nú um stundir sem ekki hefur orðið til þess að auka vin- sældir forsetans. Arroyo viðurkennir „dómgreindarbrest“ Fylgi við ESB-aðild minnkar í Noregi ANDSTAÐA við mögulega aðild að Evrópusambandinu (ESB) fer enn vaxandi í Noregi. Er nú svo komið að meirihluti stuðningsmanna Verka- mannaflokksins, sem einna ákafast hefur mælt fyrir aðild, er andvígur henni. Ofanritað kemur fram í nýrri skoðanakönnun sem norska dag- blaðið Nationen greindi frá í gær. Samkvæmt henni hefur munurinn á fylkingunum aldrei verið svo mikill sem nú. Rúmlega 51% kjósenda er andvígt aðild Noregs að sambandinu en 36% hlynnt. Stuðningur við aðild fer einnig ört minnkandi innan Verkamannaflokksins og hefur fylg- ið raunar ekki mælst minna frá árinu 2002. Frá því í maímánuði hefur stuðningur við aðild dregist saman um 17 prósentustig. 47% stuðnings- manna flokksins myndu nú hafna að- ild í þjóðaratkvæðagreiðslu en 36% samþykkja hana. Fylgismönnum hefur fækkað hvarvetna í landinu nema í norðurhlutanum og í Ósló og Akershus. Ashkeleon í Ísrael. AFP. | Ísraelskur hermaður var í gær fundinn sekur um manndráp er breski aðgerða- sinninn Tom Hurndall fékk byssu- kúlu í höfuðið þegar hann sinnti hjálparstarfi á Gaza-svæðinu fyrir tveimur árum. Taysir Wahid, fyrrum liðþjálfi, var fundinn sekur um manndráp af her- dómstóli nærri borginni Ashkelon í suðurhluta landsins. Hurndall, sem var 22 ára gamall, var við sjálfboðaliðsstörf í Palestínu á vegum International Solidarity Movement (ISM), hreyfingar sem haldið hefur uppi hjálparstarfi og stuðningi við málstað Palestínu- manna. Hurndall fékk byssukúlu í höfuðið er hann var við störf í Rafah-flótta- mannabúðunum á Gaza-svæðinu í apríl 2003. Hann hlaut miklar heila- skemmdir af völdum skotsins og lést í London í janúarmánuði 2004. Palestínskir læknar og vitni sögðu að Hurndall hefði verið klæddur jakka sem merktur var ISM. Mun hann hafa verið að koma tveimur palestínskum börnum til hjálpar þegar byssukúlan hæfði hann. Wahid var fundinn sekur um sex ákæruatriði, m.a. að hafa leitast við að hindra framgang réttvísinnar, lygar fyrir rétti og framgöngu sem ekki sæmi hermanni auk mann- dráps. Ísraelski liðþjálfinn hélt því í fyrstu fram að Hurndall hefði hafið skothríð og því hefði verið um sjálfs- vörn að ræða. Þennan framburð dró hann til baka og viðurkenndi að hafa skotið í áttina að óvopnuðum borg- ara. Dómur verður kveðinn upp 5. næsta mánaðar. Sekur um mann- dráp á Gaza Reuters Taysir Hayb eftir að hann var fund- inn sekur um morð.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.