Morgunblaðið - 28.06.2005, Side 41
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 28. JÚNÍ 2005 41
DAGBÓK
Ámiðvikudaginn hefst ráðstefna um hús-næðis- og borgarmál í Háskóla Íslands.Magnús Árni Skúlason, dósent og for-stöðumaður Rannsóknarseturs í hús-
næðismálum við Viðskiptaháskólann Bifröst, er í
undirbúningsnefnd ráðstefnunnar: „‘Housing in
Europe: New Challenges and Innovations in To-
morrow’s Cities’ er fjölþjóðleg ráðstefna um hús-
næðis- og borgarmál á vegum European Network
for Housing Research sem eru þverfagleg samtök
háskólafólks um húsnæðismál á breiðum grunni,“
sagði Magnús um ráðstefnuna. „Að ráðstefnunni
hér á landi standa Borgarfræðasetur Háskóla Ís-
lands og Rannsóknarsetur í húsnæðismálum við
Viðskiptaháskólann Bifröst í samvinnu við Íbúða-
lánasjóð og félagsmálaráðuneytið. Ráðstefnan
verður haldin Öskju, náttúrufræðihúsi Háskóla Ís-
lands, dagana 29. júní til 2. júlí, en við áætlum að
um 300 manns sæki ráðstefnuna.“ sagði hann.
Aðspurður um áherslur ráðstefnunnar sagði
Magnús: „Á ráðstefnunni verður leitast við að
draga fram hvernig stefnumótun í húsnæðismálum
er að verða æ þýðingarmeiri fyrir heildarþróun
borga hvarvetna í heiminum, en sú umræða á sér
alls staðar stað, ekki einungis hér á landi.“
Að sögn Magnúsar er ráðstefnan sú 16. í röð fjöl-
þjóðlegra húsnæðis- og borgarmálaráðstefna sem
ENHR, European Network for Housing Research,
hefur staðið að frá og með árinu 1988. „Við áætlum
að fjöldi þátttakenda verði um 300, en meginhluti
þátttakenda kemur frá Evrópulöndum.“
Á ráðstefnunni verða kynntar um 200 rannsókn-
argreinar í alls 13 málstofum og 8 lykilfyrirlesarar
munu flytja pallborðserindi. Í einni málstofunni
verður t.d. fjallað um sjálfbæra þróun borgar-
umhverfis og húsnæðis í borgum; þar sem kynntar
verða um 25 rannsóknargreinar.
Magnús segir að ýmislegt áhugavert sé í boði
ráðstefnudagana: „Það er mjög spennandi ráð-
stefnudagur föstudaginn 1. júlí, en þá mun John M.
Quigley, prófessor við Berkeley-háskóla í Banda-
ríkjunum, halda fyrirlestur sem ber nafnið ‘How to
Improve the Welfare of European Housing Con-
sumers at Practically no Cost’. John M. Quigley er
einn virtasti hagfræðingur á sviði húsnæðisrann-
sókna í Bandaríkjunum. Einnig mun Edda Rós
Karlsdóttir, yfirmaður greiningardeildar Lands-
banka Íslands, fjalla um breytingar í fjármögnun
húsnæðis á Íslandi. Jóhann G. Jóhannsson, yfir-
maður áhættu- og fjárstýringar Íbúðalánasjóðs,
fjallar um mikilvægi Íbúðalánasjóðs fyrir íslenskan
fjármálamarkað og Margrét Hauksdóttir, aðstoð-
arforstjóri Fasteignamats ríkisins, mun fjalla um
mikilvægi fasteignaskráningar.“
Ráðstefna | Evrópsk húsnæðisstefna: „Áskoranir og nýjungar í borgum morgundagsins“
Magnús Árni er
fæddur í Reykjavík 31.
janúar 1969. Magnús
lauk stúdentsprófi frá
Menntaskólanum í
Reykjavík 1989, BS-
prófi í hagfræði frá Há-
skóla Íslands 1992 og
meistaraprófi í hag-
fræði frá sama skóla
1996. Lauk meist-
araprófi í viðskipta-
fræðum frá University of Cambridge – Jesus
College 2001. Frá nóv. 2003 hefur hann verið
forstöðumaður Rannsóknarseturs í húsnæð-
ismálum við Viðskiptaháskólann Bifröst og
gegnir einnig stöðu dósents þar.
Húsnæðis- og borgarmál í Evrópu
80 ÁRA afmæli. Í dag, 28. júní,verður áttræð Svandís Ás-
mundsdóttir, Hvassaleiti 58. Hún bjó á
Bíldudal til 1971. Hún starfaði lengst í
húsgagnaversluninni Dúnu og Sölu-
miðstöð hraðfrystihúsanna. Eigin-
maður hennar er Hjálmar Ágústsson
og eiga þau þrjú börn Jakob Ágúst,
Mörthu Ásdísi og Heru.
Árnaðheilla
dagbók@mbl.is
1. e4 c5 2. Rf3 d6 3. d4 cxd4 4. Rxd4 Rf6
5. Rc3 a6 6. f3 e6 7. Be3 b5 8. g4 Rfd7 9.
Dd2 Rb6 10. O-O-O R8d7 11. Rdxb5
axb5 12. Rxb5 Re5 13. Db4 Hxa2 14.
Kb1 Ha4 15. Db3 Ha8 16. Bxb6 Dxb6
17. Rxd6+ Dxd6 18. Bb5+ Bd7 19.
Hxd6 Bxd6 20. Hd1 Hb8 21. Bxd7+
Rxd7 22. Da4 Ke7
Staðan kom upp á öflugu alþjóðlegu
móti sem lauk nýverið í Paks í Ung-
verjalandi. Sigurvegari mótsins, Zolt-
an Almasi (2628), hafði hvítt gegn
Ferenc Berkes (2617). 23. e5! Rxe5
23... Bxe5 gekk ekki upp vegna 24.
Hxd7+. 24. Hxd6! Kxd6 25. Dd4+ Ke7
26. Dxe5 hvítur hefur nú peði meira
ásamt því að hafa tvö samstæð frípeð á
drottningarvæng og dugðu þessir yf-
irburðir honum til sigurs. 26...Hhd8
27. b3 f6 28. Dc7+ Kf8 29. Kb2 Hbc8
30. Db7 e5 31. c4 Hd2+ 32. Kc3 Hcd8
33. c5 H8d3+ 34. Kc4 Hd4+ 35. Kb5
Hxh2 36. c6 Hb2 37. Da8+ Kf7 38. Da3
Hc2 39. b4 Kf8 40. Kb6 Hdc4 41. b5+
Kf7 42. Dd3 og svartur gafst upp. Vikt-
or gamli Korsnoj leiddi mótið framan
af en slæm töp hans með hvítu gegn
ungversku stórmeisturunum Berkes
og Almasi í lokaumferðunum gerðu að
verkum að hann þurfti að gera annað
sætið sér að góðu. Lokastaða mótsins
varð annars þessi: 1. Zoltan Almasi
(2628) 6½ vinning af 10 mögulegum. 2.
Viktor Korsnoj (2619) 6 v. 3. Krishnan
Sasikiran (2642) 5½ v. 4. Ferenc Berk-
es (2617) 5 v. 5.-6. Emil Sutovsky
(2665) og Peter Acs (2525) 3½ v.
SKÁK
Helgi Áss Grétarsson | dagbok@mbl.is
Hvítur á leik.
Hlutavelta Þessir duglegu krakkar,
Anna Baldursdóttir, Jón Óttarsson og
Jóna Írisardóttir, héldu tombólu til
styrktar Rauða krossi Íslands og söfn-
uðu þau kr. 530.
Óskað er eftir tilboðum í níu glæsilegar lóðir á bökkum
Úlfljótsvatns. Úlfljótsvatn er einungis um 40 km frá
Reykjavík ef farið er Nesjavalla-leið og 70 km ef farið er
yfir Hellisheiði. Í næsta nágrenni eru margar helstu nátt-
úru-perlur landsins og stutt er í alla helstu þjónustu og
afþreyingu. Um er að ræða stórar eignarlóðir, sem verða
afhentar með vegi, rafmagni og ljósleiðaratengingu auk
þess sem heitt og kalt
vatn verður lagt að lóð-
armörkum. Með lóðun-
um fylgir heimild til að
veiða og vera með bát
á vatninu. Gera þarf til-
boð í lóðirnar fyrir kl.
17:00 föstudaginn 1.
júlí 2005 á skrifstofu
Hóls, Skúlagötu 17,
Reykjavík.
Sjá nánar
á heimasíðu Hóls.
www.holl.is/lodir Sölumaður Jón Hólm 896 4761
Lúxusbyggð við
Úlfljótsvatn
1
2
3
4
5
6
7
8
9
Finn ég Finn?
TIL stendur að skrá sögu Finns
Ólafssonar, heildsala frá Fellsenda í
Dalasýslu. Finnur var fæddur 1880
og dó 1957. Hann rak heildsölu í
Reykjavík og flutti m.a. inn drátt-
arvélar og dekk. Þá er einnig áætlað
að skrifa sögu dvalarheimilisins að
Fellsenda og foreldra Finns, Ólafs
Finnssonar og Guðrúnar Tóm-
asdóttur.
Þeir sem þekktu Finn eða þekkja
til sögu hans, foreldra hans eða dval-
arheimilisins eru vinsamlegast beðn-
ir um að hafa samband við undirrit-
aða.
Með fyrirfram þökk,
Sigríður H. Jörundsdóttir,
sagnfræðingur.
Sími 899 0489/ 557 7596
og 434 1179.
sigridur.hjordis@internet.is
Sóðaskapur
í Seljahverfi
ÉG bý í Seljahverfi og geng mikið
um hverfið mitt. Sl. 2 ár hefur mér
hreinlega ofboðið sóðaskapurinn í
þessu fallega gróna hverfi. Hvernig
væri nú að við húseigendur í hverf-
inu tækjum okkur saman og gerðum
hreint í kringum húsin okkar, tækj-
um illgresi og annan ófögnuð sem er
alls staðar að vaða yfir. Ef allir taka
til í sínum garði og fyrir utan sín hús
er ég viss um að ástandið yrði allt
annað.
Stöndum saman, Seljahverfis-
búar, og bætum umhverfi okkar.
Bjarghildur.
Velvakandi
Svarað í síma 5691100 kl. 10–12
og 13–15 | velvakandi@mbl.is
Tvo ketti vantar heimili
YNDISLEGUSTU kisur í heimi,
þær Ísabella (2 ára) og sonur henn-
ar, Prins (1 árs), verða því miður að
fara af heimilinu okkar, því bæði
pabbinn á heimilinu og litla 2 ára
stúlkan okkar eru komin með bráða-
ofnæmi fyrir þeim. Það ríkir mikil
sorg á heimilinu sökum þessa og
reynum við nú allt til að finna nýtt
(ný) heimili handa þeim. Það er búið
að gelda þær báðar og fylgja öllum
settum dýralæknaheimsóknum og
eru þær eyrnamerktar. Ísabella er
grá og hvít en Prins er grábrönd-
óttur. Þær eru mjög gæfar og eru
mikið saman. Núna fá þær ekkert að
koma inn í húsið og þurfa að húka í
bílskúrnum og úti og því bráðliggur
á nýju heimili. Þeir sem gætu lið-
sinnt okkur eru beðnir að hafa sam-
band við Önnu í síma 867 1704.
Hjá Eddu útgáfu er komin út bókin
Ástargaldrar sem Rakel Pálsdóttir
og Jón Jónsson hafa
tekið saman. Bókin
kom einnig út á
ensku undir heitinu
Love Charms í þýð-
ingu Önnu Benassi.
Í kynningu um
bókina segir: „Í bók-
inni er birt úrval ást-
argaldra víða að úr Evrópu og nokkr-
ar skemmtilegar sögur af ástar-
göldrum. Sumt af því byggir á
sögulegum heimildum, en annað
eru hreinræktaðar þjóðsögur.
Allt frá örófi alda hefur það verið
helsta umhugsunarefni ungra
stúlkna og pilta hvernig þau geti
haft áhrif á hitt kynið og vakið hjá
því löngun í náin kynni. Og þegar
öll hefðbundin ráð til að heilla hitt
kynið bregðast freistast sumir til
að beita galdri, reyna að virkja
dulda krafta sér til hjálpar og fá
sjálf náttúruöflin í lið með sér.
Bókin er hugsuð til skemmtunar
og lesendum ráðlagt að umgang-
ast galdra þessa með mikilli var-
úð.“ Útgefandi ábyrgist auk þess
heldur ekki að galdrarnir virki en
heldur ekki að þeir virki ekki.
Bókin er 113 bls. Verð: 1.290
kr.
Bók
ÚTHLUTUNARNEFND fræði-
mannsíbúðar samkvæmt reglum um
Hús Jóns Sigurðssonar í Kaup-
mannahöfn hefur lokið störfum og
úthlutað íbúðinni frá 1. september
2005 til 31. ágúst 2006. Í úthlut-
unarnefndinni eiga sæti Halldór
Blöndal, forseti Alþingis, Þorsteinn
Pálsson, sendiherra Íslands í Kaup-
mannahöfn, og dr. Jakob Yngvason
prófessor. Ritari nefndarinnar er
Helgi Bernódusson, skrifstofustjóri
Alþingis. Nefndinni bárust 28 um-
sóknir að þessu sinni en ellefu fræði-
menn fá afnot af íbúðinni, sem hér
segir:
Bergljót S. Kristjánsdóttir til að
rannsaka Gerplu, svo og drótt-
kvæðar vísur, Dagný Kristjánsdóttir
til að rannsaka einkenni barnabóka.
Gunnlaugur A. Jónsson til að kanna
upphaf sögulegra biblíurannsókna á
Íslandi 1890–1920 í ljósi danskra og
skandinavískra áhrifa. Halldór Guð-
mundsson til að undirbúa rit um líf
tveggja skálda, Gunnars Gunnars-
sonar og Þorbergs Þórðarsonar.
Halldóra Jónsdóttir til að vinna við
íslensk-danska skólaorðabók. Hrafn-
hildur Schram til að kanna verk Júl-
íönu Sveinsdóttur listmálara. Krist-
ján Jóhann Jónsson til að afla efnis í
rit um Grím Thomsen – þjóðskáld og
heimsborgara. Sigríður Dúna Krist-
mundsdóttir til að rannsaka ævi og
störf Ólafíu Jóhannsdóttur. Sigríður
Matthíasdóttir til að rannsaka gögn
um þjóðernishugmyndir Jóns Aðils
sagnfræðings. Þorleifur Hauksson til
að undirbúa útgáfu Sverrissögu. Þor-
steinn Helgason til að rannsaka gögn
um Tyrkjaránið. Fræðimannsíbúðin í
Kaupmannahöfn er skammt frá
Jónshúsi, í Sankt Pauls Gade 70 og
fræðimaður hefur vinnustofu í Jóns-
húsi.
11 fræðimenn
fengu úthlutun