Morgunblaðið - 28.06.2005, Page 42

Morgunblaðið - 28.06.2005, Page 42
42 ÞRIÐJUDAGUR 28. JÚNÍ 2005 MORGUNBLAÐIÐ DAGBÓK 6 8 11 15 22 1 24 12 3 10 17 21 4 9 13 18 23 14 5 19 7 20 2 16 Krossgáta Lárétt | 1 mjög gáfaður maður, 8 skinn í skó, 9 auðan, 10 verkfæri, 11 ernina, 13 peningar, 15 skart, 18 prýðilega, 21 guð, 22 bik, 23 gælu- nafn, 24 hávaða. Lóðrétt | 2 þora, 3 synja, 4 smáa, 5 stór, 6 fjall, 7 vendir, 12 tangi, 14 ótta, 15 veiki, 16 hagnað, 17 stólpi, 18 á hverju ári, 19 áform, 20 siðar til. Lausn síðustu krossgátu Lárétt | 1 hníga, 4 hélan, 7 lauga, 8 rykug, 9 lið, 11 afla, 13 hrós, 14 gedda, 15 botn, 17 gull, 20 ull, 22 geðug, 23 jagar, 24 rammi, 25 forni. Lóðrétt | 1 helja, 2 ígull, 3 aðal, 4 hörð, 5 lýkur, 6 naggs, 10 indæl, 12 agn, 13 hag, 15 bógur, 16 tíðum, 18 urgur, 19 lerki, 20 uggi, 21 ljúf. EM á Tenerife. Norður ♠KD975 ♥ÁKD942 N/Allir ♦-- ♣52 Vestur Austur ♠3 ♠G ♥G7 ♥1086 ♦D42 ♦K109873 ♣ÁK109863 ♣DG4 Suður ♠Á108642 ♥53 ♦ÁG65 ♣7 Eyða í lit er stundum lykillinn að fal- legri slemmu, en það er nauðsynlegt að vita fyrir víst hvar eyðan er – annars getur farið illa. Spilið að ofan er frá fjórðungs- úrslitum í parasveitakeppninni á Ten- erife. Frakkarnir Catherine d’Ovidio og Philippe Cronier voru með sterku spilin í NS gegn norsku hjónunum Tonje og Boye Brogeland: Vestur Norður Austur Suður Boye B. d́Ovidio Tonje B. Cronier -- 1 hjarta Pass 1 spaði 2 lauf 3 lauf Dobl Pass 4 lauf 4 spaðar Pass 4 grönd Pass 5 grönd Pass 6 tíglar Pass 7 spaðar Allir pass Misskilningur læðist inn í sagnir og það er eyða norðurs í tígli sem er ör- lagavaldurinn. D́Ovidio opnar á hjarta og fær óvænt spaðasvar frá makker. Hún sýnir góð- an spaðastuðning með því að melda þrjú lauf ofan í innákomulit vesturs og svo þróast sagnir þannig að suður spyr um lykilspil. Svarið á fimm gröndum sýnir tvö lykilspil og eyðu til hliðar. En hvort er eyðan í tígli eða laufi? Cronier er ekki viss og ákveður að varpa ábyrgðinni á makker með vafasömum biðleik (sex lauf hefði verið spurning um tromp- drottningu, svo sex tígla sögnin sýnir ekki endilega veikleika í laufi). D́Ovidio skildi sex tígla sem leit að viðbótarstyrk og sagði því alslemmuna. Hún taldi tíguleyðuna sannaða, því með eyðu í laufi hefði verið rökrétt að stökkva í fjögur lauf (splinter) við inn- ákomu vesturs. Boye tók á laufásinn sinn í byrjun og norska sveitin vann 17 IMPa, því Erichsen-hjónin spiluðu réttilega sex spaða á hinu borðinu. BRIDS Guðmundur Páll Arnarson | dagbok@mbl.is Hrútur (21. mars - 19. apríl)  Hrúturinn verður upptekinn í félagslífinu næstu vikurnar. Allt sem viðkemur listum, gistihúsum, orlofi, afþreyingu og börnum gengur honum í haginn. Naut (20. apríl - 20. maí)  Nautið langar virkilega til þess að fegra heimili sitt þessa dagana og mun njóta þess á næstu vikum að kaupa eitthvað sem prýðir umhverfið. Bjóddu fólki í heimsókn. Tvíburar (21. maí - 20. júní)  Næstu vikur gengur allt sem viðkemur verslun og viðskiptum og samningagerð vel hjá tvíburanum. Hann á einstaklega gott með að gera sig skiljanlegan núna. Krabbi (21. júní - 22. júlí)  Krabbinn finnur til máttar síns um þessar mundir. Fjármál og verslunarferðir verða veigameiri þáttur en ella í lífi hans á næst- unni. Ljón (23. júlí - 22. ágúst)  Ljónið er enn meira aðlaðandi í augum fólks en venjulega um þessar mundir. Not- aðu tímann á næstunni og kauptu þér eitt- hvað fallegt til þess að hengja inn í skáp. Blandaðu geði. Meyja (23. ágúst - 22. sept.)  Einvera í fögru umhverfi höfðar mjög til meyjunnar þessa dagana. Hún þarfnast þess að vera í ró og næði svo hún geti ein- beitt sér að félagslífinu síðar. Vog (23. sept. - 22. okt.)  Félagslíf vogarinnar verður í miklum blóma á næstunni og hún er enn vinsælli meðal félaganna nú en áður. Þiggðu öll heimboð. Sporðdreki (23. okt. - 21. nóv.)  Sporðdrekinn á að grípa tækifæri til menntunar og ferðalaga sem gefast. Stjórnendur, yfirmenn og foreldrar vilja allt fyrir þig gera um þessar mundir. Bogmaður (22. nóv. - 21. des.) Bogmaðurinn þarf að fást við skriffinnsku á næstunni í tengslum við tryggingamál, skuldir og sameiginlegar eignir. Fegurð- arskyn hans er mikið þessa dagana. Njóttu þín í fögru umhverfi. Steingeit (22. des. - 19. janúar) Steingeitin má eiga von á gjöfum og hlunn- indum á næstu vikum sem koma henni á óvart. Maki hennar gæti jafnvel fengið launahækkun eða annan bónus. Vatnsberi (20. jan. - 18. febr.) Samskiptaplánetan Venus er beint á móti vatnsberanum núna og gerir honum kleift að tala um hjartans mál við maka og nána vini. Fiskar (19. feb. - 20. mars) Fiskurinn virðist í stanslausu partístuði en nær árangri í vinnunni því samstarfsfólkið er hjálpsemin uppmáluð. Nú gengur allt sem sagt að óskum. Stjörnuspá Frances Drake Krabbi Afmælisbarn dagsins: Þú ert ung í anda og varðveitir æsku þína alla tíð. Lífsgleði þín kemur af sjálfu sér og þú óttast ekki að láta draumana rætast. Það er sama hvað þú tekur þér fyrir hendur, duttlungar og gáski munu ávallt fylgja þér. Stjörnuspána á að lesa sem dægradvöl. Spár af þessu tagi eru ekki byggðar á traustum grunni vísindalegra staðreynda. Tónlist Rangárþing ytra | Kirkjukór Odda og Þykkvabæjar standa fyrir tónleikaröð sem ætluð er öllum. Tónleikarnir fara fram í Oddakirkju á Rangárvöllum 30. júní kl. 20.30 og er aðgangseyrir kr. 500. Guðjón Halldór Óskarsson organisti sér um tón- leikana. Myndlist 101 gallery | Ólafur Elíasson til 1. júlí. Austurvöllur | Ragnar Axelsson. Ljós- myndasýningin „Andlit norðursins“ til 1. sept. Árbæjarsafn | Gunnar Bjarnason sýnir í Listmunahorninu forn vinnubrögð í tré og járn. Café Karólína | Vilhelm Anton Jónsson (Villi naglbítur) sýnir til 22. júlí. Energia | Sigurður Pétur Högnason. Feng Shui-húsið | Diddi Allah sýnir olíu- og akrýlverk. Opið kl. 10–18 virka daga, kl. 12– 18 um helgar. Gallerí 100° | Dieter Roth til 21. ágúst. Gallerí BOX | Sigga Björg Sigurðardóttir til 9. júlí. Gerðuberg | Sýningin Stefnumót við safn- ara II er opin virka daga frá kl. 11–17. Lokað um helgar í sumar. Kaffikönnur, bangsar, gosdrykkjamiðar, dúkkulísur, munkar, lista- verk úr brotajárni og herðatrjám og margt fleira skrýtið og skemmtilegt! Sjá www.gerduberg.is. Götur Reykjavíkur | Margrét H. Blöndal til 1. ágúst. Hafnarbakkinn í Reykjavík | Kristinn Benediktsson, „Fiskisagan flýgur“, ljós- myndasýning til 31. ágúst. Hallgrímskirkja | Sumarsýning Listvina- félags Hallgrímskirkju. Guðbjörg Lind Jóns- dóttir sýnir myndverk í forkirkju og kór Hallgrímskirkju. Sýningin stendur til 14. ágúst. Hallgrímskirkja | Þórólfur Antonsson og Hrönn Vilhelmsóttir sýna ljósmyndir í Hall- grímskirkjuturni. Heimilisiðnaðarsafnið á Blönduósi | Auður Vésteinsdóttir. Hrafnista Hafnarfirði | Rúna (Sigrún Guð- jónsdóttir) sýnir í Menningarsalnum á fyrstu hæð. Hönnunarsafn Íslands | Circus Design í Bergen. Til 4. sept. Kaffi Sel | „Ástin og lífið“. Gréta Gísladóttir sýnir á Kaffi Seli við golfvöllinn á Flúðum. Sýningin stendur til 3. júlí. Laxársstöð | Sýning Aðalheiðar S. Ey- steinsdóttur, „Hreindýr og Dvergar“, í göngum Laxárstöðvar. Leonard | Mæja sýnir út júnímánuð. Sjá nánar á www.maeja.is. Listasafn Einars Jónssonar | Opið er alla daga nema mánudaga frá kl. 14–17. Listasafn Íslands | Dieter Roth til 21. ágúst. Listasafn Kópavogs, Gerðarsafn | Gabríel Kuri, Jennifer Allora og Guilliermo Calza- dilla, Brian Jungen, Hekla Dögg Jónsdóttir, John Latham, Kristján Guðmundsson til 21. ágúst. Listasafn Reykjanesbæjar | Á sumar- sýningu má nú sjá sænskt listgler. Um er að ræða rúmlega 60 verk eftir 50 helstu gler- listamenn Svía, úrval hins besta úr heimi nytjaglers og skúlptúrglers. Sýningin kemur frá Hönnunarsafni Íslands. Listasafn Reykjavíkur, Hafnarhús | Dieter Roth, Peter Fischli, David Weiss, Haraldur Jónsson, Urs Fischer t il 21. ágúst. Listasafn Reykjavíkur, Kjarvalsstaðir | Sumarsýning Listasafns Íslands. Listasafn Sigurjóns Ólafssonar | Sum- arsýning – „Aðföng, gjafir og lykilverk“ eftir Sigurjón Ólafsson. Safnið er opið milli klukkan 14 og 17. Listmunahús Ófeigs | Hafsteinn Austmann til 1. júlí. Norræna húsið | Andy Horner til 28. ágúst. Ráðhús Reykjavíkur | Anna Leós sýnir til 10. júlí. Vatnstankarnir við Háteigsveg | Finnbogi Pétursson, sjá nánar www.or.is. Við fjöruborðið | Inga Hlöðvers. Þjóðminjasafn Íslands | Mynd á þili í Boga- sal. Sýningin er afrakstur rannsókna Þóru Kristjánsdóttur á listgripum Þjóðminja- safnsins frá 16., 17. og 18. öld. Þjóðminjasafn Íslands | „Skuggaföll“. Portrettmyndir Kristins Ingvarssonar. Margir þekkja stakar ljósmyndir Kristins en með því að safna úrvali af þeim saman birt- ist ný og óvænt mynd. Þjóðminjasafn Íslands | Story of your life – ljósmyndir Haraldar Jónssonar. Sýningin varpar ljósi á margbrotið eðli ljósmynd- arinnar, náin og um leið flókin tengsl hennar við einstaklinginn, raunveruleikann, um- hverfið, tímann, frásögnina og minnið. Listasýning Árbæjarsafn | Samsýning á bútasaumi, Röndótt – Köflótt, í Kornhúsinu. Opið í sum- ar frá kl. 10–17. Borgarskjalasafn Reykjavíkur | Sýning á efni sem tengist ferðamönnum í Reykjavík, svo sem póstkortum, útgefnu efni og skjöl- um sem varpa ljósi á sýn ferðamanna á Reykjavík og það hvernig Reykjavík hefur kynnt sig fyrir ferðamönnum frá 18. öld til dagsins í dag. Aðgangur er ókeypis. Vinnustofa Katrínar og Stefáns | Sýning á batikverkum að Hlaðbæ 9, 110 Reykjavík. Sýningin verður opin daglega til og með 3. júlí frá kl. 14–20. Mannfagnaður Skógræktarfélag Íslands | Skógrækt- arfélag Vestmannaeyja verður með skóg- ardag kl. 20–21.30, í tilefni 75 ára afmælis Skógræktarfélags Íslands. Safnast verður saman við Lautina hjá Skansinum og geng- ið verður um Hraunsskóg. Boðið upp á veit- ingar. Nánar á skog.is. Fréttir Vestur-Húnavatnssýsla | Kirkjudagar. Leiðsögn í sumum kirkjum, tónlistaratriði í Víðidalstungukirkju kl. 16. Allar kirkjur opn- ar þennan dag. Al-Anon | Aðalþjónustuskrifstofa Al-Anon er opin: Mánudaga 10–13. þriðjudaga 13–16 og fimmtudaga frá 10–13. http://www.al– anon.is. Söfn Árbæjarsafn | Útiminjasafn með fjöl- breyttum sýningum, leiðsögumönnum í búningum og dýrum í haga. Borgarskjalasafn Reykjavíkur | Á Borg- arskjalasafni Reykjavíkur stendur yfir sýn- ingin Through the Visitor’s Eyes, þar sem fjallað er um þróun ferðaþjónustu í Reykja- vík og hvernig ferðamenn upplifðu borgina. Textar á íslensku og ensku. Sýningin er á 1. hæð Grófarhúss, Tryggvagötu 15, og er opin alla daga. Aðgangur er ókeypis. Bókasafn Kópavogs | Sýning á ljósmyndum úr fórum Kópavogsbúa af börnum í bænum í tilefni af 50 ára afmæli Kópavogsbæjar í samstarfi Bókasafns og Héraðsskjalasafns Kópavogs. Gljúfrasteinn – Hús skáldsins | Hljóð- leiðsögn um húsið, margmiðlunarsýning og skemmtilegar gönguleiðir í nágrenninu. Jagúarinn í hlaðinu. Opið alla daga í sumar frá kl. 9–17. Lindasafn | Lindasafn er opið í alla daga sumar. Mikið úrval af ferðahandbókum og garðyrkjubókum. Safnið er opið mánudaga frá kl. 11–19,. þriðjudaga til fimmtudaga frá kl. 13–19, föstudaga 13–17. Ráðhús Þorlákshafnar | Á sýningu í Ráð- húsi Ölfuss gefur að líta margar tegundir uppstoppaðra fiska, bæði vel þekktar teg- undir og furðufiska. Þjóðmenningarhúsið | Sýningar í Þjóð- menningarhúsinu eru opnar alla daga frá kl. 11 til 17. Helstu sýningar eru: Handritin, Fyr- irheitna landið og Þjóðminjasafnið – svona var það. Á veitingastofunni Mat og menn- ingu er gott að slaka á og njóta veitinganna og útsýnisins yfir Arnahólinn og höfnina. Þjóðmenningarhúsið | Norrænt bókband 2005. Á sýningunni er áttatíu og eitt verk eftir jafnmarga bókbindara frá Norðurlönd- unum. Sýningin fer um öll Norðurlöndin og verður í Þjóðmenningarhúsinu til 22. ágúst. Opið frá kl. 11–17. Fundir Al-Anon | Nýliðafundir í Reykjavík. Mánu- dagur, Kirkju Óháða safn. kl. 20. Þriðjudag- ur, Karlafundur, Seljavegi 2 kl. 18.30. Árbæj- arkirkju kl. 20. Miðvikudagur, Seljavegi 2 kl. 20. Tjarnargötu 20 kl. 20. Neskirkju kl. 20. Fimmtudagur, Áskirkju kl. 20. (Mælt er með ca. 6 fundum í röð). OA-samtökin | OA karladeild alla þriðju- daga kl. 21–22 í Tjarnargötu 20, Gula hús- inu, 101 Reykjavík. Námskeið Árbæjarsafn | Örnámskeið í flugdrekagerð, tálgun, þæfingu, glímu og kveðskap. Nám- skeiðin eru ætluð börnum í fylgd með full- orðnum og eru kl. 13–16. Flugdrekagerð: 1.7. Tálgun: 29.6, 5.7, 13.7. Glíma: 30.6., 9.7., 14.7. Þæfing: 28.6., 6.7. Kveðskapur: 23.7. Verð 1.000–2.500 á mann. Upplýsingar og skráning í síma 411 6320. Útivist Garðyrkjufélag Íslands | Garðyrkjufélag Ís- lands býður upp á garðagöngur í sumar. Fyrstu göngurnar eru 29. júní kl. 20. Á Ak- ureyri er mæting við Minjasafnsgarðinn, leiðsögn: Helgi Þórsson og Björgvin Stein- dórsson. Í Kópavogi er mæting við Kópa- vogskirkju, leiðsögn: Ingibjörg Steingríms- dóttir. Á ísafirði er mæting við bílastæðið við sjúkrahúsið, leiðsögn: Samson Bjarni Harðarson. Staðurogstund http://www.mbl.is/sos  Staður og stund á mbl.is. Nánari upplýsingar um viðburði dagsins er að finna á Staður og stund undir Fólkið á mbl.is Meira á mbl.is Í STAÐ hefðbundinnar gönguferðar verður í kvöld boðið upp á siglingu um sundin blá og Viðey skoðuð frá nýju sjónarhorni. Siglt verður frá Sundahöfn kl. 19 og kostar 750 kr. fyrir fullorðna, 350 kr. fyrir börn. Morgunblaðið/Ómar Siglt um sundin

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.