Morgunblaðið - 28.06.2005, Side 43

Morgunblaðið - 28.06.2005, Side 43
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 28. JÚNÍ 2005 43 MENNING Félagsstarf Aflagrandi 40 | Hárgreiðslustofan opin frá kl. 10, bað og fótsnyrting kl. 9, vinnustofan opin alla daga. Allir velkomnir. Árskógar 4 | Bað kl. 8–14. Handa- vinna kl. 9–12. Smíði/útskurður kl. 13– 16.30. Félagsvist kl. 13.30. Púttvöllur kl. 10–16.30. Bólstaðarhlíð 43 | Hárgreiðsla, fóta- aðgerð, almenn handavinna. Út að pútta með Jónu Þórunni kl. 13.30. Dalbraut 18–20 | Kl. 9–11 kaffi og dagblöð, kl. 9–14 baðþjónusta, kl. 9– 16,45 hárgreiðslustofan opin, kl. 11.15–12.15 matur, kl. 14.30–15.30 kaffi. Félagsstarf Gerðubergs | Kl. 9–16.30 vinnustofur opnar án leiðsagnar. Kl. 10.30 létt ganga um nágrennið. Frá hádegi spilasalur opinn. Allar upplýs- ingar á staðnum og í síma 575 7720. Hraunbær 105 | Kl. 9 postulíns- málun og glerskurður, kl. 10 boccia og pútt, kl. 12 hádegismatur, kl. 12.15 ferð í Bónus, kl. 15 kaffi. Hraunsel | Moggi, rabb og kaffi kl. 9. Brids kl. 13. Pútt á Hrafnistuvelli kl. 14–16. Hvassaleiti 56–58 | Böðun virka daga fyrir hádegi. Hádegisverður. Fótaaðgerðir 588 2320. Hársnyrting 517 3005. Hæðargarður 31 | Félagsstarfið er öllum opið. Betri stofa og Lista- smiðja kl. 9–16. Handverk og tré- skurður. Gönguhópurinn Sniglarnir kl. 10. Bónus kl. 12.40. Bókabíll kl. 14.15. Skráning í hópa og námskeið fyrir haustönn stendur yfir. Skráning hafin í sumargrillið kl. í Lönguhlíð 30. júní. Hárgreiðslust. 568 3139. Fótaað- gerðarstofa 897 9801. Nánari uppl. í síma 568 3132. Norðurbrún 1 | Kl. 9 smíði, kl. 9– 16.30 opin vinnustofa, kl. 10 ganga, kl. 14 leikfimi. Vesturgata 7 | Kl. 9–16 hárgreiðsla og fótaaðgerðir. Kl. 9–15.30 handa- vinna. Kl. 13–16 postulínsmálun (júní). Kl. 11.45–12.45 hádegisverður. Kl. 13– 16 frjáls spil. Kl. 14.30–15.45 kaffi- veitingar. Vitatorg, félagsmiðstöð | Smiðja kl. 8.45. Handmennt almenn kl. 9.30, hárgreiðsla, fótaaðgerðir og böðun, leikfimi kl. 10.00, félagsvist kl. 14.00. Kirkjustarf Áskirkja | Opið hús milli kl. 10 og 14 í dag, kaffi og spjall. Bænastund kl. 12. Boðið upp á léttan hádegisverð. Allir velkomnir. Breiðholtskirkja | Bænaguðsþjón- usta kl. 18.30. Hallgrímskirkja | Fyrirbænaguðs- þjónusta þriðjudag kl. 10.30. Beðið fyrir sjúkum. Hjallakirkja | Bæna- og kyrrðarstund er hvern þriðjudag kl. 18 í Hjalla- kirkju. Krossinn | Almenn samkoma verður í Krossinum Hlíðasmára 5–7 í kvöld kl. 20. Gunnar Þorsteinsson talar. Allir eru velkomnir. Kaffi og meðlæti verður í boði eftir samkomu til styrktar hjálparstarfi í Honduras. Staðurogstund http://www.mbl.is/sos SYSTKININ Ellen Kristjánsdóttir og KK ætla leggja land undir fót og leika saman á röð tónleika næstu vikuna. Alls munu þau koma fram á sex tónleikum á sex stöðum og hefst þessi litla landsreisa í Borgarnes- kirkju annað kvöld. Bæði hafa þau notið mikillar lýð- hylli, sem sólólistamenn eða með öðrum. Ellen átti m.a. söluhæstu plötuna fyrir síðustu jól, Sálma, og KK gefur út síðar í vikunni Fleiri ferðalög í félagi við Magnús Ei- ríksson en hún er sjálfstætt fram- hald metsöluplötunnar 22 ferðalög sem kom út fyrir tveimur árum. Þótt leiðir þeirra systkina hafi oft legið saman áður í tónlistinni hafa þau aldrei áður skipulagt tónleika- röð þar sem þau koma fram saman sem dúett, systkini. Að und- anförnu hafa þau haldið einstaka tónleika saman við fádæma góðar undirtektir og því má ætla að tón- leikaferðin um landið sé kærkom- in. „Við munum taka blöndu af lög- um frá okkur báðum, nokkur af Sálma-plötunni, lög eftir Kristján og svo nýtt efni sem við erum að æfa saman,“ segir Ellen. „Svo höfum við verið að æfa saman og útsetja gömul lög sem hafa verið í sérstöku uppáhaldi hjá okkur. Dæmi um eitt þessari laga er „Moon River“ úr myndinni Breakfast at Tiffany’s. Mér hefur alltaf fundist það svo æðislegt.“ Ellen segir ánægjulegt hversu vel þau systkini séu farin að ná saman hvað varðar tónlistina. „Þetta verður svo gaman, við er- um svo mikil systkini,“ segir Ellen og hlær svolítið feimnislega. Ferðalagið hefst sem fyrr segir í Borgarnesi á morgun en þar leika þau í Borgarneskirkju á tónleikum sem hefjast kl. 20.30. Tónlist | Ellen og KK í tónleikaferð um landið Samrýnd systkini KK og Ellen Kristjánsdóttir léku fyrir fullu húsi í Hallgrímskirkju á dög- unum á tónleikum sem haldnir voru í tengslum við Kirkjudaga. Eftir Skarphéðin Guðmundsson skarpi@mbl.is Ferðalag Ellenar og KK Miðvikudagurinn 29. júní kl. 20.30: Borgarnes — Borgarneskirkja Fimmtudagurinn 30. júní kl. 21.00: Akureyri — Græni hatturinn Föstudagurinn 1. júlí kl. 20.30: Siglufjörður — Siglufjarðarkirkja Laugardagurinn 2. júlí kl. 20.30: Miðfjörður — Melstaður Sunnudagurinn 3. júlí kl. 14.00: Hólmavík — Hólmavíkurkirkja Mánudagurinn 4. júlí kl. 20.00: Hólar — Hólakirkja LISTAHÁTÍÐ í Reykjavík er lok- ið þetta árið og eins og oft áður var margt forvitnilegt þar að sjá. Myndlistarþáttur sýningarinnar var verkefni þar sem 34 listamenn unnu verk sín sérstaklega fyrir hátíðina og þróuðu þau út frá við- fangsefnum og áhrifum verka myndlistarmannsins Dieters Roths. Listaverkin voru sýnd víðs- vegar um landið, meðal annars á Skógum, Seyðisfirði, í Hveragerði og Reykjavík. Á morgun kemur út sýningarrit, Material Time, Work Time, Life Time, prýtt myndum af listaverk- um Roths og þeirra 34 listamanna sem tóku þátt í verkefninu. Bókin er tæpar 200 síður og henni fylgir sýningarskrá með viðtölum við listamennina Jennifer Allora & Guillermo Clazadilla, Micol Assaël, Matthew Barney, Margréti Blön- dal, John Bock, Libia Pérez de Siles de Castro & Ólaf Árna Ólafsson, Jeremy Deller & Alan Kane, Ólaf Elíasson, Peter Fischli & David Weiss, Hrein Friðfinns- son, Gabríelu Friðriksdóttur, Kristján Guðmundsson, Elínu Hansdóttur, Thomas Hirschhorn, Carsten Höller, Heklu Dögg Jóns- dóttur, Brian Jungen, Ragnar Kjartansson, Elke Krystufek, Gabriel Kuri, John Latham, Önnu Líndal, Jonathan Meese, Finnboga Pétursson, Bojan Sarcevic, Wil- helm Sasnal og Lawrence Weiner. Sýningar- og ritstjórn var í höndum Jessica Morgan og Björns Roths en ljósmyndirnar í bókinni tóku Friðrik Örn Friðriksson og Magnús Reynir Jónsson. Verkefnið var unnið að frum- kvæði Eiðastóls, en meginhlutverk hans er að endurreisa mennta- setrið að Eiðum í samvinnu við KB banka, Odda og 66°N en þar að auki tóku Listasafn Íslands, Listasafn Reykjavíkur og Listahá- tíð í Reykjavík þátt í verkefninu. Bókin verður til sölu í Lista- safni Reykjavíkur og Listasafni Íslands. Sýningarrit Lista- hátíðar 2005 gefið út Material time, work time, life time, sýningarrit Listahátíðar í Reykjavík 2005, prýtt fjölda mynda frá sýningum hátíðarinnar, kemur út á morgun. ÞESSI plata sænska tónlistarmanns- ins BJ Nilsen, eins og hann kýs að nefna sig, en hann er annars þekktur sem Hazard, og Stilluppsteypu kom út í febrúar síðastliðnum í 3300 ein- tökum, þar sem hvert eintak var skreytt með handgerðu kop- arslegnu umslagi, og seldist upp á skömmum tíma. Önnur útgáfa plötunnar kom svo á markað 5. apríl síðastliðinn og er einnig tak- mörkuð svo ekki er gott að segja hvort fáanleg eru fleiri eintök. BJ Nilsen hefur gefið út nokkrar skífur undir nafninu Hazard og iðu- lega unnið með umhverfishljóð, upp- tökur af veðurfari, eins og heyra má til að mynda á hans helstu útgáfu, Wind. Sagan segir að hann hafi leitað til Stilluppsteypumanna um að gera plötu sem helguð yrði áfengi og drykkju, eða réttara sagt því ástandi sem menn komast í eftir drykkju á áfengi, augnablikinu áður en menn hverfa yfir í óminnið, líða út af, deyja áfengisdauða. Það má í það minnsta lesa um þessa skífu á vefsetri Helen Scarsdale-umboðsskrifstofunnar og er ekki gott að segja hvort mark sé á þessu takandi, en nafn skífunnar vís- ar vissulega í drykkju. Hluti óhljóðanna á Víkinga brenni- víni er unninn upp úr upptökum úti í náttúrunni, en megnið er þó tölvu- gert, myrkar hljómaborgir, brak og brestir. Uppbygging laganna er mjög markviss, til að mynda í fyrsta lag- inu, „En dåre kan fråga mer än tre visa kan svara“, sem byrjar með hægri stígandi og heldur góðu jafn- vægi í gegnum allt – líkt og suðið í höfði manns þegar skrönglast er heim eftir að hafa setið að sumbli, svo gripið sé til myndlíkingar úr hug- myndasafni skífunnar. „Heilir þeir sem hlýddu“ heitir næsta lag, ekki eins gott en gott engu að síður, bardúntónn hnígur og rís og ógreinilegur taktur laumast á milli rása með stöku skruðninga- upphlaupi. Suðmotta liggur yfir öllu en maður tekur eiginlega ekki eftir henni fyrr en henni er svipt af fyr- irvaralaust. Þriðja lagið, „Viðundur“, er ekki merkilegt en leggur línurnar fyrir næsta lag, „Det är bäst att jag börj- ar, annars kommer jag aldrig hem“, sem er hryggjarstykki þessarar plötu, hreinasta snilld. Lagið byggir smám saman upp magnaða spennu, hefst mjög rólyndislega eins og vænta mátti og stígur síðan upp í hæstu hæðir áður en lagt er af stað niður á við að nýju. Lagið er langt, tæpar 25 mínútur, en ekki til í því dauður punktur – lag sem kallar á að vera spilað á hæsta í góðum græjum. Eitt það besta sem ég hef heyrt í óhljóðalist býsna lengi. Drykkjuvísur óhljóðanna TÓNLIST Íslenskar plötur Víkinga brennivín, samstarfsplata Still- uppsteypu og Benny Jonas Nilsen. Still- uppsteypu skipa Sigtryggur Berg Sig- marsson og Helgi Þórsson. Birgir Örn Thoroddsen gerði frumeintak. Helen Scarsdale-umboðsskrifstofan gefur út. Önnur útgáfa, apríl 2005. Stilluppsteypa og BJ Nilsen – Víkinga brennivín  Árni Matthíasson GLJÚFRASTEINN – hús skáldsins, er opinn alla daga klukkan 9–17. Safnið er staðsett í Mosfellsdal, gegnt Laxnesi, miðja vegu á leið- inni til Þingvalla. Hljóðleiðsögn um húsið tekur 25 mínútur og er til á fjórum tungu- málum: íslensku, ensku, sænsku og þýsku. Í móttökuhúsi er margmiðl- unarsýning helguð ævi og verkum Halldórs Laxness og er hún að- gengileg á gagnvirkum snertiskjá á íslensku, ensku og sænsku. Þar er einnig miðasala og minjagripa- verslun þar sem bækur skáldsins eru til sölu á ýmsum tungumálum. Garðurinn umhverfis Gljúfra- stein er opinn almenningi og er þar lítil sundlaug og fallegar göngu- leiðir í næsta nágrenni. Mögulegt er að stoppa í garðinum og borða nesti. Aðgangseyrir er 500 kr. fyrir fullorðna og 250 kr. fyrir börn, eldri borgara og öryrkja. Nánari upplýsingar fást á heima- síðunni www.gljufrasteinn.is. Gljúfrasteinn opinn Morgunblaðið/Arnaldur

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.