Morgunblaðið - 28.06.2005, Qupperneq 48

Morgunblaðið - 28.06.2005, Qupperneq 48
48 ÞRIÐJUDAGUR 28. JÚNÍ 2005 MORGUNBLAÐIÐ aston kutcher amanda peet  S.K. DV.  H.J. MBL BRIAN VAN HOLT PARIS HILTON JARED PADALECKI  Capone XFM ELISHA CUTHBERT CHAD MICHAEL MURRAY RÓMANTÍK GETUR EYÐILAGT GÓÐA VINÁTTU frumsýnd 29.júní SAMBÍÓIN Álfabakka Keflavík og HÁSKÓLABÍÓ fr sý .j í Í I lf fl ví Í BATMAN EINS OG ÞÚ HEFUR ALDREI SÉÐ HANN ÁÐUR ! Debra Messing Dermot Mulroney Batman Begins kl. 5 - 7 - 9 og 11 b.i. 12 Inside Deep Throat kl. 10.15 Stranglega b.i. 16 ára Voksne Mennesker kl. 5.45 - 8 og 10.15 Crash kl. 5.45 - 8 og 10.15 b.i. 16 The Hitchhiker´s.. kl. 5,45 og 8      Kvikmyndir.is Gleymið öllum hinum Batman myndunum. Þessi er málið Andri Capone / X-FM 91,9 “Einn af stærstu smellum ársins.”  B.B. Blaðið Loksins, Loksins  M.M.M / Xfm 91,9 Þórarinn Þ / FBL Gleymdu hinum. Þetta er alvöru Batman Ó.Ö.H / DV  D.Ö.J. / Kvikmyndir.com Nýr og miklu betri leðurblökumaður. H.L. / Mbl. H.B. / SIRKUS Hverjir skipa sveitina? Ólafur Freyr Frímannsson á trommur, Birgir Örn Árnason á bassa, Steingrímur Karl Teague á raddbönd og hljómborð og Ingi Einar Jó- hannesson á gítar. Hver er heimspekin á bak við hljómsveitina? Í innihaldslýsingu Ókindar er að finna fjögur jafnvirk efni, fjórar kvartkindur. Ókind er ógnvænleg heild, samansaumuð úr líkams- pörtum okkar allra. Hver í sínu lagi erum við einungis einstaka hand- leggur, milta eða mjaðmarbein á víð og dreif sem eiga ekkert skylt við þá skelfilegu ófreskju sem við myndum í sameiningu. Hver og einn meðlimur er allur í Ókind, Ókind er ekki öll í honum. Hvenær var hún stofnuð og hvernig atvikaðist það? Árið 1998 fannst nokkrum guttum í víðum fötum fyndið að setja upp asnalegar hárkollur og syngja texta upp úr þýskubókunum sínum á grunnskólaballi. Ári seinna var fenginn alvöru bassaleikari og brand- arinn var orðin fúlasta alvara, en samt hefur hann einhvern veginn um leið alltaf verið jafnfyndinn. Sérstaklega hárkollan hans Inga. Hvaða tónlistarmenn eru hetjur ykkar? Allir tónlistarmenn sem eru tilbúnir að leggja eitthvað á sig til þess að búa til lag sem þeim sjálfum finnst flott eru hetjur. Þetta á reyndar ekki við um Rod Stewart. Eru einhverjir innlendir áhrifavaldar? Á vissum tímabilum hafa hljómsveitir á borð við Sykurmolana, Botn- leðju, Maus og Ensíma verið nokkurs konar Matteus, Markús, Lúkas og Jóhannes fyrir okkur. En við vorum voða litlir þá. Núna erum við aftur á móti gríðarlega stórir. Eða allavega með stóra hausa. Hvað finnst ykkur um íslenska tónlist í dag? Íslenska grasrótin iðar öll af lífi og inniheldur ótrúlega mörg góð bönd. Sumt skilar sér út í meginstrauminn, en einmitt núna eru fjöl- mörg frábær bönd sem rétt mara undir yfirborðinu. Það er tiltölulega auðvelt að komast í fjölmiðla á Íslandi, sem er ágætt, en það þýðir reyndar líka að fleiri hljómsveitir hafa aðgang að sömu miðlunum sem aftur veldur því að sum athyglisverð bönd einfaldlega kaffærast í hama- ganginum. Fjölmiðlanálægðin á Íslandi er samt miklu frekar jákvæð en neikvæð og á örugglega stóran þátt í hversu blómlegt rokklífið er hérna. Er auðvelt að fá að spila á tónleikum? Maður verður eiginlega bara að ganga sjálfur í svoleiðis mál. Það þýðir ekkert að bíða bara eftir einhverjum símtölum. Ekki trúa því sem þið heyrið: Fjallið kemur ekki til Múhameðs. Er auðvelt að gefa út? Auðveldara en sumt, erfiðara en margt annað. Það er vissulega miklu auðveldara núna en fyrir fimmtán árum. Nú getur maður bara gert hlut- ina sjálfur, sem hentar sjálfsþurftarstefnu Ókindar ágætlega. Segið eitthvað um lögin sem þið eruð með á Rokk.is? „PeTra“ er af gömlu plötunni okkar, Heimsenda 18, en hún kom út rétt fyrir siðaskipti. „Þoturass“ er svona prufuútgáfa af lagi sem kemur til með að enda á næstu plötunni okkar, en „Jólakötturinn“ er hálfgert svindl, af því að lagið er ekki eftir okkur, heldur Ingibjörgu Þorbergs, þannig að við vorum með frábært lag í höndunum til að byrja með. Hver er mesti gleðigosinn í sveitinni? Það er klárlega Óli trommari. Samþykkt með þremur atkvæðum gegn einu. Hvað er á döfinni hjá ykkur? Við ætlum að koma út plötu seinna í sumar sem við erum að bogra yfir í stúdíóinu núna. Án þess að við viljum vera subbulegir er óhætt að full- yrða að við erum að gera okkar besta til að kreista síðustu blóðdropana úr blæðandi hjörtum okkar og þrykkja þeim á þessa plötu. Amen. Eitthvað að lokum? Í kvikmyndinni Jaws, eða Ókindinni, segir aðalgaurinn eftirminnilega línu þegar hann finnur loksins risahákarlinn, Ókindina. „Við þurfum stærri bát,“ segir hann. Kaupið plötuna okkar, við þurfum stærri bát. Morgunblaðið/Þorkell Hljómsveitin Ókind: Ingi Einar Jóhannesson leikur á gítar, Birgir Örn Árnason bassi, Ólafur Freyr Frímannsson trommur og Stein- grímur Karl Teague syngur og leikur á hljómborð. Hljómsveit Fólksins þessa vikuna er Ókind, en Morgun- blaðið og mbl.is velja Hljómsveit Fólksins á tveggja vikna fresti. Tilgangurinn er að kynna og styðja við gras- rótina í íslenskri tónlist, beina athyglinni að nokkrum af þeim fjölmörgu íslensku hljómsveitum sem gera almenn- ingi kleift að hlaða niður tónlist þeirra á netinu, án end- urgjalds. Hljómsveit Fólksins er í samstarfi við Rás 2 og Rokk.is, en hægt er að lesa viðtalið á Fólkinu á mbl.is. Þar eru einnig tenglar á lög sveitarinnar sem geymd eru á Rokk.is. Lag með Ókind verður spilað í dag í Popplandi á Rás 2, sem er á dagskrá kl. 12.45–16 virka daga. Hljómsveit Fólksins | Ókind Ókind leikur á Grand rokki næsta föstudag ásamt Shadow Parade og Karli Henry úr Tenderfoot. ÚTITÓNLEIKARNIR Átta líf hafa verið færðir frá fimmtudegi til næsta föstudags- kvölds, 1. júlí. Tónleikarnir fara fram í Hljómskálagarðinum, sem verður skemmti- leg tilbreyting frá hefðbundnari tónleika- stöðum eins og Ingólfstorgi. Búið er að staðfesta nokkur þekkt nöfn úr popp- og rokkheiminum og má nefna Bubba Morth- ens, Ragnheiði Gröndal, Leaves og Kimono. Búast má við því að fleiri tónlistarmenn bætist í hópinn, að sögn Árna Snævarr skipuleggjanda. Tónleikarnir eru haldnir með það að markmiði að lýsa yfir stuðningi við málstað Live 8, sem er að skuldir fátækustu ríkja heims verði felldar niður og viðskiptahindr- unum rutt úr vegi. Tónleikar undir nafninu Live 8 verða haldnir víðs vegar um heim á laugardaginn. Sýnt verður frá tónleikunum í beinni útsendingu, sem nær til 5,5 millj- arða manna. Tónlist | Útitónleikarnir Átta líf á föstudaginn Haldnir í Hljómskála- garðinum Morgunblaðið/Kristinn Ragnheiður Gröndal er á meðal þeirra tón- listarmanna sem fram koma í Hljóm- skálagarðinum á föstudaginn. www.live8live.com

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.