Morgunblaðið - 28.07.2005, Blaðsíða 1
STOFNAÐ 1913 202. TBL. 93. ÁRG. FIMMTUDAGUR 28. JÚLÍ 2005 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS mbl.is
Einlæg og
ekta Emilíana
Fjögurra stjarna dómur um Frí-
kirkjutónleika Emilíönu | Menning
ÞYRLA Landhelgisgæslunnar kom í
gær fyrir GPS-mælingatækjum á
toppi Hvannadalshnúks. Búnaður-
inn mun verða á tindinum fram á
föstudag og safna gögnum áður en
hann verður sóttur aftur.
Í fyrra mældu félagar í Jöklarann-
sóknarfélagi Íslands hnúkinn og
reyndist hann vera 2.111 metrar á
hæð, eða átta metrum lægri en talið
hefur verið. Þórarinn Sigurðsson,
forstöðumaður mælingasviðs LMÍ,
býst við svipaðri útkomu úr þessum
mælingum. „Þetta verður örugglega
einhvers staðar á milli 2.110 og
2.112 metra,“ segir hann. | 6
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Hvað er hann hár?
BRESKA lögreglan handtók í gær
Yassin Hassan Omar, sem er einn
fjögurra manna sem taldir eru hafa
gert tilraunir til sprengjuárása í
London síðastliðinn fimmtudag. Om-
ar fannst við húsleit í Birmingham í
gærmorgun og var skotinn með
byssu sem gefur raflost áður en lög-
regla tók hann höndum. Skömmu
síðar handtók lögregla þrjá menn í
húsi skammt frá staðnum þar sem
Omar fannst. Mennirnir þrír, sem
ásamt Omar eru grunaðir um að hafa
gert tilraunir til árása fyrir viku, eru
þó ekki í þeim hópi. Seint í gær hand-
tók lögregla svo í suðurhluta London
þrjár konur, sem eru grunaðar um
að hafa skotið
skjólshúsi yfir
meinta hryðju-
verkamenn.
Auk Omars
hefur einn hinna
meintu sprengju-
manna verið
nafngreindur,
Mukhtar Said
Ibrahim. Omar
og Ibrahim eru
synir pólitískra flóttamanna, frá
Sómalíu og Erítreu, og hafa búið í
Bretlandi í 12-15 ár.
Að sögn lögreglu voru það foreldr-
ar Ibrahims sem sögðu til hans eftir
að myndir voru birtar af honum í
fjölmiðlum. Sögðu þau það hafa verið
mikið áfall að komast að því að sonur
þeirra væri tengdur hryðjuverka-
starfsemi. Þau væru „friðsöm fjöl-
skylda“ sem fordæmdi gjörðir hans.
Ian Blair, lögreglustjóri í London,
sagði í gær að frá því að árásirnar
voru gerðar 7. júlí hefði lögregla 250
sinnum fengist við aðstæður þar sem
talið var að um yfirvofandi sjálfs-
morðsárás gæti verið að ræða. Sjö
sinnum hefði lögregla næstum því
verið búin að grípa til aðgerða. Lög-
regla leggur nú mest kapp á að finna
Ibrahim og hina grunuðu tilræðis-
mennina tvo, að komast að tengslum
milli tilræðanna 7. og 21. júlí og því
hverjir skipulögðu þau. Að sögn
BBC gætu grunaðir jafnvel átt von á
vægari refsingu en ella, gegn upplýs-
ingum sem lúta að brýnustu úrlausn-
arefnum rannsóknarinnar.
Grunaður sprengju-
maður handtekinn
Yassin Hassan
Omar
Eftir Birnu Önnu Björnsdóttur
bab@mbl.is
ÞAU verðmæti, sem lágu í Eim-
skipafélagi Íslands, hafa margfald-
ast á þeim tuttugu mánuðum sem
liðnir eru síðan Landsbankinn og
tengdir aðilar eignuðust ráðandi
hlut í félaginu. Burðarás hefur sam-
tals selt eignir félagsins fyrir a.m.k.
um 49,8 milljarða króna á þeim tutt-
ugu mánuðum sem liðnir eru. Til
samanburðar má geta þess að
markaðsvirði Eimskipafélagsins var
um 31,3 milljarðar króna um það
leyti sem Landsbankinn eignaðist
meirihluta í félaginu. Gera má ráð
fyrir að heildarhagnaður af sölu
þessara eignarhluta sé rúmir 24
milljarðar króna án tillits til skatts
en rúmlega 19 milljarðar eftir skatt.
Fyrst og fremst er um að ræða
sjávarútvegssvið, húseignir og
flutningssvið, en enn heldur Burðar-
ás eftir þeim hluta Eimskipafélags-
ins sem helgaður var fjárfestingum
og verðbréfaviðskiptum og þykir nú
orðið hvað verðmætastur. Sam-
kvæmt hálfs árs
uppgjöri 2005
voru heildareign-
ir Burðaráss 117
milljarðar króna
og eigið fé var 65
milljarðar. Sam-
kvæmt greiningu
Íslandsbanka er
markaðsvirði
Burðaráss nú 86,4 milljarðar króna.
Samfara þeirri stórfelldu upp-
stokkun sem varð í eignarhaldi
nokkurra stórfyrirtækja 18.–19.
september 2003, seldi Eimskipa-
félagið hluti sína í Flugleiðum,
Sjóvá-Almennum og Íslandsbanka.
Áætla má að hagnaður félagsins af
þessum viðskiptum hafi verið um
það bil 5 milljarðar fyrir skatta.
Næst var Brim, sjávarútvegssviðið,
selt í janúar 2004, og var hagnað-
urinn um 4,1 milljarður króna og
loks flutningssviðið í maí síðastliðn-
um, með ríflega 15 milljarða hagn-
aði.
Verðmætin
margfölduð
Eignir Eimskips seldar fyrir um 50
milljarða með 24 milljarða hagnaði
Eftir Sindra Freysson
sindri@mbl.is
Selt með | B4
París. AP. | Jacques Chirac, for-
seti Frakklands, sagðist í gær
vilja að skref yrðu tekin í þá átt
að koma í
veg fyrir að
erlendir aðil-
ar gætu yfir-
tekið frönsk
stórfyrir-
tæki. Um-
mælin koma
í kjölfar þess
að orðrómur
var uppi um
að banda-
ríska fyrirtækið PepsiCo hygð-
ist kaupa meirihluta í franska
matvælafyrirtækinu Danone.
Tilkynnt var fyrir fáeinum
dögum að Pepsico hefði ekki í
hyggju að kaupa Danone en
málið í heild sinni olli talsverð-
um áhyggjum í Frakklandi og
segir Chirac það hafa dregið
fram í dagsljósið hversu við-
kvæm mörg frönsk fyrirtæki
kunni að vera. Staðan eins og
hún er feli í sér áhættu fyrir „at-
vinnu fólks“ og „styrk iðnaðar“ í
landinu. Chirac segir „ekki
koma til greina“ að setja reglur
sem banna allar yfirtökur er-
lendra fyrirtækja en að stjórn-
völd ættu að „rannsaka hvort
gera þurfi breytingar á fyrir-
tækjalöggjöf“ í landinu.
Laurence Boone, hagfræð-
ingur hjá Barclays-banka í Par-
ís, segir að afskipti Chiracs muni
örugglega fæla erlenda fjárfesta
frá. „Þetta mun festa í sessi þau
skilaboð sem Frakkar gáfu með
því að hafna stjórnarskrá Evr-
ópusambandsins,“ segir hún,
„að Frakkland sé íhaldssamt,
streitist gegn hnattvæðingunni
og skilji ekki nútímann.“
Vill ekki
erlendar
yfirtökur
Jacques Chirac
HÓPUR atvinnubílstjóra ætlar að
mótmæla gjaldi á dísilolíu og
trufla umferð á háannatíma á
tveimur stórum samgönguæðum
til og frá höfuðborginni í dag eða á
morgun. Menn á vegum lögregl-
unnar í Reykjavík og slökkviliðs
höfuðborgarsvæðisins funduðu
með bílstjórunum í gærkvöldi.
Sturla Jónsson atvinnuvörubíl-
stjóri segir tilraunir lögreglu
engu hafa breytt. Ökumenn megi
búast við truflun á vegunum allt
frá morgni til kvölds. „Við höldum
okkar striki.“
Geir Jón Þórisson, yfirlögreglu-
þjónn hjá lögreglunni í Reykjavík,
segir lögreglu hafa gert grein fyr-
ir þeim afleiðingum sem aðgerð-
irnar kynnu að hafa. „Við gerðum
grein fyrir því hvað þetta kostaði
og þýddi, bæði fyrir samfélagið og
lagalega séð,“ sagði Geir Jón og
bætti því við að stórhætta gæti
skapast við þessar aðstæður.
Hættulegt lögbrot
Hann sagði jafnframt að mót-
mælaaðgerðirnar brytu gegn um-
ferðarlögum og hegningarlögum.
„Við munum gera allt til þess að
stöðva þessar aðgerðir og það
kemur í ljós hvernig það verður.
Okkar vilji er til þess að fá menn
ofan af þessari áætlun,“ sagði Geir
Jón.
Bílstjórar ætla
að trufla umferð
Viðskipti | Verðfall í viðskiptamenntun? Sigurður Bollason í
svipmynd Íþróttir | Enginn slær Armstrong við Málið | Allt um
verslunarmannahelgina, hátíðir, föt, grillmatur og fræðsla
Viðskipti, Íþróttir og Málið