Morgunblaðið - 28.07.2005, Side 4
4 FIMMTUDAGUR 28. JÚLÍ 2005 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
„ÞAÐ ER misskilningur að við vilj-
um varpa skugga á helgina hjá
fólki með því að láta það hugsa um
eitthvað óþægilegt, við viljum ein-
faldlega að hver og einn einasti
njóti helgarinnar,“ sögðu fulltrúar
Karlahóps Femínistafélagsins og V-
dags samtakanna í gær en báðir að-
ilar standa fyrir átaki gegn nauðg-
unum fyrir verslunarmannahelg-
ina.
Karlahópur Femínistafélagsins
stendur nú fyrir átakinu „Karl-
menn segja NEI við nauðgunum“ í
fimmta sinn. Markmið átaksins er
að virkja karlmenn í baráttunni
gegn nauðgunum og fá þá til að
velta fyrir sér hvað þeir geti gert til
að fyrirbyggja nauðganir. Fulltrú-
ar karlahópsins verða á helstu
brottfararstöðum ferðamanna um
verslunarmannahelgina og spjalla
við karla auk þess að dreifa barm-
merkjum, „frisbí“diskum, póst-
kortum og bæklingum þar sem
hvatt er til umræðu um nauðganir
út frá upplýsingum um eðli og al-
varleika þeirra.
Munurinn á kynlífi og nauðgun
Hjálmar Gunnar Sigmarsson og
Gísli Hrafn Atlason frá karlahópn-
um segja nauðsynlegt að endurtaka
átakið aftur og aftur svo skilaboðin
nái í gegn. Mikilvægt sé að halda á
lofti umræðu um nauðganir en þeir
velta því upp hvort, og þá hvernig,
umræða skapist meðal karlmanna.
Ekki sé víst að þeir ræði málið á al-
varlegum nótum sín á milli og út-
úrsnúningar á borð „nauðgun er
kækur“ séu að minnsta kosti al-
gengir.
Öllum eigi hins vegar að vera
ljóst að nauðgun sé ekkert grín.
Skilaboðin frá körlum þurfi að vera
skýr: „Karlar segja NEI við nauðg-
unum.“ Yfirgnæfandi meirihluti
nauðgara séu karlar en kastljósið
hafi ekki beinst að þeim í um-
ræðunni um nauðganir.
Sama sinnis er Ingibjörg Stef-
ánsdóttir, úr stjórn V-dags samtak-
anna. Hún segir að tími sé til kom-
inn að beina athygli að gerendum,
ekki þolendum. Ingibjörg veltir
einnig upp þeirri spurningu hvort
fólk þekki alltaf muninn á kynlífi og
nauðgun. Um verslunarmannahelgi
sé ölvun algeng og til dæmis margir
sem litla kynfræðslu hafi fengið að
stunda kynlíf í fyrsta skipti. Mörkin
séu hins vegar alveg ljós. Kynlíf sé
aldrei kynlíf nema með samþykki
beggja.
„Nauðgun er ekki grín“
Morgunblaðið/Sverrir
Karlahópur Femínistafélagsins leggur áherslu á að verslunarmannahelgin
sé skemmtileg – fyrir alla. Jafnframt er hvatt til umræðu um nauðganir.
Eftir Önnu Pálu Sverrisdóttur
aps@mbl.is
ALFREÐ Guðmundsson skolaði rykið af rút-
unni, sem hann ekur í sumar, í góðviðrinu við
Hvolsvöll. Hann kveðst eingöngu aka rútunni í
sumar en megninu af árinu ver hann með fjöl-
skyldu sinni á Filippseyjum. Hann er kvæntur
þarlendri konu og hyggst hann reisa þar lítið
strandhótel við baðströnd sem hann á. „Ég bý
í paradís,“ segir hann og hvetur alla Íslend-
inga til að leggja leið sína austur til Asíu að
heimsækja hann á hótelið hans sem er á Cebu-
eyju. Þar sé veðrið frábært og fólkið ekki
síðra.
„Ég er núna á Íslandi að vinna mér inn smá
peninga til að fjármagna dæmið,“ segir Alfreð
sem á ættir sínar að rekja í Hafnarfjörðinn.
Morgunblaðið/Árni Torfason
Ekur rútu í sumar og býr í paradís
SIGURÐUR Arnalds, talsmaður
Landsvirkjunar, segir að Lands-
virkjun muni greiða allan kostnað
sem falli til vegna þeirra tafa sem
hafa orðið við borun jarðganga við
Kárahnjúkavirkjun. Eins og fram
kom í Morgunblaðinu í gær mun
borun jarðganga við virkjunina
ekki ljúka fyrr en næsta haust, en
áætlanir gerðu ráð fyrir að henni
lyki um mitt næsta ár. Erfiðleikar
hafa komið upp vegna vatnsaga og
misgengis í berginu.
„Þessar seinkanir eru af jarð-
fræðilegum ástæðum, sem ekki er
hægt að kenna Impregilo [ítalska
verktakafyrirtækinu] um. Í jarð-
gangagerð er alltaf eitthvað sem
getur komið upp á og tekur Lands-
virkjun sjálf þá áhættu. Ef verk-
takinn ætti að taka þá áhættu
myndi hann verðleggja hana fyr-
irfram svo hátt að það myndi
örugglega ekki borga sig. Þegar
upp er staðið er því hagkvæmara
að Landsvirkjun taki á sig áhætt-
una.“
Sigurður segir enn ekki ljóst
hvað tafirnar muni kosta. „Lands-
virkjun er hins vegar með ákveðinn
sjóð, sem heitir ófyrirséður kostn-
aður, og er hann einmitt notaður í
svona tilvikum.“
Sigurður segir að seinkunin
muni ekki hafa áhrif á afhendingu
orku frá virkjuninni til álvers
Fjarðaáls. „Hins vegar er það
þannig, að ef Landsvirkjun afhend-
ir ekki rafmagnið á réttum tíma
eða ef álverið er ekki tilbúið á rétt-
um tíma fara fram samningavið-
ræður milli aðila, þ.e. Landsvirkj-
unar, sem framleiðir rafmagnið, og
Alcoa, sem kaupir það.“
Landsvirkj-
un tekur á
sig kostnað
HÆSTIRÉTTUR staðfesti síðastlið-
inn þriðjudag úrskurð Héraðsdóms
Reykjavíkur frá 22. júlí um að kona,
sem framvísaði fölsuðu bresku vega-
bréfi og segist hafa ríkisfang í Líberíu
en kann að vera frá Nígeríu, sæti
gæsluvarðhaldi til 14. október næst-
komandi. Konan framseldi hér á landi
falsaðar erlendar ávísanir samtals, að
andvirði tæpa milljón króna. Verið er
að rannsaka hver konan er í raun og
veru.
Konan var handtekin í Danmörku í
júní ásamt karlmanni en þau voru
grunuð um stórfelld fjársvik og þjófn-
að hér á landi. Konan var um miðjan
júlí dæmd í 30 daga fangelsi fyrir að
hafa framvísað fölsuðu vegabréfi en
sýknuð af auðgunarbrotum og skjala-
falsi að öðru leyti. Maðurinn var hins
vegar sakfelldur fyrir skjalafals og
auðgunarbrot og dæmdur til að sæta
fangelsi í 15 mánuði. Í ljós hefur kom-
ið að þau framvísuðu bæði fölsuðum
vegabréfum.
Innistæðulausar ávísanir
Eftir að dómurinn var kveðinn upp
lagði íslenskur banki fram kæru á
hendur konunni fyrir að framselja
tvær innstæðulausar ávísanir hér á
landi. Konan viðurkenndi að hafa
framselt ávísanirnar en kvaðst ekki
hafa vitað að þær væru falsaðar og
neitaði að hafa átt þátt í að falsa þær.
Fram kemur í úrskurði héraðs-
dóms að rannsókn þessara nýju sak-
arefna sé langt komin og muni lög-
reglan í Reykjavík gefa út ákæru á
hendur konunni og manninum fyrir
ætluð brot þeirra sem nú séu til rann-
sóknar. Þá hefur ríkissaksóknari
ákveðið að áfrýja framangreindum
dómi yfir konunni til Hæstaréttar.
Í úrskurði héraðsdóms er vísað til
kröfugerðar lögreglu þar sem segir
að hafa beri í huga að konan sé vega-
laus útlendingur sem hafi gefið mis-
vísandi upplýsingar um það hver hún
sé og hafi verið sakfelld fyrir að nota
falsað vegabréf í því skyni að villa á
sér heimildir. Ætla megi að konan
muni reyna að komast úr landi eða
leynast til að komast undan málsókn
og fullnustu refsingar. Félagi hennar
hafi viðurkennt að hafa komið hingað
til lands á vegabréfi annars manns.
Hann beri nú að hann sé með níger-
ískt ríkisfang og hann hafi einnig tjáð
lögreglu að konan sé frá Nígeríu.
Rannsókn á því hver konan sé í raun
og veru verði haldið áfram.
Erlend kona í
gæsluvarðhaldi
vegna fjársvika
HALLDÓR Ásgrímsson forsætis-
ráðherra og Sigurjóna Sigurðardótt-
ir eiginkona hans verða í opinberri
heimsókn í Kanada dagana 28. júlí til
2. ágúst nk.
Í heimsókninni mun forsætisráð-
herra meðal annars funda með Paul
Martin, forsætisráðherra Kanada,
Gary Doer, forsætisráðherra Mani-
tobafylkis, og heimsækja háskólann í
Manitoba auk þess sem forsætisráð-
herra mun taka þátt í og halda hátíð-
arræðu á Íslendingadeginum í Gimli
1. ágúst.
Þá mun forsætisráðherra jafn-
framt heimsækja Íslendingabyggðir
í Norður-Dakóta í Bandaríkjunum
meðan á heimsókninni stendur.
Forsætisráðherra í opin-
bera heimsókn til Kanada