Morgunblaðið - 28.07.2005, Page 11
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 28. JÚLÍ 2005 11
FRÉTTIR
H Æ Ð A S M Á R A 4 • S Í M I 5 4 4 5 9 5 9
H V E R A F O L D 1 - 3 , G R A F A R V O G I
• S Í M I 5 7 7 4 9 4 9
Ú T S A L A
50-70%
A F S L Á T T U R
YFIRSKATTANEFND hefur lokið
umfjöllun sinni um kæru 365 ljós-
vakamiðla, sem áður hét Íslenska
útvarpsfélagið, vegna endurálagn-
ingar ríkisskattsstjóra á félagið
vegna áranna 1997 og 1998. Úr-
skurður yfirskattanefndar felur í
sér að 365 ljósvakamiðlar fái end-
urgreidda úr ríkissjóði 136,1 millj-
ón króna, sem félagið hafði áður
greitt vegna endurálagningar rík-
isskattsstjóra vegna þessara ára.
Yfirskattanefnd féllst á kröfu 365
ljósvakamiðla um að félaginu hefði
verið heimilt að nýta sér yfirfær-
anlegt tap vegna rekstrar Íslenskr-
ar margmiðlunar hf. að fullu og tap
Sjónvarpsmarkaðarins ehf. að
hluta. Yfirskattanefnd staðfesti
hins vegar úrskurð ríkisskattstjóra
varðandi yfirfæranlegt tap vegna
Íslenska sjónvarpsins hf. og Nýja ís-
lenska símafélagsins hf.
365 ljósvaka-
miðlar fá endur-
greiddan skatt
FINNAR hófu um helgina tíma-
bundið landamæraeftirlit á innri
landamærum Finnlands að Scheng-
en-ríkjunum. Eftirlitið nær til 14.
ágúst nk. Er þetta gert til að
tryggja öryggi vegna heimsmeist-
aramótsins í frjálsum íþróttum sem
fer fram í Helsinki dagana 6. til 14.
ágúst. Smári Sigurðsson, aðstoð-
aryfirlögregluþjónn hjá ríkislög-
reglustjóraembættinu, segir að skv.
Schengen- samningnum hafi aðild-
arlönd heimild til að taka upp tíma-
bundið landamæraeftirlit. „Þau
þurfa [í slíkum tilvikum] að til-
kynna það öðrum aðildarlöndum og
útskýra hvers vegna það sé gert.“
Íslendingar gripu til þessara ráð-
stafana í kringum Nato-fundinn í
maí 2002.
Í tilkynningu frá finnskum
stjórnvöldum segir að landamæra-
verðir muni ekki athuga hvern ein-
asta ferðamann, heldur einn og
einn, sem valinn verði af handahófi.
Norrænir ríkisborgarar þurfi ekki
vegabréf, en eigi þó að geta gert
grein fyrir sér. Smári ráðleggur þó
öllum íslenskum ferðamönnum að
hafa með sér vegabréf, hvort sem
þeir eru að fara til Finnlands eða
annað.
Finnar hefja
landamæraeftirlit
ÁSTÞÓR Magnússon Wium, for-
svarsmaður Friðar 2000, hefur
kært ritstjórn DV til lögreglunnar í
Reykjavík fyrir brot á almennum
hegningarlögum vegna meiðyrða. Í
yfirlýsingu frá Ástþóri segir að
frétt sem birtist í DV síðastliðinn
þriðjudag undir fyrirsögninni
„Blindfullur í miðbænum“ með til-
vísun í grein inni í blaðinu sé byggð
á algerum uppspuna blaðsins.
„Í grein blaðsins var hins vegar
ekki einu orði vikið að meintu ölv-
unarástandi enda fyrrnefnd fyr-
irsögn á forsíðu og greinin sjálf aft-
ar í blaðinu byggð á hreinum
skáldskap greinarhöfundar DV.
[…] Einnig er fullyrt að Ástþór sé
kominn með einhverja nýja kær-
ustu upp á arminn, sem einnig er
ósatt,“ segir m.a. í yfirlýsingunni
en þar er jafnframt tekið fram að
Ástþór sé ennþá giftur Natalíu
Wium og þau hjónin ráðgeri að
rækta sitt hjónaband áfram.
Þetta er í annað skipti sem Ást-
þór kærir DV fyrir umfjöllun um
sig. Fyrra málið var dómtekið í
Héraðsdómi Reykjavíkur í vor og
málflutningur verður í september.
Ástþór kærir
ritstjórn DV
til lögreglu
FÉLAGARNIR Þorvaldur Þórsson
og Árni Tryggvason úr Reykjavík
brugðu sér norður yfir heiðar um
helgina og fóru saman í fjallgöngu.
Það þykir í sjálfu sér ekki í frásögur
færandi þótt menn gangi á fjöll sér
til heilsubótar og skemmtunar en
þeir félagar fóru lengri leiðina, eða
eftir sýslumörkunum frá Öxnadals-
heiði og norður Tröllaskaga. Þor-
valdur gekk í tæpa 39 klukkutíma
og kom niður Fljót og Árni fylgdi
honum í um 30 klukkustundir en fór
niður í Svarfaðardal af Heljardals-
heiði, fæturnir búnir að fá nóg og
hann kominn með slæm hælsæri.
Aðstæður til göngu voru gríðarlega
erfiðar, enda yfir stórgrýti að fara
lengst af. Árni sagði að hann hefði
viljað vera þremur vikum fyrr á
ferðinni, því þá var meiri snjór
þarna uppi, sem auðveldara er að
ganga yfir.
Þorvaldur og Árni lögðu upp frá
sýslumörkum Skagafjarðar og
Eyjafjarðar kl. 8.30 sl. laugardags-
morgun. Þeir gengu á rúmlega 20
tinda á leiðinni og slepptu aðeins
tveimur tindum á Leiðarhnjúkum af
öryggisástæðum. Hæðarhækkunin
var rúmir 6.000 metrar og vega-
lengdin sem Þorvaldur gekk á þess-
um 39 klst. var um 90 km en Árni
gekk um 77 km. Veðrið var nokkuð
gott í ferðinni, örlítill strekkingur á
köflum en lengst af logn en skyggi
oft lítið. Þeir Þorvaldur og Árni eru
miklir reynsluboltar þegar kemur
að fjallgöngu og í mjög góðu lík-
amlegu formi, það er líka eins gott
þegar ráðist er í svona ævintýri.
Hafa þeir m.a. starfað með Hjálp-
arsveit skáta í Reykjavík í áratugi.
Gríðarlega ögrandi verkefni
Árni sagði að þessi leið hefði aldr-
ei verið farin áður svo vitað væri en
ýmsir fjallamenn hafi gælt við hug-
myndina án þess að leggja í hana.
„Þetta er gríðarlega ögrandi verk-
efni fyrir vaska göngumenn og þetta
ævintýri okkar verður vonandi öðr-
um hvatning til að reyna við leið-
ina,“ sagði Árni.
Þorvaldur sagðist hafa fengið
hugmyndina að ganga norður
Tröllaskaga fyrir um tveimur árum
er hann gekk Glerárdalshringinn,
sem hópur fólks endurtók nú ný-
lega, þ.e. gekk á 24 tinda á um sólar-
hring.
Þeir voru með GPS-tæki í för og
sagði Þorvaldur að skyggnið sem
þeir fengu stóran hluta leiðinnar
hefði verið það lítið að þeir hefðu
aldrei komist á leiðarenda án tæk-
isins, enda leiðin vandrötuð og á
köflum óljós og hlykkjótt. Þeir fé-
lagar notuðust við kort sem Hjalti
Þórðarson á Hólum gerði en Bjarni
Guðleifsson á Möðruvöllum sá um
örnefni og merkti gönguleiðir inn á
kortið. „Þegar þokan var sem þykk-
ust um nóttina rötuðum við ein-
göngu eftir GPS-tækinu og studd-
umst jafnframt við greinargóðar
upplýsingar um landslagið frá
Bjarna Guðleifssyni.“
Gekk lengra en áætlað var
Staðsetningartækið var orðið raf-
hlöðulítið síðasta spöl Þorvaldar og
alveg óvirkt síðustu klukkutímana.
Hann náði því ekki að fylgja sýslu-
mörkunum alveg eftir frá Svarf-
aðardalsbotni og niður í Fljót og því
varð vegalengdin sem hann gekk
heldur lengri en upphaflega var
áætlað. Eftir viðskilnaðinn við Árna
í botni Svarfaðardals hélt Þorvaldur
á Unadalsjökul, upp á Nónhyrnu og
þaðan eftir fjallsrananum milli Móa-
fellsdals og Tungudals. „Ég fór svo
niður í Tungudal og fylgdi þar á í
svartaþoku niður að Stífluvatni en
frá vatninu gekk ég eftir slóða upp á
þjóðveginn efst í Fljótunum. „Ég
vissi af veginum yfir Lágheiði ein-
hvern spöl í burtu en vegna þoku
ákvað ég að fylgja ánni að Stíflu-
vatni.“ Þorvaldur sagðist hafa verið
orðinn mjög þreyttur síðasta spölinn
en þrátt fyrir ýmsar hindranir fann
hann þá aukaorku í líkamanum sem
dugði til að komast á leiðarenda.
Þorvaldur Þórsson og Árni Tryggvason héldu í fjallgöngu og fóru lengri leiðina
Gengu eftir
sýslumörkum
um Tröllaskaga
Þorvaldur gekk um 90 km á 39 tímum
og Árni gekk um 77 km á 30 tímum.
Hækkunin á leiðinni var um 6 km.
Félagarnir Þorvaldur Þórsson og Árni Tryggvason hófu gönguna við
sýslumörkin á Öxnadalsheiði. Báðir komu heim með brotna og eða bogna
göngustafi eftir erfiðið og skór Þorvaldar voru nánast í henglum.
Þorvaldur Þórsson hvílir lúin bein í einum af hliðardölum Svarfaðardals en alls gekk hann um 90 km.
Eftir Kristján Kristjánsson
krkr@mbl.is