Morgunblaðið - 28.07.2005, Síða 15
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 28. JÚLÍ 2005 15
ERLENT
AURSKRIÐUR og flóð urðu að
minnsta kosti 99 manns að bana í
vesturhluta Indlands í gær. Um
100 manns urðu auk þess stranda-
glópar en gríðarlegar rigningar
hafa verið á svæðinu síðastliðna
fjóra daga.
Indverska veðurstofan segir að í
borginniMumbai og svæðunum þar
í kring hafi úrkoman mælst 944,2
millimetrar. Þetta er mesta úr-
koma sem mælst hefur í sögu
landsins og var fyrra met þar með
slegið, en það var frá árinu 1910.
Umferð var stöðvuð til og frá
borginni annan daginn í röð, því
spáð hefur verið frekari rigningu.
Björgunaraðgerðir hafa verið
mjög erfiðar því fjölmargir vegir
eru lokaðir. „Björgunarsveitir lög-
reglu eiga enn eftir að ná til
þorpa sem hafa orðið illa úti í
rigningunum. Það er bara ekki
hægt að komast þangað vegna
flóða,“ segir lögreglustjórinn Sunil
Dareghan.
Monsúnvindarnir herja á þetta
svæði frá júní til september ár
hvert og verða í hvert sinn um
hundrað manns að bana. Síðan í
júní í ár hafa 633 látið lífið í flóð-
um og aurskriðum, 76.000 dýr
hafa einnig farist og 7.000 hekt-
arar af landi eyðilagst. Talið er að
um 283.000 heimili séu skemmd
eða eyðilögð. Innanríkisráðherra
Indlands, Shivraj Patil, sagði tæp-
ar sex milljónir manna í 131 hér-
aði og 16.000 þorpum hafa orðið
fyrir flóðunum en rigningar hafa
verið gríðarlegar síðustu fjóra
daga.
Reuters
Hundrað deyja í
flóðum á Indlandi
Teheran. AFP. | Íranar ætla að
taka aftur til við að umbreyta
úrangrýti en það er nauðsyn-
legt til að unnt sé að auðga það.
Mohammad Khatami, forseti
Írans, tilkynnti þetta í gær og
sagði að vonandi féllust vest-
ræn ríki á þessa ákvörðun en á
hinn bóginn skipti engu þótt
þau gerðu það ekki. Khatami,
sem lætur forsetaembættið af
hendi til harðlínumannsins
Mahmood Ahmadinejad
snemma í ágúst, gaf í skyn að
byrjað yrði á umbreytingu úr-
angrýtis á næstu vikum en eftir
eina eða tvær vikur ætla for-
ysturíkin þrjú í Evrópusam-
bandinu, Bretland, Frakkland
og Þýskaland, að leggja fram
tillögur um framtíðarskipan
kjarnorkumála í Íran. Hafa rík-
in lýst því yfir að hefji Íranar
aftur að umbreyta úrangrýti
eða að auðga úran, muni þau
styðja kröfu Bandaríkjanna um
að málið verði tekið fyrir í ör-
yggisráði Sameinuðu þjóðanna
með refsiaðgerðir fyrir augum.
Íranar
ögra
ESB-
ríkjum
Albany í New York. AP. | George
Pataki, ríkisstjóri í New York,
lýsti því í gær yfir að hann hygðist
ekki sækjast eftir endurkjöri í rík-
isstjórakosningum sem fara fram
haustið 2006.
Pataki hefur verið orðaður við
forsetaframboð haustið 2008 og því
hafa verið uppi vangaveltur um að
hann myndi ekki gefa kost á sér
áfram sem ríkisstjóri; að hann
myndi vilja einbeita sér að því að
tryggja sér útnefningu sem for-
setaefni Repúblikanaflokksins. En
Pataki vildi ekki staðfesta í gær að
þetta væru áform hans. „Þá
ákvörðun tek ég síðar. Ég útiloka
ekkert en markmið mitt er að
sinna starfi mínu sem ríkisstjóri
eins vel og ég get næsta eina og
hálfa árið,“ sagði hann.
Pataki er sextugur og hefur ver-
ið ríkisstjóri í New York síðan
1994, en þá bar hann sigurorð af
sitjandi ríkisstjóra, demókratanum
Mario Cuomo. Skoðanakannanir
sýna að Pataki nýtur minna fylgis
en Eliot Spitzer sem þykir líklegur
til að verða frambjóðandi demó-
krata í ríkisstjórakjörinu á næsta
ári.
George Pataki
hættir 2006
Íhugar forsetaframboð 2008
George Pataki