Morgunblaðið - 28.07.2005, Síða 19
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 28. JÚLÍ 2005 19
MINNSTAÐUR
AKUREYRI
Djass | Djassbandið Póstberarnir
leikur á Heitum fimmtudegi í Deigl-
unni í kvöld, fimmtudagskvöldið 28.
júní, kl. 21.30. Bandið leikur fágæta
húsganga, sem eru sjaldheyrðar
djassperlur, í eigin útsetningum.
Hljómsveitina skipa þeir Andrés
Þór Gunnlaugsson á gítar, Eyjólfur
Þorleifsson á saxafón, Scott McLe-
more á trommur og Ólafur Stolzen-
wald á kontrabassa.
Sýning | Siggi P. (Sigurður Pétur
Högnason) opnar sýningu í Deiglunni
í dag, fimmtudaginn 28. júlí, kl. 17. Á
sýningunni eru olíumálverk sem hann
hefur málað í Hrísey. Sýningin stend-
ur til 21. ágúst og er opin alla daga
nema mánudaga frá kl. 13 til 17.
Tónleikar | Hvanndalsbræður
koma fram á tónleikum á Græna
hattinum í kvöld, fimmtudags-
kvöldið 28. júlí, og hefjast þeir kl.
21.30, en húsið verður opnað hálf-
tíma fyrr. „Það er langt síðan við
höfum leikið á Akureyri,“ sagði
Valur Freyr Halldórsson, einn
þeirra Hvanndalsbræðra. „Við höf-
um reynt að vera sem mest í fríi í
sumar, erum að vinna að nýrri
plötu, þriðju plötunni okkar og það
má segja að við höfum einbeitt
okkur að þeirri vinnu undanfarið.“
Á tónleikunum kynna bræðurnir
lög af nýju plötunni, en hún er
væntanleg á markað nú á komandi
hausti. „Svo spilum við líka eitt-
hvað af eldri lögum, nokkur val-
inkunn lög sem fólk þekkir,“ sagði
Valur. „Þetta verður bara afslapp-
að og skemmtilegt, við verðum með
ýmsar óvæntar uppákomur, happ-
drætti og förum að venju með
gamanvísur.“
Sýningu lýkur | Síðasti sýningar-
dagur á sýningu Steingríms Eyfjörð í
Kunstraum Wohnraum á Akureyri er
í dag, fimmtudaginn 28. júlí. Sýningin
er í Ásabyggð 2 og er opin frá 15–17.
Á sýningunni er fjöldi teikninga af
tindátum og á gólfinu er stór kúla.
ÞEIR voru að fá sér ís ferðalang-
arnir þýsku á Ráðhústorgi í gær-
dag. Annar frá Cuxhaven og hinn
Bremerhaven,
þeim ágætu
hafnarborgum.
Létu þeir vel af
veðrinu, sól og
blíða í gær og
hitinn á hinum
fræga mæli sýndi 22 stig. Raunar
hafði áhugamaður um veðurfar séð
töluna 25 aðeins fyrr um daginn.
Útlitið framundan er bara ágætt,
hæg suðvestanátt og léttskýjað.
Gera má ráð fyrir að fólk fari að
flykkjast í bæinn en hátíðin Ein
með öllu hefst á morgun.
Ís í sól og blíðu
ÞAÐ hefur verið mikið líf á opnu
svæði við Vestursíðu á Akureyri
undanfarnar vikur en þar hefur
framkvæmdadeild bæjarins staðið
fyrir smíðanámskeiði fyrir börn á
aldrinum 8-12 ára og er um fjórð-
ungur þátttakenda stelpur. Fjöl-
margir kofar hafa risið á svæðinu og
hafa börnin farið heim með sína kofa
að byggingu lokinni. Kári Eðvalds-
son smiður er leiðbeinandi á nám-
skeiðinu og hann sagði að bæði for-
eldrar og systkini hefðu komið til að
hjálpa börnum við smíðina. „Hér
innan um eru smiðir framtíðarinnar
og það heyrir til undantekninga ef
krökkum finnst ekki gaman að
smíða,“ sagði Kári.
Morgunblaðið/Kristján
Smiðir Stelpurnar báru sig fagmannlega að við smíðina líkt og strákarnir.
Kofaborg
Smiðir fram-
tíðarinnar
HÖFUÐBORGARSVÆÐIÐ
S
igurður R. Helgason,
framkvæmdastjóri
Björgunar, vísar því al-
gerlega á bug að kenna
megi efnistöku Björg-
unar um landbrot í Hvalfirði eins
og haldið var fram í Morg-
unblaðinu í gær. Almættið sé
þarna ráðandi afl en ekki Björgun.
Sigurður sagði að það væri ekki
nýtt að landbrot ætti sér stað á
Kjalarnesi eða í Hvalfirði. „Land-
brot hefur átt sér stað í árhundr-
uð á Kjalarnesi og á Hvalfjarð-
arströnd. Þetta kemur skýrt fram
í Jarðabók Árna Magnússonar og
Páls Vídalín frá árinu 1706. Þar
segir t.d. um Saltvík, sem flestir
höfuðborgarbúar þekkja vel, að
þegar Árna bar að garði hafi stað-
ið til að færa bæinn á Saltvík frá
ágangi sjávar í fjórða sinn frá
landnámi.
Á fleiri bæjum við ströndina
sem Árni heimsótti er kvartað
undan ágangi sjávar.
Nýlegra dæmi er frá Saurbæ á
sunnanverðri Hvalfjarðarströnd.
Þar er eini lóðrétti kirkjugarð-
urinn á Íslandi. Þar hangir loðnu-
nót utan á kirkjugarðinum og tek-
ur við beinum sóknarbarna sem
hrynja undan ágangi sjávar ofan í
nótina. Fyrirtækið Björgun kemur
hvergi þar við sögu og ekki heldur
í Saltvík í árdaga. Það er hins
vegar einfalt fyrir fólk sem lifir í
núinu og sér dæluskip úti í hafs-
auga að segja að þarna sé söku-
dólgurinn,“ sagði Sigurður.
Fengu vinnsluleyfi
til 40 ára
Samkvæmt lögum veitir iðn-
aðarráðuneytið leyfi til dælingar í
sjó utan netalagna, en þar er mið-
að við u.þ.b. 120 metra frá landi.
Björgun var fyrir um 25 árum
veitt leyfi til dælingar í sjó í Hval-
firði til 40 ára. Sigurður sagði að
vissulega hefðu borist kvartanir
vegna dælingar á vegum Björg-
unar. Fyrir 10-12 árum hefðu
nokkrir landeigendur í Hvalfirði
kvartað við iðnaðarráðuneytið og
þá hefði ráðuneytið óskað eftir að
Orkustofnun rannsakaði áhrif dæl-
ingar fyrirtækisins. Á þeim tíma
hefði Björgun verið að dæla utan í
eyri við bæinn Eyri í Hvalfirði.
Steypustöðin hefði verið með efn-
istöku úr eyrinni á árum áður en
fyrir um 40 árum hefði Björgun
gert námusamning við landeig-
anda um námuréttindi gegn
greiðslu. Eftir þá rannsókn hefði
verið gert samkomulag um að
sanddæluskip dældi ekki nærri
landi við Eyri. Þar hefðu fyrst og
fremst öryggissjónarmið ráðið
ferðinni. Það samkomulag hefði
verið haldið.
Sigurður sagði að vissulega tæki
Björgun mikið efni úr sjávarbotn-
inum, en það væri ekki rétt að
kenna Björgun um landbrot við
ströndina. „Ég tel að almættið sé
þarna ráðandi afl. Ég fæ ekki séð
að við komum þar neins staðar
að,“ sagði Sigurður.
Sigurður sagði aðspurður að það
væri ekki rétt, sem Jón Gíslason,
bóndi á Hálsi í Kjós, sagði í Morg-
unblaðinu í gær, að sanddæluskip
Björgunar hefðu verið við dælingu
innan við 120 metra frá strönd-
inni.
Framkvæmdastjóri Björgunar hf. telur ekki að hægt sé að kenna fyrirtækinu um landbrot
„Tel að almætt-
ið sé þarna
ráðandi afl“
Bærinn í Saltvík færður fjórum sinn-
um frá landnámi vegna landbrots
Morgunblaðið/Sigurður Jökull
Sanddæluskip Björgunar dæla sandi og möl m.a. í Hvalfirði og á sundunum við Reykjavík.
Eftir Egil Ólafsson
egol@mbl.is
FÉLAGSMÁLARÁÐUNEYTIÐ
hefur hafnað kröfu Tónskóla Hörp-
unnar um að ráðuneytið ógildi
ákvörðun Reykjavíkurborgar um
fjárstyrk. Skólinn taldi að borgin
hefði brotið jafnræðisreglu stjórn-
sýslulaga með ákvörðun sinni.
Í úrskurði ráðuneytisins segir að
viss ágalli sé á stjórnsýslu og máls-
meðferð Reykjavíkurborgar í
þessu máli, en út frá gögnum máls-
ins sé ekki hægt að fullyrða að um
brot á lögum um fjárhagslegan
stuðning við tónlistarskóla, stjórn-
sýslulögum, reglum Reykjavíkur-
borgar eða meginreglum stjórn-
sýsluréttar hafi verið að ræða.
Bent er á að viðmiðun borgarinnar
um heildarfjármagn til málaflokks-
ins ráði því með hverjum hætti nýir
skólar fá styrk og það geti almennt
ekki talist andstætt jafnræðisreglu
eða meginreglunni um málefna-
lega málsmeðferð, enda fái nýir
skólar sömu málsmeðferð innbyrð-
is.
Hafnaði kröfu Tón-
skóla Hörpunnar
M. Benz Benimar húsbíll
Einn með öllu. Sjálfskiptur. Stór vél. Sem nýr.
Ekinn aðeins 3.000 km. Upplýsingar í síma 899 5128.