Morgunblaðið - 28.07.2005, Síða 22
22 FIMMTUDAGUR 28. JÚLÍ 2005 MORGUNBLAÐIÐ
MINNSTAÐUR
AUSTURLAND
M
jög treglega hefur
gengið að ráða ís-
lenskt starfsfólk til
Bechtel, en fyrir-
tækið byggir álver
fyrir Alcoa-Fjarðaál í Reyðarfirði.
Björn S. Lárusson, upplýsinga-
fulltrúi Bechtel, segir að vel gangi
hins vegar að ráða starfsfólk í Pól-
landi og að á næstu tveimur vikum
komi 50-100 Pólverjar til Reyð-
arfjarðar. Það stefni í að aðeins um
20% starfsmanna verði Íslending-
ar.
Nú eru um 450 menn að störfum
á álverslóðinni í Reyðarfirði. Björn
sagðist ekki hafa það á hreinu hve
stór hluti starfsmanna væri Íslend-
ingar. Hann sagði að Bechtel væri
búið að auglýsa mjög mikið eftir
starfsfólki hér heima. „Það hefur
gengið mjög treglega að fá íslenskt
starfsfólk til starfa. Að undanförnu
hefur þetta nánast lognast út af.
Það gengur hins vegar mjög vel úti
í Póllandi.“
Bechtel er með eigin ráðninga-
skrifstofu í Kraká í Póllandi. „Við
erum ekki með neina milliliði í Pól-
landi. Menn eru ráðnir til Bechtel
og skráðir á Íslandi þar sem þeir
greiða skatta og skyldur,“ sagði
Björn.
Björn sagði að þrátt fyrir að illa
hefði gengið að fá Íslendinga til
starfa væru ekki horfur á að vinn-
an við byggingu álversins tefðist.
Fyrirtækið myndi ráða fólk í Pól-
landi í þau störf sem ekki næðist
að manna hér á landi. Starfsmönn-
um Bechtel verður fjölgað hratt á
næstunni. Flestir verða starfs-
mennirnir næsta sumar eða um
1.600. Starfsmönnum fækkar hins
vegar hratt þegar kemur fram á
árið 2007 en í lok þess árs er gert
ráð fyrir að byggingu álversins
verði lokið.
Björn sagði að vinna við starfs-
mannabúðirnar hefði gengið vel og
nú væru um 1.000 herbergi á svæð-
inu.
Björn sagði að von væri á stáli
frá Kína 3. ágúst og þegar það
væri komið yrði byrjað að reisa ál-
verið. Verið væri að byrja jarð-
vinnu við síðasta fjórðung álversins
og búið væri að steypa undirstöður
undir um helming álversins.
Vel gengur að ráða
fólk til Fjarðaáls
Vel hefur hins vegar gengið að
ráða fólk í vinnu hjá Fjarðaáli að
sögn Hrannar Pétursdóttur, starfs-
manna- og kynningastjóra hjá Al-
coa-Fjarðaáli. „Í hvert sinn sem
við auglýsum fáum við bæði mikið
af umsóknum og mikið af góðu
fólki.“
Hrönn sagði að útlit væri fyrir
að allt starfsfólk yrði íslenskt, eins
og að var stefnt. „Þetta er fólk alls
staðar að; frá Austurlandi, af höf-
uðborgarsvæðinu og víðar af land-
inu. Eins höfum við fengið um-
sóknir frá Íslendingum sem búið
hafa erlendis og sjá tækifæri til að
koma heim.“
Hrönn sagði að búið væri að
ráða átta starfsmenn til Fjarðaáls
og búið væri að auglýsa 12 störf til
viðbótar sem yrði ráðið í á næstu
vikum. „Nú förum að ráða nánast
mánaðarlega. Í lok þessa árs og í
byrjun næsta förum við að auglýsa
í stórum stíl. Þá erum við að ráða
til okkar um 50 manns í hverjum
mánuði.“
Hrönn sagði að fólk færi til að
byrja með í starfsþjálfun. Sumir
færu í 6-9 mánaða þjálfun en aðrir
í 3-6 vikna þjálfun. Flestir yrðu í
þjálfun hér á landi en nokkrir yrðu
sendir utan og fengju m.a. það
hlutverk að þjálfa nýja starfsmenn.
Hrönn sagði að Fjarðaál fylgdist
vel með hvort hægt verði að mæta
húsnæðisþörf starfsmanna. „Við
verðum með bráðabirgðaaðstöðu ef
á því þarf að halda. Við erum núna
að komast á það stig að vita hve-
nær og hve marga aðflutta við
þurfum að ráða. Við munum deila
þessum upplýsingum með bygg-
ingaverktökum á svæðinu. Það eru
margir tilbúnir að byggja, en það
er líka verið að byggja mikið
núna.“
Gert er ráð fyrir að starfsmenn
álversins verði um 400 þegar það
er komið í fullan rekstur, en búist
er við að álíka mörg ný störf verði
til á svæðinu í þjónustu beint eða
óbeint við álverið.
Bechtel gengur illa að
fá Íslendinga til starfa
50–100 Pólverjar koma til starfa á Reyðarfirði í byrjun ágúst
Morgunblaðið/Steinunn Ásmundsdóttir
Framkvæmdir ganga vel Byrjað verður að reisa grind álversins í byrjun
ágúst, en von er á stáli frá Kína til landsins 3. ágúst.
Eftir Egil Ólafsson
egol@mbl.is
SEX manna hópur fann fyrr í mán-
uðinum nokkrar perlur af „fjall-
konunni“ sem fannst í fyrrasumar
á Vestdalsheiði um 10-15 kílómetra
frá Seyðisfirði. Hópurinn fékk leyfi
til að fara á staðinn og leita að nýju
að perlum og fundust fimm perlur,
fjórar litlar og ein stærri.
Í fyrrasumar fundu tveir Seyð-
firðingar, Unnar Svanlaugsson og
Ágúst Borgþórsson, tvær nælur
frá tíundu öld á Vestdalsheiði. Við
rannsókn sem Sigurður Berg-
steinsson fornleifafræðingur
stjórnaði fundust um 420 perlur til
viðbótar, margar skrautlegar, og
er þetta með stærstu skartgripa-
fundum hérlendis. Skammt frá
fannst beinagrind af ungri konu.
Eitt af því óvenjulega við fundinn
er að konan og perlurnar fundust á
stað sem er í um 600 metra hæð yf-
ir sjávarmáli.
Kolbrún Erla Pétursdóttir frá
Seyðisfirði, sem fór á svæðið fyrir
skömmu, sagði að það væri gaman
að leita að fornleifum, sérstaklega
þegar leitin skilaði árangri. Hún
sagðist telja nokkuð víst að fleiri
perlur væru þarna á svæðinu. Perl-
urnar sem hópurinn fann hafa ver-
ið sameinaðar perlunum sem fund-
ust í fyrra.
Ljósmynd/Sólveig Sigurðardóttir
Fundu perl-
ur af „fjall-
konunni“
LANDIÐ
Hellissandur | Sú trú hefur verið
ríkjandi á Hellissandi og víðar hér
undir Jökli að trjágróður þrifist
illa eða ekki á svæðinu. Einn og
einn hefur þó gefið lítið fyrir þá
skoðun og á síðustu árum hafa tré
verið að teygja sig hér hærra og
hærra í görðum húsa. Nú í vor út-
hlutaði bæjarstjórn Snæfellsbæjar
Skógræktar- og landverndarfélagi
undir Jökli góðri landspildu í
byggðinni á Hellissandi. Félagið
undirbjó þennan reit og ákvað að
planta þar 75 trjáplöntum til heið-
urs Skógræktarfélagi Íslands á 75
ára afmæli þess.
Um helgina komu 65 trjá-
plöntur af fimm tegundum frá
Gróðrarstöðinni á Lágafelli á
Vegamótum. Skógræktarfélagið
fékk svo Pál Sigurvinsson garð-
yrkjumann til að koma plöntunum
í moldina og hann lagði einnig til
eina trjátegund, tíu plöntur af
birki.
Jón Geir Pétursson, skógfræð-
ingur frá Skógræktarfélagi Ís-
lands, staðsetti trjáplönturnar á
svæðinu og voru grafnar verkleg-
ar holur fyrir hverja plöntu og
blandað húsdýraáburði við mold-
ina.
Félagar í skógræktarfélginu
segjast vona að þessi afmæl-
isgjörningur til Skógræktarfélags
Íslands verði til þess að minnka
vantrú manna á ræktun trjágróð-
urs og efli hug hinna sem áhug-
ann og trúna hafa.
Morgunblaðið/Hrefna Magnúsdóttir
Trjárækt Páll Sigurvinsson garðyrkjumaður leggur síðustu hönd á niðursetningu plantnanna.
Plöntuðu 75 trjáplöntum
Djúpivogur | Það var notaleg
stemmning í Löngubúð á Djúpa-
vogi þegar Hera Hjartardóttir
hélt tónleika þar í fyrrakvöld.
Þetta eru fyrstu tónleikarnir sem
hún heldur á Íslandi í langan
tíma en hún er að hefja tónleika-
ferð um landið. Þetta er í fjórða
skiptið sem Hera kemur fram á
Djúpavogi og segir það alltaf
jafn gott að koma og spila og
sofa við sjóinn. Dagskráin var
fjölbreytt, ný lög í bland við þau
gömlu, og það var greinilegt að
Hera náði vel til gesta með ein-
lægum flutningi sínum.
Hera stefnir á útgáfutónleika
5. ágúst en þá kemur út ný plata
sem hún hefur verið að vinna að
undanfarið. Tónleikagestir voru
á öllum aldri og á myndinni má
sjá þann yngsta, Victor Örn Vict-
orsson, sem verður tveggja ára í
september.
Hera skemmti í
Löngubúð
Yngsti aðdáandinn Hera heilsaði Victor Erni Victorssyni eftir tón-
leikana, en hann er án efa einn yngsti aðdáandi söngkonunnar einlægu.