Morgunblaðið - 28.07.2005, Síða 34
34 FIMMTUDAGUR 28. JÚLÍ 2005 MORGUNBLAÐIÐ
MINNINGAR
Ástkær eiginkona mín, móðir okkar, tengdamóðir
og amma,
BERTA BERGSDÓTTIR,
dvalarheimilinu Höfða,
Akranesi,
andaðist mánudaginn 25. júlí.
Útförin fer fram frá Akraneskirkju miðvikudaginn
3. ágúst kl. 14.00.
Kristján Leó Pálsson,
Kolbrún Kristjánsdóttir, John Haagensen,
Svanhildur Kristjánsdóttir, Ellert Ingvarsson
og ömmubörn.
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir,
afi og langafi,
SIGURÐUR GUNNARSSON
húsasmíðameistari,
Dalbraut 14,
Reykjavík,
lést á Landspítalanum við Hringbraut föstudaginn
15. júlí síðastliðinn og hefur útför hans farið fram í
kyrrþey að ósk hins látna.
Þeim sem vilja minnast hans er bent á Félag íslenskra hjartasjúklinga.
Alda Jónsdóttir,
Berglind Sigurðardóttir,
Gunnar Sigurðsson, Kristín Hálfdánardóttir,
Sigríður Sigurðardóttir, Jan Philip Eikeland,
Örn Sigurðsson, Fanney Kristjánsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
✝ Guðrún Sigur-jónsdóttir
fæddist á Tindum í
Svínavatnshreppi í
Austur-Húnavatns-
sýslu 12. mars
1926. Hún lést á
Landspítalanum
við Hringbraut 19.
júlí síðastliðinn.
Foreldrar hennar
voru hjónin Guð-
rún Erlendsdóttir
frá Beinakeldu í
Torfalækjarhreppi,
f. 28. maí 1886, d.
1. júlí 1966, og Sigurjón Þorlák-
ur Þorláksson frá Brenniborg í
Skagafirði, f. 17. mars 1877, d.
27. apríl 1943. Guðrún var yngst
af sjö systkinum en hin voru; a)
Ástríður, f. 10. júlí 1908, d. 25.
júní 1997, b) Erlendur, f. 12.
september 1911, d. 17. apríl
1988, c) Kristín, f. 22. apríl 1915,
d. 19. febrúar 1992, d) Þorlákur,
f. 15. ágúst 1916, d. 17. apríl
1995, e) Sigrún, f. 25. janúar
1920, d. 2. september 1938, og f)
Ingibjörg, f. 22. maí 1921, d. 19.
júlí 1977. Hinn 30. desember
1946 giftist Guðrún manni sín-
um, Sveini Magnússyni loft-
skeytamanni á Veðurstofu Ís-
lands, f. í Vestmannaeyjum 15.
nóvember 1919, d. 1. febrúar
1989. Foreldrar hans voru Magn-
ús Helgason frá Litlalandi í Ölf-
usi og Magnína J. Sveinsdóttir
frá Engidal í Skutulsfirði. Börn
Herdís, f. 18. desember 1963,
maki Kristján Gíslason, f. 1. júlí
1956. Börn hennar eru: a) Jón
Ingi, maki Eygló Ýr Egilsdóttir,
b) Hafdís Hödd. Börn Kristjáns
eru Stefán, Eva Lind, Erla og
Hanna. Guðrún ól Jón Inga upp
að mestu leyti og var hann bú-
settur hjá henni hin síðari ár.
Barnabarnabörn Guðrúnar eru
20.
Guðrún ólst upp í sveitinni, á
Tindum í Svínavatnshreppi í
Austur-Húnavatnssýslu, í faðmi
foreldra sinna og stórs systk-
inahóps.
Þar tók hún þátt í hefðbundn-
um bústörfum ásamt því að ljúka
barnaskólanámi í farskóla frá
Tindum. Sautján ára gömul fer
hún til Reykjavíkur til að læra
kjólasaum og lauk klæðskera-
námi frá Iðnskólanum í Reykja-
vík árið 1947.
Hún starfaði um tíma við iðn
sína, meðal annars hjá Feldinum.
Á námsárum sínum kynntist hún
manni sínum, Sveini, og hófu
þau búskap á Baugsvegi 3 í
Skerjafirði. Í Skerjafirðinum
starfaði hún hjá KRON við versl-
unarstörf og vann þar með
hléum til ársins 1957 þar til að
þau hjónin byggja í Kópavog-
inum. Þau voru ein af frum-
byggjum Kópavogs. Sama ár og
hún flytur í Kópavog hefur hún
störf í versluninni Vogum við
Víghólastíg og vann þar óslitið í
tæp þrjátíu ár. Árið 1981 hóf
hún störf við ræstingar hjá
Landsvirkjun og vann þar til
ársbyrjunar 2004.
Guðrún verður jarðsungin frá
Kópavogskirkju í dag og hefst
athöfnin klukkan 15.
Guðrúnar og Sveins
eru: 1) Magnína, f.
24. október 1946,
maki Sigurður Sig-
urðsson, f. 10. ágúst
1941. Börn hennar
eru: a) Magnús
Helgi, maki Jóhanna
Þ. Olsen, b) Sveinn,
maki Halla Garðars-
dóttir, og c) fóstur-
dóttir Þorbjörg,
maki Benedikt Þ.
Kristjánsson. 2)
Guðrún Ragna, f. 5.
nóvember 1947,
maki Eiríkur Sigfinnsson, f. 22.
október 1942. Börn hennar eru:
a) Verónika Guðrún, maki Björn
Kristjánsson, b) Páll Grétar,
maki Trine Ch. Andreasen, c)
Þorbjörg, og d) Ingibjörg Lára.
3) Páll Ragnar, f. 6. maí 1952,
maki María Ingvarsdóttir, f. 4.
febrúar 1952. Börn hans eru: a)
Bjarghildur, maki Eyjólfur J.
Einarsson, b) Jóna Magnea, maki
Sigurður Guðjónsson, og c) Jak-
ob. Börn Maríu eru: Jenný, Jó-
hannes, Kjartan og Halldór. 4)
Sigrún Ragna, f. 14. apríl 1957,
maki Kjartan Þórðarson, f. 9.
desember 1953. Börn hennar
eru: a) Guðrún Björg, látin, b)
Ásta Kristín, maki Björgvin M.
Pétursson, c) Guðmundur Páll,
d) Sigrún Berglind, maki Ævar
Valgeirsson, og e) Sigurjón Há-
kon. Dætur Kjartans eru Tinna,
Freyja og Sæunn. 5) Þuríður
Elsku mamma, ég þakka þér fyrir
allt og kveð þig með söknuð í hjarta,
ég veit að pabbi og nafna þín hafa
tekið vel á móti þér.
Ég kveð þig, hugann heillar minning blíð
hjartans þakkir fyrir liðna tíð
lifðu sæl á ljóssins friðar strönd,
leiðir sjálfur Drottinn þig við hönd.
(Guðrún Jóhannsdóttir.)
Þín dóttir
Sigrún.
Með nokkrum orðum langar mig
að minnast Guðrúnar föðursystur
minnar. Gunna frænka var ein af sjö
systkinum frá Tindum og þeirra
yngst. Ég var mjög ung þegar ég
kynntist Gunnu, fór að fara með
Elsku mamma.
Þín er saknað hér í hjarta mínu,
tómarúm ríkir þar.
Ég vil bara að þú vitir að ég er
þér þakklát fyrir allt sem þú gerðir
fyrir mig, þú gerðir mig að þeirri
sem ég er í dag, þú kenndir mér svo
mikið. Ég veit ekki hvort ég hafi náð
að þakka þér nóg, hugur minn og
hjarta eru full af söknuði til þín.
Ég sendi þér kæra kveðju,
nú komin er lífsins nótt.
Þig umvefji blessun og bænir,
ég bið að þú sofir rótt.
Þó svíði sorg mitt hjarta
þá sælt er að vita af því
þú laus ert úr veikinda viðjum,
þín veröld er björt á ný.
Ég þakka þau ár sem ég átti
þá auðnu að hafa þig hér.
Og það er svo margs að minnast,
svo margt sem um hug minn fer.
Þó þú sért horfinn úr heimi,
ég hitti þig ekki um hríð.
Þín minning er ljós sem lifir
og lýsir um ókomna tíð.
(Þórunn Sigurðardóttir.)
Ég elska þig að eilífu, guð geymi
þig, elsku mamma mín.
Þín dóttir
Þuríður.
Við andlát Guðrúnar tengdamóð-
ur og vinar hrannast upp minningar
um góða konu sem reyndist öllum
vel. Hún var með eindæmum sjálf-
stæð kona og dugleg til allra verka
sem hún tók sér fyrir hendur. Hún
hafði gaman af að prjóna og sauma
og nutu vinir og vandamenn góðs af
enda bjó hún yfir mikilli kunnáttu á
því sviði.
Garðyrkja var henni í blóð borin
og bar stóri garðurinn hennar og
Svenna á Víghólastígnum þess
merki. Þau höfðu yndi af að ferðast
um landið og var hálendið þeim hug-
leikið enda ávallt á góðum bílum til
slíkra ferða. Á seinni árum sem
Svenni lifði tóku við utanlandsferðir,
oft á óhefðbundnar slóðir. Einn af
þeirra eftirlætisstöðum var Arizona
og þar eignuðust þau góða vini. Jón
Ingi dóttursonur þeirra dvaldi oft á
tíðum á heimili þeirra hjóna og
reyndist þeim ávallt góður og hjálp-
samur. Í seinni tíð hafði hún fastan
punkt í tilverunni með hlutastarfi
hjá Landsvirkjun og vegna góðvild-
ar og virðingar fékk hún að halda
því starfi til 78 ára aldurs, þökk fyr-
ir það. Guðrún dvaldi undir það síð-
asta þó með hléum á Landspítalan-
um þar sem hún naut hlýju og
góðrar umönnunar af starfsfólki
14E.
Á 50 ára afmæli Guðrúnar orti
tengdamóðir hennar Magnína eftir-
farandi sem lýsir henni vel.
Hjartans Guðrún, heillaósk í kvöld:
hjá þér megi gleðin hafa völd.
Þú átt skilið hrós og allra hól,
hamingjan þér lýsi eins og sól.
Þegar eitthvað mikið á mér lá
óðar fékk ég hjálpina þér frá.
Að vera svona trygg við tengdamóður
telja sumir anzi þungan róður.
Saumakona ég sendi þér mitt hól,
saumað hefur þú mér margan kjól.
Handtök þín með hraði voru þá.
Hjartans vina, þakka allt ég má.
Gestrisni þín gleymast má nú ekki,
get ég þar um dæmt og bezt ég þekki.
Við Magnús Helgason með hlýju sinni
hjartanlega þökkum gömul kynni.
(Magnína Jóna Sveinsdóttir.)
Að leiðarlokum þökkum við Ninna
henni samfylgdina í gegnum árin,
börn okkar og langömmubörn
syrgja ömmu sem var þeim svo góð
og ávallt með hugann hjá þeim.
Minningin er góð og verður vel
geymd í huga okkar allra. Guð blessi
minningu Guðrúnar.
Í guðsfriði,
Sigurður Sigurðsson.
Elsku amma mín, nú ertu farin,
búin að kveðja þennan heim, eftir
sitjum við og hugsum til þín. Allar
stundirnar sem við áttum saman
gegnum árin rifjast nú upp, þótt
þær væru ekki margar síðustu árin
er ég þakklát fyrir hverja einustu
mínútu sem ég átti með þér. Minn-
ingin um þig lifir í hjarta mínu.
Hin langa þraut er liðin,
nú loksins hlauztu friðinn,
og allt er orðið rótt,
nú sæll er sigur unninn,
og sólin björt upp runnin
á bak við dimma dauðans nótt.
(V. Briem.)
Guð geymi þig, elsku amma mín.
Þín
Hafdís.
Elsku amma, ég er að reyna koma
orðum að því hvernig ég get kvatt
þig. Það er erfitt þar sem ég er ekki
tilbúin til þess. Þú áttir eftir að
koma til mín til Danmerkur í sumar
eins og við vorum búnar að tala um
að gæti gerst ef þú værir hress. Ég
GUÐRÚN
SIGURJÓNSDÓTTIR
Örlög Hjartar urðu
að deyja í umferðar-
slysi. Það varð fjór-
tánda banaslysið á
árinu.
Í upphafi 6. áratugarins var ég
einn af sumardrengjunum í sveit að
Brjánsstöðum hjá föðurbróður mín-
um og föður hans, Jóni Þorkelssyni
og konu hans, Guðrúnu Jóhannes-
dóttur frá Eyvík. Systur hans, eft-
irlifandi, eru Bryndís, Brjánsstöðum
og Halldóra, Stærri-Bæ.
A þeim árum var vélvæðing sveita
rétt að byrja en hestar, orf og hrífa
enn í notkun. Vinnudagarnir voru oft
langir og strangir. Hjörtur stækkaði
jörðina með kaupum á aðliggjandi
jörð og bjó lengi með um 400 ær.
Árið 1954 sótti hann unnustu í
Þingvallasveit, Sonju G. Jónsdóttur
HJÖRTUR
JÓNSSON
✝ Hjörtur Jónssonfæddist á
Brjánsstöðum í
Grímsneshreppi 1.
mars 1926. Hann
lést af slysförum 4.
júlí síðastliðinn og
fór útför hans fram
frá Selfosskirkju 14.
júlí.
(f. 1937). Þau giftust
árið 1958. Hún varð
hans mesta lífsgæfa og
stoð og stytta, ekki
síst í veikindum hans.
Þau eignuðust sex
börn sem komust upp
á árunum 1955-68 og
tók yngsti sonurinn,
Sveinn, við kúabú-
skapnum.
Jón Þorkelsson dó
1962 og Guðrún móðir
hans 1975.
Frændi var fé-
lagslyndur og hrókur
alls fagnaðar meðal sveitunga sinna,
auk þess að vera trúmaður og kirkju-
rækinn.
Í heimsóknum mínum kom fyrir
að rætt var um trúmál og velt vöng-
um yfir hvort til væri líf eftir dauð-
ann. Hjörtur var að vonum stoltur af
stóru framlagi til komandi kynslóða í
börnum sínum.
Hann hélt þá lífsreglu bestu, að
lifa sáttur við Guð og menn í trú á
Jesú Krist. Í því eilífðarljósi krist-
innar trúar getum við treyst að
„Drottinn gefi dánum ró en hinum
líkn sem lifa“.
Hörður Þorkell Ásbjörnsson.
Afi minn er farinn.
Sorgin er mikil en
minningarnar eru
margar og verða þær
vel varðveittar. Ég og Bjarki gist-
um af og til heima hjá afa og ömmu
á Ásgarðinum. Okkur fannst alltaf
jafn gaman að koma. Afi spurði
alltaf hvað við vildum í matinn og
hann eldaði eftir óskum okkar. Afi
var frábær kokkur, enda vann hann
sem kokkur á Dettifossi og fleiri
skipum. Pylsurnar sem afi gerði
voru sérstaklega góðar, þær voru
soðnar en það tíðkaðist ekki heima
hjá okkur. Ísblóm fengum við síðan
í eftirrétt og það bara hjá afa og
ömmu. Afi var ekta afi því alltaf
lumaði hann á einhverju góðgæti í
meðalaskápnum. Blátt opal átti
hann alltaf. Afi setti alltaf spólu í
tækið. Voru það þættirnir Fastir
liðir eða gömul áramótaskaup sem
hann hafði tekið upp. Tommi og
Jenni voru líka í uppáhaldi. Í mörg
ár vorum við alltaf í mat hjá afa og
ömmu á fimmtudögum. Við Bjarki
fengum alltaf að velja hvað yrði í
kvöldmat, en fjölbreytileikinn hjá
JÓN
SÆMUNDSSON
✝ Jón Sæmunds-son fæddist í
Hlíðarhúsi á Siglu-
firði 3. júní 1923.
Hann lést á líknar-
deild Landspítalans
í Kópavogi 17. júlí
síðastliðinn og var
útför hans gerð frá
Fríkirkjunni í
Reykjavík 25. júlí.
okkur systkinum var
nú ekki mikill og ósk-
uðum við alltaf eftir
kjötbollum í brúnni
sósu með kartöflu-
mús. Þetta eldaði afi
af einskærri snilld.
Afi vann sem bryti í
mörg ár á millilanda-
skipum. Þegar hann
kom heim var hann
alltaf hlaðinn gjöfum
og ýmsu góðgæti
handa barnabörnun-
um. Fyrstu Barbie-
dúkkuna mína fékk
ég frá afa og hafði hann keypt hana
í Ameríku. Þessa dúkku á ég enn
þótt að ég sé orðin tuttugu og
tveggja og flestar aðrar dúkkur
hafi verið gefnar. Afa var alltaf
annt um að ég mundi klára
menntaskólann og verða stúdent.
Þegar ég sagði honum fyrir
skömmu að ég ætlaði aftur í skóla
varð hann mjög stoltur en sagði
líka: „Þú ert líka orðin svo gömul“.
Afi og amma hafa spurt mig hvar
hringurinn sé og hvenær ég ætli að
gifta mig í rúm tvö ár. Afi spurði
mig síðast að því þegar hann dvaldi
á líknardeildinni í Kópavoginum,
skömmu áður en hann dó. Mér
þykir það leiðinlegt að hann skuli
ekki geta verið viðstaddur giftingu
mína.
Afi er farinn frá okkur, en ég
veit það að ég mun hitta hann aftur
í paradís. Góði Guð, gef ömmu og
fjölskyldunni allri styrk.
Margrét Kristjana.